Morgunblaðið - 25.02.1998, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 25.02.1998, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Huldufólkið og hólfélagið PÉTUR Már Ólafsson ræðir um verk Halldórs Laxness í Norræna húsinu fimmtudaginn 26. febrúar kl. 17.15. Erindið er í röð fyrirlestra í Nor- ræna húsinu, sem Vaka-Helgafell efndi til í samvinnu við Laxness- klúbbinn þegar Halldór Laxness fagnaði 95 ára afmæli í fyrra. Pétur Már ræðir um Brekkukotsan- nál og gluggar í minniskompur Laxness frá því að hann var að skrifa þá skáld- sögu, en ekki hefur verið vitnað til þeirra áður í umfjöllun um verk Halldórs Lax- ness. Erindið nefnir hann Huldu- fólkið og hólfélagið. Þá fléttar Pét- ur Már inn í spjall sitt greinar skáldsins frá ýmsum tímum. Pétur Már er bókmenntafræð- ingur frá Háskóla Islands og út- gáfustjóri hjá Vöku-Helgafelli. Hann hefur skrifað formála að fjór- um skáldsögum Halldórs Laxness, sem komið hafa út í kiljuformi á undanfornum árum, Brekkukotsan- nál, Islandsklukkunni, Sölku Völku og Vefaranum mikla frá Kasmír. Pögul MÁLVERKASÝNINGU Þorfxnns Sigurgeirssonar í Gallerí Fold er ætlað að vera lítið þagnarafdrep í hávaðalandslagi borgarinnar. Landslag málverkanna innan dyra sölugallerísins við Rauðarárstig er glóandi rautt. Þau lýsa tilveru á mörkum andlegs og veraldlegs heims. Sýninguna nefnir Þorfinnur Þögn. í sýningar- skrá segir hann m.a. að í eðli sínu sé mál- verkið miðill þagn- arinnar. „Sú veröld sem í því birtist lýt- ur sfnum eigin hug- lægu og sjónrænu lögmálum, auk þess að vera þögul, kyrr- stæð og tímalaus.“ Talsvei ð einfóldun hefur orðið í mynd- heimi Þorfinns frá því sem áður var. Eftir standa hlutar stærra sam- hengis, egg og epli, sem vísa til ein- hvers óræðs kjarna tilverunnar, - og skuggar. Þorfinnur segist mikið velta fyrir sér skuggamyndum hluta, þar finnist sér einna helst vera á ferðinni e.k. andleg teikning hluta. Form og skuggi leika saman í kyrrstæðu og þöglu landslagi, e.k. kyrralífsmynd af lífi. Málverk sín segir Þorfinnur veikburða tilraunir til að fanga einhvexja merkingu tilvera handan yfirborðsins þó tilgangur leitarinnar geti aldrei verið annar en leitin sjálf. „Því þegar allt kemur til alls þá ber leit manns að sjálfum sér aldrei neinn ávöxt,“ segir Þor- finnur. „Vinnustofa listamannsins er eins og bænhús þar sem kafað er eftir tilgangi tilverunnar. Ég leitast við að varpa ljósi á andlegt ástand líkamlegrar tilveru okkar. Þetta eru myndir sem ætlast er til að séu skynjaðar fremur en höndlaðar á ein- hvem rökréttan hátt.“ Þorfinnur hefur skipulega rannsak- að heildaráhrif óli'kra lita og ljær gjarnan hverri sýn- ingu ákveðinn lit. Á sýningu sinni AUt eða ekkert í List- húsi 39 í Hafnarfirði sýndi hann eingöngu hvítar myndir að undanskildu rauðu eplinu sem gaf fyrirheit um sýninguna nú. Rauði liturinn er borinn á yfirborð striga og viðarplatna, í mörgum gagnsæjum lögum sem gefur yfir- borðinu glóanda og dýpt. Síðasta mynd sýningarinnar bendir í átt til framhaldsins. Landslag í grænum litatónum, titillinn er Stöðnun. Sýning Þorfinns stendur til 8. mars nk. Þorfínnur Sigurgeirs $| j i > > > >3 ' ; >.T 'v'w 1 fl ' || i • k m ■ t 5» .ÍXÍ Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson LEIKARAR UMF Reykdæla ásamt Valgeiri Skagfjörð leikstjóra. Sjóleiðin til Badgad í Reykholtsdal Morgunblaðið. Reykholtsdalur. AÐ undanförnu hefur Ung- mennafélag Reykdæla æft Ieikrit Jökuls Jakobssonar, Sjóleiðin til Bagdad. Leikritið var frumflutt í Iðnó í október 1965 og var hið þriðja í röðinni af verkum þessa vinsæla höfundar á fjölum leik- húsanna. Leikstjóri sýningarinn- ar í Borgarfírðinum er Valgeir Skagfjörð. Með hlutverk fara: Asdís Ár- mannsdóttir, Hrund Ólafsdóttir, Steinunn Garðarsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Jón Eyjólfsson, Þór Þorsteinsson og Þorvaldur Jóns- son, en alls taka um fímmtán manns þátt í uppfærslunni. Frumsýnt verður í Logalandi föstudaginn 27. febrúar kl. 21. Næstu sýningar verða 1., 4., 6. og 8. mars kl. 21. Að flytja fal- lega tónlist TðfMLIST Listasufni Kópavogs KAMMERTÓNLEIKAR Flutt voru tónverk eftir d’Indy, Koechlin, Saint-Saéns, Massenet, Francaix, Debussy og Roussel. Flytj- endur: Sigrún Eðvaldsdóttir, Elfsabet Waage, Inga Rós Ingólfsdóttir, Junah Chang og Martial Nardeau. Mánu- dagurinn 23. febrúar 1998. ÞAÐ er töluverður munur á tón- máli Evrópuþjóðanna, sem og allri menningu þeirra, og hafa margar til- gátur komið fram til að útskýra þennan mun, t.d. á sviði tónlistar, en þar eru helst rakin órofa tengsl tungumálsins, t.d. bein áhrif á söng- máta, er svo aftur hafí mótað með- ferð tónmáls í hljóðfæraleik og jafn- vel áhuga fyrir sérstökum gerðum hljóðfæra. Hirðmenning Frakka var mótuð af viðhafnarlegum glæsileik og í gríni er sagt að glæsilega klædd- ur flautuleikari hafí notið sín betur á hljómleikapalli en sitjandi strengja- leikarar. Harpan er að nokkru sér- franskt hljóðfæri og núverandi gerð hennar verk Sebastians Erards, 1820, þótt sögu hörpunnar megi rekja lengra aftur en margra ann- arra hljóðfæra. Hvað sem þessu líð- ur hafa flautan og harpan verið eins konar þjóðarhljóðfæri Frakka og t.d. talið að áhugi Friðriks mikla Prússa- konungs á flautunni hafí verið fyrir frönsk áhrif. Tónleikarnir hófust á svítu fyrir flautu, fiðlu, lágfiðlu, selló og hörpu eftir Vincent d’Indy (1851-1931), einn áhrifamesta tónlistarmann Frakka og víðfrægan kennara. Það sem er einkennilgt við þessa svítu er að allir kaflamir hefjast á „hreinni fimmund". d’Indy var 76 ára er hann samdi þetta verk. Einkennandi fyrir það er einmitt andstaða Frakka gegn kontrapunktískum vinnubrögð- um, þar sem leikur með blæbrigði réð oft jafnmiklu og raddleg út- færsla, er var oft útfærð í einrödduð- um samleik hljóðfæra, og aðalefni- viður verksins lá oftast í efstu rödd en samleikshljóðfærin þá notuð til undirleiks. Flutningurinn var allur hinn besti. Annað verkið á tónleikunum var brot úr kammerverki eftir Charies Koechlin (1867-1950), franskan ein- fara er lærði hjá Fauré og Massenet. Koechiin kom aldrei fram á tónleik- um eða gegndi nokkru starfí sem tónlistarmaður, en helgaði sig tón- smíðum og ritun fræðibóka. Þetta kann að vera ástæðan fyrir því að hann er lítt þekktur og verk hans hafa ekki verið nema að hluta til gef- in út. Þetta er sérkennileg tónlist, sem vert væri að kynnast frekar, og um margt ólík því sem frægast er af franskri tónhst. Svanurinn eftir Saint-Saéns var fallega leikinn af Ingu Rós og sama má segja um hugleiðinguna frægu eftir Massenet, sem Sigrún flutti mjög fallega, en í báðum lögunum lék Elísabet með á hörpu og átti sinn þátt í fallegri uppfærslu þessara vin- sælu laga. Yngsta tónskáldið á þessum tón- leikum var Jean Francaix, sem fræg- Maðurinn sem hvarf ERLENDAR BÆKUR John T. Lescroart: „The Vig“. Dell Fiction endurútg. 1998. 376 síður. BANDARÍSKI metsöluhöfund- urinn John T. Lescroart hefur sent frá sér einar níu spennusögur frá árinu 1982 og hafa vinsældir hans aukist ár frá ári. Sumar eldri sögur hans hafa verið endurútgefnar ef það mætti verða til þess að þær seldust betur nú þegar hann er orðinn þekktari. Þekkt- ustu sögur hans eru að líkmdum Þrettándi kviðdómandinn og Sekt en ein af eldri sögunum heitir „The Vig“ eða Gjaldið og er hér til umfjöllunar. Hún segir m.a. af lögfræðingi sem útlit er fyrir að hafi verið myrtur ásamt ástkonu sinni, öðrum fyrrum lögfræðingi sem veit ekki hvernig hann á að bregðast við líflátshótun og vini hans, lögreglumanni, sem reynir að koma honum til hjálpar. Það koma fyrir athyglisverðar persónur í sög- unni en hún er orðmörg og alltof löng. Skemmtilegar persónur Lescroart segist ætíð hafa gengið með það í maganum að verða rithöf- undur. Faðir hans vildi að hann yrði tryggingasölumaður eins og hann sjálfur. „Ég var ekki alinn upp til þess að skrifa," er haft eftir höfund- inum. Systkini hans fóru öll út í við- skipti en hann sat eftir og reyndi fyrir sér sem rithöfundur. Það gekk fremur stirðlega fyrstu árin. Hann bjó í Los Angeles og skrifaði snemma á morgnana, fór í vinnuna og hélt áfram á kvöldin. Hann hafði skrifað fímm skáldsögur þegar loks- ins fór að rofa til hjá honum og bækumar að seljast. Það byrjaði með „Hard Evidence" og Þrettánda kviðdómandanum og í kjölfarið fylgdu sögumar „A Certain Just- ice“ og Sekt. Gjaldið er ein af fyrri sögum hans þegar hann var að koma sér áfram. Hún ber þess nokkur merki. Flétt- an er ekki sterk og Lescraort dvel- ur alltof lengi við smáatriði og hlið- arspor sem litlu máli virðast skipta auk þess sem vantar nokkuð upp á spennuna en persónurnar eru margar skemmtilega mótaðar. Sagan hefst á því að lögfræðingur að nafni Rusty Ingraham kemur til félaga síns í stéttinni, Dismas Hard- ys, og segir honum að maður sem þeir sendu í fangelsi fyrir mörgum ámm sé að losna og allt bendi til þess að hann ætli að standa við morðhótun sem hann hafði í frammi þegar hann var dæmdur og kála þeim báðum. Þeir segjast munu hafa gát hvor á öðrum en þegar ekkert spyrst til Ru- stys fljótlega eftir að tukthúslimurinn slepp- ur úr fangelsi fer Hardy á stúfana og kemst að því að félagi hans hefur að öllum líkindum verið myrtur, lík hans er reyndar horfið, og vinkona hans í leiðinni. Hann tekur nú að óttast mjög um líf sitt en á hauk í horni sem er lögreglumaður- inn Abe Glitsky. Hann er svertingi eins og tukthúslimurinn og á í nokkrum erfiðleikum með að gera það upp við sig hvort kynþáttarfordómar einir ráði ferðinni og hvort Rusty sé yfirleitt horfmn yfir móðuna miklu eða ekki. Dismas Hardy Því miður er líklegt að lesandinn hafi forskot á Glitsky því hann á fullauðvelt með að íylla í eyðumar. Reyndar er hópur fólks grunaður um morðið á Rusty auk tukthús- limsins; eiginmaður konunnar sem fannst látin í íbúð hans og okurlán- ari, sem kallar ekki allt ömmu sína, auk þess sem flækist inn í frásögn- ina klögumál vegna lögregluofbeldis en ekkert af því glepur sannfær- andi. Dismas Hai-dy er aðalpersóna sögunnar. Hann sagði skilið við sitt fyrra líf sem lögfræðingur og fjöl- skyldumaður eftir að sonur hans lést og starfar nú sem barþjónn hjá vini sínum. Einnig er svolítið varið í tukthúsliminn sem gerir sér ljósa grein íyrir því að hann er talinn sekur um allt þótt hann geri ekki neitt bara af því hann er svartur. En Lescroart hefði þurft að draga úr síðufjöldanum. Sagan ber þess merki að hann er að þreifa fyi’- ir sér sem spennusöguhöfundur og virðist nú loks hafa náð þeim ár- angri sem að var stefnt. ArnaldUr Indriðason John T. Lescroart ur er fyrir „musíkantískt” og skemmtilega unnin tónverk. Verkið sem flutt var hér var sérlega líflegt í frábærum flutningi félaganna. Besta verk tónleikanna var eitt af síðustu listaverkum meistarans Debussy og þar mátti heyra þennan fallega þríleik glæsilega fluttan af Martial Nardeau, Junah Chang og Elísabetu Waage. Þetta var í raun há- punktm- tónleikanna, bæði hvað varð- ai- innihald og uppfærslu. Tónleikunum lauk með serenöðu eftir Albert Roussel. Sagði einhver sem þóttist vita margt um franska tónlist, að hann hefði þar engu bætt við og hefði því allt eins átt að halda sig við sjóinn, en hann var á sínum yngri ámm foringi í sjóher Frakka. Verkið er samið íyrir flautu, fiðlu, lág- fiðlu, selló og hörpu, glæsilega ritað en fátt áhugavert nema í hæga þætt- inum, sem er áhrifamikil tónsmíð, tví- skipt að formi, dulúðug framan af og glæsileg undir lokin, og var flutningur þessa fagmannlega verks sérlega góð- ur. Um hljóðfæraleikinn þarf ekki að hafa mörg orð, því í samspili var hann mjög góður en allir hljóðfæraleikaran- ir áttu einnig fallega mótaðar einleiks- tónhendingar, svo allt féll þama að einu markmiði: að flytja fallega tón- list. Jón Ásgeirsson Gönguferð sól- setra á milli MYNDLISTARKONAN Elsa D. Gísladóttir ferðaðist fótgangandi ásamt trékvígu sinni um borgina sl. laugardag. Kvíga þessi er meðal verka á fyrstu einkasýn- ingu Elsu sem opnuð var þennan sama dag í Galleríi 20 fm, Vest- urgötu lOa. Gangan hófst á Kjarvalsstöð- um kl. 10 árdegis. Þaðan fóru Elsa og kvígan milli helstu safna og gallería höfuðborgarinnar, m.a. á opnun sýningarinnar Nor- rænt ljós og myrkur í Norræna luisinu. Gangan endaði í Galleríi 20 fm kl. 18 þar sem sýning Elsu, Sólsetra á milli, var opnuð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.