Morgunblaðið - 25.02.1998, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 13
FRÉTTIR
Hveragerði
Þrír af
D-lista í
efstu sæt-
um Bæjar-
málafélags
Bæjarmálafélag Hveragerðis
hefur samþykkt samhljóða
tillögu kjömefndar að fram-
boðslista fyrir bæjarstjórnar-
kosningamar í maí næstkom-
andi. Listann skipa eftirtald-
ir: 1. Gísli Páll Pálsson við-
skiptafræðingur, 2. Hafsteinn
Bjarnason byggingarmeist-
ari, 3. Aldís Hafsteinsdóttir
kerfisfræðingur, 4. Jóhann
Isleifsson garðyrkjubóndi, 5.
Inga Lóa Hannesdóttir garð-
yrkjufræðingur, 6. Anton
Tómasson mjólkurfræðingur,
7. Pálína G. Sigurjónsdóttir
skrifstofustjóri, 8. Aðalbergur
Sveinsson nemi, 9. Dóra
Snorradóttir húsmóðir, 10.
Magnús Hinriksson bókbind-
ari, 11. Rakel Magnúsdóttir
nemi, 12. Jón Guðmundsson
framkvæmdastjóri, 13. Jóna
Einarsdóttir gjaldkeri og 14.
Gunnar Davíðsson bygginga-
meistari.
Fleiri listar í kjör
en voru 1994
I þremur efstu sætunum
em bæjarfulltrúar sem kosnir
vora af lista Sjálfstæðis-
flokksins við síðustu bæjar-
stjórnarkosningar. Fjórir
bæjarfulltrúar sjálfstæðis-
manna mynduðu þá meiri-
hluta í Hveragerði, en óeining
kom upp í samstarfinu árið
1996. í kjölfarið hætti Knútur
Bruun starfi í bæjarstjórn og
Aldís Hafsteinsdóttir, sem
verið hafði varabæjarfulltrúi,
tók sæti hans.
Reknir úr
sjálfstæðisfélaginu
í framhaldinu tókst sam-
starf allra bæjarfulltrúa í
Hveragerði, þ.e. fjöguma af
D-lista og þriggja fulltrúa H-
lista, og hefur því ekki verið
um minnihluta að ræða í bæj-
arstjórninni síðari hluta kjör-
tímabilsins. Þau sem nú skipa
efstu sæti á lista Bæjarmála-
félagsins vora í kjölfarið á
þessari meirihlutamyndun
rekin úr Sjálfstæðisfélaginu
Ingólfi. Fyrir tveimur vikum
sagði Alda Andrésdóttir sig
úr Bæjarmálafélaginu og lýsti
yfir stuðningi við Sjálfstæðis-
félagið Ingólf.
Við kosningarnar 1994 vora
tveir listar í kjöri, D-listi og
H-listi, en í vor er reiknað
með listum Ingólfs, fram-
sóknarmanna og sameiginleg-
um lista Alþýðubandalags og
Alþýðuflokks, auk lista Bæj-
armálafélagsins.
Ræðukeppni grunnskólanemenda í Árbæjar- og Tjarnarskólum
Morgunblaðið/Þorkell
KRAKKARNIR úr Árbæjarskóla studdu vel við bakið á sínu fólki.
Getur dúkka
úr plasti mótað
samfélagið?
Er barbídúkkan meira en bara dúkka úr
plasti? Mótar hún kannski samfélagið?
Þessum spurningum og fleirum veltu
ffl-unnskólanemendur fyrir sér 1 Arbænum
í fyrrakvöld. Davíð Logi Sigurðsson fylgd-
ist með skylmingum og skoðanaskiptum
unga fólksins.
NEMENDUR í Árbæjarskóla og
Tjarnarskóla áttust við í 8-liða
úrslitum mælsku- og rökræðu-
keppni grunnskólanna á mánu-
dagskvöld. Þau veltu fyrir sér
áhrifamætti Barbí og spurðu
hvort þættirnir um Strandverði
væru jafn vinsælir og raun ber
vitni vegna þess að hinar ítur-
vöxnu strandmeyjar ættu sér fyr-
irmynd í Barbí? Rök keppenda
voru ýmiskonar og oft á tíðum
býsna frumleg enda blönduð al-
vöru og gamni.
Keppnin fór fram í Árbæjar-
skóla og reyndi heimafólkið, Eva
íris Eyjólfsdóttir, Bjartmar Alex-
andersson, Ingunn Erla Eiríks-
dóttir og Garðar Hauksson, að
sýna fram á að barbidúkkan hefði
sannarlega haft áhrif á samfélög
nútímans. Keppendur Tjarnar-
skóla, Hildur Krisljánsdóttir,
Ásta Dan Ingibergsdóttir, Guð-
rún Stefánsdóttir og Jóhann Al-
freð Kristinsson mæltu gegn því.
Við mikla kátínu áhangenda
sinna benti Árbæjarskóli á að
leikföng væru gjarnan fyrstu fyr-
irmyndir barna, til dæmis þegar
kæmi að kynlífi enda væri Ken
vinur Barbí aldrei langt undan.
Því mætti með sanni segja að
Barbí hefði áhrif á samfélag
mannanna.
Tjarnarskóli var á öndverðum
meiði og töldu liðsmenn hans öll
börn læra það með tíð og tíma að
Barbí ætti sér enga stoð í raun-
veruleikanum. Að þeirra mati
sýndi það vott um andlegan van-
þroska að reyna að líkjast
dúkkunni frægu.
Tjarnarskóla gekk betur að
sannfæra dómendur um málstað
sinn og sigraði því að lokum. Jó-
hann Alfreð Kfristinsson liðs-
maður Tjarnarskóla var jafn-
framt valinn ræðumaður kvölds-
ins við fögnuð stuðningsmanna
liðsins sem héldu glaðir heim á
leið með sigur í farteskinu.
BJARTMAR Alexandersson liðsmaður Árbæjarskóla hélt því fram að
Barbí hefði mikil áhrif á samfélagið.
ÁSTA Dan Ingibergsdóttir úr Tjarnarskóla taldi dúkku úr plasti ekki
geta haft mikil áhrif.
ÞESSI stúlka úr Tjarnarskóla fagnaði sigrinum vel og innilega.
Aðfluttir og brottfluttir 1987-97
Fleiri Islendingar fara
og fleiri erlendir koma
í FYRSTA skipti síðan 1991 fluttu
fleiri til landsins á seinasta ári en frá
því, eða alls 69 manns. Þó flytjast
fleiri íslenskir ríkisborgarar frá
landinu en til þess, eða 574 fleiri sem
yfirgáfu Island, en fleiri erlendir rík-
isborgarar komu hingað en fóru héð-
an, eða 643 manneskjur.
Á seinasta ári voru fólksflutningar
innanlands hins vegar með þeim
hætti að fleiri fluttust til höfuðborg-
arsvæðisins en frá því og frá öllum
öðrum svæðum landsins fluttust
fleiri frá þeim en til þeh-ra.
í upplýsingum frá Hagstofu ís-
lands kemur fram að árið 1997 var
lögheimili einstaklinga í þjóðskrá
flutt í alls 56.797 skipti. Flutningar
voru 30.298 innan sama sveitarfé-
lags, 18.588 milli sveitarfélaga, 3.990
til landsins og 3.921 frá landinu.
Á seinasta ári urðu einnig talsverð-
ar breytingar á aðild fólks að trúfé-
lögum og þeirra veigamestar voru úr-
sagnir úr þjóðkirkjunni, en 1.056
manns skráðu sig úr henni í fyrra og
létu 329 þeirra skrá sig utan trúfé-
laga. Fækkun þessi var þó mun um-
fangsmeiri árið 1996, þegar 2.344
sögðu sig úr kirkjunni. Á móti brott-
skráningum í fyrra bættust 144 ný-
skráðir í þjóðkirkjuna, samanborið
við 107 nýskráningar 1996. Alls hafa
því því 3.149 manns skráð sig úr þjóð-
kirkjunni á seinustu tveimur árum.
Breytingar á trúfélagaskráningu í
þjóðskrá í fyrra voru alls 1.828 tals-
ins, sem þýðir að 0,7% landsmanna
hafi talið ástæðu til að skipta um trú-
félag eða hætta afskiptum af þeim,
samanborið við 2.690 árið á undan,
eða 1,0% landsmanna.