Morgunblaðið - 25.02.1998, Page 14

Morgunblaðið - 25.02.1998, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján HILDA Torfadóttir, kennari í Síðuskóla, með nokkrum nemenda sinna við opnun fyrstu myndlistarsýningar íslenskra barna í verkefninu Kid- link, en sýningin er á Netinu. Fyrsta myndlistarsýning íslenskra barna í verkefninu Kidlink Síðuskólanemar sýna á Netinu Verðkönnun Neytendasamtakanna í 11 verslunum í Eyjafírði Dýrara að versla í KEA á Dalvík en Ólafsfirði FYRSTA myndlistarsýning ís- lenskra barna í samskiptaverkefn- inu Kidlink var opnuð í Síðuskóla á Akureyri í gær, en hún er á Netinu og er hluti af alþjóðlegri sýningu þessa verkefnis. Kidlink er fyrir börn allt til 16 ára aldurs eða loka grunnskóla og hafa yfir 100 þúsund böm frá 117 löndum tekið þátt í tölvusamskipt- um í Kidlink frá upphafí þess árið 1990. Síðastliðið vor hófst undir- búningur þessa verkefnis á ís- lensku, en það er Lára Stefáns- dóttir sem stjómar íslenska verk- efninu og er auk þess aðstoðar- stjómandi alþjóðaverkefnisins. Spjallrásir, teikningar og tónlist Tvö svæði era fyrir hendi, annars vegar fyrir foreldra og kennara og því stjómar Ása Guðjónsdóttir kennari í Grundarskóla á Akranesi en hins vegar fyrir böm og stjórn- ar Hilda Torfadóttir kennari í Síðuskóla því. Tölvusamskiptin fara fram á spjallrásum, við gerð verkefna, með því að teikna, semja tónlist og ýmislegt fleira. Tækjabúnaður verkefnisins er í Háskólanum í Norður-Dakóda í Bandaríkjunum og í Háskólanum í Cincinnatti. Yfirmaður tæknimála er Tryggvi Rúnar Jónsson í Cincinnatti. Fram kom við opnun sýningar- innar í gær að þrjú verkefni bam- anna í Síðuskóla hafa þegar verið valin sem Evrópuverkefni og þá stendur yfír val á myndum sem taka munu þátt í alþjóðlegri sýningu. Þeir sem vilja skoða myndir bamanna geta slegið inn slóðina http://www.ismennt.is/vefir/kid- link@texti: en upplýsingar um þetta alþjóðlega verkefni er einnig að finna á slóðinni http://www.kid- link.org@texti: og þar má einnig tengjast um íslenska svæðið BILIÐ á milli verslunarinnar KEA Nettó og Hagkaups mældist um 21% í verðkönnun sem gerð var á vegum skrifstofu Neytendasam- takanna á Akureyri í síðustu viku í samstarfi við verkalýðsfélögin á svæðinu. Bilið eykst Kannað var verð á 61 algengri matvöru í ellefu verslunum í Eyja- firði og að þessu sinni fór könnunin fram í öllum verslunum KEA á svæðinu samtímis en þær era sam- tals sjö. Braggablús á Dalvík BRAGGABLÚS er söngdag- skrá sem flutt verður í Café Menningu á Dalvík næstkom- andi föstudagskvöld. Um er að ræða söngdagskrá Magnúsar Eiríkssonar „gleði- bankastjóra" en flytjendur eru Ellen Kristjánsdóttir, Pálmi Gunnarsson, Magnús Eiríksson, Eyþór Gunnarsson og Gunn- laugur Briem. Hljómsveitin Mannakom leikur fyrir dansi. Boðið er upp á borðhald, sýningu og dansleik á 2.500 krónur, borðhald og sýningu á 2.000 krónur en inn á dansleik- inn kostar 1.000 krónur. Panta þarf miða á Café Menningu á tímabilinu frá kl. 11 til 14 og 18 til 22 fyrir fimmtudagskvöld. Lék ég mér þá að stráum „LEK ég mér þá að stráum" er yfirskrif ljóðakvölds á Sigur- hæðum, Húsi skáldsins sem verður í kvöld, miðvikudags- kvöldið. Ljóðakvöld hafa verið haldin þar á hverju miðviku- dagskvöldi frá síðasta hausti. Húsið er opið frá kl. 20-22 en dagskráin hefst kl. 20.40. Gest- um gefst, auk þess að hlýða á Ijóðadagskrána, kostur á að skoða húsið, sem var heimili Matthíasar Joehumsonar. Sem fyrr er ódýrast að versla í KEA Nettó, en í frétt frá skrifstofu Neytendasamtakanna kemur fram að athygli vekji að bilið milli þeirr- ar verslunar og Hagkaups sem næst kemur er nú orðið rúm 21% sem er meira en mælst hefur í síð- ustu könnunum. Þriðja lægsta búð- in á Akureyri er KEA Hrísalundi og er ekki marktækur munur á verði þar og í Hagkaup. Næst þar á eftir kemur KEA Byggðavegi, þá Kjörbúðin Kaupangi, Valberg Ólafsfirði, KEA Sunnuhlíð, KEA Ólafsfirði, KEA Dalvík, KEA Hrís- SKÁTAR á Akureyri héldu upp á afmæli stofnanda skátahreyf- ingarinnar Baden Powell í nýbyggðum skála Skátafélags- ins Klakks, Valhöll sem er í landi Veigastaða síðasta sunnu- dag. Farið var í gönguferð frá skálanum og upp á Vaðlaheiði, en einnig var boðið upp á léttari gönguferð frá fjaldstæðinu á ey og loks Jónsabúð á Grenivík þar sem verðið reyndist hæst. Sérstök athygli er vakin á verð- mun í verslunum KEA á Ólafsfirði og Dalvík en það er rúmum 4% dýrara að versla á Dalvík en í Ólafsfirði og bent á að í Ólafsfirði sé KEA í samkeppni við Valberg, en einungis sé ein matvöraverslun á Dalvík. Skrifstofa Neytendasamtakanna er til húsa á þriðju hæð Alþýðu- hússins við Skipagötu á Akureyri og er hún opin alla virka daga frá kl. 13 til 15. Húsabrekku að Valhöll. Til stóð að efna til snjókarlakeppni en snjórinn reyndist ekki nægilega blautur til að það gengi eftir, en aftur á móti tókst snjóþotu- keppni einkar vel. Að lokinni vel heppnaðri útidagskrá komu skátar sér fyrir á svefnloftinu og sungu skátasöngvana hástöf- um. Þessar ungu skátastúlkur tók vel undir. Morgunblaðið/Kristján Skátasöngvar sungnir á afmæli Baden Powell Ólafur Sveinsson sýnir vatnslitamyndir á Kaffí Karólínu Upplifun við glugga Málþing' um menningarmál „ÉG ER afskaplega ánægður með viðtökurnar, viðbrögðin hafa verið mjög góð,“ segir Ólafur Sveinsson sem nú sýnir á Kaffi Karólínu í Grófargili á Akureyri. Á sýningunni era ellefu vatnslitamyndir og er þema sýningarinnar gluggar. Akveðið hefur verið að framlengja sýninguna um eina viku og lýkur henni 6. mars næstkomandi. Ólafur er Reykvíkingur, en flutti þaðan árið 1986 og bjó í Danmörku til ársins 1993 er hann kom til Akureyrar og hóf nám við Myndlist- arskólann á Akureyri. Hann lauk prófi úr málunardeild skólans í fyrravor og dvaldi að því loknu um nokkurt skeið við listaskóla í Lathi í Finnlandi sem gestanemi. Ólafur hefur sýnt víða um land síðustu misseri en þetta er fyrsta einkasýn- ing hans á Akureyri. Danskur blær „Ég velti fyrir mér ýmsum hug- myndum þegar ákveðið var að ég myndi sýna hér og þetta var ein þeirra sem ég átti í handraðanum. Ég hef lengi velt þessu þema, gluggum, fyrir mér en nú komið því til skila. Úm ævina hef ég mikið Morgunblaðið/Kristján ÓLAFUR Sveinsson sýnir um þessar mundir á Kaffi Karólínu og er þemað gluggar. verið á flakki hingað og þangað um heiminn og þá iðulega setið við glugga, í flugvélum, ferjum, á hótel- um og kaffihúsum og ég átti þó nokkuð af skissum. Sú elsta er frá árinu 1978, en þá mynd kalla ég bemskugluggann. Þegar maður sit- ur við glugga Qg horfir út upplifir maður ýmis augnablik sem eru at- hyglisverð," segir Ólafur um sýn- inguna. Það er dálítið danskur blær yfir sýningunni, enda hefur málarinn oft setið við glugga þar í landi og þykir honum það vel viðeigandi að sýna slíkar myndir í bæ þar sem danska var töluð í garðveislum í eina tíð. „Það er kannski þess vegna sem Akureyringar hafa tekið sýningunni svona vel, þessi dönsku áhrif.“ Ólafur stendur að því ásamt fé- laga sínum að efna til stórrar sýn- ingar bæði á Akureyri og Sauðár- króki í vor eða fyrripart sumars og vinnur að undirbúningi hennar. Þá segist hann hyggja á landvinninga, hafi verið að þreifa fyrir sér í New York þar sem hann var á liðnu hausti. Ymislegt sé í gerjum, sem betur komi ljós er líða tekur á árið. „Ég reyni að hafa fjölbreytnina í fyrirrúmi,“ segir Ólafur „festa mig ekki við eina fjöl, ég hef haldið margar sýningar að undanfórnu á mismunandi stöðum og þá verið að sýna alls konar myndir," en hann kvaðst jöfnum höndum vinna vatns- litamyndir, úr olíu, akrýl, grípa í tré, vefnað og jafnvel sauma. MENNINGARMALANEFND Ak- ureyrarbæjar gengst fyrir málþingi í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju laugardaginn 21. mars nk. Málþing- ið ber yfirskriftina „Akureyri, menningarbær á leið í nýja öld.“ Frammælendur verða Tapio Hovebro, forstöðumaður menning- ar- og frístundasviðs Vásterás- borgar í Svíþjóð, Jón Björnsson, framkvæmdastjóri menningar-, uppeldis- og félagsmála í Reykjavík, og Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri. Fundarstjóri verður Stefán Jón Hafstein, rit- stjóri Dags. Hver mótar stefnuna? í fréttatilkynningu félags- og fræðslusviðs Ákureyrarbæjar segir að þegar hægri flokkarnir í Vást- erás komust til valda í borginni hafi þeir sett sér það markmið að einka- væða menningarmál eftir föngum og þá var Tapio Hovebro ráðinn til að stjórna verkinu. Eftir eitt kjör- tímabil komust jafnaðarmenn aftur til valda og þá var blaðinu snúið við en Tapio Hovebro var áfram yfir- maður menningarmála á vegum borgarinnar. Hann þekkir því stefnumótun í menningarmálum frá ýmsum sjónarhornum. í framsögu sinni gengur hann út frá spurning- unni: „Hver mótar stefnuna í menn- ingarmálum?" Jón Bjömsson er Akureyringum að góðu kunnur en hann var félags- málastjóri á Akureyri um langt ára- bil áður en hann flutti til Reykjavík- ur fyrir tveimur áram. Hann þekkir stefnumótun menningarmála í báð- um sveitarfélögumnum og mun í er- indi sínu leggja áherslu á hlutverk sveitarfélaga í menningarmálum. Fulltrúar framboðslista taka þátt Þorsteinn Gunnarsson er rektor HA en skólinn hefur í meira en ára- tug verið helsta aðdráttaraflið fyrir háskólamenntað vinnuafl í bænum. Þorsteinn mun fjalla um menningu og búsetu á Akureyri. Á málþinginu munu auk frum- mælenda fulltrúar framboðslista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor taka þátt í pallborðsumræðum. Málþingið er öllum opið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.