Morgunblaðið - 25.02.1998, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998
FRÉTTIR
STJÓRNSÝSLAN „In Memoriam“.
Lögmaður sýknaður af
kröfu um félagsgjöld
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað
lögmann í Reykjavík af kröfum
Lögmannafélags íslands, sem
krafði hann um greiðslu félags-
gjalda fyrir árin 1993,1994 og 1995.
Héraðsdómur hafði dæmt manninn
til að greiða skuldina.
Niðurstaða Hæstaréttar byggist
á því að Lögmannafélagið hafi ekki
orðið við áskorunum mannsins um
að upplýsa hve stórum hluta félags-
gjaldanna er varið til að sinna lög-
boðnu hlutverki félagsins og hve
stór hluti þess standi undir öðru fé-
lagsstarfi.
Lögum samkvæmt er lögmönn-
um skylt að hafa með sér félag, sem
hefur ýmsar eftirlitsskyldur og úr-
skurðarvald varðandi störf lög-
manna. Lögmaðurinn, sem hafði
verið félagi frá 1962, lýsti sig fúsan
að greiða árgjöld vegna slíkrar
starfsemi á vegum Lögmannafé-
lagsins en kvaðst hafna kröfum um
þátttöku í kostnaði vegna „félags-
málapakka" þess, svo sem rekstrar
sumarhúsa, bridsklúbbs, taflklúbbs
og jólatrésskemmtanahalds.
Argjald félagsmanna í Lög-
mannafélaginu er 22 þúsund krón-
ur. I málinu kom fram að ástæða
þess að lögmaðurinn hélt uppi vöm-
um gegn kröfunni var sú að honum
hafði verið neitað um að kjósa á að-
alfundi árið 1994 á þeim forsendum
að hann skuldaði árgjald 1993. Það
taldi hann valdníðslu, gekk af fundi
og hefur ekki greitt árgjöldin síðan.
Hann kvaðst telja að þar sem um
skylduaðild væri að ræða væri ekki
hægt að svipta hann kosningarétti
þrátt fyrir vangoldið árgjald.
Þá kom fram í héraðsdómi að lög-
maðurinn var ósáttur við að mikið
af starfsemi félagsins kæmi ekki
beinum hagsmunum lögmanna við.
Ef einhverjir menn í Lögmannafé-
laginu vildu reka sumarhús, ganga í
lögmannasamtök erlendis, kaupa
orgel, spila fótbolta við fanga á
Litla-Hrauni o.s.frv. ættu þeir að
borga það af fúsum og frjálsum vilja
úr eigin vasa.
Fleiri félög með
lögbundna aðild
Eins og fyrr sagði byggðist dóm-
urinn á því að Lögmannafélagið
hefði ekki orðið við því að aðgreiða
kostnað af starfsemi félagsins eftir
því hvaða þættir hennar teljist
nauðsynlegir vegna hins lögboðna
hlutverks og hverir ekki. Félagið
var einnig dæmt til að greiða lög-
manninum 300 þús. kr. í málskostn-
að.
Marteinn Másson, framkvæmda-
stjóri Lögmannafélagsins, sagðist í
fljótu bragði ekki telja að dómur
Hæstaréttar hefði fordæmisgildi
fyrir önnur félög þar sem menn eru
skyldaðir til félagsaðildar með lög-
um, þ.e. húsfélög, veiðifélög og líf-
eyrissjóði.
Marteinn sagði að undanfarin ár
hefði verið í gangi talsverð umræða
innan félagsins, óháð þessu máli,
um að taka upp skiptingu í anda
þess sem tíðkast meðal lögmanna í
Danmörku. Þar, eins og hvarvetna í
Evrópu nema í Noregi, eru lög-
menn skyldaðir til félagsaðildar, að
sögn Marteins. Danskir lögmenn
hafa nú þann hátt á að láta Lög-
mannafélag annast skyldubundna
þáttinn í félagsstarfinu en hafi
stofnað einkahlutafélag um þjón-
ustustarfsemina.
Marteinn kvaðst hafa kynnt sér
þessi mál erlendis fyrir hönd LMFÍ
og segir líklegt að málið verði tekið
upp á aðalfundi í næsta mánuði. Sú
tímasetning tengist ekki dóminum
heldur hinu að líkur séu á að Al-
þingi afgreiði frumvarp til nýrra
laga um lögmenn fyrir vorið.
Nýjar vörur
Eldhúslína
Diskamottur, 515 kr. stk. • Pottaleppar, 290 kr. stk.
Stólasessur, 1.410 kr. stk.
0>
a\
œ
X
=>
<
I gluggatj aldadeild, Skeifunni 8
MORGUNBLAÐIÐ
Forvarnastarf á Norðurlandi eystra
Við getum betur
Snjólaug Stefánsdóttir
Ráðstefna um for-
varnastarf með
áherslu á vímu-
efnavarnir á Norður-
landi eystra verður hald-
in á Húsavík á morgun,
fimmtudaginn 26. febrú-
ar. Ráðstefnan er haldin
á vegum áætlunarinnar
Island án eiturlyfja árið
2002 í samstarfi við
Húsavíkurbæ og önnur
sveitarfélög á Norður-
landi eystra svo og
landssamtökin Heimili
og skóla.
Snjólaug Stefánsdótt-
ir er verkefnisstjóri
áætlunarinnar ísland án
eiturlyfja og hefur
ásamt fleirum séð um
skipulagningu ráðstefn-
unnar.
„Við getum betur“ er yfir-
skrift ráðstefnunnar og þetta er
fyrsta ráðstefnan í ráðstefnuröð
sem haldin er^ að frumkvæði
áætlunarinnar Island án eitur-
lyfja. „Við hyggjumst síðan
halda ráðstefnu sem þessa í öll-
um landshlutum."
- Hver verða meginviðfangs-
efnin á ráðstefnunni?
„Að kynna niðurstöður úr
könnuninni Ung 97 sem unnin
var á vegum Rannsóknastofnun-
ar uppeldis- og menntamála
undir handleiðslu dr. Þórólfs
Þórlindssonar prófessors. Hann
verður með fyrirlestur á ráð-
stefnunni á Húsavík sem og á
öðrum þeim stöðum sem við
komum til með að halda þessar
ráðstefnur á. Þórólfur mun með-
al annars gera grein íyrir því
hvemig ástandið er í viðkomandi
landshlutum.“
- Hvemig er ástandið á Norð-
urlandi eystra ef miðað er við
aðra landshluta?
„Samkvæmt niðurstöðum áð-
umefndrar könnunar reykja
16,5% nemenda í 9. og 10. bekk á
Norðurlandi eystra og 7,5%
nemenda í þessum árgöngum
hafa prófað hass. Þetta era
ískyggilegar tölur þótt ástandið
sé ekki verst á Norðurlandi
eystra.“ Snjólaug segir að
Þórólfur muni fara ítarlega yfir
þessar tölur og tengja þær ýms-
um félagslegum þáttum, til
dæmis tómstundum og uppeldis-
málum unglinga.
- Önnur viðfangsefni?
„Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra mun ávarpa ráð-
stefnuna og einnig bæjarstjórinn
á Húsavík. Fulltrúar frá Húsa-
vík, Akureyri og Dalvík verða
með umfjöllun um forvarnastarf
í sínum bæjarfélögum og m.a.
mun Soffía Gísladóttir, félags-
málastjóri á Húsavík, kynna
verkefni sem unnið hefur verið á
Húsavík í samvinnu við SÁÁ.“
Snjólaug bendir á að nemend-
ur muni í málstofu fjalla um hug-
myndir sínar og viðhorf til for-
vamastarfs. Málstof-
unni stjóma fulltrúar
íþrótta- og tóm-
stundamála í þessum
bæjarfélögum.
Unnur Halldórs-
dóttir írá Heimili og skóla verð-
ur með málstofu um aga og gild-
ismat í uppeldismálum og Krist-
ín Sigfúsdóttir, formaður vímu-
varnanefndar Akureyrar, ásamt
fulltrúum foreldra verður með
málstofu um aðgerðir gegn sölu
og dreifingu áfengis til barna og
unglinga. Að lokum mun Sturla
Kristjánsson verða með mál-
stofu um hlutverk nemenda-
vemdarráða og hvernig virkja
má þau til öflugri greiningar í
þessum rnálurn."
►Snjólaug Stefánsdóttir er
fædd í Hafnarfirði árið 1951.
Hún lauk phil. cand. prófi í upp-
eldisfræði frá Háskólanum í
Uppsölum árið 1980 og námi í
fjölskyldumeðferð frá Institut
fur paar und familientherapie
árið 1984. Snjólaug lauk náms-
ráðgjöf frá Háskóla íslands árið
1992. Hún hefur starfað að ung-
linga- og félagsmálum frá árinu
1972, og verið m.a. deildarstjóri
hjá Félagsmálastofnun Reykja-
víkurborgar. Frá 1994-1995 var
hún verkefnissljóri við undir-
búning að nýrri skipan félags-
mála í Grafarvogi. Snjólaug er
verkefnissljóri vímuvarnanefnd-
ar Reykjavíkurborgar frá árinu
1995 og verkefnisstjóri í áætlun-
inni Island án eiturlyfja frá ár-
inu 1997.
Snjólaug á tvær dætur.
- Hvert er markmið með ráð-
stefnu sem þessari?
„Þessi ráðstefnan er m.a.
hugsuð til að hvetja sveitarfélög
til aðgerða í forvamastarfi. Við
vonumst til að ráðstefnan geti
kveikt áhuga í sveitarfélögum til
aukins forvamastarf og ekki síst
vonumst við til að sveitarstjórn-
armenn láti þessi mál til sín taka
í vaxandi mæli. Svona ráðstefn-
ur eiga að geta verið vettvangur
til að miðla reynslu, bera saman
bækur, skiptast á skoðunum og
læra hvort af öðra. Þá geta á
ráðstefnunni hist fulltrúar
heilsugæslu, félagsmála og tóm-
stunda, svo og foreldrar og ung-
lingar og ráðið sínum ráðum við
að móta skýra sameiginlega
stefnu í þessum efnum. Tilgang-
ur íslands án eiturlyfja er
einmitt að hvetja til virkra að-
gerða í þessum málaflokki og
stuðla að auknu samstarfi í hon-
um.“
- A vegum hverra er áætlunin
ísland án eiturlyfja 2002?
„Hún er samstarfsverkefni
ríkisstjórnarinnar, Reykjavík-
urborgar og evrópsku samtak-
anna European city against
drags. Samband ís-
lenskra sveitarfé-
laga er að bætast í
hópinn. Áætluninni
er ætlað að virkja
þjóðfélagið til að-
gerða í baráttunni við eiturlyf.
Styrkur áætlunarinnar felst
m.a. í afdráttarlausri stefnu
stjórnvalda. Ráðstefnuhald um
land allt er m.a. liður í að kynna
stefnu stjórnvalda í þessum
málaflokki."
Snjólaug segir að næsta ráð-
stefna verði haldin í Stykkis-
hólmi. Ráðstefnan á Húsavík
sem er á morgun, fimmtudag,
verður haldin á Hótel Húsavík,
hún er öllum opin og þátttaka
ókeypis.
Viljum marka
afdráttarlausa
stefnu