Morgunblaðið - 25.02.1998, Side 26

Morgunblaðið - 25.02.1998, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ 26 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 AÐSENDAR GREINAR Framtíðarskipan orkumála Á UNDANFÖRNUM misserum hefur all- nokkuð verið rætt og ritað um nauðsynlegar breytingar á skipulagi orkumála. En þeirri skoðun hefur vaxið fylgi að samkeppni sé nauð- synleg í orkumálum eins og á öðrum sviðum. Var þessu máli m.a. hreyft á Viðskiptaþingi Verslun- arráðs Islands í sl. viku. Þar hélt Kolbeinn Krist- insson, formaður Versl- unarráðs Islands, því m.a. fram, að íslenskt atvinnulíf hljóti á næst- unni að knýja fram end- urskipulagningu á orkumarkaðnum í því skyni að skapa farveg fyinr sam- keppni. Hér er um gríðarlegt hags- munamál að ræða. Ekki aðeins fyrir atvinnulífið eða neytendur heldur einnig fyrir stóra orkusöluaðila eins og Rafmagnsveitu Reykjavíkur og þá Reykjavíkurborg. Stjómvöld hafa ekki setið auðum höndum í þessu máli en þó er kannski ekki allt sem sýnist. Þingsályktunartillaga ráðherra Iðnaðarráðherra hefur lagt fram á þingi þingsályktunartillögu um framtíðarskipan í orkumálum. Meg- intilgangur tillögunnar er sá að skapa skilyrði til aukinnar sam- keppni í vinnslu og sölu raforku. Tillagan byggist á hugmyndum sem fram komu i tveimur nefndum er iðnaðarráðherra skipaði á síðasta ári. Önnur var viðræðunefnd eign- araðila að Landsvirkjun um endur- skoðun á eignarhaldi, rekstrarformi og skipulagi fyrirtækisins, hér eftir kölluð eigendanefndin. Hin var ráð- gjafamefnd fulltrúa orkufyrirtækja, stjómmálaflokka, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðar- ins og átti hún að vera ráðherra til ráðgjafar um endurskoðun á lög- gjöf á þessu sviði, hér eftir kölluð orkunefnd. Niðurstöður orkunefndar Það voru margir sem fögnuðu þeim nið- urstöðum sem fram komu hjá orkunefnd- inni svokölluðu. En meginmarkmið til- lagna nefndarinnar var að skapa forsend- ur til samkeppni í við- skiptum með raforku. Tillögur eigendanefndarinnar gengu hins vegar að nokkm leyti þvert á þessar hugmyndir en eig- endanefndin miðaði við að staða Landsvirkjunar yrði óbreytt hvað varðar orkusölu til almennings- veitna næstu 10 árin. Þeir vora margir sem gagnrýndu niðurstöður eigendanefndarinnar hvað þetta varðar og var sá sem þetta ritar í þeim hópi. Samtök orkuveitna, Samorka, lýstu yfir fullum stuðningi við tillög- ur þær sem fram komu í skýrslu orkunefndarinnar. í greinargerð fulltrúa samtakanna, sem dagsett er hinn 23.12. 1996 segir orðrétt: „Eindregnum stuðningi er lýst við það meginsjónarmið, sem fram kemur í skýrslunni, að endurskipu- leggja beri raforkubúskap þjóðar- innar með því að koma á samkeppni í vinnslu og sölu raforku. Hið sama gildir um aðskilnað vinnslu, flutn- ings, dreifingar og sölu, svo og um að hlutlaus aðili hafi eftirlit með einkaréttarstarfsemi, þ.e. flutningi og dreifingu, og einnig með því að samkeppni komist á og haldist virk.“ Eftir að þingsályktunartillaga iðnaðarráðherra hafði verið lögð fram á Alþingi var leitað eftir um- sögnum raforkuveitna. Þar hafa m.a. komið fram áhyggjur af því að þingsályktunartillagan gangi að hluta til gegn megintilgangi sínum sérstaklega hvað varðar tímamörk. Þ.e.a.s. að tíminn sem áætlaður sé til þess að ná fram raunverulegum breytingum og koma á frjálsri sam- keppni sé alltof langur. Stefnumót- unin megi ekki ganga út á það, að breytingar á skipulagi orkumála séu áætlaðar svo langt inn í fram- tíðina að raunvemlega sé verið að tryggja úrelt fyrirkomulag í næstu Til að þessar hugmyndir geti orðið að veruleika, segir Gunnar Jóhann Birgis- son, kann að vera óhjá- kvæmilegt að breyta sameignarsamningi um Landsvirkjun. framtíð. Einnig hefur verið gagn- rýnt að ekki sé tekið á því í þings- ályktunartillögunni hvaða hlutverki Landsvirkjun eigi að gegna í þessu nýja umhverfí. Nokkrar nauðsynlegar breytingar Því ber að fagna að iðnaðarráð- herra hafi lagt fram tillögu um framtíðarskipan í orkumálum. Hins vegar þarf að gera eftirfarandi breytingar á tillögunni til þess að tryggja að tillagan skapi farveg fyr- ir samkeppni í raforkumálum: 1. Sjálfstætt fyrirtæki til þess að annast meginflutning raforku um landið (landsnet) ber að stofna sem fyrst og eigi síðar en í ársbyrjun 1999. Til þess að það sé mögulegt þarf vinna við könnun á forsendum fyrir breyttu fyrirkomulagi á flutn- ingi raforku að hefjast strax. Slík könnun er forsenda fyrir breyting- um á skipulagi orkumála. Þings- ályktunartillagan gerir hins vegar ráð fyrir stofnun slíks flutningsfyr- irtækis á árabilinu 2001 til 2003. 2. Kannað verði nú þegar hvert hlutverk ríkisins á að vera í fram- tíðarskipulagi raforkumála í land- inu og þá hvort ríkið eigi að eiga hlut í landsnetinu og/eða í stóru vinnslufytirtæki eins og Lands- virkjun. Hlutur ríkisvaldsins í raf- orkufyrirtækjum er meiri hér á landi en víða í nágrannaríkjunum okkar og því er eðlilegt að þetta verði tekið til skoðunar. Ekki síst með tilliti til þess að til þess að tryggja samkeppni með því að að- skilja vinnslu, flutning, dreifingu og sölu raforku getur eignaraðildin ekki öll verið á einni hendi. 3. Það markmið verði sett að samkeppni verði orðin virk og raf- orkumarkaður frjáls fyrir árslok 2003 eða innan fimm ára. Engin ástæða er til þess að bíða til ársins 2009 eins og þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir. Ef vilji er á annað borð til þess að ganga þessa leið verður þróunin án efa miklu hraðari en gert er ráð fyrir og til lítils að reyna standa í veginum. Þessar tillögur eru samhljóma þeim ábendingum, sem settar hafa verið fram af ýmsum sem um málið hafa fjallað og þekkja vel til í orku- geiranum og áðurnefndri greinar- gerð Samorku. Landsvirkjunar- samningurinn Til að þessar hugmyndir geti orð- ið að veruleika kann að vera óhjá- GunnarJóhann Birgisson kvæmilegt að breyta sameignar- samningi um Landsvirkjun en sá samningur byggist á hugmyndum eigendanefndarinnar. Landsvirkj- unarsamningurinn má aldrei standa í vegi fyrir samkeppni í raforkumál- um. Slíkt gengur jafnt gegn hags- munum þeirra sem eru eignaraðilar að Landsvirkjun og hagsmunum annara. Fyrir nokkrum dögum var kynnt skýrsla, sem unnin var fyrir Reykjavíkurborg um sóknarfæri fyrir sameinað orkufyrirtæki Hita- veitu Reykjavíkur og Rafmagns- veitu Reykjavíkur. I skýrslunni er á það bent að hvort fyrirtækjanna um sig hafi fjárhagslega burði til að standa vel að vígi í breyttu um- hverfi orkumála en með sameiningu eigna og starfsliðs fyrirtækjanna mætti setja á stofn orkufyrirtæki sem hefði yfirburðastöðu meðal ís- lenskra orkufyrirtækja. Undir þetta hafa ýmsir tekið. Hins vegar er sameining þessara fyrirtækja smá- munir samanborið við það hvað gæti gerst ef Rafmagnsveita Reykjavíkur fengi möguleika á því að nýta sér þá fjármuni sem í dag era bundnir í Landsvirkjun. Heild- areign Rafmagnsveitunnar er í dag um 18,7 milljarðar. Þar af er eignar- hluti í Landsvirkjun metinn á um 12-13 milljarða en markaðsverð- mætið er verulega meira. Ef Reykjavíkurborg væri í aðstöðu til þess að nýta sér þessar eignir í frjálsri samkeppni á raforkumark- aði þá fyrst getum við talað um að sóknarfærin séu í höndum Reykja- víkurborgar. Það era ekki aðeins hagsmunir neytenda og atvinnulífs- ins sem eru í húfi heldur opnar sam- keppni á þessu sviði, ef rétt er á málum haldið, ótrúlega möguleika fyrir veitufyrirtækin í landinu og því skyldu þau ekki geta staðið sig í samkeppni eins og Landsvirkjun hefur staðið sig á einokunarmark- aði? Höfundur er hæstaréttarlögmaður og borgarfulltrúi. V alsmenn mótmæla AÐ MINNSTA kosti er það umhugsunarefni að maður sem er al- þekktur stuðningsmað- ur annars þess félags sem í hlut á skuli sveipa sig hlutleysisblæ blaða- manns og skrifa svo grein eins og þá sem birtist í Mbl. laugardag- inn 21. febrúar sl. í henni fjallar SOS m.a. um þann mun sem er á mati dómara á ein- stökum atriðum leiksins og framkvæmd hans. Einungis sé hægt að ógilda leiki ef hinn seinni þáttur sé brotinn. Fyrir það fyrsta þá er þessa reglu ekki að finna í lög- um HSÍ. í öðru lagi er munurinn á þessu tvennu mjög óljós. Eða er það ekki hlutverk dómara að taka eftir því hvort sjöundi leikmaður annars liðsins er auðkenndur sem markmaður? Og eru það þá ekki mistök hans ef hann grípur ekki til þeirra ráða sem hann hefur heldur lætur leikinn halda áfram? Slík mistök eru á ábyrgð dómara og hluti af leiknum. Þau á ekki að vera hægt að leiðrétta eftir á þeg- ar leikurinn er látinn halda áfram í 10 mínútur eins og raun varð. í þessu sambandi verður að hafa í huga, að tímavörður og eftirlits- dómarar eru aðstoðarmenn dóm- ara og ákvarðanir þeirra (og mis- tök) því á ábyrgð dómara hverju sinni. Vegna umfjöllunar SOS um dóm HSÍ í máli Vals og Fram er vert að skoða dóm HSÍ í málinu nr. 1/1996 ÍS gegn ÍBV. Þar kom einn leikmaður inn á völlinn of snemma eftir brott- vísun. Þannig hafði annað liðið „ólög- mæta stöðuyfirburði" í leiknum. í niður- stöðu dómsins var m.a. byggt á því að í lögum HSÍ væri ekki að finna heimild fyrir hann til þess að ógilda leikinn við slík- ar kringumstæður, m.a. með vísan til nið- urstöðu dómstóls IHF í máli Þýska- lands gegn Rússlandi í HM 1995. í leik Vals og Fram var ekkert að athuga við fjölda leikmanna Vals heldur auðkenningu eins þeirra. Þannig er það óskiljanlegt að dómurinn telji sig hafa þessa heimild í dag að óbreyttum lögum HSÍ og þá sérstaklega þegar sú staðreynd er höfð í huga, að tveir af þeim dómurum er dæmdu í máli Fram og Vals dæmdu í máli ÍR og ÍBV. Og þá hlýtur maður að spyrja: Ef dómurinn taldi þá að hann hefði ekki sh'kar heimildir, hvemig getur hann haft þær í dag að óbreyttum lögum? Þau dæmi sem SOS fjallar um í grein sinni draga bæði fram van- þekkingu hans á málinu og þann reginmun sem var á þeim tilvikum og því sem hér um ræðir. í um- ræddum knattspyrnuleikjum hafði annað liðið notast við leikmenn sem höfðu ekki leikheimild eða voru í leikbanni. Allra þýðingar- Guðni Á. Haraldsson mest er þó sú staðreynd að niður- stöðurnar voru byggðar á skráð- um, skýram og afdráttarlausum réttarheimildum laga og reglna KSÍ. Leikur Vals og Fram var hins vegar ógiltur án þess að slík niður- staða eigi sér nokkurs staðar stoð í skráðum lögum eða reglum HSÍ. Það hefur og gleymst í þeirri umræðu sem fram hefur farið, að nokkur þeirra marka er Fram skoraði í leiknum voru andstæð þeim leikreglum sem leikið er eftir. Þannig stytti t.d. leikmaður Fram sér leið í gegnum vítateig er hann skoraði 20. mark Fram, sem var síðasta mark liðsins í venjulegum leiktíma. Þannig var það ekki ein- ungis Valur sem hagnaðist á mis- tökum dómaranna heldur bæði lið- in. SOS hins vegar hefur einungis viljað hengja leikmenn Vals fyrir þau mistök sem gerð voru. Þar hef- ur hann farið offari og hljótum við Valsmenn allir að mótmæla slíkum einhliða blaðaskrifum. Sigmundur Ó. Stein- arsson hefur farið offari í skrifum sínum, ----------------—,--------- segir Guðni A. Har- aldsson, og hljótum við Valsmenn að mótmæla slíkum einhliða blaða- skrifum. Nei, mergurinn málsins er sá, að dómuram jafnt sem leikmönnum verða á mistök í leik. Slík mistök eru hluti leiksins. Því eiga jafnt áhorfendur sem leikmenn að geta treyst því, að úrslit leikja ráðist á leikvellinum en ekki af skoðun myndbanda. Höfundur er formaður handknatt- leiksdeildar Vals. Gera má betur í BÓKINNI Birtíngi, sem Halldór Laxness snaraði svo snilldarlega yfir á íslensku á sínum tíma, kemur við sögu heimiliskennarinn Altúnga. Altúnga að- hylltist háspekiguð- fræðialheimsviskukenn- inguna og sagði að það væri sýnt og sannað að hlutimir gætu ekki ver- ið öðruvísi en þeir væra. Þar sem allt væri miðað við einn endi hlyti allt um leið að vera miðað við allrabesta endi. Þar af leiðandi væru þeir sem segðu að allt væri í besta Iagi hálfvitar, maður ætti að segja að allt væri í allrabesta lagi. Ef litið er til þess hvernig við ís- lendingar og heimurinn umhverfis okkur hefur þróast undanfarna ára- tugi þyrfti manni ekki að bregða svo mjög þótt einhverjum dytti í hug að e.t.v. væri einhver glóra í niðurstöðu Altúngu. Á ótrúlega skömmum tíma höfum við skriðið út úr dimmum moldai-kofunum og gengið inn í upp- lýstan nútímann. Sem þjóð höfum við öðlast frelsi og sjálfstæði. Víða um heim höfum við séð þjóðir brjótast úr hlekkjum einræðis og kúgunar. Þá er ffeistandi að spyrja hvort við getum ekki bara tekið lífinu með ró og hætt að velta vandamálum heims- ins fyrir okkur, þróunin sé hvort sem er í góðum gír og allt í allrabesta lagi eins og spekingurinn sagði. Því miður er málið ekki svo einfalt, sú ffamþró- un sem átt hefur sér stað hefur ekki komið af sjálfu sér heldur kostað mikla baráttu og þrautseigju. Um- bætur hafa orðið vegna þess að ekki þótti allt vera í lagi. Það er vissan um að gera megi betur sem knúið hefur umbótamenn áfram í gegnum tíðina. Nú er svo komið að við búum í um- hverfí sem býður okkur meira svig- rúm til að lifa eftir eigin höfði en áður hefur þekkst, þótt víða úti í hinum stóra heimi sé enn pott- ur brotinn í þeim efn- um. Eflaust finnst sumu ungu fólki sem frelsis- barátta undanfarinna áratuga og alda sé fremm' fjarlæg sagn- fræði en mikilvægur þáttur í tilveru þess. Flest gerir það sér þó grein fyrir því að á þessari baráttu grand- vallast frelsi þess til orða og gjörða í dag. Frelsið er dýrmætt, svo dýrmætt að fara verður vel með það sagði Lenín eitt sinn, en svo fór sem fór. Annar maður komst einnig vel að orði þegar hann sagði það vera gjald frelsisins að vera stöðugt á verði. Tilvalið er fyrir ungt hugsandi fólk, segir Helgi Zimsen, að setja niður á blað ritgerð, ljóð eða smásögu með hugleiðingum um frelsið. Þessa dagana er í gangi ritgerða- samkeppni fyrir fólk á framhalds- skólaaldri þar sem frelsið er við- fangsefnið í sinni fjölbreytilegu mynd. Það er því tilvalið fyrii' ungt hugsandi fólk að setja niður á blað ritgerð, ljóð eða smásögu með hug- leiðingum um frelsið. Það getur verið gagnlegt að staldra öðru hvora við og velta fyrir sér mikilvægi og stöðu frelsisins. Eða er kannski bara allt í allra- besta lagi? Höfundur er annar framkvæmda- stjóra ritgerðasamkeppni SUS. Helgi Zimsen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.