Morgunblaðið - 25.02.1998, Side 34

Morgunblaðið - 25.02.1998, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ 34 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998___________________ MINNINGAR + Pétur Sigurðsson fæddist í Pálsbæ á Seltjarnarnesi 10. júní 1911. Hann lést á hjúkrunarheimil- inu Eir 9. febrúar síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Ingibjargar Ólafs- dóttur (1878-1958) húsfreyju í Pálsbæ og Sigurðar Péturs- sonar (1880-1956) sem lengst af var •V skipstjóri (1915- 1940) á Gullfossi, fyrsta skijii Eim- skipafélags Islands. Ingibjörg var dóttir Ólafs Guðmundssonar (1832-1887) útvegsbónda og hreppstjóra í Mýrarhúsum á Sel- tjarnarnesi, Pálssonar (1792- 1859) bónda þar, Loptssonar (d. 1828) gullsmiðs að Minni-Vatns- leysu, Rafnkelssonar (1703-1752) prests á Krossi, og seinni konu hans, Önnu Björnsdóttur (1838- 1904) Kortssonar (1797-1857) bónda á Möðruvöllum í Kjós, Þor- varðarsonar (1760-1821 ) bónda í Flekkudal, Einarssonar (1691- 1769) lögréttumanns í Brautar- holti á Kjalarnesi. Sigurður var sonur Péturs Sigurðssonar (1852- 1918) útvegsbónda og oddvita í Hrólfsskála á Seltjarnarnesi, Ingjaldssonar (1806-1887) bónda þar, Ottasonar (1763-1839) bónda þar, Ingjaldssonar (1728-1805) sem setti bú í Hrólfsskála um 1760, og konu hans Guðlaugar Pálsdóttur (1849-1933), Pálsson- ar (1824-1895) snikkara, Pálsson- ar (1797-1861) prófasts í Hörgs- dal á Síðu, Jónssonar (1737-1819) klausturhaldara á Kirkjubæjar- klaustri og síðar bónda á Elliða- vatni. Pétur Sigurðsson átti þijú systkini sem upp komust, syst- urnar Önnu Þórdísi (1905-1980) og Guðlaugu (1913-1987), sem Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama, en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Þessi fornfrægu stef Hávamála komu upp í hugann við andláts- fregnina, að frændi minn og vinur, Pétur Sigurðsson fv. forstjóri Land- helgisgæslunnar væri látinn. Það er komið hátt á annan áratug síðan 'hann lét af störfum fyrir aldurs sak- ir. Mig setti hljóðan. Það hinsta stundin komj, eins og Síraksbók orðar það: „Ó, dauði; Hversu kært er kall þitt“ kemur hin hljóða þögn í kjölfar dauðans, hvort sem hann kemur óvænt eða þegar einskis annars er að vænta en komu hans. En þótt okkur sé orðs vant við hið óræða við lífið og dauðann, hefur himnafaðirinn sjálfur rofíð þögnina, og lagt áttavitann í hönd okkar, þegar lagt er „á djúpið“. Um það yrkir þjóðskáldið í einum af sálmun- um sínum stóru! ... haf Guðs orð fyrir leiðarstein í stafni og stýrðu síðan beint í Jesú nafni á himins hlið. Mér er það í barnsminni, þegar Seltjarnarnes var eins og hver önn- ur sveit við sjávarsíðuna. Þá voru þar sveitabýli og ábúendur útvegs- bændur. Pálsbær stóð þá neðst í stærðar túni, sem náði alla leið upp að akveginum, en göngustígur var þaðan niður að bænum. Mér fannst mikil prýði að Pálsbæ, sem stendur enn á sínum stað, en nú umkringdur öðrum íbúðarhúsum. Það, sem í þátíð setti svip á sveitasetrið var mikil og há flagg- stöng. Þar blakti oft íslenski fáninn hátt við hyttan. Man ég ekki betur %n svo hafí ætíð verið er flaggskipið Gullfoss kom af hafi, og skipstjórinn Sigurður Pétursson gekk heim götustíginn, „þéttur á velli og þétt- ur í lund“ í einkennisbúningi sínum. Sigurður, faðir Péturs, var farsæll skipstjóri, góðmenni, einarður og fylgdi skoðunum sínum eftir af til- ^fmningahita. Eitt sinn spurði ég báðar störfuðu á skrifstofu Eimskipa- félags Islands um árabil, og bróðurinn Ólaf (f. 1914). Hann er skipaverkfræðing- ur að mennt og bú- settur í Málmey í Sví- þjóð, þar sem hann gegndi forstjóra- stöðu hjá Kockums- skipasmíðastöðinni. Hinn 22. júní árið 1938 gekk Pétur að eiga Ebbu Paludan- Miiller (f. 1912) og eignuðust þau tvo syni, Ólaf (f. 1939) menntaskóla- kennara og Sigurð (f. 1944) há- skólakennara. Pétur Sigurðsson varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1931. Árin 1931-37 var hann við nám í Kaupmannahöfn. Lauk hann sjóliðsforingjaprófi frá Sooffícersskolen, nam sjómæling- ar við Det Kgl. Sakortarkiv og skipamælingar við Det danske Skibstilsyn. Vann við sjómælingar á vegum Vita- og hafnamálaskrif- stofunnar 1938-52, þar af sem skipstjóri á sjómælingaskipinu Tý 1946-52. Starfaði einnig að skipa- mælingum fyrir Skipaskoðun rík- isins og kenndi sjómennsku og skipagerð við Stýrimannaskólann í Reykjavík. Forstjóri Landhelgis- gæslunnar frá því að hún var gerð að sjálfstæðri stofnun 1952 og gegndi þeirri stöðu þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir 1981. Bæjarfulltrúi í Reykjavík fyrir Sjálfstæðisflokk- inn 1950-54. Formaður Stýri- mannafélags fslands 1944-46. í stjórn Eimskipafélags Islands hf. 1953-91. í stjórn Skallagríms hf. 1955-72. Forstöðumaður Al- mannavarna ríkisins 1968-81. Utför Péturs fór fram í kyrr- þey 13. febrúar. hann, hvað hefði verið erfiðast á sjónum og bjóst við frásögn af stormum og stórsjó. Hann svaraði með einu orði: „Þokan!“ Ingibjörg Ólafsdóttir móðir Pét- urs var frá næsta bæ, Mýrarhúsum. Sigurður og Ingibjörg áttu fágað og fagurt heimili og þau ráku hrossa- búskap á jörðinni. Ingibjörg var fyrirmyndar húsmóðir og stjórnaði heimili þeirra af röggsemi og um- hyggju. Öll fjögur börn þeirra voru á einn eða annan hátt tengd sjómennsku. Systurnar Anna og Guðlaug unnu á skrifstofum Eimskipafélagsins. Ólafur varð skipaverkfræðingur og um tíma einn af forstjórum hinnar risamiklu skipasmíðastöðvar Kock- ums í Málmey í Svíþjóð og Pétur valdi sjómennskuna að ævistarfí. Mér skilst, að faðir hans hafí frekar latt en hvatt hann til þeirrar ákvörðunar vitandi sem var, að sjó- sóknin gat á stundum bæði verið erfíð glíma og áhættusöm atvinnu- gi-ein. En úr því að sjómennskan varð fyrir valinu, vildi Sigurður að sonur sinn fengi þá bestu menntun til starfsins, sem völ væri á. Því var það, að leið Péturs lá í liðsforingja- skólann í Kaupmannahöfn. Hluti af námi Péturs frænda var að vera sjóliði á danska varðskipinu Hvid- björnen, sem hér var oft með ströndum fram. Þá var það dag einn vorið 1933 að Hvidbjörnen kom siglandi inn á ísafjarðarhöfn og lagðist að bryggju. í sama mund, sem ég var að búa mig til þess að fermast þann sama dag, gekk Pétur Sigurðsson inn úr dyrum heima í Túngötu þrjú. Hvað lá þá beinna við, en að þessi kæri forframaði frændi minn lagaði til á mér ferm- ingarfötin. Man ég það skýrt, að hann batt á mig fermingarslaufuna! Þegar Landhelgisgæslan hafði verið gerð að sérstakri stofnun, varð Pétur Sigurðsson forstjóri hennar, enda enginn betur í stakk búinn til þess að taka að sér það embætti. Á forstjóraárum Péturs Sigurðs- sonar gerðust mikil og merk tíðindi þjóðarsögunnar, sem snertu mjög stjórn og störf Péturs á þessum vettvangi og þjóðin verður honum ævinlega þakklát fyrir. Eg á honum einnig sérstakar þakkir að gjalda. Þegar ég hafði verið sex ár prestur á Akureyii, varð prestlaust á Grímsey. Var mér þá falin þar aukaþjónusta. Ferðir út í Grímsey voru þá strjálar. Póstbáturinn Drangur fór þangað áætlunarferðir, en átti þar skamma viðdvöl, og ferð- ir hans dugðu mér ekki nema á stundum. Hvað var þá til ráða? Þeg- ar allar bjargir eru bannaðar á sjón- um, þá er oft eina leiðin að leita til strandgæslunnar, sem heldur vörð með ströndum fram, vakir yfir. Eg vissi, að Landhelgisgæslan hafði lið- sinnt fólkinu í þessari úthafseyju, og ég veit að ég má flytja Landhelg- isgæslunni og Pétri Sigurðssyni bestu þakkir frá Grímseyingum fyr- ir liðveisluna. Þær þakkir tjáðu þeir svo oft í mín eyru. Pétur Sigurðsson hefði liðsinnt hverjum sem var í þessari embætt- isgjörð þegar aðstæður leyfðu. En mér var það ánægjuefni að hitta í fyrirrúmi þennan náfrænda minn. Við vorum systkinasynir. Pétur var orðvar um varðskipin og gaf ekki upp nafnið á varðskipi eða hvar það var statt á siglingu. Þess eðlis er og þannig starfar Landhelgisgæslan. Þau skiptin er varðskip ferjaði mig yfir Grímseyjarsund, var stundum minnst á stjómarhætti Péturs við gæsluna. Eitt af því sem ég fann að varðskipsmenn vora forstjóra sín- um mjög þakklátir fyrir, var að þeir fengu að vita fyrirfram hve langan tíma þeir yrðu í hvert sinn við gæslu á sjónum og hvenær þeir myndu koma í heimahöfn. Reynslan á sjónum og ögun í skóla sjóforingj- ans hefur þar reynst Pétri nota- drjúg eins og á fjölmörgum sviðum í stjórnunarstörfum hans. Föðurland vort hálft er hafið, helgað þúsund feðra dáð. Þangað lífsbjörg þjóðin sótti, þar mun verða stríðið háð. Hér fer vel á því, að vitnað sé í hin kynngimögnuðu orð sjómanna- skáldsins, Jóns Magnússonar, um landið okkar og miðin. Þegar þessi sterki sjómannasálmur var ortur, var reyndar aðeins landið íslenskt, ekki miðin, nema það sem nam fjór- um sjómílum, og því var það að er- lend skip gátu náð í afla sinn allt að því upp við landsteina. Þannig var ástatt þegar Pétur Sigurðsson kom til sögunnar með Landhelgisgæsl- una. En þessar ljóðlínur Jóns Magnússonar voru ekki síst spá- mannleg orð um fóðurlandið, fyrir- heit, sem átti eftir að rætast. Það fór ekki á milli mála, að lífs- stríð þjóðar við hin ystu höf knúði á um stækkun landhelginnar. Það gerðist stig af stigi, þangað til land- helgin var komin út í tvö hundruð mílur á áttunda áratugnum. Akvörðunartöku íslenskra stjórn- valda varð að fylgja fast eftir til þess að hún bæri árangur. En hvernig hefði það gerst án dugandi Landhelgisgæslu og öruggrar for- ustu hennar? Þorskastríðið líður okkur ekki úr minni. Hvað máttu sín okkar varðbátar móti stóram herskipum heimsveldis? Mikilhæfir skipherrar og valinkunnar áhafnir skipanna héldu varðstöðu sinni, þótt við ofurefli væri að etja. Þáttur for- stjórans var eigi lítil virði. Ábyrgð- in, stjórnviskan, útsjónarsemin og bjargráðin hvíldu ekki síst á honum. Það reyndi mikið á hann, en hann stóð sig með prýði. Eitt hefur hann alla tíð síðan verið þekktur fyrir, þ.e.a.s. klippurnar. Hugmyndina fékk hann frá Bretum, sem þeir höfðu notað í stríði til þess að klippa í sundur víggirðingar og sprengju- festingar í sjó. Pétur sá um hönnun og lét smíða þessar klippur miðað við íslenskar aðstæður í varnarbar- áttunni. Þessar klippur notuðu síð- an varðskipin til þess að klippa og tæta í sundur togvíra fískiskipanna, sem eigi virtu landhelgina. Og þetta dugði! Ekki heyrðist skothvellur eða hvinur af brugðnu sverði, eng- inn vopnagnýr eða blóðsúthellingar! AJþjóðleg réttlætiskennd sem og, að ég hygg, einnig undir niðri hjá hin- um óvinveittu, hefur mátt sín mik- ils. Nú getum við með reisn sagt og sungið: „Föðurland vort hálft er hafið.“ Mörgum má þakka það bæði í landi og á sjó. Þá síðast en ekki síst Pétri Sigurðssyni og Landhelg- isgæslunni í heild. Nú er þessi „aðmíráll" okkar Is- lendinga farinn í sína hinstu sigl- ingu til eilífa landsins. Við sjáum hann fyrir okkur teinréttan á stjórnpalli minninganna handan við höfín blá. Fráneygur fylgdist hann með öllu, sem skyldan bauð. Hann var ekki margorður en gagnyrtur. Oft brá fyrir kímni í svip hans. Spaugsamur var hann og átti auð- velt með að slá á léttari strengi jafnvel þó að alvara væri á ferðum. Hann stóð ekki einn í ströngum og krefjandi störfum. Eiginkona hans, frú Ebba Sigurðsson, stóð við hlið hans og studdi hann af nærgætni og viljastyrk. Synir þeirra, Ólafur og Sigurður, eru báðir kennarar, fræðimenn og völundar hvor á sínu sviði. Þeir hafa á svo fagran hátt verið stoð og stytta foreldra sinna á elliáram þeirra. Pétur og Ebba byggðu íbúðarhús sitt í Hrólfsskála á fornum ættastöðvum og undu þar vel hag sínum. Pétur var frábitinn því að berast mikið á, þó að ekki vantaði efnin til þess. Hann var hógvær og hlédrægur en þeim mun vaskari í framgöngu, er á þurfti að halda. Við Sólveig, fjölskylda okkar og frændsystkin kveðjum Pétur með einlægri þökk og vinarhug. Við vottum Ebbu, Ólafí og Sigurði sam- hug okkar, biðjum þeim huggunar og styrks, þegar umbreytingin mikla hefur átt sér stað í lífi eigin- mannsins, fóður og bróður. Við sendum Ólafí Sigurðssyni og frú Maj í Svíþjóð einlæga samúðar- kveðju. íslenska þjóðin átti því láni að fagna að eiga son á þeirri öld, er fylling tímans kom, að miðin í kring um landið yrðu líka íslensk, son sem hafði lag á því að breyta einskonar „sverði í plógjárn" undirdjúpanna, sem átti ekki að meiða neinn, en var þó hverju skotvopni öflugi’a til þess að gera óvelkomin veiðarfæri í haf- inu óvirk. Þorskastríðið er strangasta bar- átta, sem útverðir Islands hafa háð þjóð sinni til bjargar í lífsstríði alda. Vonandi bera þeir, sem helga sig út- veginum á einn eða annan hátt sem fyrst gæfu til þess að ná höndum saman um hlutaskiptin úr auðlind þjóðar sinnar, sem menn á sínum tíma hættu lífí sínu til að gæti orðið íslensk landhelgi. Að koma og fara er lífsins saga. Pétur Sigurðsson beið eftir burtför- inni af þessum heimi. Landfestar hafa verið leystar. Lausnin er kom- in, „en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur“. Þegar Pétur frændi kveður eins og ég þekki hann, er sem mér heyrist hann taka undir orð skáldsins er kvað: Út á haf í alvalds nafni, ei skal hupr veill. Guð í hjarta, guð í stafni gefúr fararheill. Pétur Sigurgeirsson. Pétur Sigurðsson fytrv. forstjóri Landhelgisgæslunnar, var sonur Sigurðar Péturssonar, hins þjóð- kunna skipstjóra á GuIlfossi; fyrsta skipi Eimskipafélagsins. Á ung- lingsárum átti hann margar stundir með föður sínum um borð í skipi hans og þar naut hann sinnar fyrstu leiðsagnar í siglingafræði. Snemma beygðist því krókurinn að því sem verða vildi. Og systur hans tvær, Anna Þórdís og Guðlaug, voru um langt árabil við skrifstofustörf hjá félaginu. Má því segja að Eimskipa- félagið geti á sinn hátt talist kafli í sögu fjölskyldunnar. Pétur fór utan að loknu stúdents- prófí frá Menntaskólanum í Reykja- vík 1931 til náms við Söoffícer- esskolen í Kaupmannahöfn og var sjóliðsforingi í danska sjóhemum til ársins 1937. Samhliða stundaði hann sérnám í sjómælingum og skipamælingum. Eftir að hann kom heim árið 1938 vann hann við starfs- greinar sem hann hafði aflað sér menntunar til og öðlaðist reynslu sem varð honum dýrmæt er hann tók við forstjórastarfi Landhelgis- gæslunnar árið 1952, en þar biðu hans mörg vandasöm ábyi'gðar- störf. Auk forstjórastarfs Land- helgisgæslunnar sinnti hann á langri ævi mörgum málefnum í þágu lands og þjóðar, sem ekki verða rakin nánar hér. Pétur var kosinn í stjóm Eim- skipafélags íslands árið 1953. Hall- dór Kr. Þorsteinsson, skipstjóri og útgerðarmaður, sem þá gekk úr stjórn félagins, taldi það brýna nauð- syn að innan stjómar Eimskipafé- lagsins væri maður sem hefði góða þekkingu og reynslu á sviði siglinga og öryggismála. Hann þekkti til menntunar Péturs og kunnáttu hans varðandi skip og siglingar og mælti með því að kjósa hann í stjómina í sinn stað. Hann taldi Pétur væri rétti maðurinn. Sannaðist síðar að rétt hafði verið ráðlagt um valið. Þetta er rifjað upp nú að Pétri gengnum þegar minnst er langs og farsæls ferils hans i stjóm Eim- skipafélagsins, en þar sat hann tU ársins 1991 eða í 38 ár er hann gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Á árum Péturs í stjórn Eimskipa- félagsins voru miklar framfarir á flestum sviðum í atvinnulífí þjóðar- innar. Rekstur Eimskipafélagsins tók einnig umtalsvei'ðum breyting- um . Endurnýjun og aukning skipa- flotans var mikil á því tímabili og bygging vörugeymsluhúsa. Félagið lét ýmist smíða ný skip eða keypti notuð. I þessari uppbyggingu átti Pétur hlutdeild með stjómarsetu sinni í félaginu og sinn þátt í því að vel tókst til. Störf sín í stjórninni vann hann af kunnáttu og yfirveg- un. Hann var um skeið gjaldkeri fé- lagsstjórnarinnar. Sjónarsvið Péturs var harla vitt og það einkenndist oft af því að hann sá ýmislegt jákvætt í því sem öðrum virtist neikvætt. Hann benti á að það væri rangt að nýta ekki þau mistök sem gerast, til góðs í framtíðinni. Það væri lærdómurinn í skóla reynslunnar. Hann taldi að sá sem tæki mið af reynslunni, lærði að haga seglum eftir vindi og sigla skipi sínu heilu í höfn þó að á móti blési. Hann benti á að mótvindur gat gefíð góðan byr ef seglum var hagað rétt. Þannig hagaði hann sigl- ingu sinni í lífinu, maðurinn sem af varfæmi og reynslu leitaði hins já- kvæða við lausn á vandamálum. Hann kom auga á þá hlið mála sem öðram stundum duldist. Pétri var hugleikið allt frá fyrstu tíð það sem við kom Eimskipafélag- inu og bar hag félagsins fyrir brjósti. Sjálfur hafði hann ekki um þetta mörg orð en verkin segja sína sögu, þau vann hann af alúð og heil- um hug fyi'ir félagið. Hann var hljóðlátur og hlédrægur og taldi ekki við hæfi að stilla sér upp fyrir framan aðra. Þannig lifir hann í minningu. okkar sem með honum unnum. Eimskipafélagið minnist langi'ar og farsællar stjórnarsetu Péturs Sigurðssonar og kveður hinn látna heiðursmann með virðingu og þakk- læti. Félagið vottar eftirlifandi eig- inkonu hans, Ebbu Paludan-Múller, sonum þeirra hjóna og öðrum ást- vinum innilega hluttekningu. Indriði Pálsson. Pétur Sigurðsson er látinn. Við hjá Landhelgisgæslunni vottum honum virðingu okkar og minnumst mannkosta hans í leik og starfí. Við söknum þess að eiga ekki von á að heyra frá honum, en hann var óþreytandi við að útlista sínar hug- myndir um það sem hann taldi koma Landhelgisgæslunni best. Pétur var fylginn hugsjónum sínum og hugmyndum, og var reiðubúinn að eyða miklum tíma í að sannfæra aðra um ágæti þeirra. Landhelgisgæslan var gerð að sjálfstæðri stofnun, þegar rofín voru tengsl við Ríkisskip árið 1952. Pétur Sigurðsson varð forstjóri Landhelgisgæslunnar frá þeim tíma, þar til hann lét af störfum fyr- ir aldurs sakir árið 1981. Árið, sem Pétur varð forstjóri Landhelgis- gæslunnar, var íslenska fiskveiði- lögsagan færð út í fjórar sjómílur, PÉTUR SIGURÐSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.