Morgunblaðið - 25.02.1998, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 25.02.1998, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 19 ERLENT Danska kosningabaráttan komin á fullan skrið Danskt kosningamál Trúverðugleiki lykilorðið Þykja minna meira á forsetakosningar í bandarískum stíl en danskar þingkosningar Leikföng handa Kaupmannahöfn. Morgunbiaðið. „TREYSTIÐ þið þeim?“ og „Eru þeir trúverðugir?" eni spurningar, sem stöðugt heyrast í dönsku kosningabaráttunni, þar sem „trú- verðugleiki" er lykilorðið. Síðan Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra og formaður Jafnaðarmannaflokksins, leiddi flokk sinn til valda í janúar 1992 þegar hægristjórn Pouls Schluters fór frá vegna Tamílamálsins svo- kallaða hefur Nyrup verið tamt að snúa stjórnmálabaráttunni upp í baráttu fyrir bættu siðferði. Þótt hann hafi átt frumkvæði lætur Uf- fe Ellemann-Jensen, formaður Venstre, ekki sitt eftir liggja. Jafn- framt einkennist kosningabaráttan af hörðu uppgjöri milli þeirra tveggja og það svo hörðu að ýms- um verður tíðrætt um að kosning- arnar minni meira á forsetakosn- ingar í bandarískum stíl en dansk- ar þingkosningar. I heillar opnu auglýsingum í stóm blöðunum um helgina spyr Ellemann-Jensen kjósendur hvort það sé trúverðugt að Nyrup ætli að breyta þjóðfélaginu eftir að hafa verið við völd í fimm ár. Um leið sagði Politiken frá því að blaðamaður þeirra hefði fengið níðskýi’slu frá háttsettum jafnað- armanni, þar sem gerð er úttekt á hverjir þingmanna Venstre og íhaldsmanna væra líklegir til að fara í hvaða ráðherrastóla og síðan farið háðulegum og niðrandi orð- um um hæfileika þein’a. Flokks- maðurinn lét blaðamanninum í té skýrsluna svo hann gæti gert sér mat úr henni við neikvæða umfjöllun um and- stæðingana, en blaðamaðurinn ákvað þess í stað að segja frá henni og hvernig átti að nota hana. Þegar þetta kom fram sagðist Nyrup ekki kannast við skýrsluna enda væri hann mótfall- inn vinnubrögðum af þessu tagi. Ellemann-Jensen sagði að skýrslan talaði sínu máli en sagðist ekki kæra sig um að svara í sömu mynt. I sjónvarpsumræðum eftir að Nyrap boðaði til kosninganna gerði hann gjarnan athugasemdir við málflutning andstæðinganna á þeim forsendum að andstæðing- arnar, einkum Ellemann-Jensen, væra ótrúverðugir og brá þannig siðferðilegu fremur en pólitísku mati á málflutning þeirra. Ellem- ann-Jensen lætur heldur ekki sitt eftir liggja á þessum nótum og hef- ur æ ofan í æ dregið trúverðug- leika Nyrups í efa í sambandi við Færeyjamálið. Tvfleikur Nyrups og Ellemann-Jensens í upphafi kosningabaráttunnar var fljótlega talað um að baráttan yrði fyrst og fremst milli Nyraps, sem berðist fyi'h’ að halda forsæt- isráðherrastólnum, og Ellemann,- Jensens, sem berðist fyrir að fá hann. Miðað við Ellemann-Jensen er Nyrup nýgræðingur í stjórn- málum, settist ekki á þing fyrr en 1988, en Ellemann-Jensen heyr nú sína níundu kosningabaráttu sem þingmaður. Munurinn hefur löngum verið Ijós þar sem Ellemann-Jensen er með afbrigðum sviðsvanur, á auð- velt að koma fram í fjölmiðlum og virðist alltaf skemmta sér. Nyrap hefur hins vegar verið stirðbusa- legur, oft klaufskur og aldrei eðli- legur. Upp á síðkastið hefur hann hins vegar þótt óvenju röggsamur og ákveðinn, eins og glöggt kom í ljós þegar hann efndi til kosning- anna. I síðustu kosningum var áberandi að hann reyndi í lengstu lög að komast hjá að kappræðum við hinn reynda höfuðandstæðing en nú færist hann ekki lengur und- an. íhaldsflokkurinn hefur átt und- ir högg að sækja og þá eins Per Stig Moller, formaður flokksins. Hann tók við formennskunni þeg- ar Hans Engell var tekinn fyrir ölvun við akstur fyrir ári. Stig Mpller hefur ekki þótt röggsamur leiðtogi, en hefur líka mátt glíma við stuðningsmenn Engells í þing- flokknum, sem illa sætta sig við mannaskiptin og sem ekki hafa þótt koma fram af heilindum við nýja formanninn. Ef í Ijós kemur að Miðdemókratar hafa fremur áhuga á hægristjórn en að styðja Nyrup áfram þykir sennilegt að flokkurinn styðji fremur Ihalds- flokkinn og Per Stig Mpller, en frjálslyndi Venstre. Það gæti þá styi’kt íhaldsformanninn og komið honum á pall með þeim Nyrup og Ellemann-Jensen sem annars fara með drjúgan hluta athyglinn- grísunum Kaupmannahöfn. Rcuters. DANSKUR þingmaður, sem kepp- ir að endurkjöri í þingkosningun- um II. mars nk., ætlar að berjast fyrir því, að dönskum svínum, 11 milljónum, verði útveguð leikföng til að stytta sér stundir við. Mariann Fischer Bols, sem situr á þingi fyrir Venstre, vill, að svín- in og sérstaklega litlu grísirnir fái gúmmíkúlur til að leika sér að en hún liefur einnig barist fyrir bættri þvottaaðstöðu hjá svínun- um auk þess sem hún vill, að það sé „hreint á rúmunum" þar sem þau Ieggjast til hvfldar. Fischer Bols segist vera viss um, að baráttumál sín muni falla í góðan jarðveg hjá umhverfis- verndarsinnum og dýravinum en flokksforystan er ekki hrifin. Uffe Ellemann-Jensen, leiðtogi Venstre, segir, að hugmyndin um svínaleikfóngin sé asnaleg en Niels Hojland, einn frambjóðenda Framfaraflokksins, segir, að næsta baráttumál Venstre hljóti að verða að bjóða svínunum upp á gamanmyndir og gufubað. ar. RYK- & VATNSSUGUR Urvalið er hjá okkur Nýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001 IBESTAI Reuters HREINSUNARSTARF var að hefjast á Edwardstræti í Portadown í gær. Þar sprakk sprengja í fyrradag. IRA neitar aðild Bclfast. Reuters, The Daily Telegraph. ÍRSKI lýðveldisherinn (IRA) neit- aði í gær að bera ábyrgð á sprengjutilræði í bænum Porta- down á Norður-írlandi í fyiTadag, að því er fréttastofan Press Associ- ation greindi frá. I yfirlýsingu frá IRA sagði að vopnahlé hersins væri enn í gildi. Enginn hefur lýst ábyrgð á hendur sér. Sprengjan sprakk í mibæ Portadown skömmu fyrir há- degi á mánudag en áður höfðu borist viðvaranir um yfirvofandi hættu og því hafði tekist að rýma byggingar í grenndinni og engan sakaði er sprengjan sprakk. Eigna- tjón varð gífurlegt. Sambandssinn- ar, hlynntir breskum yfirráðum á N-írlandi, era fjölmennir í Porta- down. Leiðtogar sambandssinna þótt- ust sjá þess öll merki að kaþólikk- ar, sem berjast gegn yfirráðum Breta í héraðinu, hefðu staðið að tilræðinu og gáfu í skyn að það kynni að verða til þess að skærulið- ar sambandssinna aflýstu vopna- hléi sem þeir hafa haldið í fjögur ár. Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, stjórnmálaanns IRA, neitaði því að IRA hefði staðið að tilræð- inu. Þetta var þriðja tilræðið á skömmum tíma, en seint á föstu- dag sprakk sprengja í bænum Moira fáeinum klukkustundum eft- ir að bresk og írsk stjórnvöld til- kynntu að Sinn Fein hefði verið vísað frá samningaviðræðum um framtíð N-írlands vegna meintrar aðildar IRA að tveim morðum í Belfast. Brottvísunin á að gilda til 9. mars, en sambandssinnar, sem taka þátt í viðræðunum, segja nú að þeir muni hætta þátttöku ef Sinn Fein verði hleypt aftur að samningaborðinu. David Trimble, leiðtogi flokks Sambandsinna Ul- sters (UUP), fór á vettvang í Portadown í fyrradag, en það er í kjördæmi hans. „Þetta era við- brögð IRA við viðræðunum," sagði hann. Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtaldra gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Staðgreiðslu og tryggingagjaldi til og með 12. tímabili með eindaga 15. janúar 1998 og virðisaukaskatti til og með 48. tímabili með eindaga 5. febrúar 1998 og öðr- um gjaldföllnum álagningum og ógreiddum hækkunum er féllu í gjalddaga til og með 15. febrúar sl. á stað- greiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskattí skv. ökurnælum, viðbótar- og aukaá- lagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, vinnueftírlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri fram- leiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, skipulagsgjaldi, skipagjaldi, fisk- sjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum opinberum gjöldum, sem eru: tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, þróunar- sjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald. gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddur bantabótaauki og ofgreiddar vaxtabætur. Fjámáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjámámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjámám. Þinglýsingargjald er 1.200 kr. og stimpil- gjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst tíl að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, tryggingagjald, vömgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara. Reykjavík, 25. febrúar 1998. Tollstjórinn í Reykjavík Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgamesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Ólafsfirði Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Neskaupstað Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Gjaldheimta Vestfjarða Gjaldheimta Austurlands Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.