Morgunblaðið - 25.02.1998, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
MAGNÚS Bjarnason, starfsmaður SR-mjöls, með loðnumjöl í lúkunum
við geymsluplássið sem tekur um fjögur þúsund tonn.
GUÐJÓN Engilbertsson vinnslustjóri við rafketilinn sem hitar upp
gufu sem notuð er við þurrkun mjölsins.
Lifnar yfir
loðnuvinnslu
✓
Akveðinn glampi í augum og kraftur í
mannskapnum einkennir hrognatíma
loðnuvertíðar. Mikið er í húfí og allir leggj-
ast á eitt, skrifar Guðjón Guðmundsson
eftir heimsókn á Suðurnes í gær. Er skipin
leggjast að bryggju er ekki beðið boðanna,
nokkrar loðnur eru teknar og kreistar og
það birtir yfír andlitum þegar gulleit
hrognakaka streymir út um búkinn.
Morgunblaðið/RAX
LOÐNUBRÆÐSLA SR-mjöls í Helguvík er snyrtilegur vinnustaður,
laus að mestu við reyk- og lyktarmengun.
UM litla silfraða fískinn snýst baráttan víða um land þessa dagana. Myndin er tekin skömmu eftir að Hákon
kom til hafnar í Ilelguvík í gær.
LÍF er að færast í loðnuvinnslu á
Suðurnesjum, loðnubræðslur eru í
gangi allan sólarhringinn og stefnt
var að því að hefja fyrstu frysting-
una í Saltveri hf. í Njarðvík í gær.
Hákon ÞH landaði um 1.200 tonn-
um í Helguvík í gær og biðu menn
spenntir eftir niðurstöðum athug-
ana japanskra eftirlitsmanna á
staðnum um hvort hún væri fryst-
ingarhæf. Það reyndist vera á
mörkunum en þó var ráðgert að
frysta einhvem hluta farmsins.
Hákon lagðist að bryggju í
Helguvík um kl. 11 og hófst þegar
löndun. Áhöfnin var landlegunni
fegin þótt ekki gæfist langur tími til
hvíldar því loðnan bíður ekki eftir
mannfólkinu. Það var strax drifið í
því að opna lúgur og koma löndun-
arkrana að skipshlið. Áhöfnin vildi
sjá fenginn og menn tíndu nokkrar
loðnur og kreistu. Það birti yfir
andlitum þegar gulleit hrognakaka
streymdi út um búkinn. Því meira
sem fer í frystingu því meira fer í
launaumslög sjómanna.
Loðnan klipin
og kreist
Strax á bryggjukantinum var far-
ið að skoða fenginn nákvæmar,
hausar klipnir af búknum og hrogn
kreist í lófa. Japanirnir voru ánægð-
ir með að loðnan var átulaus og eins
voru þeir þokkalega sáttir við fersk-
leika hennar miðað við átján tíma
siglingu af miðunum. Þeir töldu að
hrognalylling gæti verið á bilinu 15-
16% en höfðu áhyggjur af því að það
gæti skort á ferskleikann neðar í
lestunum.
Helguvíkurhöfn er ein fullkomn-
asta loðnuhöfn landsins. Þar er
loðnunni dælt beint frá skipi um
leiðslur sem liggja undir bryggjunni
inn í flokkunarhús Helguvíkurmjöls
hf. Löndunarlagnir eru einnig beint
frá bryggju inn í loðnubræðslu SR-
mjöls, þar sem framleitt er hágæða-
mjöl og lýsi. Það koma því fáar
hendur nálægt þessum hluta starfs-
ins, hráefnið er sogað úr lestunum
inn í hús.
Flokkað og brætt
Helguvíkurmjöl tók við farminum
og loðnan streymdi eftir færibönd-
um sem flokkaði hrygningarloðnuna
í tvo stærðarflokka. Þorsteinn Erl-
ingsson, eigandi Helguvíkurmjöls,
sagði að loðnuflokkarinn hefði áður
verið um borð í Hákoni sem nú lá
við bryggjuna stútfullur af loðnu. 22
þúsund tonn af loðnu voru flokkuð í
Helguvíkurmjöli á síðustu loðnuver-
tíð. „Ég er nú búinn að vera við
þetta frá 1967 svo það er ekki mikil
spenna lengur í kringum þetta,“
sagði Þorsteinn.
Reyndar er hrygnan að jafnaði
ekki nema í hæsta lagi um 20% af
öllum farminum. Hængurinn fór um
aðrar rennur og var dælt þaðan
beint inn í loðnubræðslu SR-mjöls
sem er spölkom frá Helguvíkur-
mjöli.
Ekið var með hrygnuna til Njarð-
víkur þar sem starfsfólkið beið eftir
því að hefja fyrstu frystinguna á
þessari vertíð á hinn dýrmæta
Japansmarkað strax eftir hádegið.
I SR-mjöli er Guðjón Engilberts-
son vinnslustjóri. Hann vísar að-
komumönnum strax á sitt helsta
stolt, stóran rafketil sem settur var
upp í verksmiðjunni fyrir skömmu.
Rafketillinn leysir af hólmi hefð-
bundna olíukatla sem notaðir eru til
að hita upp gufu sem notuð er til að
þurrka mjölið. Guðjón segir að hægt
sé að nota rafketilinn þar sem nóg
sé til af raforku á Suðumesjum.
Ketillinn tekur meiri orku en Kefla-
vík og Njarðvík til samans. Hann sé
auk þess mun umhverfisvænni á all-
an hátt, ódýrari í rekstri og mun
minni hætta á óhöppum eins og ket-
ilsprengingum. Ketillinn var keypt-
ur að utan af norsku sjúkrahúsi þar
sem hann var aldrei tekinn í notkun.
Það vekur reyndar mikla athygli
þegar gengið er um loðnubræðslu
SR-mjöls og reyndar einnig áður en
komið er að verksmiðjunni að þar
er ekki hin illræmda peningalykt í
lofti. Verksmiðjan er afar hreinleg,
tækjabúnaður nýr af nálinni, að
mestu leyti smíðaður hérlendis, og
geymslupláss með því mesta sem
loðnuverksmiðjur geta státað af.
Fjórtán menn vinna á tveimur vökt-
um allan sólarhringinn í verksmiðj-
unni.
Högg- ;
myndir vid
Skerjafjörð
BORGARRÁÐ samþykkti í gær að
heimila útisýningu Myndhöggvara-
félags Reykjavfkur á strandlengju
borgarinnar við Skerjafjörð og
verður sýningin opnuð í tengslum
við Listahátíð í vor.
Þátttakendur í sýningunni eru 25
félagar í Myndhöggvarafélaginu og
mun hver þeirra sýna eitt rýmis-
listaverk, en þau verða öll unnin
sérstaklega fyrir þessa sýningu. I
erindi Myndhöggvarafélagsins og
sýningarstjórnar „Strandlengjunn-
ar“ til menningannálanefndar borg-
arinnar segir að sýningin sé fyrsti |
áfangi í stóru verkefni Myndhöggv-
arafélagsins, sem ætlunin sé að nái
hámarki árið 2000, þegar Reykjavík )
verður ein af menningarborgum
Evrópu.
I erindinu segir að lengd sýning-
artíma sé enn óákveðin, hugsanlegt
sé að sum veririn standi aðeins yfir
sumarið, önnur í tvö eða þrjú ár og
jafnvel lengur. Borgarráð sam-
þykkti að heimila sýninguna fyrir
sitt leyti, enda standi verkin ekki }
lengur en sýningartímann, nema ,
borgarráð ákveði annað um einstök ,
verk. )
--------------
Borgin styrkir fræðslu-
og skemmtigarð
Heiðinn siður
og þjóðsöguleg \
arfleifð
BORGARRÁÐ samþykkti í gær að
styrkja verkefni Guðbrands Gísla-
sonar „Huliðsheimar - Vætta-
byggð“ með 1,2 milljóna króna
framlagi 1998 og fyrirheiti um 600
þús. kr. 1999. Markmið verkefnisins
er að í Reykjavík rísi fræðslu- og
skemmtigarður, þar sem settur
verði fram með nýjustu tækni og á ,
ljóslifandi hátt heiðinn siður norð- J
ur-evrópskra þjóða og þjóðsöguleg )
arfleifð íslendinga gerð sýnileg. }
Framlag borgarinnar nemur
þriðjungi af áætluðum kostnaði við
forspá, þ.e. hagkvæmnisathugun
sem sýni hvort rekstur slíks
fræðslu- og skemmtigarðs geti ver-
ið hagkvæmur.
------♦♦♦
Geðhjálp kærir J
dreifibréf |
GEÐHJÁLP hefur ákveðið að kæra
til rikissaksóknara nafnlaust bréf
sem dreift var í öll hús í Hveragerði
í seinustu viku, en það innihélt full-
yrðingar varðandi dvalarheimilið Ás
og vistmenn þar. Óskað er eftir að
embætti ríkissaksóknara hlutist til
um opinbera rannsókn á málinu.
í tilkynningu frá Geðhjálp segir }
að bréfið hafi innihaldið óhróður og
dylgjur um geðsjúkt fólk.
„Geðhjálp vonar að rannsóknin )
leiði í ljós hverjir eru upphafsmenn
þessara æsingaskrifa svo íhuga
megi málsókn gegn þeim. Ef rótin
að þessum æsingaskrifum eru póli-
tískar deilur, vill Geðhjálp brýna
fyrir mönnum að sýna þá dóm-
greind að draga ekki inn í þær sak-
laust fólk og sjúklinga sem ekki
geta borðið hönd fyrir höfuð sér,‘ }
segir í frétt frá Geðhjálp.
------♦-♦♦----
Skeiðarár-
hlaupi að ljúka
SKEIÐARÁRHLAUP er nú í rén-
un og er gert ráð fyrir að því ljúki
innan tíðar.
Að sögn vatnamælingamanna }
mældist vatnsmagn hlaupsins 570
rúmmetrar á sekúndu þegar mest j
var en í gærmorgun reyndist það )
komið niður í 340 rúmmetra.