Morgunblaðið - 25.02.1998, Side 23

Morgunblaðið - 25.02.1998, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 23 LISTIR Ellen og Kombóið í endurnýjun lífdaganna DJASS Múlinn á Sóloni íslandusi ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR OG KOMBÓIÐ Ellen Kristjánsdóttír söngur, Eðvarð Lárusson gítar, Þórður Högnason bassa og Birgir Baldursson trommur. Sunnudagskvöldið 22. febrúar 1998. ÞÁ hefur djassklúbburinn Múl- inn hafið starfsemina á nýju ári og á nýjum stað - í Sölvasal á Sóloni íslandusi. Áður var Múlinn á Jóm- frúnni á föstudagskvöldum, en verður nú á Sóloni á fimmtudags- og sunnudagskvöldum. Geta djass- unnendur gengið þar að vandaðri íslenskri djasstónlist og ber að fagna því. Það var tríó Oskars Guðjónsson- ar sem reið á vaðið sl. fimmtudags- kvöld og lék tónlist af geisladiski hans, Fari, ásamt nýrri og eldri verkum og á sunnudagskvöldið fluttu Ellen Kristjánsdóttir og Kombóið tónlist sína í Múlanum. Það var árið 1994 að geisladisk- urinn Kombóið (Japis JAP-9413-2) kom út. Þar flutti hljómsveitin 10 lög, öll frumsamin utan eitt. Flest þessara laga flutti Kombóið að nýju á tónleikunum auk laga eftir Richard Rodgers ofl. Ellen Krist- jánsdóttir fer fremst meðal jafn- ingja í Kombóinu og þó hún hafi hvorki mikla rödd né spanni vítt tónsvið skortir hana hvorki tónlist- argáfu né smekkvísi. Samspil hennar, Eðvarðs, Þórðar og Birgis ber með sér að þau njóta þess að leika saman. Útfærsla laganna hefur breyst mikið frá 1994 og sem betur fer eru sólóar margir og flestir góðir hjá Eðvarði og Þórði. Tónlistin bar með sér að unglingurinn frá 94 er vaxinn úr grasi. Yfir henni svífur kyrrð hinna óræðu töfra. Ein- hvernveginn gerist það oft þegar ég hlusta á Kombóið að fyrir hug- skotssjónum mínum svífur krá við þjóðveg í bandarískri eyðimörk. Fyrir utan ekkert nema bensín- dæla og bílhræ. Tónleikana upphóf tríóið og strax var sleginn sá tónn sem ríkti til enda. Harður, hvellur gítar- hljómur í bland við sterkan en mjúkan bassann og rokkaðan trommuslátt. Þetta reyndist inn- gangur þeirra að Blue moon eftir Richard Rodgers, sem Ellen aðlag- aði stíl Kombósins. Blue skies var seinna á dagskrá; ekki lag Irving Berlins heldur Tom Waits, sem finna má á diski Kombósins. Fleiri þekkt popplög mátti heyra innan- um frumsömdu verkin einsog gjarnan hjá Miles Davis á seinasta skeiði hans; Þó líði ár og öld, End of the world og svo grúfaði Ellen Sad old Red eftir Hucknall og braut upp kombósándið í flokki- mannsinsstíl. Djasstandardana af- greiddi Kombóið svo í aukalagi þarsem Ellen vitnaði ma. í Ain’t misbehavin, Laura, S’ wonderful og Þórður í Línu langsokk eftir kollega sinn Jan Johansson. Þegar Kombóið lék á RúRek 1994 fannst mörgum sveitin of poppuð fyrir djasshátíð. Ég held varla að þær raddir heyrðust í dag nema frá stækustu hreintrúar- mönnum. Sólóar Eðvarðs og Þórð- ar voru margir hinir ágætustu. Eðvarð leikur sér oft að endurtaka einfaldar hendingar í einleikslínun- um og á stundum var einsog hljóm- arnir væru slegnir á sítar. Þórður er einhver fjölhæfasti bassaleikari sem við eigum og krafturinn í ex- pressjónískum stíl hans oft stór- brotinn. Yfir og undir Ellen og Birgir. Kombóið er vonandi komið til að vera. Djassunnendir mega vera stoltir af fyrstu Múlahelgi ársins. Þar ríktu nýrri straumar í íslenskri djasstónlist. Um næstu helgi verð- ur afturá móti hinn hefðbundni djass í öndvegi. Á fimmtudags- kvöldið leikur kvartett Omars Ax- elssonar píanista með Hansi Jens- syni tenórista, Gunnari Pálssyni bassaleikara og Þorsteini Eiríks- syni trommara - Steina krúpu. All- ir voru þeir þekktir í tónlistar- bransanum á árum áður og leika klassíska djassstandarda. Á sunnu- dagskvöld leikur svo Kuran swing í anda Djangos og Stephane Grapp- ellis. Gleðilega sveiflutíð! Vernharður Linnet Reuters Gjafir Ceausescus MÁLVERK af Nicolae Ceausescu, fyrrverandi einræð- isherra í Rúmeníu, tekið úr um- búðum í minjasafninu í Búkarest. Þar er nú að finna þúsundur muna, málverk, skúlp- túra og aðrar gjafir sem Ceausescu var ausinn á 24 ára valdatíð, sem lauk með uppreisn 1989, er einræðisherranum var steypt af stóli og hann skotinn. Starfsfólk safnsins hefur sett saman Iista yfír allar gjafírnar og verða sumar þeirra seldar á uppboði. Nýjar plötur • TRAINSPOTTING er með lögum úr samnefndu leikriti sem Loftkastalinn frumsýnir 4. mars nk. Leikritið er byggt á skáldsögu Irvine Welsh í leikgerð Harry Gibson og er í íslenskri þýðingu Megasar. Þetta er safnplata með er- lendum lögum og einu ís- lensku. Fjögur laganna eru endurflutt af jslenskum flytj- endum. Jón Olafsson útsetur þrjú þeirra og Máni Svavars eitt. Útgefandi er Skífan. Verð: 1.999. ATRIÐI úr Litla prinsinum sem Aristofanes frumsýnir á föstudag. FB sýnir Litla prinsinn LEIKLISTARFÉLAGIÐ Aristo- fnes í Fjölbrautaskólanum Breið- holti frumsýnir leikritið Litli prinsinn eftir Antoine De Saint- Exupéry, föstudaginn 27. febrúar, kl. 20. Leikgerðin var samin af leikhópnum sjálfum upp úr bók- inni í samráði við leikstjóra verks- ins, Völu Þórsdóttur. Leikgerðin er ekki unnin sem barnaleikrit þó svo að börnum gæti þótt gaman að sýningunni þar sem fjölskrúð- ugar persónur koma við sögu og mikið grín. Leikhópurinn sýnir í Möguleikhúsinu við Hlemm. Bún- ingar, leikmunir og öll hug- myndasmíði er unnin af leikhópn- um í samvinnu við leikstjórann. Verkið fjallar um Iitinn prins sem býr á lítilli plánetu sem kall- ast B612. Hann fer í ferðalag vegna þess að ástin hans í lífínu er frekja og svífst einskis þegar hún vill að hann snúist í kringum hana. Hann lendir í Afríku þar sem hann hittir flugkonu sem brotlenti í eyðimörkinni og mynd- ast sterk bönd milli þeirra. EFTIR i 3DAGA Laugardaginn 28. febrúar opnum við stórmarkað meÓ raftæki, sem á engan sinn líka hér á landi. ISLAND • NOREGUR • SVIÞJOÐ • DANMORK STORMARKAÐUR MED RAFTÆKI - I SMARANUM I KOPAVOGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.