Morgunblaðið - 25.02.1998, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.02.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 15 LANPiÐ Frumathugun Skipulagsstofnunar á umhverfisáhrifum sorpförgunar byggðasamlagsins Hulu Stuðlað að góðri heildarlausn sorpmála NEMENDUR grunnskólans í Þórshöfn í starfskynningu og að sjálf- sögðu allir í hlífðarskóm, með hárnet og í sloppum. Fjölbreytt skólastarf Þórshöfn - I grunnskólanum á Þórshöfn er nýliðin þemavika þar sem nemendur áttu kost á að kynnast ýmsu sem alla jafna er ekki inni í hefðbundnu skóla- starfí vetrarins. Þessari tilbreyt- ingu í skólanum var vel tekið og virtust bæði nemendur og kenn- arar hafa ánægju af. Danskennsla var meðal annars á dagskrá þemavikunnar, auk þess myndlist, blaðamennska, föndur af ýmsu tagi og búta- saumur. Starfskynning er alltaf vinsæl og var m.a. farið í Hrað- frystistöð Þórshafnar þar sem nemendur fengu innsýn í undir- stöðuatvinnugrein þjóðarinnar. Skólayfírvöld í plássinu eru meðvituð um það gildi sem góður skóli hefur fyrir byggðarlagið og hafa miklar endurbætur verið gerðar bæði á húsnæði skólans og tækjakosti. Nýr leirbrennslu- ofn var keyptur í skólann og tek- inn í gagnið í þemavikunni en það var góð viðbót á listasviðinu. Þessari listaviku í skólanum lauk með árshátíð nemenda í fé- lagsheimilinu og verður ágóða af hátíðinni varið til kaupa á renni- bekk fyrir skólann. Nýbreytni er að nemendum úr unglingadeild- um á Raufarhöfn og Vopnafirði er boðið á árshátíðina og dans- leikinn á eftir. SKIPULAGSSTOFNUN hefur haf- ið athugun á frummati á umhverfis- áhrifum sorpförgunar byggðasam- lagsins Hulu, en aðild að samlaginu eiga Austur- og Vestur-Eyjafjalla- hreppur, Mýrdalshreppur og Skaft- árhreppur. Byggðasamlagið Hula er framkvæmdaraðili verksins og verk- fræðistofan Hönnun hf. vann skýrslu um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. í fréttatilkynningu frá Skipu- lagsstofnun segir að meginmark- miðið með byggðasamlaginu Hulu sé sameiginleg urðun hreppanna fjögun-a á flokkuðu heimilissorpi á Skógasandi en í frummatsskýrsl- unni eru einnig metin umhverfisá- hrif sorporkustöðvar á Kirkjubæj- arklaustri ásamt urðunarstöðum við Uxafótarlæk og á Stjórnar- sandi. A urðunarstöðunum við Uxafótarlæk er áætlað að urða seyru, landbúnaðarplast og bygg- ingarúrgang en á Stjórnarsandi er ætlunin að urða sláturhúsaúrgang, seyru og byggingarúrgang. Þá seg- ir að með breytingu á sorpförgun aðildarsveitarfélaga Hulu sé verið að stuðla að góðri heildarlausn sorpmála svæðisins með því að færa sorpförgunarmálin til betri vegar og færa að þeim kröfum sem nú eru gerðar til slíks reksturs. Heildarúrgangur 700-900 tonn á ári Gert er ráð fyrir að heildarúr- gangur sem til fellur á samlags- svæðinu verði á bilinu 700-900 tonn á ári. Af því er áætlað að urða um 400 tonn á Skógasandi, brenna um 120-130 tonn í sorporkustöð á Kirkjubæjarklaustri og urða 40-80 tonn við Uxafótarlæk en afgangur- inn verður annaðhvort endurnýttur eða urðaður á Stjórnarsandi. I frummatsskýrslunni kemur fram að framkvæmdirnar hafi lítil áhrif á umhverfið. Ekki sé verið að hreyfa við ósnortnu landi, því að einhver umsvif hafi verið áður á öll- um stöðunum. Þá muni sorpmagn minnka verulega vegna aukinnar sorpflokkunar. Ennfremur segir að helstu mótvægisaðgerðir séu fólgn- ar í góðri umgengni meðan á fórgun stendur og eftir að henni er hætt. Sorporkustöðin verði niðurgrafin að miklu leyti og fyllt að henni með jarðvegi og gróðri og að auki verði ákvæði í starfsleyfum um mengun- armælingar við urðunarstaði og sorporkustöð. Tillögur að deiliskipulagi sorp- . urðunarstaðanna á Skógasandi, við Uxafótarlæk og á Stjómarsandi og tillaga að aðalskipulagsbreytingu vegna sorporkustöðvar á Kirkju- bæjarklaustri eru auglýstar á sama tíma og frummatsskýrslan, sem liggur frammi frá 20. febrúar til 27. mars nk. á skrifstofum hreppanna og í söluskála Esso á Steinum, Þjóð- arbókhlöðunni og . Skipulagsstofn- um. Athugasemdir skulu berast Skipulagsstofnun eigi síðar en 27. mars nk. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson HLUTI þátttakenda á fundi Ferðamálasamtaka Austurlands í Hótel Svartaskógi, Ferðafrömuðir eystra ræða samstarf og soknarfæri Vaðbrekku, Jökuldal - Ásmundur Gíslason formaður Ferðamálasam- taka Austurlands mætti á kynning- arfund samtakanna í Hótel Svarta- skógi á dögunum. Fundurinn er lið- ur í verkefninu „Átak til eflingar ferðaþjónustu á Austurlandi". Ferðamálasamtökin standa að verk- efninu ásamt Atvinnuþróunarfélagi Austurlands. Auk Ásmundar mættu á fundinn Orn Þórðarson frá Atvinnuþróunar- félaginu og Steinunn Ásmundsdótt- ir frá Ferðamálafélaginu Forskoti á Fljótsdalshéraði, ásamt ferðaþjón- ustuaðilum á norður Héraði. Tilgangur átaksins er meðal ann- ars að efla ferðaþjónustuaðila til betri vitundar um mikilvægi ferða- þjónustu sem atvinnugreinar, benda á leiðir til frekari markaðs- sóknar og landvinninga í greininni, efla samstarf og samkennd allra þeirra sem koma nálægt ferðamál- um á Austurlandi. Leggja áherslu á mikilvægi heildstæðrar markaðs- setningar fjórðungsins, einkum á erlendum mörkuðum. Huga að framtíðarfyrirkomulagi á félagslegu skipulagi ferðaþjónustunnar á Aust- urlandi. Kanna almenn viðhorf hjá ferðaþjónustuaðilum á hagsmuna- málum atvinnugreinarinnar. Átakið er hugsað sem grunnur að varan- legu starfi og uppbyggingu Ferða- málasamtakanna og þá um leið efl- ingu atvinnugreinarinnar, auknum tekjum og fjölgun starfa. Ásmundur kynnti einnig tillögur Ferðamálasamtakanna varðandi endurskoðun á reglum um stjórn hreindýraveiða. Samtökin leggja til að veiðkvóti á hreindýrum verði ákveðinn með minnst árs fyrirvara, og veiðileyfi verði öll til sölu í einum potti frá 1. október til 15. júlí ár hvert, fyrir veiðtíma er hefst 1. ágúst. Tillögurnar byggjast á að ásókn í hreindýraveiðleyfi hefur aukist til muna bæði hér á landi og erlendis. Örn Þórðarson kynnti hvernig Atvinnuþróunarfélagið kemur að þróun ferðamála í fjórðungnum. Einnig sagði Örn lauslega frá hug- myndum um Frístundagarð á Fljótsdalshéraði. „Það geta ekki allir verið í boltanum Selfossi - Myndlistarnemendur í Sólvallaskóla standa um þessar mundir fyrir myndlistarsýningu í Kaffí Krús á Selfossi. Sýmngin er hluti af námi þeirra. Leið- beinandi unglinganna er Hjör- dís Bergsdóttir myndlistarkona. Verkin á sýningunni eru dúkristur og er þetta annað ár- ið í röð sem nemendur Sólvalla- skóla standa fyrir myndlistar- sýningu sem þessari. En það er meira á döfínni því að krakk- arnir í 10. bekk hafa einnig gef- ið út ljóðabók. Bókin inniheldur rúmlega hundrað ljóð, öll samin af nemendum skólans. Bókin hefur verið kynnt á ljóðakvöldi, sem krakkarnir héldu í tilefni útgáfunnar, og eru viðbrögð við þessu framtaki þeirra mjög góð. Um þessar mundir standa einnig yfir æfingar á árshátíð- arleikriti skólans, en að þessu sinni varð leikverkið Grenið eft- ir Magnús J. Magnússon fyrir valinu. Leikstjóri er Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson, sem hefur unnið mikið með nemendum skólans sfðastliðin ár. Það má því segja að listalífíð sé fjölbreytt í Sólvallaskóla á Selfossi og krökkunum líkar vel að eiga kost á slíku félagsstarfi. „Það geta ekki allir verið í bolt- anum,“ sögðu listamennirnir upprennandi. Morgunblaðið/Sig. Fannar. LISTHNEIGÐIR nemendur Sólvallaskóla eru með mörg járn í eldinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.