Morgunblaðið - 25.02.1998, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 25.02.1998, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 7 FRÉTTIR Övenju mikil úrkoma var á hálendinu í haust Afrennsli af vatnasviðum nokkurra vatnsfalla ofan mælistöðva á 4. ársfjórðung - x' Goödalabrú y(T MeðalrennsH ja y ársfi6rðungs\ Þjórsá Sandafell- Meðalrehn^.\ ársfjórðúngs'- 281,0 m3/s Djúpá/'A i : Meðalrennsli ár&jorðjmgs 20,5’mVs Afrennsli af vatnasviði cvj£47lársfjórðungi 1997 .im. v. meðaltal sama árs- fjórðungs árinl 976-1990 JJjj Yfir 160% af meðaltali Hi 140-160% af meðaltali MM120-140% af meðaltali • . 100-120% afmeðaltali 80-100% af meðaltali ÓVENJUMIKIL úrkoma var á há- lendi landsins s.l. haust, að því er fram kemur í Áráttunni, ársfjórð- ungslegu yfirliti Vatnamælinga fyrir október-desember 1997. A stórum svæðum á hálendinu er meðalrennsli 120-140% af rennsli síðasta ársfjórðungs áranna 1976- 1990. I yfirlitinu segir að ekki fari fjarri að mestöll úrkoma vetrarins hafi skilað sér í ár landsins. Pólitískar svipt- ingar í Garðinum Garði. Morgunblaðið. NOKKUR undanfarin kjörtímabil hafa tveir listar verið í framboði í hreppsnefndarkosningunum í Garðinum en nú stefnir í að þar verði breyting á. Fjórir fyrrver- andi hreppsnefndarfulltrúar H- listans, sem voru andvígir próf- kjöri listans sem fram fer nk. laug- ardag, hafa boðað til fundar í kvöld í Samkomuhúsinu og eins og segir í fundarboði verður rætt um sveit- arstjórnarkosningarnar í maí nk. og undirbúning að nýju framboði. Sjö manns sitja í hreppsnefnd og á H-listinn fimm fulltrúa í nú- verandi hreppsnefnd. Aðeins einn þeirra sem nú sitja gaf kost á sér í prófkjöri H-listans, en það er Mar- ía Anna Eiríksdóttir. Þeir sem ekki gáfu kost á sér í prófkjörið og boða til fundarins í kvöld eru nú- verandi oddviti, Sigurður Ingvars- son, Ingimundur Guðnason, Jón Hjálmarsson og Ólafur Kjartans- son. I-listinn, sameinaður listi fram- sóknar- og vinstrimanna, hefir ekki ennþá ákveðið sinn lista en þeir eiga tvo menn í hreppsnefnd. ----------------- Ars fangelsi fyrir kynferð- isafbrot HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 12 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot árið 1990 gagnvart stjúpsyni hans sem þá var 10 ára gamall og árið 1995 gagnvart 9 ára gamalli dóttur sinni. Þá var maðurinn dæmdur til að greiða 600 þúsund krónur í miskabætur til drengsins, en móð- ir hans hafði krafist 2,5 milljóna króna í miskabætur fyiir hans hönd. I dómi héraðsdóms kemur fram að maðurinn hafi játað brot sín. Brot ákærða séu alvarlegs eðlis og feli í sér misnotkun á aðstöðu og trúnaðartrausti. Við ákvörðun refsingar þyki mega líta til þess að ákærði hafi gengist við brotum sínum, að brot hans leiddu til hjónaskilnaðar og að konan hafi fengið megnið af eigum búsins við skiptin. Þá þyki mega taka nokk- urt tillit til þess hve langt er um liðið frá brotum ákærða, einkum gagnvart drengnum. Fram kemur í dómnum að ákærði hafi ekki sætt refsingum áður sem máli skipta og að hann hafi leitað bóta á áfengissýki sinni og kynferðisbrenglun. Refsing hans þyki hæfílega ákveðin 12 mánaða fangelsi og vegna þess hve brot mannsins séu alvarleg þyki ekki fært að fresta refsingu skil- orðsbundið. í Grímsá við Grímsárvirkjun var meðalrennsli síðasta ársfjórðungs 1997 160% eða meira af meðal- rennsli síðasta ársfjórðungs 1976- 1990 og í Jökulsá vestri við Goð- dalabrú var meðalrennslið 140- 160% af meðalrennsli síðasta árs- fjórðungs 1976-1990. Óvenju mildur vetur I Aráttunni segir að frá því fyrsta tölublað blaðsins kom út hafi aldrei verið birt Islandskort þar sem kaldir litir litaskalans eru jafn ríkjandi á vatnasviðunum. Köldu litirnir merkja meðalrennslið sem hlutfall af meðalrennsli sama árs- fjórðungs árin 1976-1990. í Aráttunni segir jafnframt að mönnum hafi orðið tíðrætt um hvað veturinn sé búinn að vera mildur og það þurfi hvorki neitt sérstakt hugmyndaflug né vísinda- menntun til að fá gmn um hvernig sá afbrigðileiki tíðarfarsins tengist litakulda Islandskortsins. Þar er vitnað til gagna Veðurstofunnar varðandi meðalhita ársfjórðungs- ins í Reykjavík sem var 2,3 stigum hærri á viðmiðunartímabilinu og á Akureyri og við Homafjörð þar sem frávikið var 1,6 gráður á Celsi- us. Úrkoman hafi verið 15% yfir meðallagi í Reykjavík og 27% á Akranesi en rétt undir því á Akur- eyri. „Við þessi hitaskilyrði fellur auð- vitað mikill hluti úrkomunnar sem regn og skilar sér snarlega í vatns- föllin. Og nokkuð sem meðalhitinn segir ekki: Á ársfjórðungnum komu að auki hitatoppar sem virki- lega var talandi um, t.d. var þann 15. desember hámarkshitinn á Akureyri 15 gráður á Celsius og lágmarkshitinn 10 gráður á Celsi- us. Við slíkar aðstæður fer fónnum að verða hætt í 1.000 metra hæð yf- ir sjávarmáli og jafnvel ofar. Það fer því víst ekki fjarri að mestöll úrkoma vetrarins hafi skilað sér í árnar,“ segir í Áráttunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.