Morgunblaðið - 25.02.1998, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998
ERLENT
MORGUNBLADIÐ
Sprenging
í Róm
AÐ minnsta kosti sex slösuðust,
þar af tveir alvarlega, í spreng-
ingu sem varð í miðborg Rómar
í gær. Eitt hús hrundi að hluta
og önnur skemmdust. Einnig
urðu skemmdir á bilum. Björg-
unarmenn töldu líklegt að
sprengingin hafí orðið út frá
gaseldavél.
42 felldir
í Alsír
ALSÍRSKIR stjórnarhermenn
hafa fellt 42 múslímska upp-
reisnarmenn í Tlemcen-hérað
að undanfömu, að því er alsírsk
dagblöð greindu frá í gær.
Skæruliðar myrtu fímm
óbreytta borgara skammt suður
af Algeirsborg, og í síðustu viku
felldu þeir 47 hermenn í fyrir-
sát. Stjómvöld segja uppreisn-
armenn bera ábyrgð á sprengju
er grandaði a.m.k. 21 í farþega-
lest á mánudag.
Kínverjar vilja
viðræður
KÍNVERSK stjórnvöld gáfu í
skyn í gær að þau væru reiðu-
búin til að samþykkja skilyrði
Tævansstjórnar fyrir óopinber-
um viðræðum, er legið hafa
niðri í um tvö og hálft ár. Kín-
verjar sögðu að óopinber full-
trúi Tævana væri velkominn til
Peking til viðræðna, en tóku
fram að þeir vildu að opinberar
viðræður kæmust á.
Yfirmaður
Mossad hættir
YFIRMAÐUR Mossad, leyni-
þjónustu Israels, sagði af sér í
gær í kjölfar rannsóknar á mis-
heppnuðu tilræði við leiðtoga
Hamas-samtakanna í Jórdaníu.
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra Israels, samþykkti af-
sögn yfirmannsins, Dannys
Yatoms. Yatom sagði uppsagn-
arbréfi sínu að hann væri ósam-
mála þeirri niðurstöðu rann-
sóknarinnar að Mossad bæri
ábyrgð á því hvernig fór.
Embættismað-
ur á braut
RÚSSAR tilkynntu í gær, að
fyrsta embættismanninum yrði
skotið á braut um jörðu í ágúst
næstkomandi. Heitir hann Júrí
Batúrín og var áður ráðgjafi
Borís Jeltsíns forseta. Missti
hann það starf 12. þessa mánað-
ar en er ennþá í þjónustu ríkis-
ins. Hefur hann lokið þjálfun
sem geimfari í Stjörnuborg
skammt frá Moskvu. Er ferð-
inni heitið upp í Mír-geimstöð-
ina þar sem Batúrín verður við
ýmsar rannsóknir í vikutíma.
Arafat hafnar við-
ræðuboði Netanyahus
Jerúsalem, Brussel. Reuters.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra Israels, hefur endumýjað
tilboð sitt um fund með Yasser Ai-a-
fat, forseta heimastjórnar Palestínu-
manna, fyrir milligöngu Bandaríkja-
manna til þess að ræða grundvallar-
atriði í friðarumleitunum fyrir botni
Miðjarðarhafs. Arafat hafnaði boð-
inu í gær og sagði að Israelar yrðu
að standa við skuldbindingar um skil
á landi á Vesturbakkanum.
Netanyahu sagði í sjónvarpsvið-
tali í fyrrakvöld að hann leggði til að
oddvitarnir „lokuðu sig af einhver-
staðar" og athuguðu vandlega hvar
hægt yrði að ná málamiðlun milli
krafna Palestínumanna og „grund-
vallarþarfa ísraels". Arafat sagði að
mestu skipti að gerðir samningar
væra efndir og ef það yrði gert
myndi hann gjarnan viija eiga fund
með Netanyahu og halda friðarum-
leitunum áfram.
Arafat sagði við fréttamenn að
þetta væri ekki í fyrsta sinn sem
Netanyahu legði fram tilboð sem
þetta. „Hann gerir þetta til að vekja
á sér athygli," sagði Arafat.
Ekkert kemur í stað
beinna viðræðna
Netanyahu nefndi að til greina
kæmi að viðræður færu fram í
Camp David í Maryland, þar sem er
bústaður Bandaríkjaforseta. Þar
fóru fram viðræður háttsettra emb-
ættismanna ísraela og Egypta er
leiddu til tímamótasamkomulags
þeirra 1979. Það var fyrsti friðar-
samningur sem Israelar gerðu við
arabaríki.
Netanyahu sagði að ekkert gæti
komið í staðinn fyrir beinar viðræð-
ur Israela og Palestínumanna þar
sem þeir gætu sett fram kröfur sín-
ar og rætt það sem í milli bæri.
Palestínskir embættismenn kváð-
ust á mánudag vona að_ þar sem
deilu Bandaríkjanna við íraka virt-
ist lokið gæti umheimurinn - og þá
einkum helsti sáttasemjarinn,
Bandaríkin - nú beint athyglinni að
friðarumleitunum í Mið-Austurlönd-
um.
Umleitanir hafa legið niðri í tæpt
ár, eða frá því ísraelar hófu bygg-
ingaframkvæmdir í landnámi gyð-
inga í Austur-Jerúsalem, en Palest-
ínumenn vilja að sá hluti borgarinn-
ar verði höfuðborg sjálfstæðs ríkis
þeirra. ísraelar segja hins vegar, að
Jerúsalem heil og óskipt sé eilíf höf-
uðborg Israelsríkis.
Imelda vill aftur
í forsetahöllina
ÞING- og forsetakosningar verða
á Filippseyjum 11. maí næstkom-
andi og hefur 81 Lýst yfir áhuga á
að verða næsti þjóðhöfðingi lands-
ins. Verða frambjóðendur að fá
samþykki sérstakrar nefndar, sem
kom saman í gær til að reyna að
skilja hafrana frá sauðunum. Hef-
ur hún þegar lagf, blessun sína yfir
sjö „alvöruframbjóðendur" en
hafnað ýmsum „ugluspeglum",
sem hún kallar svo. Meðal þeirra
er „frelsaður vísindamaður", sem
fór að hágráta þegar honum var
vísað á bug; maður, sem vill stýra
landinu eftir stjörnukorti; annar,
sem lofaði að afnema alla skatta,
og einn, sem er nýstiginn ofan af
himni. Mætti hann í gær á fund
nefndarinnar í ,jesúklæðum“, í
hjarðsveinabúningi með stóran
staf í hendi. Síðan er það sjálf
Imelda Marcos, fyrrverandi for-
setafrú, sem enn er frjáls ferða
sinna þótt hún hafi nýlega verið
dæmd í 12 ára fangelsi fyrir spill-
ingu. Geisaði hún mjög yfir ráð-
herrunum í gær og kallaði þjófa
en ekki er enn ljóst hvort hún fær
að bjóða sig fram. títi fyrir beið
nokkur hópur stuðningsmanna
hennar með spjöld á lofti.
Botha kveðst ekki
hafa framið lögbrot
George. Reuters.
PIETER Willem Botha, fyrrver-
andi forseti Suður-Afríku, kom fyr-
ir rétt í fyrradag og kvaðst ekki
hafa gerst sekur um lögbrot með
því að neita að bera vitni fyrir sann-
leiks- og sáttanefndinni, sem rann-
sakar mannréttindabrot sem fram-
in voru á tímum aðskilnaðarstefn-
unnar.
Botha var ákærður fyrir að hafa
brotið lög um sannleiksnefndina
með því að virða vitnastefnur henn-
ar að vettugi af ásettu ráði og til
vara að hafa hindrað rannsókn
nefndarinnar. Verði hann fundinn
sekur um lögbrot verður hann
sennilega dæmdur til að greiða sekt
og afplána tvö ár í fangelsi.
Lappe Laubscher, lögfræðingur
Botha, las sex síðna málsvamar-
skjal þar sem hann hélt því fram að
Desmond Tutu erkibiskup, formað-
ur nefndarinnar, hefði rofið sam-
komulag við Botha með því að
stefna honum fyrir nefndina. Lög-
fræðingurinn sagði að Botha hefði
samþykkt að svara spurningum
nefndarinnar skriflega gegn því að
hún kallaði hann ekki fyrir.
Botha var við völd í S-Afríku í 10
ár og lét af forsetaembættinu 1989
þegar F.W. de Klerk tók við.
Reuters
Georgía
Ræða við
andstæð-
inga
forsetans
Moskvu, Dzliikhashskari. Reuters.
SENDIHERRA Georgíu í Rúss-
landi ræddi í gær við fulltrúa and-
stæðinga forseta Georgíu um lausn
þriggja gísla sem tólf vopnaðir upp-
reisnarmenn halda í Georgíu.
Mennirnir þrír eru friðargæsluliðar
á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Ræningjamir kröfðust m.a. við-
ræðna milli stjómarinnar og stjórn-
arandstöðunnar.
Reuters hafði eftir stjórnarand-
stöðufulltrúanum í gær að hann
væri ekki með nokkrum hætti
tengdur mannræningjunum, en
vildi gjarnan leggja sitt að mörkum
ef það mætti verða til þess að
bjarga mannslífum.
Edúard Shevardnadze, forseti
Georgíu, kvaðst vilja binda enda á
gíslatökuna með friðsamlegum
hætti og sagði að stjórn sín væri til-
búin að verða við kröfu mannræn-
ingjanna um að hefja samningavið-
ræður við stuðningsmenn Zviads
Gamsakúrdía, fyrrverandi forseta
Georgíu. „En þeir ættu að vita að
það eru takmörk fyrir þolinmæði
okkar,“ bætti forsetinn við.
Einum sleppt
Uppreisnarmennirnir slepptu
einum gíslanna, Uruguaymanninum
Julio Navas, á sunnudag. Þeir halda
enn þremur friðargæsluliðum, Ur-
uguaymanni, Tékka og Svía, og ge-
orgískri fjölskyldu á bóndabýli sem
þeir lögðu undir sig í vikunni sem
leið í Dzhikhashskari, um 300 km
norðvestan við höfuðborgina, Tbil-
isi.
Gocha Esebua, foringi mannræn-
ingjanna, sagði við fréttamenn í
gær að gíslunum yrði sleppt um leið
og viðræður stjórnarinnar og stuðn-
ingsmanna Gamsakúrdía hæfust.
Gamsakúrdía var fyrsti forseti Ge-
orgíu og honum var steypt af stóli í
blóðugu valdaráni árið 1992. Hann
lést við dularfullar kringumstæður
ári síðar þótt áköfustu fylgismenn
hans telji að hann sé enn á lífi.
Austurrískir
karlar lögskyld-
aðir í uppvaskið
London. The Daily Telegraph.
AUSTURRÍSKIR karlmenn
mega brátt búast við því að
verða lögskyldaðir til að inna að
minnsta kosti helming heimilis-
starfanna af hendi, ef frumvarp
til breytinga á skilnaðarlöggjöf
landsins verður samþykkt.
Hugmyndin er sú að halda
austurrískum húsfrúm ánægð-
um með því að tryggja að eigin-
menn þeirra stingi ekki af ofan í
bjórkjallara áður en þeir hafa
sinnt sínum hluta af uppvaskinu,
eldamennskunni og innanhúss-
þrifum.
Hin nýja löggjöf, sem þing-
nefnd skipuð fulltrúum allra
flokka samþykkti á dögunum, er
hluti af róttækri endurskoðun á
hjónabands- og skilnaðarlög-
gjöf, sem hefur verið óbreytt í
giundvallaratriðum frá því fyrir
stríð, þegar Austurríki var hluti
af Þriðja ríki Adolfs Hitlers.
Nazistar álitu að konum bæri
að vera sáttar við að sjá um
börn og heimili og sækja kirkju
(Kinder, Kiiche, Kirche). Nú
vilja austurrískar nútímakonur
umbylta þessari lagalegu arf-
leifð.
Fyrir tveimur árum hóf aust-
urríska kvennamálaráðuneytið
áróðursherferð sem miðaði að
breytingum á skilnaðarlögun-
um. I henni voru rök færð fyrir
því að ekki ætti aðeins að skipta
heimilisstörfum jafnt milli kynj-
anna, heldur ættu aðrar hliðar
hjónalífs, svo sem umönnun
barna, að skiptast jafnt á bæði,
með orlofsgreiðslum tO þeirra
sem em í vinnu eða eru bundnir
af öðram skuldbindingum.
Margir undrandi en sammála
um þörf fyrir breytingar
Margir era undrandi yfir til-
burðum löggjafans til að reyna
að stýra einkalífi fólks með þess-
um hætti, en jafnframt eru
margir sammála um að ekki
veitti af að endurskoða lögin
sem í gildi eru. Samkvæmt þeim
má karlmaður fara fram á skiln-
að við eiginkonu sína ef hún
neitar að elda fyrir hann. Ný-
lega fékk Austurríkismaður
nokkur skilnaði framgengt á
þeim forsendum að eiginkona
hans neitaði að nota uppáhalds-
uppþvottalöginn hans.