Morgunblaðið - 25.02.1998, Síða 17

Morgunblaðið - 25.02.1998, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 17 Skýstrokkarnir tólf sem fóru yfír Flórída mannskæðasta óveður í sögu ríkisins Flestir farn- ir að sofa þegar aðvörun var gefín SKÝSTROKKARNIR sem plægðu 120 kílómetra langa eyðileggingar- slóð á belti sem liggur frá Tampa Bay til Daytona Beach eru þeir mannskæðustu sem sögur fara af á Flórída. Að minnsta kosti 38 manns biðu bana en a.m.k. 11 var enn saknað í gærmorgun. Mörg hundruð íbúðar- og atvinnuhúsa eyðilögðust. Sólarhring eftir veðrið voru 66.000 heimili enn án raf- magns. Veðurfræðingar vissu nokkrum dögum áður að varasamt stormaveður væri í vændum en gáfu ekki út aðvörun um ský- strokka fyrr en hálftíma áður en þeir dundu yfír. Hið fullkomna rat- sjárviðvörunarkerfi sem spáir fyrir um fárviðri af þessu tagi brást við á „röngum“ tíma; fæstir heyrðu að- vörunina þar sem þeir voru lagstir til svefns. Þyrlur búnar innrauðum leitar- tækjum sveimuðu yfir svæðum sem verst urðu úti og leituðu að fólki sem enn er saknað. Björgun- armenn á jörðu niðri brúkuðu blóð- hunda í sama skyni. Þannig er um- horfs á eyðileggingarslóðinni, að sérfræðingar töldu að jaftivel tæki einhverja daga að kemba húsa- brakið sem á mörgum stöðum er í margra mannhæða háum hrauk- um. A þeim stöðum þar sem ástandið var hvað verst var sett út- göngubann frá sólarlagi þar til sól kæmi upp á ný. Bill Clinton Bandaríkjaforseti mun ferðast um slysasvæðin í dag og hefur hann heitið opinberri fyr- irgreiðslu vegna tjóns sem varð í Brevard-, Orange-, Osceola-, Sem- inole- og Volusia-sýslum. Hann framlengdi neyðarástandsákvæði sem ríkisstjóm hans gaf út eftir mikla eyðileggingu í þessum sýsl- um í fárviðri á jóladag. Mesta mildi þykir, að strokkamh- skyllu ekki á Orlando eða á Disneygarðinum en sumir þeirra stungu sér niður rétt við borgina en æddu framhjá rétt vestur af henni. Sogaði barn úr fangi föður síns Skýstrokkarnir skutust til jarðar úr þmmuskýjum á tveggja stunda tímabili frá klukkan 11 á sunnu- dagskvöld að staðartíma. Veður- fræðingar segja að milli sex og tíu skýstrokkar hafi rásað um tiltölu- lega afmarkað svæði sem út af fyr- ir sig sé óþekkt fyrirbrigði á Flórída en um leið athyglisvert frá veðurfarslegu sjónarmiði séð. Til marks um sogkraft þeirra svipti einn strokkurinn eins og hálfs árs gömlu bami úr örmum fóður síns í hjólhýsagarði við borgina Kissimmee, sem er 25 km suður af Orlando. Lík drengsins fannst síð- degis á mánudag eða 17 stundum seinna. Á eyðileggingarslóð skýstrokk- anna býr mikið af fólki sem flutt hefur til Flórída frá Miðvestur- og Norðausturríkjunum til að njóta JONATHAN Waldick, sem ský- strokkur skildi efti uppi í tré. ellinnar við meiri veðursæld. Josie og Ned Wolfe em í þeim hópi en þau stóðu í rústum húsa sinna í gær og leituðu lyfja og persónu- legra muna. Hún fann peninga- buddu sem í vom fjórir dollarar sem hún vann í bingóhöll fyrr um kvöldið sem óveðrið skall á. „Hér er ekkert eftir, allt ónýtt,“ sagði frúin, sem flutti ásamt manni sín- um til Flórída árið 1983 frá Dayton í Ohio-ríki. „Þetta var allt sem við áttum, sem við eignuðumst með því að vinna hörðum höndum. Eg vildi að við hefðum bara dáið. Eg er 73 ára og á þeim aldri byijar enginn upp á nýtt,“ bætti hún við. Lagðist til svefns í björgunarvesti Freddie Padgett hefur verið veiðivörður við Rod og Siivi’s vatnasvæðið í 18 ár. Samt er hann enn það vatnshræddur, að í hvert sinn sem slæmu veðri er spáð klæðist hann björgunarvesti áður en hann fer að sofa. Það gerði hann einnig á sunnudagskvöld og á hann þessari þráhyggju líf sitt að þakka því einn strokkurinn malaði hýbýli hans mélinu smærra og fleygði honum langt út á vatn. Þar hékk hann með brotin rifbein og fleiri áverka á bátsbraki þar til honum var bjargað um borð í þyrlu nokkrum klukkustundum seinna. Strokkurinn sá að sér Ætla mætti að einn skýstrokkur- inn hafi verið mannlegur og séð að sér eftir að hafa verið búinn að leggja enn eitt húsið við Kissimmee í rúst og soga 18 mán- aða pilt, Jonathan Waldick, burtu. Shirley Driver, langamma hans, svaf í rúmi sínu og við hlið hennar lá fjögurra ára systir Jonathans, en hún gætti bamanna þar sem for- eldramir voru að heiman. Jonath- an svaf í herbergi við hliðina. Driver hrökk upp er óveðrið skall á húsinu og fann strax telpuna en hvar var Jonathan? Reuters MITT f allri eyðileggingunni leikur Dominique Coleman sér áhyggjulaus við rústir heimilis síns skammt frá Kissimmee á Fiórída, daginn eftir að skýstrokkar ollu gffurlegri eyðileggingu og dauða a.m.k. 38 manna. SKYSTROKKAR VALDA TJONII FLORIDA ÞRJÁTÍU manns a.m.k. biðu bana í gær og hundruð húsa eyðilögðust er skýstrokkar stungu sér niður á miðhluta Flórída. Suðausturjaðar stormkerfis sem talið er tengt El Nino straumnum náði yfir Miðvestur- og Suðurríki Bandaríkjanna. Gat það af sér fjölda skýstrokka sem rásuðu yfir Flórídaskaga. ATLANTSHAF ‘S 2 Hvirfill Loft streymir upp í spíral og sogar meðsér þunga hluti á trorð við bíla Daytona Us Beach ® Ý- Winter Garden ?v —M® \4r< Tampa 0riando\: .-S® garóur- A \ V inn FLÓ / Canaveral■ höfði A 1 ORIDA v 1 Okeechobeevatn Skýstrokkur Skýstrokkar skjótast niður úr þwmu- skýjum sem hvítar trektir sem fljótt verða gráar af ryki. Flestir deyja út innan 15 mínútna. Strokkamir geta verið 10 til 400 metra breiðir og vindhraðinn meira en 400 km. f I 50km v Miami ®' V k Henni þótti líklegast að svarið væri að finna undir miklum spýtnahaug sem húsið var orðið að. Hvarf pilts- ins sem strokkurinn hrifsaði með sér spurðist fljótt út til næstu húsa og nágrannar og björgunarmenn streymdu að. Eftir að hafa grafið í rústunum í 40 mínútur kom í Ijós að ekkert var eftir af herbergi Jon- athans. En um það leyti tók einn björgunarmanna eftir einhverju óvenjulegu uppi í nærliggjandi eik- artré er hann beindi ljósi sínu þangað. „Mér sýnist ég sjá fót- legg,“ sagði hann og rauk að trénu ásamt nokkrum öðrum. Lá piltur þar hreyfingarlaus á dýnu sinni og með opin augu. „Hann er dáinn,“ sagði lögreglumaður. En nánast um leið dinglaði sá stutti fætinum sem stóð út af dýnunni. Einhver hrópaði nafn hans nokkrum sinn- um og Jonathan svaraði með kjökri við mikinn fögnuð viðstaddra. Einn þeirra klöngraðist yfir spýtnabrak upp í tréð og bjargaði honum. Ský- strokkurinn hafði stýft laufkórón- una að mestu af trénu og var dýn- an kyrfilega skorðuð milli þéttrið- inna greina sem eftir stóðu, rétt eins og henni hefði verið vandlega komið þar fyrir af mannavöldum. Pólland og stækkun ESB Bændur Vilja skamman aðlögunarfrest Varsjá. Reuters. PÓLSKA ríkisstjórnin vill tak- marka aðlögunartímann sem viss- um sviðum pólsks athafnalífs verð- ur ætlað til að uppfylla til fullnustu viðmið og skilyrði Evrópusam- bandsins, eftir að Pólland hefur samið um aðild að því. Ryszard Czarnecki, ráðherra Evrópusamrunamála, tjáði frétta- mönnum í Varsjá að þetta væri stefnubreyting frá því þegar vinstristjóm var við völd í landinu, en stjómarskipti urðu eftir kosn- ingar í haust sem leið. Þáverandi Evrópumálaráðherra hafði farið fram á mjög langa aðlögunarfresti. Pólverjar hefja samningavið- ræður um aðild að ESB 31. marz næstkomandi og gera sér vonir um að ganga til liðs við sambandið fljótlega eftir aldamót. Ljóst er að PóIIand þarf á tíma og aðstoð að halda til að laga ýmsa þætti athafnalífs að þeim viðmið- um sem gilda í ESB, einkum og sér í lagi í landbúnaði, þungaiðn- aði, jarðefnavinnslu og umhverfis- vemd. uggandi BÆNDUR í núverandi aðildarlönd- um Evrópusambandsins, ESB, eru uggandi um sinn hag ef tillögur framkvæmdastjómar ESB um nið- urskurð í styrkjakerfi landbúnaðar- ins í sambandinu ná fram að ganga. Franskir bændur mótmæltu tillög- unum við höfuðstöðvar ESB í Bruss- el á mánudag og samkvæmt frétt Svenska Dagbladet í gær gætu sænskir bændur misst allt að fimm milljörðum ísl. kr. við breytingamar. Nauðsynlegt þykir að hrinda þessum breytingum í framkvæmd áður en væntanleg ný aðildarlönd ESB í Mið- og Austur-Evrópu verða tekin inn í sambandið, en bú- izt er við að þau fyrstu fái aðild fljótlega uppúr aldamótum. Land- búnaður er mikill í þessum löndum og því myndi það ríða núverandi landbúnaðarkerfi ESB að fullu ef engar breytingar yrðu gerðar á því áður en aðildarríkjum fjölgar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.