Morgunblaðið - 25.02.1998, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
JÓNATAN Örlygsson og Hólmfríður Björnsdóttir unnu
til 4. verðlauna í standarddönsum og 3. verðlauna í suður-
amerískum dönsum.
HRAFN Hjartarson og Helga Björnsdóttir unnu til silfur-
verðlauna í flokki Börn II.
Morgunblaðið/Jóhann Gunnar Arnarsson
DAVH) Gill og Halldóra Sif Halldórsdóttir unnu til 5.
verðlauna í flokki Unglinga I í suður-amerískum dönsum.
Sannkallað
augnakonfekt
Föstudagur
DA1\S
Valbyhöllin f Kaup-
mannahöfn
OPNA
KAUPMANNAHAFNARKEPPNIN
í SAMKVÆMISDÖNSUM
Haldin í 20. skipti dagana 20.-22.
febrúar
OPNA Kaupmannahafnarkeppn-
in í samkvæmisdönsum var haldin
sl. helgi í Valbyhöllinni í Kaup-
mannahöfn. Keppnin var nú haldin í
20. skipti og er hún nú orðin ein
virtasta og sterkasta keppni í Evr-
ópu. Keppt er í nær öllum flokkum,
frá flokknum Böm I upp í flokk
Fullorðinna, bæði í suður-amerísk-
um og standarddönsum.
Hátt í 80 manns fóra frá íslandi
- , til þess að taka þátt í og fylgjast
með þessari miklu keppni. Islenzku
pörin voru 19, þar af 2 í flokki Börn
1,3 í Böm II, 7 í flokki Unglingar I,
5 í Unglingar II, 1 í flokki Ung-
menna og 1 par í flokki Áhuga-
manna. Voru þó nokkrar væntingar
bundnar til íslenzku keppendanna,
sem þeir sannarlega stóðu undir.
Opna Kaupmannahafnarkeppnin
er þriggja daga keppni og hófst hún
á föstudeginum 20. febrúar. Hér á
eftir verða helztu viðburðir hvers
dags útlistaðir.
Unglingar II kepptu í suður-amer-
ískum dönsum þennan íyrsta dag
keppninnar og fóru öll íslenzku pörin
áfram í 2. umferð, en þau eru ísak
Halldórsson Nguyen og Halldóra
Ósk Reynisdóttir, Gunnar Þór Páls-
son og Bryndís Símonardóttir, Hann-
es Þór Egilsson og Hrund Ólafsdótt-
ir, Sigurður Hjaltason og Linda
Heiðarsdóttir og Gunnar Hrafn
Gunnarsson og Sigrún Ýr Magnús-
dóttir. Tvö síðastnefndu pörin
komust glæsilega inní undanúrslit.
Þessi fyrsti dagur var mjög
skemmtilegur og voru flestir mjög
sáttir við sinn hlut, enda mjög hörð
keppni í öllum flokkum.
Laugardagur
Böm I kepptu í suður-amerískum
dönsum. Bæði íslenzku pörin
komust í 20 para úrslit, Jónatan Ör-
lygsson og Hólmfríður Bjömsdóttir
gerðu sér lítið fyrir og komust alla
leið í úrslit og unnu þar til þriðju
verðlauna. Sannarlega glæsilegur
árangur hjá þessu unga og mjög svo
efnilega danspari.
Böm II kepptu í standarddöns-
um og komust öll íslenzku pörin
áfram í aðra umferð. Þau em Bene-
dikt Ásgeirsson og Sigrún Anna
Knútsdóttir, Sigurður Ragnar Am-
arsson og Sandra Espersen og
SIGURÐUR R. Arnarsson og Sandra Espersen voru í 14. sæti í flokki
Börn II.
Hrafn Hjartarson og Helga Bjöms-
dóttir og fóm þau síðastnefndu
áfram í 3. umferð.
Unglingar II dönsuðu standardd-
ansa og komust öll pörin í 2. umferð
og létu þar við sitja þennan daginn.
Ungmennaflokkur dansaði í
fyrsta sinn á laugardeginum og
dönsuðu Baldur Gunnbjömsson og
Elín Bima Skarphéðinsdóttir eitt
íslenzkra para í þessum flokki. Ekki
gekk allt að óskum hjá þeim þennan
Böm I kepptu í standarddönsun-
um þennan dag og komust bæði ís-
lenzku pörin í 20 para útslit, þau
Stefán Claessen og Erna Halldórs-
dóttir og Jónatan Örlygsson og
Hólmfríður Björnsdóttir. Þau síðar-
nefndu náðu þeim glæsilega árangri
að komast í undanúrslit og þaðan
alla leið í úrslit, þar sem þau unnu
til 4. verðlauna.
Böm II kepptu einnig í stand-
arddönsum á fóstudeginum. Öll ís-
lenzku pörin komust áfram í 2. aðra
umferð; Hrafn Davíðsson og Anna
Claessen, Conrad McGreal og
Kristveig Þorbergsdóttir, Hafsteinn
Már Hafsteinsson og Jóhanna
Berta Bemburg, Guðmundur Freyr
Hafsteinsson og Ásta Sigvaldadótt-
ir, Guðni Kristinsson og Helga
Helgadóttir, Davið Gill Jónsson og
Halldóra Sif Halldórsdóttir, Hilmir
Jensson og Ragnheiður Eiríksdótt-
ir. Þijú síðastnefndu pörin komust
svo áfram í 3. umferð og hin tvö síð-
astnefndu fóm áfram í undanúrslit.
GUNNAR Hrafn Gunnarsson og Sigrún Ýr Magnúsdóttir gerðu það gott í flokki Unglinga n.
daginn, þrátt fyrir að þau hafí dans-
að mjög vel.
Liðakeppni er ávallt hluti af
Opnu Kaupmannahafnarkeppninni,
og fór hún fram á laugardagskvöld-
inu. Islenzka liðið lenti í 5. sæti að
þessu sinni en lið Danmerkur bar
sigur úr býtum. Dómarar í þessari
keppni em þrír og þar var einn ís-
lenzkur í þetta sinn, en það var
Henny Hermannsdóttir.
Sunnudagur
Börn II kepptu í suður-amerísk-
um dönsum þennan síðasta dag
keppninnar. Öll pörin fóra áfram í
aðra umferð en Sigurður og Sandra,
Hrafn og Helga fóra áfram í fjórð-
ungsúrslit. Sigurður og Sandra end-
uðu í 14. sæti, aðeins hársbreidd frá
því að komast í undanúrslit. Hrafn
og Helga fóru svo áfram í úrslitin
þar sem þau náðu þeim glæsilega
árangri að vinna til silfurverðlauna
á eftir dönsku pari. Þau hafa verið
að gera það gott undanfarið og er
skemmst að minnast að þau tóku
þátt í Gala-þætti þýzka sjónvarps-
ins nú um jólin. Þar komu þau fram
með heimsmeisturam í dansi, t.d.
Donnie Burns og Gaynor Fairwe-
ather, sem hafa verið ósigrandi í
suður-amrískum dönsum í yfir ára-
tug og Marcus og Karen Hilton,
sem eru margfaldir heimsmeistarar
í standarddönsum o.fl.
Unglingar I kepptu í suður-amer-
ískum dönsum og komust öll ís-
lenzku pörin áfram í 2. umferð.
Hilmir Jensson og Ragnheiður Ei-
ríksdóttir, Guðni Kristinsson og
Helga Dögg Helgadóttir og Davíð
Gill Jónsson og Halldóra Sif Hall-
dórsdóttir komust öll í fjórðungsúr-
slit og tvö hin síðarnefndu komust í
undanúrslit. Davíð Gill og Halldóra
Sif komust svo í úrslit og unnu þar
til 5. verðlauna með glæsibrag.
Áhugamenn kepptu í suður-am-
erískum dönsum. Árni Þór og Erla
Sóley Eyþórsböm náðu sér ekki al-
mennilega á strik í þessari keppni,
þau komust þó áfram í 2. umferð.
Þau er nýbyrjuð að dansa aftur eftir
nokkurt hlé og kann það eflaust að
skýra niðurstöðuna. Þau eru annars
á ágætri siglingu og verður gaman
að fylgjast með þeim þegar þau
verða komin í sitt rétta form.
Opna Kaupmannahafnarkeppnin
er ákaflega skemmtileg keppni, hún
er ekki of löng og ekki of stutt. Auk
þess sem maður sér það bezta sem
er að gerast í dansheiminum; flest
beztu pörin í heiminum er þama
mætt til leiks. Þessi keppni er sann-
kallað augnakonfekt.
íslendingar mega vera stoltir af
þessum miklu íþróttamönnum sem
tóku þátt í Kaupmannahafnar-
keppninni í dansi. Þetta era ákaf-
lega efnilegir dansarar sem eiga
framtíðina svo sannarlega fyrir sér.
Jóhann Gunnar Arnarsson