Morgunblaðið - 25.02.1998, Síða 11

Morgunblaðið - 25.02.1998, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 11 þau ófullnægjandi. I öðru máli af sama tagi taldi umboðsmaður að fjármálaráðuneytið hefði brotið gegn meginreglum stjórnsýslurétt- ar. Ráðuneytið hefur borið þá ástæðu fyrir sig, að mikil óvissa hafi verið ríkjandi í þessum málum og nauðsynlegt væri að bíða eftir nýrri löggjöf um lífeyrismál sem væri í undirbúningi. Magnús segist geta tekið undir margt sem komi fram í gagnrýni umboðsmanns Alþingis í þessu máii. „Petta er gagnrýnisvert og ég tel að umboðsmaður hafi fulla ástæðu til að gagnrýna þessa málsmeðferð. Eg get tekið undir það. Það verður hins vegar ekki framhjá því litið að lögin og regluverkið um stöðu líf- eyrissjóðanna voru afar veik og þar af leiðandi er það ekki til fyrir- myndar að byggja úrskurði fjár- málaráðuneytis á veikum laga- grunni. Hitt er annað mál að fjár- málaráðuneytið átti að svara bréf- um umboðsmanns, þó þar væri ekki um efnislega afstöðu í málinu að ræða. Það átti að virða þá stjórn- sýslureglu, þó það væri í raun til að uppfylla formið frekar en að leiða fram niðurstöðu efnis,“ segir Magn- ús. Magnús segist taka þau álit sem frá umboðsmanni Alþingis koma mjög hátíðlega en kveðst ekki alltaf vera sammála niðurstöðum hans. Ráðuneytið hefur tekið saman yfir- lit yfir mál sem hafa farið á milli fjármálaráðuneytisins og umboðs- manns Alþingis frá stofnun þess embættis. Að sögn Magnúsar hefur ráðuneytið nánast undantekninga- laust brugðist við athugasemdum umboðsmanns með lagabreytingum eða á annan hátt. Aðspurður hvort ráðuneyti ætti undanbragðalaust að fara eftir at- hugasemdum umboðsmanns svarar Magnús þvi neitandi. „Ég tel að við eigum að halda uppi málefnalegri umræðu. Ef við erum ósammála áliti umboðsmanns, þá genim við það með einhverjum rökum og greinum umboðsmanni frá því,“ svarar hann. í framhaldi af deilum fjármála- ráðuneytisins og umboðsmanns í líf- eyrissjóðsmálinu hefur fjármála- ráðuneytið sett sér þær vinnureglur að ráðuneytið geri alltaf umboðs- manni formlega gi’ein fjrir því hvernig það mun fara með þau mál sem hann beinir að ráðuneytinu. Sé ráðuneytið ósammála áliti umboðs- manns verður honum gerð grein fyrir því. Hundruð mála til úrlausnar Gagnrýni á meðferð mála í stjórnsýslunni er raunar ekki ný af nálinni. Frá því að embætti um- boðsmanns Alþingis var stofnað ár- ið 1987 hefur málafjöldi til embætt- isins farið sívaxandi og berast nú á ári hverju vel á fjórða hundrað mála embættinu til úrlausnar. Hefur um- boðsmaður bent á að honum berist helmingi fleiri mál en umboðsmönn- um þinga á öðrum Norðurlöndum. Astæður eru m.a. sagðar þær að nauðsynleg endurskipulagning á starfsháttum stjómvalda hafi ekki farið fram, íslensk stjórnsýsla hafi lengst af verið lausari í reipunum en stjómsýsla nágrannaþjóðanna, lög séu oft óskýr um stöðu stofnana og embætta í stjórnsýslukerfinu. Ríkisendurskoðun hefur hvað eft- ir annað á undanförnum áram gagnrýnt fjölmargt sem stofnunin telur að mætti betur fara í stjórnsýslunni og oft hefur komið fram að að- finnslur stofnunarinnar hafi verið hundsaðar af einstökum ráðuneytum eða stofnunum. _____ Með tilvísun til alls þessa er sú spurning áleitin hvort engin bragarbót hafi orðið á emb- ættisfærslu í stjórnkerfinu, þátt fyrir þær nýju skyldur sem stjórn- sýslunni hafa verið settar til að bæta og opna hana og gera hana skilvirkari. Er stjórnsýslan ekki fær um að leysa á fijótvirkan og ódýran hátt þau vandamál sem upp koma og gæta hagsmuna og jafnræðis borgaranna við málsmeðferð sína? Sigurður Þórðarson ríkisendur- skoðandi segir í samtali við blaðið Meiri hefð og festa í sfjórn- sýslu náiægra landa að með löggjöfinni sem sett hefur verið á undanförnum árum hafi stjómsýslunni verið búið regluverk sem menn hafi ekki verið vanir. „Þetta er nýjung sem hefur eflaust valdið því að menn voru ekki við- búnir öllu því sem þar var að finna," segir hann. „Það er engin spurning um að það hefur orðið breyting til hins betra í stjórnsýslunni á undanförn- um árum. 011 sú upplýsingaskylda sem er á mönnum hefur gert að verkum að menn hafa gætt sín bet- ur en áður var. Hins vegar er það stundum álitaefni hvort stjómsýsl- an er farin að líða fyrir það í ákvörðunartökunni. Ég er ekki þeirrar skoðunar að svo sé,“ segir Sigurður. Var hann spurður hvernig íslensk stjórnsýsla stæði sig í samanburði við stjórnsýslu annarra landa. „Að svo miklu leyti sem ég þekki til, tel ég að það sé langtum meiri hefð og festa í stjórnsýslu nálægra landa,“ svarar Sigurður. Stjórnsýslureglur þverbrotnar í sveitarstjórnum? Stjórnsýslulögin og upplýsinga- lögin taka ekki aðeins til stjórn- sýslu ríkisins heldur einnig til allr- ar stjórnsýslu sveitarfélaga. Er raunar efamál að mörgum sé ljóst að stjórnsýslureglur um hæfi og vanhæfi, leiðbeiningarskyldu stjórnvalda, upplýsingarétt, rök- stuðning ákvarðana og kærur til æðra stjórnvalds eða úrskurðar- nefnda, gildi um alla málsmeðferð á vettvangi sveitarstjórna og nefnda á vegum þeirra. Þannig geta starfsmenn og nefndarmenn á vettvangi ríkis eða sveitarstjórna verið vanhæfir til meðferðar mála af s.s. ef þeir eru skyldir eða mægðir aðila máls, ef málið varðar þá sjálfa verulega eða venslamenn eða stofnun eða fyrirtæki í einka- eigu sem þeir eru í fyrirsvari fyrir o.s.frv. Era ýmsir þeirrar skoðunar að þessi ákvæði séu í reynd þver- brotin viða í sveitarstjórnum í dag. Sökuð um að hundsa EES-reglur um útboð Hér koma einnig til sameiginleg- ar reglur sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu og ný kæruleið sem opnast hefur með því að skjóta málum til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) en komið hefur ítrekað til þess á undanförnum misserum s.s. m.a. varðandi gjaldtöku og útboða á vegum rikis og sveitarfélaga. Sveit- arfélög hafa verið sökuð um að hundsa EES-reglur um opinber út- boð. Talsmenn iðnaðarins hafa t.a.m. haldið fram að dæmi séu um að stjórnmálamenn hygli sveitung- um, samherjum í pólitík, ættingjum og vinum í þessum málum. Fram hefur komið að Island er það EFTA-ríki, sem oftast hefur fengið send formleg erindi frá ESA vegna rökstudds gruns um að ís- lensk löggjöf brjóti í bága við EES- samninginn. Auk þess hafa íslensk stjórnvöld fengið fjölda óformlegra athugasemda og fyrirspurna frá stofnuninni. Breytingar á skipulagi ráðuneyta til bóta Magnús Pétursson sér íyrir sér að hinni breyttu stjórnsýslu hljóti að fylgja breytingar á skipulagi ráðuneyta. „Viðfangsefni hinnar æðstu stjórnsýslu á að vera að leggja niður stefnuna í lögum og reglum," segir hann. „Hún á ekki að vera í framkvæmdinni, heldur fela undirstofnunum í auknum mæli að taka við eiginlegri framkvæmd einstakra mála. Við þurf- um hins vegar að hafa eftirlitið með höndum með því að verkin séu framkvæmd eins og til er ætlast. Hitt hlutverk ráðuneytisins á að vera að tryggja að málskotsréttur manna sé skýr og greiður þannig að sá sem telur á sér brotið, geti skotið málinu á næsta stjómsýslustig fyrir ofan,“ segir Magnús. „Ég tel að stjórnsýslan sé smám saman að færast í þennan búning. Þú ert alltaf að leita leiða svo jafnræðis sé gætt,“ segir hann. Nefnd fjármálaráðherra undirbýr breytingar í skattamálum og samskiptum við skattborgarana Forúrskurðir og breytingar á kæru- frestum til skoðunar _ ^ Morgunblaðið/Þorkell FJARMALARÁÐHERRA og embættismenn fjármálaráðuneytisins kynntu ýmsar breytingar sem fyrirhugað er að gera á meðferð skatta- mála á fréttamannafundi í gær, frá vinstri Indriði H. Þorláksson, Frið- rik Sophusson, Magnús Pétursson og Sigurður Ólafsson. 400 mál óafgreidd hjá yfírskatta- nefnd um áramót OF LANGAN tíma tekur að fá nið- urstöðu í málum sem Yfirskatta- nefnd fær til úrskurðar, að mati fjár- málaráðuneytisins og eru ýmsar úr- bætur í skattamálum í undirbúningi í nefnd á vegum Friðriks Sophusson- ar fjármálai'áðheiTa. Þetta kom fram á fréttamannafundi fjármálaráð- herra um breytingar í skattamálum í gær. Meðferð skattamála í skattkerfinu hefur sætt mikilli gagnrýni að und- anfömu. Á síðasta ári bárust Yfir- skattanefnd tæp 1.100 mál og um síðustu áramót voru um 400 mál óaf- greidd hjá nefndinni, sem komin voru yfir lögboðna fresti. Nefnd sem fjármálai’áðherra skipaði fyrir skömmu til að koma með tillögur til úrbóta er tekin til starfa en hún er skipuð fulltrúum Lögmannafélags íslands, Félags löggiltra endurskoð- enda, fjármálaráðuneytis og Ríkis- skattstjóraembættisins. Ráða sérfræðinga tímabundið Á minnisblaði fjármálaráðuneytis- ins, sem lagt hefur verið fyrir nefnd- ina, er tekið undh- það sjónarmið að ástand þessara mála hjá Yfirskatta- nefnd sé ekki viðunandi. „Of langan tíma tekur að fá niðurstöðu í mál sem nefndin fær til úrskurðar. Lagt er til að gripið verði til eftirfarandi aðgerða: Nefndinni verði veitt heim- ild til að ráða tímabundið tO starfa sérfræðinga til að undirbúa úrskurði mála og stytta þannig uppsafnaðan málahala. Varðandi reglubundna starfsemi nefndarinnar verða lögin um yfirskattanefnd skoðuð, m.a. með hliðsjón af því hvað telja má raun- hæft að taki nefndina langan tíma að úrskurða í málum, hvort hægt sé að gera ráðstafanir tO að jafna álagi á nefndina yfir árið og hvort hægt sé að fækka tilefnum til málaferla fyrir nefndinni, m.a. með sk. forúrskurð- um á fyrri stigum máls, auk fleiri at- riða. Niðurstaða þessarar athugunar liggi fyrir um miðjan mars nk.,“ seg- ir á minnisblaði ráðuneytisins, sem kynnt var á fréttamannafundinum. Þar kemur einnig fram að skoðað verður hvort rýmka megi heimddir skattstjóra tO að taka til meðferðar of seint fram komin skattframtöl og hvort hægt sé að grípa til reglugerða eða lagabreytinga til að skýra óljóst réttarástand, sem gætu mögulega fækkað málum fyrir nefndinni. Nálægt helmingur úrskurða gjaldanda í hag Fjármálaráðherra lagði áherslu á að breytingarnar ættu að miða að því að styrkja stöðu skattborgaranna og tryggja þyrfti betur en nú er sam- ræmi í skattaframkvæmd. Forsvars- menn fjármálaráðuneytisins vísa þeirri gagnrýni á bug sem fram hef- ur komið, að Yfirskattanefnd sé ekki óháður úrskurðaraðili þar sem fjár- málaráðherra skipi í nefndina. Þá eru hugmyndir um að skipa nefndina fullti’úum gjaldenda sagðar í and- stöðu við alla venjulega stjórnsýslu. Því er einnig mótmælt að nefndin dragi taum skattyfirvalda. Athugun leiði í Ijós að um það bO helmingur úrskurða nefndarinnar falli gjald- anda í hag. Þannig hafi árið 1994 52,7% úrskurða nefndarinnar falið í sér lækkun gjalda frá því sem skatt- stjóri hafði ákveðið. Hlutfallið 1995 var 45%, um 43% árið 1996 og í fyrra var hlutfallið 46,9%. Leggur ráðuneytið til að teknar verði saman upplýsingar um störf yf- irskattanefndar og skýi’sla birt ár- lega. Kannað hvort lengja á kærufrest skattgreiðenda Endurskoðendur og fleiri aðilar hafa gagnrýnt harðlega að á meðan ríkisskattstjóri geti að vOd farið fram úr sínum lögboðnu frestum, þurfi skattgreiðendur að una því að hafa einungis 30 daga til að kæra mál, að öðrum kosti visi Yfirskatta- nefnd þeim frá. Á minnisblaði fjár- málaráðuneytisins er tekið undir þá gagnrýni að málshraði hjá ríkis- skattstjóra sé ekki nægur. „Könnun árið 1994 sýndi að meðaltími frá því að mál var kært, og þar til kröfugerð ríkisskattstjóra og málgögn bárust yfirskattanefnd, var að meðaltali 5,5 mánuðir. Ekki liggja fyrir töflur fyr- ir síðari ár en fullvíst má telja að málshraði sé nokkuð meiri núna. I október sl. vora um 120 mál hjá yfir- skattanefnd þar sem enn var beðið eftir gögnum frá RSK, að liðnum fresti hans,“ segir á minnisblaði ráðuneytisins. Er m.a. lagt til að kannað verði hvort lengja megi kærufrest skattgi’eiðenda, einkum með það fyrir augum að jafna dreif- ingu kæramála til nefndarinnar. Bindandi forúrskurðir Fram kom í máli fjármálaráðherra að í athugun er hvort treysta eigi stöðu embættis ríkisskattstjóra til að samræma störf skattstjóra, m.a. með því að embættið geti gefið út með formlegum hætti túlkanir og fram- kvæmdareglur, sem verði bindandi fyrir skattkerfið. Ennfremur er í at- hugun hvort fækkun skattstofanna eða breytt verkaskipting á milli þeirra geti leitt til aukins samræmis. Einnig eru í undirbúningi að tekin verði upp svokölluð bindandi álit í skattamálum (svokallaðir forúr- skurðir). Skv. þeim breytingum gætu skattborgarar óskað eftir bind- andi áliti ríkisskattstjóra um skatta- legar afleiðingar tiltekinna ráðstaf- ana áður en í þær er ráðist. Yrði slík- ur úrskurður bindandi fyrir skatt- kerfið en kæranlegur til yfirskatta- nefndar. Er gert ráð fyrir að frum- varp um þetta verði lagt fram á yfir- standandi þingi. Á minnisblaðinu segir einnig að skortur á birtingu úrskurða Yfir- skattanefndar sé til baga. Meðal úr- bóta sem gera á í útgáfumálum er útgáfa skatta- og tollatíðinda, þar sem m.a. verða birtir útdrætth’ úr fordæmisgefandi úrskurðum nefnd- arinnar og úrskurðir ríkistollanefnd- ar. Einnig er hafinn undirbúningur að gerð heimasíðu fyrir yfirskatta- nefnd á netinu. Kærur fresti ekki innheimtu Gagnrýnt hefur verið að þegar úr- skurður skattstjóra liggur fyrir gjaldfalli skattkröfur og innheimtu- menn fari þegar að innheimta kröf- una. Það sé ósanngjarnt þar sem það taki yfírskattanefnd oft langan tíma að kveða upp úrskurði og á meðan leggist dráttai-vextir á kröfuna. Tek- ið er fram á minnisblaði fjármála- ráðuneytisins að það sé meginregla stjórnsýsluréttar að kæra til æðra stjórnvalds fresti ekki réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar. Enginn sem leitar úrskurðar um embættis- takmörk yfirvalda, geti komið sér hjá því að hlýða yfirvaldsboði í bráð með því að skjóta máli til dóms. „Ef skattgreiðendur gætu haft áhrif á gjalddaga kröfu með því að kæra ákvörðun skattstjóra, er ekki ósenni- legt að í einhverjum tilvikum yrði gi-ipið til þess ráðs í þeim tilgangi einum að fresta gi’eiðslu. Þá má spyrja þeirrar spurningar hvort það sé ekki brot á jafnræði gagnvart þeim gjaldendum sem greiða mögl- unarlaust. Ef kæra frestaði inn- heimtu myndi það því að öllum lík- indum leiða til fleiri kæramála fyrir yfirskattanefnd og um leið frekari töfum á málarekstri þar. Afstaða ráðuneytisins er því sú að ekki sé ástæða til að gera undantekningu frá almennum reglum um réttaráhrif kærumála innan stjórnsýslunnar, að því er skattkröfur varðar,“ segir á minnisblaðinu. Skoða hugmyndir um umboðs- mann skattgreiðenda í nefnd fjármálaráðherra eru einnig til umræðu hugmyndir um stofnun embættis umboðsmanns skattgreiðenda. Fram kom á frétta- mannafundi fjármálaráðherra að full þörf sé á að taka stöðu skattborgara gagnvart skattyfu-völdum til athug- unar og finna leiðir til úrbóta. Bent var á að verkefni umboðsmanns Al- þingis taki einnig til skattamála og góð reynsla sé af starfi hans. Því komi annað hvort til greina að efla embætti umboðsmanns Alþingis í þeim tilgangi að hann fái sinnt skattamálum sérstaklega eða stofn- un sérstaks embættis til að sinna þeim málum. Þá eru fyrirhugaðai’ ýmsar breyt- ingar á skipulagi skattkerfisins. Tel- ur fjármálaráðuneytið nauðsynlegt að kveðið verði á með skýrum hætti um verkaskiptingu skattrannsóknar- stjóra og ríkisskattstjóra og skatt- stjóra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.