Morgunblaðið - 25.02.1998, Page 22

Morgunblaðið - 25.02.1998, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR AFÖSTUDEGI ók hann eiginkonu sinni frá Lundúnum til Hastings í Suður-Englandi, þar sem hún er að syngja í óperusýningu um þessar mundir. Eftir sýningu var þeim boðið í sam- kvæmi og voru ekki komin heim fyrr en um miðja nótt. Að morgni laugardags vaknaði hann við símhringingu. Það var umboðs- maður hans. „Justin, þú verður að fara til íslands í dag!“ „íslands?" „Já, það forfallaðist tenórsöngvari í upp- færslu íslensku óperunnar á Ástardrykkn- um og þú verður að hlaupa í skarðið fyrir hann í kvöld!“ „Hvað meinarðu maður, ég er búinn að vera kvefaður alla vikuna og ósofinn í þokkabót! Ég gæti ekki einu sinni sungið í Lundúnum í kvöld, hvað þá á Islandi!" „Látt’ ekki svona! Hugsaðu málið! Ég hringi aftur eftir klukkutíma!" Klukkustund síðar: „Halló!" „Justin, ertu búinn að hugsa málið?“ „Já.“ „Og...?“ „Allt í lagi, ég skal fara!“ Þannig lýsir breski tenórsöngvarinn Justin Lavender aðdragandanum að komu sinni til Islands um þarsíðustu helgi, þegar hann tók við hlutverki Nemorinos í sýningu Islensku óperunnar á Ástardrykknum eftir Gaetano Don- izetti vegna forfalla ítalans Robertos Iuliani. Söng hann tvær sýningar til við- bótar um liðna helgi og fékk góða dóma hjá Jóni Ásgeirssyni í Morgunblaðinu á laugardag. Lavender lenti á Keflavíkurflugvelli upp úr kl. 16 laugardaginn 14. febrúar og var kominn í Islensku óperuna laust fyrir kl. 17.30. Þá voru tvær og hálf klukkustund í sýningu. „Við Kristin sýn- ingarstjóri fórum í fljótheitum yfir helstu atriði, eins og staðsetningu mína á sviðinu, hvar ég ætti að koma inn og fara út og Robin Stapleton hljómsveitar- stjóri gerði mér grein fyrir styttingum í tónlistinni. Síðan var kominn tími til að fara í fórðun!" „Þú verður að fara til Islands í dag!“ Breski tenórsöngvarinn Justin Lavender hefur sungið hlutverk Nemorinos á síðustu þremur sýningum Islensku óperunnar á Astardrykknum eftir Donizetti. Orri Páll Ormarsson hafði tal af Lavender sem kom hingað með mjög skömmum fyrirvara. Kyssti ranga stúlku Og hvernig skyldi sýningin hafa geng- ið? „Ætli mér sé ekki óhætt að segja að hún hafi gengið ágætlega - að minnsta kosti miðað við aðstæður. Vera má að mér hafi orðið á að kyssa ranga stúlku og drekka úr vitlausri flösku," segir La- vender og hlær, „en hvað tónlistina snertir gekk allt að óskum og röddin bil- aði aldrei, þrátt fyrir kvef og hæsi dag- ana á undan.“ Söngvarinn viðurkenmr þó að hann hafi oft verið öruggari á óperusviði. „Á köflum var ég eins og bifreið með gang- truflanir - vissi ekki í hvorn fótinn ég átti að sti'ga. Kórinn og hinir aðalsöngv- ararnir voru hins vegar einstaklega hjálplegir, auk þess sem Kristín sýning- arstjóri var alltaf í sjónmáli baksviðs og gaf mér reglulega bendingar. Þegar öllu er á botninn hvolft held ég því að þetta hafi blessast allt saman - ef eitt atvik er undan- skilið!“ Nú? „Áður en sýningin hófst urðu mér á þau grundvallarmistök að gleyma að telja íjölda þrepanna sem liggja út af sviðinu. Ég átti eftir að súpa seyðið af því. Við lok einnar aríunnar er Nemorino nefnilega einn á svið- inu og þegar ég hafði sungið síðasta tóninn var slökkt á ljósunum, eins og vera ber, og ég stóð einn eftir í myrkrinu. Ekki var um annað að ræða en bjarga sér af sjálfsdáðum út af sviðinu en hvað skyldu áhorfendur hafa haldið þegar ég rak mig i' hvert þrepið þegar allir í kringum mann eru svona já- kvæðir getur maður ekki annað en eflst til dáða.“ Lavender segir að undir kringumstæðum sem þessum sé gott að vita að fólk sé á sínu bandi. „Hefði ég stokkið svona inn í sýningu í Bretlandi, að ég tali ekki um á Italíu, hefði hlakkað í fólki við hver mistök sem ég hefði gert. Hérna er hugarfarið allt öðruvísi, það vonuðu allir að mér gengi vel!“ Og ísland hefur fleiri kosti, að því er La- vender hefur komist að raun um við þessi fyrstu kynni. „Kvenfólkið maður, kvenfólk- ið. Hér býr alveg gullfallegt kvenfólk. Það getur þó haft sínar neikvæðu hliðar, eins og fékk að reyna í sýningunni. Það er nefnilega erfitt að einbeita sér þegar maður er umvaf- inn föngulegum meyjum á sviðinu, auk þess sem hver konan annarri fallegri blasti við mér þegar mér varð litið út í sal!“ Síðan horfir hann spyijandi á blaðamann: „Ertu nokkuð að skrifa þetta niður?“ Jú! „Jæja, það skiptir kannski ekki máli, konan mín skilur hvort eð er ekki ís- lensku,“ segir söngvarinn og skellihlær. Lavender hefur um skeið skrifað mán- aðarlega pistla fyrir írska dagblaðið The Examiner. Fer hann þar um víðan völl. „Starfs míns vegna hef ég ferðast vítt og breitt um heiminn og oftar en ekki hafa þessar ferðir mínar verið uppspretta greinaskrifa. Ef að líkum lætur verða Is- landsferðinni gerð skil í blaðinu fljót- lega.“ Domingo bestur Morgunblaðið/Knstmn „VERA má að mér hafi orðið á að kyssa ranga stúlku og drekka úr vitlausri flösku en hvað tónlistina snertir gekk allt að óskum,“ segir Justin Lavender um fyrstu sýninguna sem hann tók þátt í í Islensku óperunni. af öðru?“ segir Lavender og bætir við að ekki hafi hann getað skýlt sér á bak við ölv- un Nemorinos, því á þessum tímapunkti í sýningunni hefur söguhetjan ekki dreypt á „ástardrykknum" alræmda. Draga má þá ályktun að Lavender sé al- vanur að glíma við Nemorino. Staðreyndin er aftur á móti sú að hann hefur ekki sungið hlutverkið á sviði í ellefu ár! Að vísu æfði hann það sem staðgengill fyrir uppfærslu Metropolitan-óperunnar á þessu leikári en hefur ekki enn þurft að stíga á svið, þar sem aðalsöngvarinn, Luciano nokkur Pavarotti, hefur ekki forfallast. „Þar fyrir utan er sú uppfærsla afar frábrugðin uppfærslu Is- lensku óperunnar, það er mun minni hreyf- ing í henni þar sem Pavarotti færir sig í seinni tíð lítið um á sviðinu." Talandi um uppfærsluna hér á landi, hvemig líkar Lavender hún? „Mér finnst hún skemmtileg. Hugmyndin um að færa sögusvið óperannar fram á sjöunda áratug þessarar aldar hefur gengið upp. I fyrstu óttaðist ég að það yrði hjákátlegt að sjá há- vaxna og bjarta Islendinga leika ítalskt sveitafólk en þegar ég var kominn á sviðið hugsaði ég með mér: Þetta kemur heim og saman, þetta eru ekki ítalir, heldur norræn- ir ferðamenn að sóla sig við Gardavatn!" Lavender hefur ekki sótt ísland heim í annan tíma. Ber hann landanum vel söguna. „Ég hef óvíða fengið jafn blíðar viðtökur og í íslensku óperunni. Islendingar eru greini- lega mjög hjálplegt og vingjarnlegt fólk. Ekki svo að skilja að fyrsta kvöldið hafi ekki verið erfitt, það var það svo sannarlega, en Lavender hefur ekki einungis farið víða, heldur jafnframt starfað með mörgum helstu söngvurum og hljóm- sveitarstjórum heims og sungið í stærstu húsunum, svo sem La Scala, Covent Gar- den, Metropolitan-óperunni og Vínaróp- erunni. Hvað stendur upp úr? Söngvarinn lygnir aftur augunum. „Þú spyrð stórt,“ segir hann svo eftir drykk- langa stund. „Ef við byrjum á húsunum, þá líður mér alltaf best í Covent Garden í Lundúnum. Nú er hins vegar verið að endurbyggja húsið og auðvitað óttast maður að andrúmsloftið verði ekki hið sama þegar það verður tekið í notkun að nýju. Vonandi er sá ótti óþarfur!" Víkur þá sögunni að söngvurunum en þar kemur bara eitt nafn til greina - Placido Domingo. „Ég dái þann mann! Hann er, að mínum dómi, mesti óperu- söngvari sem uppi hefur verið og röddin verður fallegri með hveiju árinu. Þá er hann svo góður leikari. Ég hef einu sinni staðið með honum á sviði, það var í Óþelló, þar sem ég söng Kassíus og Domingo titilhlutverkið. Það var há- punkturinn á mínum ferli!“ Lavender hefur unnið með mörgum frábærum hljómsveitarstjórum en nefnir Claudio Abbado fyrstan, hann sé sannur snillingur. Fer hann jafnframt fögrum orðum um Georg Solti. „Hann var snjall en ógnvekjandi!" Af yngra fólki nefnir Lavender Bandaríkjamanninn Leonard Slatkin og áströlsku hljómsveitarstýruna Simone Young. „Þetta er fólk sem á eftir að láta meira að sér kveða í nánustu framtíð. Ég hef bætt mig í hvert einasta skipti sem ég hef unnið með því!“ En þekkir Lavender einhveija íslenska tónlistarmenn? „Já, ég hef unnið með einum, Tómasi Tómassyni, bæði í Danmörku og Portúgal. Hann er frábær bassasöngvári, einn sá besti sem ég þekki. Það er alltaf gaman að hlýða á Tómas. Þá er gaman að segja frá því að konan mín var í Guildhall School of Music and Drama í Lundúnum á sama tíma og Sigrún Hjálmtýsdóttir sem fer með hlutverk Adinu í Astardrykknum í ís- lensku óperunni. Smæð heimsins kemur manni stöðugt á óvart!“ I lögguleik MYNPLIST M o k k a LJÓSMYNDUN GUNNAR KRISTINSSON Opið á verslunartíma. Aðgangur ókeypis. Til 5. mars. Á UNDANFÖRNUM árum hafa oft verið prýðilegar ljósmyndasýn- ingar á Mokka og virðist staðurinn henta fyrir minni sýningar af því tagi. Nú stendur einmitt yfír sýning á ljósmyndum Gunnars Kristins- sonar, sem ber yfirskriftina „Lög- reglan: Eins, zwei, polizei.“ Gunnar hefur búið í Berlín og sækir hann myndefni sitt þangað. Meginuppistaðan er tvær mynda- seríur. Titilverkið á sýningunni er myndröð af manni í embættisbún- ingi þýskrar lögreglu og með trúðs- lega grímu, sem ljær fígúrunni yfír- bragð fáránleikans. Lögreglufígúr- an stillir sér upp eins og fyrir form- lega myndatöku, eða eins og verið væri að taka mynd fyrir tímarits- grein um líf og starf lögreglumanns. Alvara og formfesta embættis- mannsins sem lifir sig inn í valds- mannslegt hlutverk lögreglumanns- ins er í skoplegu ósamræmi við bamslegt trúðsandlitið. Hin serían er ekki ósvipuð, og sýnir okkur úr- ÚR ljósmyndaserfunni „Lög- reglan: Eins, zwei, polizei“, eft- ir Gunnar Kristinsson. val mynda úr fjölskyldualbúmi þar sem gert er góðlátlegt gys að for- múlufjölskyldunni. Sömu brögðum er beitt, stífar, líflausar uppstilling- ar og afkáralegar grímur. Eins og sást berlega á sýningu á ljósmyndaverkum á Kjarvalsstöð- um í haust hafa ljósmyndarar og listamenn talsvert fengist við svið- settar ljósmyndir. Þannig verða ljósmyndirnar ekki myndir af veru- leikanum heldur myndir af myndum af veruleikanum. Með því að stilla ljósmyndinni upp sem mynd af mynd, þá opnast ýmsir óvæntir möguleikar. Áð einhverju leyti hafa sviðsettar ljósmyndir þróast út frá notkun listamanna á ljósmyndum sem heimild um gerninga og hverf- ula listatburði. Sigurður Guðmunds- son, sem dæmi, byrjaði að nota ljós- myndir sem hlutlaust heimildatæki, en smám saman urðu ljósmyndirnar að sjálfstæðum verkum, þar sem sviðsetningin var gerð fyrir ljós- myndina. Á síðastliðnum fímmtán árum hafa sviðsettar ljósmyndir orðið allt að því sjálfstæð listgrein, og má þar nefna listamenn eins og Cindy Sherman, William Wegman, Lucas Samaras, Yasumaru Mori- mura, og fleiri. Myndir Gunnars taka mið af þessari þróun. Það má vissulega hafa gaman af mjmdaseríum Gunnai-s Kristinsson- ar. I raun er hin skoplega hlið myndanna ofgerð með trúðs- grímunni, því sviðsetningin sjálf er nokkurs konar grímudansleikur, sem ætti að vera nokkuð augljós án þess að gríman komi til. Þar af leið- andi detta myndirnar niður á það plan að vera sakleysislegt skop sem skoppar á yfirborði hlutanna og kallast frekar á við aðrar tilraunir í sömu átt innan listasögunnar og úr fjölmiðlaheimi en að stinga gat á vanabundna sýn okkar á umhverfíð. Gunnar J. Árnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.