Morgunblaðið - 25.02.1998, Side 12

Morgunblaðið - 25.02.1998, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 - MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR •• Onnur umræða um frumvarp um hollustuhætti Umhverfísnefnd klofnar í af- stöðu sinni til frumvarpsins MINNIHLUTI umhverfisnefndai- gagnrýndi harðlega ýmis atriði frum- varps umhverfisráðherra um holl- ustuhætti við aðra umræðu þing- málsins á Alþingi í gær. Hjörleifur Guttormsson, þingmaður Alþýðu- bandalags og óháðra og fulltrúi minnihlutans í umhverfisnefnd, sagði m.a. að illa hefði verið staðið að frum- varpinu, mai'kmið þess væru metn- aðarlaus og endurspegluðu ekki þró- un umhverfisréttar. Skilaði minni- hluti umhverfisnefndar því séráliti um fi-umvarpið og kvaðst með teknu tilliti til breytingatillagna meirihluta umhverfisnefndar ekki geta mælt mecí samþykkt frumvarpsins. Olafur Om Haraldsson, þingmað- ur Framsóknarfiokks, mælti fyrir nefndaráliti frá meirihluta umhverf- ALÞINGI isnefndar. Þar eru lagðar til yfm tutt- ugu breytingar á framvarpinu m.a. sú að heiti framvarpsins verði breytt þannig að lögin heiti lög um hollustu- hætti og mengunarvamir. Þykir það heiti lýsa efni laganna betur en holl- ustuháttahugtakið eitt og sér. Þá leggur meirihluti umhverfis- nefndar það m.a. til að ákvæðum 6. gr. um útgáfu starfsleyfa verði breytt á þann veg að öll starfsleyfí verði annaðhvort veitt af Hollustu- vernd ríkisins eða heilbrigðisnefnd- um en að umhverfisráðherra veiti ekki starfsleyfi eins og frumvarpið gerir ráð fyrir. Mikið valdaframsal til umhverfísráðherra Þannig er gert ráð fyrir að Holl- ustuvernd veiti starfsleyfi fyi-ir um- fangsmeiri atvinnurekstur sem get- ur haft mengun í för með sér og að heilbrigðisnefndir veiti starfsleyfi fyrir annan mengandi atvinnu- rekstur. Hjörleifur Guttormsson gagn- íýndi það m.a. í framsögu sinni að í frumvarpinu gengi löggjafinn ótrú- lega langt í að framselja vald til um- hverfisráðherra með þeim fjöl- mörgu opnu reglugerðarheimildum sem þar væri að finna. I 4. og 5. grein væru til að mynda einberar fyi-irsagnir sem ráðherra ætti að fylla út í með reglugerðum án at- beina þingsins. Þá gagnrýndi Hjörleifur það m.a. að stjórn Hollustuverndar ríkisins yi’ði lögð niður og í hennar stað kæmi svokallað Hollusturáð, sem í ættu m.a. sæti tveir fulltrúar sam- taka atvinnurekenda. Sagði Hjör- leifur að samkvæmt frumvarpinu yrði ráðið einungis safn þrýstihópa og að engin ástæða væri til þess að leggja af stjórnina. Ungir vímuefna- neytendur Tafarlaus meðferð verði tryggð SIGRÍÐUR Jóhannesdóttir, þing- maður Alþýðubandalags og óháðra, er fyrsti flutningsmaður þingsá- lyktunartillögu þess efnis að Al- þingi álykti að fela ríkisstjóminni að standa fyrir sérstöku átaki til að tryggja tafarlausa meðferð ungra fíkniefnaneytenda sem vilja fara í meðferð þannig að framvegis myndist ekki langir biðlistar eftir meðferð vegna áfengis- og fíkni- efnanotkunar. í greinargerð tillögunnar er vitnaði í viðtal við Þórarin Tyrf- ingsson yfirlækni á Vogi, sem birtist í Morgunblaðinu 27. janú- ar sl., þar sem segir m.a. að allt að 300 sjúklingar séu á biðlista til að komast í áfengismeðferð. í greinargerð segir ennfremur að það sé mat þeirra sem vinni að þessum málum að mjög tilfinnan- lega vanti meðferðarpláss fyrir yngstu vímuefnaneytendurna. Væri hins vegar séð fyrir þörf þeirra myndi það létta á þrýstingi sem hefði verið á almenn með- ferðarheimili að undanförnu um að taka unga vímuefnaneytendur til meðferðar. Þá segir í greinargerð að þeir sem best þekki til vímuefnavanda unglinga telji að unglingar í þess- um aðstæðum þurfi mun sérhæfð- ari meðferð en er í boði á almenn- um meðferðarstofnunum. Morgunblaðið/Þorkell ÞINGMENNIRNIR Svanfríður Jónasdóttir, Árni Mathiesen, Gísli S. Einarsson og ísólfur Gylfi Pálmason. Sameign á nytjastofnum tryggð í stjórnarskrá GUÐNY Guðbjömsdóttir, þingmað- ur Kvennalista, hefur mælt fyrir frumvarpi til stjómskipunarlaga um breytingu á stjómarskrá lýðveldisins íslands. Með framvarpinu er lagt til að eftirfarandi grein komi á eftir 72. gr. stjómarskrárinnar: „Nytjastofn- ar á hafsvæði því sem fullveldisréttur Islands nær til em sameign íslensku þjóðarinnar. Kveðið skal á um sjálf- bæra nýtingu þessara auðlinda til hagsbóta fyrir þjóðarheildina í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum." Meðflutningsmenn era Kristín Halldórsdóttir, þingmaður Kvenna- lista, og Kristín Ástgeirsdóttir, þingmaður utan flokka. Frumvarp þetta var áður flutt á síðasta þingi enyar ekki útrætt. I greinargerð framvarpsins segir að nytjastofnar á Islandsmiðum séu langmikilvægasta auðlind íslensku þjóðarinnar. „í lögum um stjórn fiskveiða hefur frá árinu 1988 verið ákvæði um að þeir séu sameign ís- lensku þjóðarinnar. Með þessu frumvarpi til stjórnskipunarlaga er verið að tryggja stjórnskipulega stöðu þess ákvæðis." Síðar segir að ástæða sé til að tryggja stöðu þessa ákvæðis þótt það sé þegar lögbund- ið vegna þess hvernig núverandi fiskveiðistjórn sé framvæmd. Áhrif dragnóta- veiða verði rannsökuð GÍSLI S. Einarsson, þingmaður þingflokks jafnaðarmanna, hefur mælt fyi’ir tillögu til þingsályktunar um rannsókn á áhrifum dragnóta- veiða. Efni tillögunnar er að Alþingi álykti að fela sjávarútvegsráðherra að láta kanna áhrif dragnótaveiða á lífríki hafsins, sérstaklega hver áhrif dragnótaveiða eru á bolfisksstofna, viðkomu þein’a og afrakstursgetu. Einnig verði kannað hvort ákveðin veiðisvæði við Island henti fremur til dragnótaveiða en önnur með tilliti til lífríkis á hafsbotni. I gi’einargerð segii’ að lengi hafi verið deilt um það, bæði á Alþingi og annars staðar, hvort dragnótaveiðar við Island og ef til vill sérstaklega í Faxaflóa séu skaðlegar viðkomu bol- fisksstofna á þessu svæði. „Ekki verða þessar deilur útkljáðar nema nákvæmar rannsóknir fari fram hvað varðar réttmæti þessara veiða og réttmæti ber að skýra náttúrunni í hag,“ segir í greinargerð. Þingvalla- urriðastofninn verði endur- reistur LANDBÚNAÐARNEFND Alþing- is hefur lagt til að þingsályktunartil- laga Össurar Skarphéðinssonar, þingflokki jafnaðarmanna, um end- urreisn Þingvallaurriðans verði sam- þykkt. í umfjöllun nefndarinnar um málið bárust henni umsagnii' frá ýmsum aðilum m.a. frá landbúnaðar- ráðuneytinu, fisksjúkdómanefnd og veiðimálastjóra. í tillögu Össurar er m.a. gert ráð fyrir að ríkisstjórnin skipi nefnd til að gera tillögur um leiðir til að end- urreisa umðastofn Þingvallavatns. Verði ekkert hins vegar að gert séu yfirgnæfandi likur taldar á því að ur- riðinn muni smám saman hverfa úr vistkerfi vatnsins. Alþingi ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 14 í dag. Eftir atkvæðagreiðslu um ýmis þingmál verða eftirfarandi mál á dagskrá: 1. Ríkisreikningur 1996. 3. umr. 2. Heilbrigðisþjónusta. 2. umr. 3. Framhaldsskólar. 2. umr. 4. Öryggismiðstöð barna. Síðari umr. 5. Þingvallaurriðinn. Síðari umr. 6. Ráðherraábyrgð. 1. umr. 7. Almannatryggingar. 1. umr. 8. Útvarpslög. 1. umr. 9. Vörugjald. 1. umr. 10. Réttarstaða íbúa á hjúkranar- og dvalarheimilum. Fyrri umr. Tímareikningur á Islandi. 1. umr. Bókanir vegna Gullinbrúar Veðurofsi tálmaði sjúkra- flutninga með smábarn LÖG® hefur verið fram í borgarráði yfirlitsmynd er sýnir nýja akbraut frá Stórhöfða að Halísvegi, gönguleiðir og hljóðmanir. Ennfremur vora kynnt á fundinum helstu atriði skýrslu um umhverfismat vegna Gullinbrúar. í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálf- stæðisflokks er fagnað tillögu sam- gönguráðherra um fjármögnun framkvæmda við Gullinbrú. Ljóst sé þó að seinagangur borgaryfirvalda komi í veg fyrir að hægt sé að ljúka framkvæmdinni á þessu ári. I bókun- inni er vakin athygli á að flest bendi til að samgöngur um Gullinbrú, þrátt fyrir breikkun, verði aftur komnar í hnút eftir fjögur ár þegar íbúar á Grafarvogssvæðinu nálgast 20 þús. og umferð um brúna verður 35 þús. bílar á sólarhring. í bókun borgarstjóra segir að bók- un sjálfstæðismanna beri þess merki að þeir vilji bera blak af ráðherra sín- um. Fyrir liggi að sl. vor hafi borgar- yfirvöld verið tilbúin að lána ríkinu fyrir hönnun og breikkun Gullinbrú- ar, sem ráðherra hafi afþakkað. Það sé hins vegar ánægjulegt að hann skuli hafa fundið flöt á málinu. Hvað varðaði umferðarmál í Grafarvogi væri málflutningur sjálfstæðismanna farinn að vinna gegn hverfinu og mál til komið að því linnti. í síðari bókun Sjálfstæðisflokksins segir að ljóst sé á bókun borgar- stjóra að hann sé á hröðu undanhaldi og reyni að breiða yfir afleiðingar þess að R-listinn felldi tillögu sjálf- stæðismanna í borgarráði um fram- kvæmdir við Gullinbrú. SJÚKRAFLUTNINGAR með sjö mánaða gamalt stúlkubam frá Ólafs- vík gengu brösuglega í fyrrakvöld og -nótt vegna aftakaveðurs. Alls liðu um sex og hálf klukkustund frá því óskað var eftir því að barnið yrði flutt á sjúkrahús í Reykjavik þar til það komst á áfangastað. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna veikinda barnsins um klukkan 20.30 og hélt vestur á Snæfellsnes laust eftir klukkan 21 í fyrrakvöld en þá var búið að ryðja lendingarstað fyrir hana á flugvellin- um við Ólafsvík. Veðrið var hins veg- ar slíkur farartálmi að gefist var upp á lenda í bænum og reynt þess í stað að Ienda á Rifi. Slæmt skyggni og ókyrrð Slæmt skyggni og veðurhamur útilokaði hins vegar lendingu og var ákveðið að snúa við, en þá var þyrlan í lítilli hæð yfir sjó skammt frá Dritvik og mikil ókyrrð í lofti sam- kvæmt upplýsingum frá Landhelgis- gæslunni. Þyrlan lenti að nýju i Reykjavík um klukkan 23. Þá var ákveðið að flytja barnið landleiðina og ók sjúkrabíll heilsu- gæslustöðvarinnar í Ólafsvík af stað rétt fyrir klukkan 23. Eftir um hálf- tíma akstur festist bifreiðin á Fróð- árheiði, en þá var mikil ofankoma og skyggni nær ekkert. Lögreglan í Ólafsvík hafði sam- band við stóran flutningabfl sem var þá að koma að sunnan og dró sjúkra- bifreiðina úr skafiinum. Ferðin gekk greitt eftir það, enda góð færð það sem eftir var leiðarinnar til Reykja- víkur að frátaldri hálku. Búið var að gera ráðstafanir til að bifreiðin fengi að fara gegnum Hvalfjarðargöng og komst hún loks á Sjúkrahús Reykja- víkur um klukkan 3 í fyrrinótt, þar sem barnið gekkst undir rannsókn. Ólafur Gísli Jónsson læknir á barnadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur segir að talið hafi verið í fyrstu að barnið þjáðist af slæmri sýkingu en skoðun hafi leitt í ljós að líðan þess sé betri en á horfðist. „Henni liður betur og er á batvegi," segir hann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.