Morgunblaðið - 25.02.1998, Síða 37

Morgunblaðið - 25.02.1998, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 MINNINGAR GUÐMUNDUR EINARSSON + Guðtnundur Ein- arsson fæddist í Klettsbúð á Hell- issandi 12. júlí 1896. Hann lést á Dvalar- heimili aldraðra sjó- manna 6. febrúar síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Ingjaldshólskirkju 21. febrúar. Fyrst hitti ég þenn- an gamla mann fyrir rúmum 11 árum eða á gamlárskvöld 1986. Hann fór með okkur á brennuna og bauð okkur á eftir inn í „Kletts- búðina“, húsið sitt á Hellissandi til þess að sýna mér sófasettið sitt. Þegar hann svo fór frá Hellissandi nokkrum mánuðum síðar á Hrafn- istu, sagði hann við okkur Arna Jón að ef við vildum, mættum við „hirða“ sófasettið hans. Það prýðir húsið okkar enn alveg óbreytt. Svona var Gvendur. Það streymdi alltaf væntum- þykja frá Gvendi til okkar og að öðrum ólöstuðum var Arni Jón alltaf efstur og fremstur í hans huga. Honum þótti líka vænt um strákana okkar og við fórum síðast til hans fyrir þrem vikum til þess að sýna honum litla Þorgeir. Hann fann fyrir nærveru okkar, hélst fast í hendumar á okkur en sagði ekkert. Þegar við svo kvöddum þennan gamla góða vin í síðasta sinn ríg- hélt hann sér í okkur. Gvendur var góð- vinur fjölskyldunnar til margra ára. Hann var fastagestur á heimili tengdaforeldra minna. Hann vann í Búrfelli hjá Þorgeiri, var í fæði hjá Hrafn- hildi, og það dásamaði hann svo að hvergi fékk hann eins góðan mat sagði hann. Þeirra heimili var hans annað heimili mörg síðustu árin á Hellissandi. Þau Hrafnhildur og Þorgeir reyndust honum vel og hann þeim einnig. Rétt áður en Gvendur varð hundrað ára hringdi hann í Arna Jón og bað hann að sækja sig, hann vildi komast heim á Hellissand og fá að deyja þar. Við voram öll hjá honum á þessum merka degi 12. júlí 1996. Þá fór hann enn með kveðskap og var bæði kátur og klökkur. Reglulega var farið í heimsókn á Hrafnistu. Gvendur fylgdist lengi vel með öllu sem gerðist hér fyrir vestan. Oft kom það fyrir að hann sagði okkur fréttir úr mannlífinu og eða aflabrögðum. Hann bar alltaf hag Árna Jóns sér fyrir brjósti og rekstur á vélsmiðju hans, síðast spurði hann frétta af rekstrinum í desember síðastliðn- um. Hann fylgdist líka með mínu starfi og spurði gjarnan út í það. Já, hann vildi okkur svo vel. Gvendur var hagmæltur maður. Því miður er ekki mikið til á prenti eftir hann, mig langar því til að koma með tvær vísur eftir hann sem ég skrifaði hjá mér. Orðin hef ég saman sett svo á hlýða kynni. Pau hafa stundum leikið létt líka á tungu minni. Pó að frá þér flytji burt forðistraunogvesen. Bið ég guð að byggist upp blessað Snæfellsnesið. Við kveðjum Guðmund Einars- son frá Klettsbúð á Hellissandi vin okkar og þökkum fyrir samverana og velvildina í okkar garð. Anna, Árni Jón, Logi, Höskuldur og Þorgeir. Vegna mistaka í vinnslu féll niður nafn eins af höfundum greinarinn- ar hér fyrir ofan er hún birtist í Morgunblaðinu á blaðsíðu 40 laug- ardaginn 21. febrúar. Greinin er því endurbirt hér og eru hlutað- eigendur beðnir velvirðingar á mistökunum. VIGDIS V. INGIMUNDARDÓTTIR + Vigdís V. Ingimundardóttir fæddist á Efri-Ey í Meðal- landi í Austur-Skaftafellssýslu 16. febrúar 1932. Hún lést í Reykjavík 9. febrúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Bú- staðakirkju 16. febrúar. Guðs barn deyr sælt, það deyr í Jesú örmum. Frá dánarbeði það fer með englum heim. Við bylgjur Jórdans bros er því á hvörmum. Og borg Guðs sér það ljóss í fógrum geim. (T.B. Barratt-ÁE.) Með fáum fátæklegum orðum langar mig að kveðja Dísu, eins og vinir hennar kölluðu hana, og þakka henni fyrir hvað hún tók Frágangur afmælis- og minning- argreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.- is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem við- hengi. Auðveldust er móttaka svokall- aðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-texta- skrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrai- grein- ar um sama einstakling tak- markast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. mér vel þegar ég fluttist fyrir tveimur og hálfu ári á Réttarholts- veginn með strákana mína þrjá. Betri nágranna en hana og Kidda manninn hennar er varla hægt að óska sér. Bæði skildu það vel að börn og unglingar þurfa að hreyfa sig og fá vini sína í heimsókn, enda bára synir mínir og vinir þeirra mikla virðingu fyrir þeim hjónum. Þó að Dísa hafi átt við mikil veik- indi að stríða hin síðari ár, var alltaf stutt í glaðværa brosið henn- ar og það var sama hvort áttu í hlut fullorðnir, börn eða dýr, hún var jafn ljúf við alla. Hún unni því sem var fagurt og bjó manni sínum notalegt heirnili. Dísa var mikill blómaunnandi og prýddi heimilið blómum og garð- urinn hennar var vel hirtur og fal- legur. Þó að Dísa væri mikið veik missti hún aldrei áhuga á að líta vel út, var alltaf með hárið fallega lagt og vel snyrt. Eg á eftir að sakna þess að heyra hana kalla til mín: „Inga Sorgar og samúðarmerki Borið við minningaralliaihir ogjarðarfarir. Allur ágóði rennur til líknarmála. Fæst á bensínstöðvum, í Kirkjuhúsinu og í blómaverslunum. fi KRABBAMEINSSJÚK BÖRN HJÁLPARSTOF N U N KlTJ KIRKJUNNAR Shell 5- 5 5 írjiírjíkjm Upplýsingar í símum 562 7575 & 5050 925 I HOTEL LOFTLEIÐIR “ ICBLANDAIR HOT ILt mín, ástin mín, komdu og fáðu þér nýlagað kaffi með mér.“ Dísa var gift Kristni Guðmunds- syni og höfðu þau lifað í farsælu hjónabandi í fjöratíu ár. Hann var hennar stoð og stytta á meðan hún barðist við illvígan sjúkdóm. Eina dóttur átti Dísa, Öldu sem á þrjár dætur og sex bamaböm. Kæra Dísa ég kveð þig með þessu versi: Guðs barn deyr sælt, það ekkert alls má saka. Þar yfir dauðann lítur himininn. Og þaðan enginn óskar sér til baka. Því eilíflega þar er friðurinn. (T. H. Brarratt-ÁE.) Ég votta aðstandendum mína dýpstu samúð. Megi trú ykkar og minningar gefa ykkur styrk í sorg- inni. Guð blessi minningu Dísu. Ingileif Ögmundsdóttir. Hlómab&ðiri C\cu\3skom v/ PossvogsUíi‘kjMgc»»*3 Símii 554 0500 Sérfræöingar í blómaskrevliniium \ iö <>11 tækifaTÍ mblómaverkstæói I INNA,, | Skólavörðuslíg 12, á horni Bergstafíastrælis, sími 551 9090 Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA t INGÓLFURJÓNSSON frá Stöðvarfirði, vistmaður á Hlévangi, sem lést á sjúkrahúsinu í Keflavík aðfaranótt fimmtudagsins 19. febrúar, verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju föstudaginn 27. febrúar kl. 10.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega bent á Minningarsjóð Einars Benediktssonar frá Ekru. Fyrir hönd aðstandenda, Nanna Ingólfsdóttir, Steinunn Ingólfsdóttir, Víðir Friðgeirsson, Gylfi Geirsson. Jn t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN HALLDÓRSSON, Skólabraut 3, Seltjarnarnesi, sem lést á Landakotsspítala miðvikudaginn 18. febrúar sl„ verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 26. febrúar kl. 13.30. Hallbjörg Elímundardóttir, Guðrún Margrét Guðjónsdóttir, Guðný S. Guðjónsdóttir, Gylfi Már Guðjónsson, Sólrún Gunnarsdóttir og barnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim fjöl- mörgu, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, VILHJÁLMS K. GUÐMUNDSSONAR bifreiðastjóra, Skúlagötu 40, Reykjavfk. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A-7 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Elín Vilhjálmsdóttir, Halldór Sigurðsson, Erla Vilhjálmsdóttir, Friðbjörn Berg, Ingibjörg Bettý Bustillo, Vilhjálmur Ingi Haildórsson, Svava Halldórsdóttir, Karen Erla Kristófersdóttir. t Innilegar þakkir til þeirra, sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug og heiðrað minn- ingu móður okkar, ÖNNU BIRNU BJÖRNSDÓTTUR, Garðvangi, Garði. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Garðvangs, lungnadeildar Vífilsstaðaspítala og deildar G12 á Landspítalanum. Ásta Borg Jóhannsdóttir, Björn Bergmann Jóhannsson, Margrét Jóhannsdóttir, Guðný Helga Jóhannsdóttir, Ólafur Ómar Jóhannsson, Unnur Jóhannsdóttir, Þórný Jóhannsdóttir, Ragnar Christiansen, Anna Sveinbjörnsdóttir, Guðmundur Haraldsson, Unnsteinn Egill Kristinsson, Guðný R. Reynisdóttir, Guðmundur Birgisson, Ólafur Óiafsson, barnabörn og langömmubörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegs föður, tengdaföður, afa og langafa, KARLSJÓHANNSSONAR frá Vestmannaeyjum, Hrafnistu í Hafnarfirði, áður Stekkjarflöt 13, Garðabæ. Hervör Karlsdóttir, Geir Oddsson. Kristjana Geirsdóttir, Gunnar Þór Geirsson, Arna Guðrún Geirsdóttir og fjölskyldur þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.