Morgunblaðið - 25.02.1998, Side 38
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
RAGNA
S VAVARSDÓTTIR
+ Ragna Svavarsdóttir fæddist
á Akureyri 5. desember 1931.
Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness
14. febrúar síðastliðinn og fór út-
för hennar fram frá Akranes-
kirkju 24. febrúar.
;>Allt er í heiminum hverfult.“ Nú
er hún Ragna mín blessuð dáin.
Það hefur hljóðnað yfír Stillholtinu.
Götunni okkar Rögnu. Hversu oft
hef ég ekki gengið fram hjá húsinu
^■fiennar, hitt hana íyrir utan, þar
sem hún var að gæta að litlum
börnum sem voru í umsjá hennar,
alltaf með stóru svuntuna yfir
kjólnum sínum, boðið góðan dag-
inn, sest um stund á tröppurnar,
spjallað, stundum farið inn og feng-
ið kaffisopa. Hún var alltaf heima.
Hvað það var notalegt að líta út um
eldhúsgluggann og sjá að það var
alltaf ljós hjá Rögnu þó framorðið
væri. Aldrei fór ég svo snemma á
fætur að ekki væri komið ljós. Við
vissum alltaf hvor af annarri seint
og snemma.
Það var bammargt í hverfinu
okkar þegar Ragna og Skúli Bene-
iktsson, maðurinn hennar, fluttu í
að með átta bömin sín. Þá vora
mörg böm í hverju húsi á öllum
aldri. Þá var líf og fjör. Göturnar
ekki malbikaðar, lóðirnar ekki frá-
gengnar, moldarhaugur og
spýtnarasl um allt, hamarshögg
þeirra sem vora að byggja. Þó var
ekkert eins skemmtilegt og leikir
allra þessara barna, hlátur þeirra
og gleði, þar sem allt mátti gera,
hvergi of fínt, hvorki úti né inni.
Ragna og Skúli voru bæði ættuð
afí norðan. Hún ffá Akureyri, hann
TOnvetningur. Þau voru bæði stúd-
entar frá Akureyri og þar lágu leið-
ir þeirra saman. Skúli kom á Akra-
nes sem kennari við Gagnfræða-
skólann. Hann var þekktur sem
frábær íslenskukennari. Þau slitu
samvistir.
Ragna var stórbrotin kona,
glæsileg, vel menntuð, hög í hönd-
um, bókhneigð, tónelsk, spilaði á
orgel og píanó og miðlaði öllu til
barna sinna.
Ævi Rögnu er einn samfelldur
óður um konuna, móðurina, sem
var börnunum sínum allt, upp-
alandinn, sem varðaði veginn, fé-
laginn sem tók þátt í gleði þeima og
sorgum. Án þess að hika, gaf hún
þeim líf sitt og starf fram á hinstu
stund. í bókstafiegri merkingu vék
hún aldrei frá þeim.
Ég vann í mjólkurbúð í götunni
okkar um tíma og afgreiddi þau þar
oft með mjólk. Oft hugsaði ég:
„Hvernig getur ein kona hugsað
um öll þessi börn, fætt þau og
klætt?“
Árin liðu, börnin uxu úr grasi, vel
gefin og mannvænleg. Gengu í
skóla, fyrst barnaskóla, síðan gagn-
fræðaskóla, og að lokum urðu þau
flest stúdentar frá Fjölbrautaskól-
anum á Akranesi. Þá fylgdist ég
með börnunum í námi, kenndi þeim
flestum vélritun í Gagnfræða- og
Fjölbrautaskólanum. Þau vora öll
góðir námsmenn, og nú kom Ragna
vor eða haust, og samfagnaði börn-
unum sínum, sem voru að ljúka
stúdentsprófum sínum. Brosandi
og sigurglöð.
Fyrir hver jól kom Ragna til mín
og þá með Rögnu litlu dótturdóttur
sína með sér. Þá hitaði ég gjarnan
súkkulaði með jólasmákökunum.
Þá héldum við hátíð, spjölluðum um
bækur sem við höfðum lesið og ætl-
uðum að lesa um jólin.
Ég kom til Rögnu daginn áður en
hún fór á sjúkrahúsið, þar sem hún
dó eftir sólarhring. Hún sat í horn-
inu sínu við eldhúsborðið. Fjarri því
að mér sýndist hún væri á foram,
þó öllum ætti að vera ljóst að
hverju dró. Dætur hennar tvær
vora hjá henni. Báðar með lítil
börn, sem hún hafði ætlað að passa
fyrir þær. Þegar hennar börn
þurftu ekki lengur umönnunar við,
tók hún önnur börn til sín. Þau eru
mörg börnin hér á Akranesi sem
Ragna gætti lengri eða skemmri
tíma, og eiga henni mikið að þakka.
Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér,
- hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur hár,
minn sáttmáli við guð um þúsund ár.
(H.K.L.)
Blessuð veri hún Ragna um tíma
og eilífð. Blessuð veri börnin henn-
ar öH og barnabörnin hennar, hún
Ragna dótturdóttirinn sem hún ól
upp og vildi hvergi annars staðar
vera og hin sem hún hefur gætt og
ætlaði að gæta tengdabörnin sem
vora eins og börnin hennar.
Fjölskylda hennar og vinir
kveðja hana í þökk og virðingu.
Bjarnfríður Leósdóttir.
Eitt sinn skal hver deyja og í dag
kveðjum við Rögnu Svavarsdóttur.
Ragna var um flest merkileg kona
og öllum þeim sem kynntust henni
verður hún minnisstæð. Þótt ég
hafi lengstan hluta ævinnar vitað af
henni þá kynntist ég henni ekki að
ráði fyiT en hún fór að passa Ragn-
heiði, dóttur mína. Barnabörn
Rögnu voru í pössun um leið og
Ragnheiður og eftir það hét hún
amma Gagga á mínu heimili. I
mörg ár var það fastur liður að fara
til ömmu Göggu á aðfangadag með
kort og kyssa hana gleðileg jól.
Líf Rögnu var ekki alltaf dans á
rósum og hún safnaði ekki auði í
veraldlegum skilningi þess orðs. En
hún átti það sem er miklu dýrmæt-
ara. Hún átti stórkostlega fjöl-
skyldu sem alla tíð hefur verið
mjög samhent og hún átti lífsgleði
mikla. Hún var fullkomlega öfund-
arlaus og átti auðvelt með að gleðj-
ast með öðram.
Nú hefur þessi stórbrotna kona
kvatt. Mölur og ryð fá ekki grandað
þeim fjársjóði minninga sem hún
eftirlætur börnum sínum og þeirra
fjölskyldum. Megi minning Rögnu
Svavarsdóttur lifa með okkur öll-
um, við getum margt af lífí hennar
lært. Ég votta börnum hennar og
fjölskyldum þeima mína dýpstu
samúð.
Hrönn Ríkharðsdóttir.
BRAGI
PÁLSSON
+ Bragi Pálsson fæddist í
Reykjavík 17. júlí 1975. Hann
lést á heimili sínu í Garðabæ 14.
febrúar síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Vídalínskirkju 20.
febrúar.
Fyrsti skóladagurinn er að hefj-
ast. Það er eftirvænting og spenna í
loftinu og ki'akkar streyma að úr
öllum áttum. Þorvarður skólastjóri
les krökkunum lífsreglurnar á með-
an krakkarnir bíða óþreyjufullir eft-
ir að sjá nýja bekkinn sinn, 3.-A.
Strax frá fyrsta degi náði bekkurinn
einstaklega vel saman og var mjög
áhugasamur um að hittast og gleðj-
ast við ýmis tækifæri. En hver hefði
trúað því þá að sex áram síðar væru
tveir úr þessum sama bekk látnir.
+
Eiginmaður minn, stjúpfaðir okkar og afi,
TRYGGVI GUÐMANNSSON
vélstjóri,
Skólagerði 65,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtu-
daginn 26. febrúar kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeir, sem vilja minnast hins látna, láti Krabbameinsfélagið njóta þess.
Stefanía Bjarnadóttir,
Gunnar R. Jónsson og fjölskylda,
Hilmar H. Jónsson og börn.
+
Innilegar þakkir fyrir samúðarkveðjur vegna andláts og útfarar
INGIBJARGAR STEPHENSEN,
Bjarkargötu 4,
sem andaðist á Sólvangi í Hafnarfirði þriðjudaginn 10. febrúar 1998.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Klara og Ólafur Stephensen,
Ingibjörg, Stephan, Magnús og Ólafur Björn.
Við minnumst ávallt Hjörleifs og
Braga á sama andartakinu. Þeir
voru einstaklega samrýmdir og eins
og skuggi hvors annars.
Við sendum þér Hjörleifur okkar
dýpstu samúðarkveðjur og vonum
að Guð gefi þér og fjölskyldu þinni
styrk í sorg ykkar.
Þínar bekkjarsystur úr 3.-A í
Verzlunarskólanum
Edda Margrét, Auður Eik,
Ellý og Halldóra.
Skila-
frestur
minning-
argreina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á fóstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi.
MINNÍNGÁR ÖG
TÆKIFÆRISKORT
Segðu hug þinn um leið
og þú lætur gott af þér
® 562 4400 luflj
<SlT HJÁLMRSTOFNUN
KIRIUUNNAR
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Föstuvaka í
Hallgrímskirkj u
í KVÖLD kl. 21 (öskudag) verður
fostuvaka í Hallgrímskirkju.
Mótettukór Hallgrímskirkju mun
flytja lög við Passíusálma Hall-
gríms Péturssonar undir stjórn
Harðar Áskelssonar, lesið verður
úr píslarsögunni og sungnir Passíu-
sálmar. Vökunni lýkur með stuttri
hugvekju séra Sigurðar Pálssonar.
Þetta er fyrsta föstuvakan af þrem-
ur sem verða á föstunni, sú næsta
þann 11. mars, en þá munu ein-
söngvarar og hljóðfæraleikarar
flytja fijstutónlist. Passíusálmar
eru lesnir hvern dag á föstu, frá
mánudegi til föstudags kl. 12 á há-
degi. Á undan lestrinum er leikið á
orgel kirkjunnar.
Áskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra bama kl. 10-12. Starf fyrir
10-12 ára kl. 17. Föstumessa kl.
20.30.
Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr-
aðra: Opið hús í dag kl. 13.30-17.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu á eftir.
Grensáskirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 14. Biblíulestur, bæna-
stund og veitingar. Starf fyrir 10-12
ára kl. 17.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12.
Fræðsla: Agi, ástríki, leiðsögn.
Hallveig Finnbogadóttir hjúkrun-
arfræðingur. Orgelleikur og lestur
Passíusálma kl. 12. Opið hús fyrir
aldraða. Starf fyrir 10-12 ára börn
kl. 17. Föstuvaka kl. 21. Lestur úr
píslarsögunni. Sungnir Passíusálm-
ar, Mótettukór Hallgrímskirkju
syngur undir stjórn Harðar Áskels-
sonar.
Háteigskirkja. Mömmumorgunn
kl. 10. Foreldrar og börn þeirra
hjartanlega velkomin. Sr. María
Ágústsdóttir. Kvöldbænir og fyrir-
bænir kl. 18.
Langholtskirkja. Starf fyrh' eldri
borgara í dag kl. 13-17.
Laugarneskirkja. Fundur í æsku-
lýðsfélaginu í kvöld. Húsið opnað
kl. 19.30.
Neskirkja. Litli kórinn (kór eldri
borgara) æfir kl. 11.30-13. Umsjón
Inga J. Backman. Fótsnyrting kl.
13-16. Föstuguðsþjónusta kl.
20.Myndasýning að lokinni guðs-
þjónustu. Jóna Hansen kennari
sýnir myndir frá ferðinni til Eng-
lands. Kaffiveitingar. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Seltjarnameskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra, opið hús í dag kl. 13.30-16.
Félagar úr starfi aldraðra í Garðin-
um koma í heimsókn. Handavinna
og spil. Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
16. Bænarefnum er hægt að koma
til presta safnaðarins.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir. TTT-starf fyrir
10-12 ára í dag kl. 17.15. Æskulýðs-
fundur kl. 20.
Digraneskirkja. KFUM & K 10-12
ára barna kl. 16.30. Æskulýðsstarf
KFUM & K kl. 20 íyrir 13 ára og
eldri.
tFella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. KFUK kl. 17.30
fyrir 9-12 ára stúlkur.
Hjaliakirkja. Mömmumorgunn kl.
10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 16.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára
bömum í dag kl. 16.30-17.30 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Starf á
sama stað með 10-12 ára (TTT) ára
börnum kl. 17.30-18.30.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun í
dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir
velkomnir. Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í kirkjunni og í síma 567
0110. Léttur kvöldverður að bæna-
stund lokinni. Fundur Æskulýðsfé-
lagsins Sela kl. 20.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. I kvöld
verður kvöldguðsþjónusta í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði og hefst hún
kl. 21. Við þessa guðsþjónustu
verða kynntir Taize-sálmar, en það
era bænasöngvar kenndir við sam-
nefndan bæ í Frakklandi. Það er
nýstofnaður unglingakór kirkjunn-
ar sem leiðir sönginn ásamt
kirkjukórnum en stjórnandi ung-
lingakórsins er Örn Árnarson.
Hafnarfjai'ðarkirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Orgelleikur, fyrirbæn-
ir og altarisganga. Léttur hádegis-
verður á efth'. Opið hús kl. 20-22
fyrir æskulýðsfél. 13-15 ára.
Víðistaðakirlqa. Opið hús fyrir
eldri borgara milli kl. 14 og 16.
Helgistund, spil og kaffi.
Keflavíkurkirkja. Alfanámskeið í
Kirkjulundi í kvöld kl. 19-22.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
10 mömmumorgunn - öskudags-
gleði. Kl. 12.10 kyrrðarstund í há-
degi, orgelleikur frá kl. 12. Kl. 15.30
fermingartímar, barnaskólinn. Kl.
16.30 fermingartímar, Hamars-
skóli. Kl. 20 KFUM & K, húsið opið
unglingum.
Oddakirkja á Rangárvöllum. 1.
sunnudagur í fóstu; 1. mars 1998 -
Æskulýðsdagurinn: Fjöl-
skylduguðsþjónusta í Oddakirkju
kl. 11. Samvera 10-12 ára barna er í
félagsmiðstöðinni á Hellu á mánu-
dögum kl. 17. Kyrrðarstundir með
hugleiðingu, fyrirbænum og máltíð
Drottins verða í Oddakirkju á mið-
vikudögum ld. 18 alla fóstuna, hin
fyrsta í dag. Sóknarprestur.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hvitasunnukirkjan Ffladelfía. Kl.
18.30 er fjölskyldusamvera sem
hefst með'léttu borðhaldi á vægu
verði. Kl. 19.30 er fræðsla og bæn.
Allii' hjartanlega velkomnir.
Fræðslufundur
UNIFEM á íslandi
STJÓRN UNIFEM á íslandi
heldur fræðslukvöld þann 5.
mars nk. kl. 20 í safnaðarheimili
Óháðu kirkjunnar við Háteigs-
veg fyj'ir UNIFEM-félaga og
aðra þá sem áhuga hafa á starf-
semi félagsins.
UNIFEM er þróunarsjóður
Sameinuðu þjóðanna sem styrk-
ir konur í þróunarlöndum. Sjóð-
urinn var stofnaður 1976. Fram-
kvæmdastjóri UNIFEM er No-
leeen Hazer. UNIFEM á íslandi
var stofnað 1989 og er aðaltil-
gangur félagsins að kynna starf-
semi UNIFEM, þróunarsjóðs-
ins, vera málsvari kvenna í Þró-
unarlöndum og afla fjármagns
fyrir UNIFEM frá hinu opin-
bera og einkaaðilum.
Sagt verður frá UNIFEM,
upphafi hans og þróun. Einnig
verður greint frá starfsemi
UNIFEM félaganna og sérstak-
lega starfi UNIFEM á íslandi
og þróunarverkefnum sem þró-
unarsjóðurinn og félagið hafa
staðið að. Þessi fræðsla er fyrir
þá sem vilja vita meira um
UNIFEM og einnig fyrir þá
sem vilja starfa með félaginu í
framtíðinni.
Dagskrá fundarins tekur um
tvær klst. og fræðsluefni og
kaffiveitingar kosta 1.000 kr.
Mikilvægt er að áhugasamir
skrái sig á fræðslukvöldið þar
sem takmarka verður fjölda
þátttakenda, segir í fréttatil-
kynningu. Ef mikill áhugi er fyr-
ir hendi mun stjómin endurtaka
fræðslukvöldið. Ski'áning og
nánari upplýsingar fást eftir kl.
18 hjá Önnu K. Bjarnadóttur,
Melhaga 14 og Kristjönu Millu
Thorsteinsson, Haukanesi 8.