Morgunblaðið - 25.02.1998, Qupperneq 6
T 8Ö6I SAÖflðU'í ('S ílt)DACt11'>ír/Ö]M
6 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998
FRETTIR
CððÁLlSMtJöíföM
MORGUNBLAÐIÐ
Ógilding yfírtöku Myllunnar á Samsölubakaríi
Engar aðgerðir fyrr
en endanleg niður-
staða er komin
SAMKEPPNISYFIRVÖLD munu
ekki ganga hart eftir því að ógild-
ing á yfirtöku Myllunnar á Sam-
sölubakaríi komi til framkvæmda
fyrr en endanleg niðurstaða áfrýj-
unamefndar samkeppnismála ligg-
ur fyrir verði ákvörðun samkeppn-
isráðs um ógildinguna áfrýjað til
áfrýjunarnefndarinnar eins og for-
svarsmenn MyOunnar hafa gefið í
skyn að þeir muni gera.
Verði endanleg niðurstaða máls-
ins sú að yfírtaka MyOunnar á
Samsölubakaríi verði ógild gilda
engar reglur um það hvernig staðið
verði að ógildingu kaupa Myllunn-
ar á Samsölubakaríi. Að sögn Guð-
mundar Sigurðssonar, forstöðu-
manns samkeppnissviðs Sam-
keppnisstofnunar, er samkvæmt
samkeppnislögum einungis hlut-
verk samkeppnisyfirvalda í þessu
tOfelh að taka ákvörðun um það að
yfirtakan sé ógild, en slík ákvörðun
tekur gildi þegar hún er tilkynnt
málsaðilum nema annað sé sér-
staklega tekið fram.
„Síðan er það annarra en okkar
Andlát
ÞÓRARINN ÓLAFSSON
ÞÓRARINN Ólafsson,
yfirlæknir á gjörgæslu-
deild Landspítalans,
lést á Landspítalanum í
fyrrakvöld. Hann var
fæddur 20. mars 1935
og því 62 ára að aldri.
Þórarinn lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
vorið 1954 og
kandídatsprófi frá
læknadeild Háskóla Is-
lands 1961. Hann
stundaði framhaldsnám
og stárfaði í Danmörku
og Svíþjóð og var sér-
fræðingur í svæfingum og deyfing-
um. Hann var yfirlæknir á svæf-
inga- og gjörgæsludeild sjúkra-
hússins í Vánersborg-Trollhattan í
Svíþjóð og starfaði víðar á Norður-
löndum í afleysingum.
Árið 1975 var hann
skipaður yfirlæknir
svæfínga- og gjör-
gæsludeildar Land-
spítalans og gegndi
því starfi til dauða-
dags. Þórarinn kenndi
við Háskólann, Nýja
hjúkrunarskólann og
Ljósmæðraskólann og
kenndi einnig á árum
áður erlendis. Hann
var á síðasta ári kjör-
inn heiðursfélagi Fé-
lags svæfíngalækna,
var um tíma forseti
Félags norrænna
svæfingalækna og sat í stjórn
samtaka evrópskra svæfinga-
lækna.
Kona Þórarins er Björg Ólafsson
frá Osló. Þórarinn lætur eftir sig
sex böm.
að útfæra hvernig þetta er gert en
það geta verið margháttaðir samn-
ingar í þessu tilfelli milli Myllunnar
og Mjólkursamsölunnar sem okkur
er ókunnugt um. Það eina sem
samkeppnisráð gat gert og má
gera er að kveða upp úrskurð um
það að yfirtakan sé ógild og síðan
er það þeirra sem hlut eiga að máU
að ganga frá framhaldinu,“ sagði
Guðmundur.
Hægt að skjóta
málinu til dómstóla
Samkvæmt samkeppnislögum
er veittur fjögurra vikna frestur
til að áfrýja máli til áfrýjunar-
nefndar samkeppnismála frá því
úrskurður samkeppnisráðs er
kveðinn upp og áfrýjunarnefndin
hefur síðan sex vikur til að fjalla
um málið. Þannig geta að hámarki
liðið 10 vikur frá því ákvörðun
samkeppnisráðs er birt þar til nið-
urstaða áfrýjunarnefndarinnar
liggur fyrir.
Þegar sú niðurstaða Kggur fyrir
er síðan hægt að skjóta málinu til
dómstóla, en að sögn Guðmundar
frestar slíkt málskot ekki gildis-
töku ákvörðunar samkeppnisyfir-
valda undir venjulegum kringum-
stæðum.
Guðmundur sagði að forsvars-
mönnum Myllunnar og Samsölu-
bakarís hefði á sínum tíma verið
kunnugt um að Samkeppnisstofn-
un myndi skoða kaup Myllunnar
á Samsölubakaríi ef af þeim yrði
og þeim hefði verið í lófa lagið að
fá umsögn stofnunarinnar áður
en kaupin voru gerð. Þeir hefðu
hins vegar kosið að fara ekki þá
leið.
Ruslaskemma brann til kaldra kola
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GRÍÐARLEGA mikill eldsmatur var í skemmunni og logaði hún end-
anna á milli þegar slökkvistarf hófst.
Tjónið talið nema
tugum milljóna
TALIÐ er að tugmilljóna króna
tjón hafi orðið þegar sorpflokkunar-
skemma við Reykjanesbraut í eigu
Gámaþjónustunnar brann til kaldra
kola í gærmorgun eftir að eldur
kom upp í rusli. Vegfarandi um
Reykjanesbraut tilkynnti um mik-
inn eld í skemmunni um klukkan
hálfsex í gærmorgun og þegar
slökkvilið kom á staðinn var bygg-
ingin alelda.
Allt tiltækt slökkvilið var sam-
stundis kallað út og þegar slökkvi-
starf hófst logaði skemman stafna á
milli, samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliðinu í Hafnarfirði.
Áhersla á að verja
næstu skemmu
Þar sem Ijóst þótti að ekki yrði
við neitt ráðið, einbeittu slökkviliðs-
menn sér að því að verja skemmu
sem stendur við hlið hinnar, enda
stóð vindur á hana. Gera þurfti ráð-
stafanir til að afla meira vatns og
komu þrír vatnsbílar til viðbótar
þeim sem slökkviliðsmenn höfðu til
umráða í upphafi, jafnframt því sem
beðið var um vatnsbfl frá slökkvilið-
inu á Keflavíkurflugvelli en ekki
voru tök á að senda bifreið þaðan.
Gríðarlegur eldsmatur var í sorp-
inu í skemmunni og er talið að þar
hafi verið um tæp 1.000 tonn af
rusli. Slökkviliðsmenn reyndu að
halda útbreiðslu eldsins í skefjum í
um þrjár klukkustundir en þá var
talið nægja að setja vakt á bruna-
stað. Talsverðar sprengingar voru
samfara eldinum og héldu þær
áfram fram eftir gærdeginum, enda
kraumaði eldur í rusli langt fram
eftir degi. Ástæða þótti til að loka
svæðinu fyrir umferð af þeim sök-
um.
Rannsókn á eldsupptökum stend-
ur yfir, en grunur leikur á að um
svo kallaða sjálfsíkveikju hafi verið
að ræða, enda geta eldfimar loftteg-
undir rnyndast í sorphraukum.
Benóný Ólafsson framkvæmda-
stjóri Gámaþjónustunnar segir að
auk límtrésskemmunnar hafi meðal
annars tveir gámar orðið eldinum
að bráð, beltaskurðgrafa og dráttar-
vél. Tjónið nemi tugum milljóna
króna en eignir virðist vera tryggð-
ar.
Laugavegur endurbyggður frá Frakkastíg að Barónsstíg og lokaður bflum fram á sumar
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Guðjón Hilmarsson og
Jón Sigurjónsson frá Laugavegssamtökunum og Stefán Hermanns-
son borgarverkfræðingur við undirritun samkomulags um endur-
byggingu á Laugavegi.
Greiða leið veg-
farenda á fram-
kvæmdatíma
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri og fulltrúar Lauga-
vegssamtakanna þeir Guðjón
Hilmarsson og Jón Sigurjónsson
hafa undirritað samkomulag vegna
endurbyggingar á Laugavegi frá
Frakkastíg að Barónsstíg en þær
framkvæmdir hefjast í dag. Verður
gatan í fyrstu lokuð íyrir bflaumferð
frá Frakkastíg að Vitastíg. Gert er
ráð fyrir verklokum 15. júlí og er
áætlaður kostnaður 160 milljónir.
Ellefu ár eru síðan lokið var við
endurbyggingu að Frakkastíg og
kom fram hjá borgarstjóra að gert
væri ráð fyrir 5 milljónum á fjár-
hagsáætlun þessa árs til að hefja
hönnun á Laugavegi við Hlemm.
Borgarstjóri sagði að reynt yrði að
sjá til þess að endurbætumar trufl-
uðu sem minnst umferð um Lauga-
veg aðra en bílaumferð og yrði séð til
þess að gangandi vegfarendur ætti
þar greiða leið um. I samkomulag-
inu, sem undirritað hefur verið, er
gert ráð fyrir að komið verði á sam-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
TÖLVUMYND af Laugavegi eins og hann mun líta út séður frá Frakkastíg en endurnýjun götunnar hefst í
dag. Skipt verður um allar lagnir, yfírborð gönguleiða og bifreiðastæði hellu- og steinlögð en akbraut
malbikuð. Gert er ráð fyrir að steinarnir verði sandgulir að lit.
starfshópi, sem skipaður er fulltrú-
um borgarinnar og fuOtrúum Lauga-
vegssamtakanna auk þess sem ráð-
inn hefur verið ráðgjafi til að aðstoða
Laugavegssamtökin við þau vanda-
mál sem upp kunna að koma á með-
an á framkvæmdum stendur. Enn-
fremur er ákvæði í samningnum um
að kannað verði hvort fjölga megi
bflastæðum á baklóðum húsa við
Laugaveg í framtíðinni.
Stefán Hermannsson borgar-
verkfræðingur sagði að mun betri
ráðstafanir yrðu gerðar til að auð-
velda gangandi vegfarendum að
komast um, bæði eftir götunni og
yfir. Götugögn eins og t.d. bekkir,
ljósastaurar og „pollar", yrðu valin
í samráði við Laugavegssamtökin
en ákveðið hafi verið í samráði við
garðyrkjustjóra að gróðursetja
aspir meðfram götunni. Umferð
bíla á þessum hluta Laugavegar
verður beint um Grettisgötu og
Hverfisgötu, þar sem heimiluð
veður tvístefna frá Barónsstíg og
allar vinstri beygjur leyfðar frá
Hverfisgötu til að liðka fyrir um-
ferðinni.
„Við erum mjög ánægðii- yfir að
verkið skuli vera hafið,“ sagði Guð-
jón Hilmarsson. „Þessar breytingar
munu hafa góð áhrif þegar þeim er
lokið.“ í sama streng tók Jón Sigur-
jónsson, sem telur mikilvægt að
umhverfi Laugavegs sé hlýlegt og
aðlaðandi. Ekki mætti gleyma að
með endurbyggingunni yrði lögð
hitalögn í götu og gangstéttar.