Morgunblaðið - 25.02.1998, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.02.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 41 i I 1 I j 3 I 3 3 3 § 3 3 1 1 Í FRÉTTIR Dagskrá á öskudegi VÍÐA er skipulögð dagskrá í tengsl- um við öskudaginn eins og kemur fram í eftirfarandi fréttatilkynning- um sem blaðinu hafa borist síðustu daga. Hafnarfjörður LIONSKLÚBBURINN Kaldá, Sparisjóður Hafnarfjarðar og Æsku- lýðsráð verða með öskudagsball í Iþróttahúsinu Kaplakrika miðviku- daginn 25. febrúar kl. 13-15. Skemmtunin hefst á því að kötturinn verður sleginn úr tunnunni. Tunnurnar verða þrjár, ein fyrir 10 ára og eldri, ein fytrir 6-9 ára og sú þriðja fyrir 5 ára og yngri. Hljóm- sveitin Gleðigjafar ásamt André Bachmann og Helgu Möller halda uppi fjörinu. Veitt verða verðlaun fyrir skemmtilegustu búningana. Gerðuberg* Á ÖSKUDAGINN verður, sam- kvæmt hefð, mikið um að vera í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Hljómsveitin Fjörkarlarnir sjá um fjörið, boðið verður upp á andlits- málningu o.s.frv. Húsið verður opnað kl. 13.30 en dagskráin hefst kl. 14. Börn á öllum aldri eru velkomin meðan húsrúm leyfíi'. Aðgangseyrir er 300 kr. For- eldrar eru hvattir til að mæta en þeir fá frítt inn. Kringlan í TILEFNI af öskudeginum verður hugguleg stemmning fyidr krakkana í Kringlunni í dag, segh- í fréttatil- kynningu. Klukkan 11 og 13 verður farið í leiki, lesið og fleira. Auk þess verður boðið upp á andlitsmálun. Klukkan 15 býður Kringlan krökk- unum í bíó á myndirnar Georg of the Jungle og Hercules á meðan pláss leyfir. Víkingur VÍKINGUR stendur i samvinnu við félagsmiðstöðina Bústaði og for- eldrafélög Fossvogs- og Bústaða- skóla fyrir öskudagshátíð fyrir 1.-6. bekk í Víkinni í dag klukkan 13. Kötturinn verður sleginn úr tunn- unni og fleira sér til gamans gert. * Arsel í FÉLAGSMIÐSTÖÐINNI Árseli verður skemmtun á öskudaginn fyrir börn og unglinga. Kötturinn verðm- sleginn úr tunn- unni, tunnukóngur verðuru krýndur, verðlaun verða veitt fyrir frumleg- ustu búningana, andlitsmálun, leikh’, dans og grín. Kl. 13-14.30 verður skemmtun fyrh' 7 ára og yngri, kl. 15-16.30 8 og 9 ára, 17-18.30 10-12 ára og kl. 20-22.30 mæta 13-15 ára. Aðgangur er ókeypis. Reykjanesbær HALDIN verður öskudagshátíð fyr- ir nemendur 1.-6. bekk grunnskól- anna í Reykjanesbæ. Hátíðin stend- ur yfir frá kl. 14-16. Nemendur í Myllubakkaskóla mæti í íþróttahús- ið við Sunnubraut og nemendur í Njai’ðvíkurskóla í Iþróttamiðstöðina. Dagskráin hefst með hefðbundnu sniði: Kötturinn sleginn úr tunnunni, leikir, dans, glens og grín. Allh- fá viðurkenningu fyrir að mæta og einnig fá þeir verðlaun sem slá kött- inn úr tunnunni. Ekki verða veitt verðlaun fyrir búninga. Að hátíðinni standa Tómstundaráð Reykjanesbæjar, Léttsveit Tónlist- ai-skólans í Keflavík og Lúðrasveit Tónlistarskóla Njarðvíkur. Foreldrar eru beðnir um að taka virkan þátt í þessari skemmtun og aðstoða börnin. Ráðstefna um forvarn- ir á Húsavík RÁÐSTEFNA á vegum íslands án eiturlyfja 2002 verður haldin á Húsa- vík fimmtudaginn 26. febrúar á Hótel Húsavík og hefst hún kl. 13 og er þátttaka ókeypis. „Áætlun Islands án eiturlyfja 2002 hyggst skipulegja ráðstefnur um for- varnamál í öllum landshlutum á þessu ári og því næsta. Fyrsta ráð- stefnan verður haldin á Húsavík og er hún undirbúin í samvinnu áætlun- arinnar ísland án eiturlyfja 2002, sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og landssamtakanna Heimili og skóli. Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra og bæjarstjóri Húsavíkur- bæjar munu ávarpa ráðstefnugesti. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar verður dr. Þórólfur Þórlindsson prófessor og mun hann fjalla um niðurstöður úr könnun Rannsóknastofnunar upp- eldis- og menntamála, Ung ‘97, sem lögð var fyrir nemendur í 9. og 10. bekk í öllum grunnskólum landsins í mars 1997. Þórólfur mun sérstaklega skoða niðurstöður könnunarinnar með tilliti til Norðurlands eystra, segir í fréttatilkynningu. ísland án eiturlyfja árið 2002? „Á dagskrá ráðstefnunnar verður kynning á forvarnastarfí á Húsavík, Ákureyri og Dalvík auk þess sem kynning verður á áætluninni ísland án eiturlyfja 2002. Að loknum fram- söguerindum stai’fa fjórar málstofur þar sem fjallað verður um: Sam- ræmdar aðgerðir sveitarfélaga gegn sölu tóbaks og áfengis til barna og unglinga, aga og gildismat í uppeldi, hlutverk nemendaverndarráða og unglinga og forvai’na. Málstofan Unglingar og foi’varnh’ verður með þátttöku unglinganna sjálfra. Umræður verða í ráðstefnu- lok um helstu niðurstöður og áfram- haldandi starf. Tilgangur þessarar ráðstefnu og annarra sem fyrirhugað er að halda er m.a. sá að skapa vettvang um allt land til samráðs og upplýsingamiðl- unar um stöðu mála í viðkomandi landshlutum og ræða leiðir og verk- efni til úrbóta," segir ennfremur. Fyrirlestur um virkjanir og ferðamennsku HALDINN verður fræðslufundur Félags landfræðinga fimmtudaginn 26. febrúai’ kl. 20.30 í Odda, stofu 201. Á fræðslufundinum heldur fyrir- lestur Anna Dóra Sæþórsdóttir land- fræðingur, sem nýlega hefur lokið umfangsmikilli rannsókn á áhrifum virkjana norðan Vatnajökuls á ferða- mennsku, að frumkvæði samstarfs- nefndar iðnaðarráðuneytis og Nátt- úruverndar ríkisins um orkumál (SINO). Rannsóknina kostuðu Landsvirkjun og iðnaðaiTáðuneytið. Öllum er heimill ókeypis aðgangur meðan húsrúm leyfir. Kvöldgang’a Hafnargöngu- hópsins HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer í miðvikudagskvöldgöngu sinni 25. febrúar frá Hafnarhúsinu að austan- verðu kl. 20. Farið verður með Tjörninni um Hljómskálagarðinn og Háskóla- hverfið, suður á Strandstíginn í Skerjafirði og eftir honum um Skeljanes og Nauthólsvíkina, í Foss- vogsbotn að Nesti. Þar verður val um að ganga til baka eða fara með SVR og AV. Einnig er hægt að stytta gönguleiðina og fara í SVR á leiðinni frá Hafnarhúsinu. Allir vel- komnir. Aðalritara þakk- að frumkvæði ÞINGFLOKKUR Alþýðubandalags- ins og óháðra samþykkti á fundi sín- um á mánudag að fela formanni þingflokksins að senda Kofi Annan, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, skeyti þar sem honum er þakkað fyr- ir frumkvæði að lausn á Iraksdeil- unni, segh’ í fréttatilkynningu. Skeytið er á þessa leið: „Hr. aðal- ritai’i Sameinuðu þjóðanna, Kofi Annan. Þingflokkur Alþýðubanda- lagsins og óháðra fagnar því sam- komulagi sem þér hafið beitt yður fyi’ir sem aðalritari Sameinuðu þjóð- anna. Með þessum áfanga er mikil- vægt skref stigið til að treysta frið og jafnframt til þess að styrkja Sam- einuðu þjóðirnar sem samnefnara og forystuafl á alþjóðvettvangi. Með frumkvæði yðar hafið þér lagt fram ómetanlegan skerf til að koma í veg fyrir stríð og þar með þá hættu sem hefur blasað við hundruð- um þúsunda barna og óbreyttra borgara.“ 300 í félagi um Kópavogslista Á STOFNFUNDI Kópavogslistans í Félagsheimili Kópavogs sl. sunnu- dag gengu um 300 manns í samtökin sem að baki listanum standa. Á fund- inum var samþykkt að eftirtaldir að- ilar skipuðu listann og að Valþór Hlöðversson, bæjarfulltrúi, yrði bæj- arstjóraefni hans. 1. Flosi Eiríksson, húsasmiður og háskólanemi, 2. Kristín Jónsdóttir, arkitekt, 3. Sigrún Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur, 4. Birna Bjarnadótth’, bæjarfulltrúi, 5. Guð- mundur Oddsson, bæjarfulltrúi, 6. Vilmar Pétursson, verkefnisstjóri, 7. Magnús Norðdahl, hæstaréttarlög- maður, 8. Birna Sigurjónsdóttir, að- stoðarskólastjóri, 9. Yr Gunnlaugs- dótth’, verslunarmaður og húsmóðir, 10. Bergur Sigfússon, nemi í MK, 11. Helga E. Jónsdóttir, leikskólastjóri, 12. Garðar Vilhjálmsson, skrifstofu- stjóri Iðju, 13. Loftur Þór Pétursson, bólsti-ari, 14. Svala Jónsdóttir, fjöl- miðlafræðingur, 15. Þórunn Björns- dótth’, tónmenntakennari, 16. Skafti Þ. Halldórsson, kennari, 17. Bryn- hildur Flóvenz, lögfræðingur, 18. Gréta Guðmundsdóttir, forstöðu- maður, 19. Helgi Helgason, kennari, 20. Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi bæjarfulltrúi, 21. Heiðrún Sverris- dóttir, fyrrverandi bæjafulltrúi og 22. Kristján Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri. Fyrirlestur um sænskar bók- menntir DR. BO Jansson, lektor í bók- menntafræði við háskólann í Falun (Högskolan Dalarna) í Svíþjóð, flyt- ur opinberan fyrirlestur í boði heim- spekideildar Háskóla íslands fóstu- daginn 27. febrúar kl. 13.15 í stofu 202 í Odda. Fyrh’lesturinn nefnist „Den svenska nutidsprosan“ (Sænskar nú- tímabókmenntir í lausu máli) og verður fluttur á sænsku. Bo Jansson er fæddur árið 1949. Hann lauk doktorsprófi í bók- menntafræði við Uppsalaháskóla ár- ið 1990. Hann var iektor í sænsku við Árósarháskóla frá 1992-95 og hefur síðan gegnt lektorsstarfi í bók- menntafræði í Falun. Hann hefur gefið út tvær bækur: „Sjalvironi, sjalvbespegling och sjalvreflexion. Den metafiktiva tendensen I Eyvind Johnsons diktning“ (Uppsala 1990) sem var doktorsritgerð hans og „Postmodemism och metafikton i Norden. (Uppsala 1996). Bo Jansson er staddur hér á landi í boði sænska sendiráðsins og sænska lektoratsins í Norræna húsinu í tilefni af sænskri bókakynningu. í tengslum við hana flytur hann einnig fyrirlestur í Nor- ræna húsinu kl. 16 laugardaginn 28. febrúar um sænskar bókmenntir sem komu út á árinu 1997. Fyrh’lesturinn er öllum opinn. Aðalfundur LÍSU AÐALFUNDUR LÍSU, samtaka um samræmd landfræðileg upplýs- ingakerfi, verðui- haldinn 26. febrúar kl. 13 á Grand Hótel Reykjavík, Sig- túni 3, í salnum Hvammi. Dagskrá samkvæmt 7. grein fé- lagslaga. Sagt verður frá nefndai’- starfí, gerð grein fyrir skýrslu end- urskoðunarnefndar LÍSU og álits- gerð stjómar um hlutverk LÍSU. Fundarboð og fundai’gögn, ársreikn- ingur og tillögur til lagabreytinga, hafa verið send til félagsmanna. Nánari upplýsingar á skrifstofu LÍSU Hlemmi 3. Leiðrétt Rangt fæðingarár FÆÐINGARÁR Guðrúnar JónsdótL ur misritaðist í formála minningai’- greina um hana á blaðsíðu 41 í Morg- unblaðinu í gær, þriðjudag. Guðrún fæddist í Hvammi undir Eyjafjöllum 14. mars 1908. Hún lést á Landakots- spítala 6. febrúai- síðastliðinn og fór útför hennar fram í kyrrþey. A þrúgum aust- ur yfir landið í FYRRA komu hingað til lands fjórir franskir lögreglumenn og gerðu tilraun til þess að fara yfir hálendið, frá Þingvöllum til Fá- skrúðsfjarðar, á snjóþrúgum. Þeir urðu þá að hætta við hálfnað verk sökum veikinda. Hinn 3. mars ætla tveir þeirra, Santiago Denche og Alexandre Henique, að koma aftur til ísland og gera aðra tilraun við sömu leið. Nú munu fara þeim tveir íslending- ar, Gérard Geirharður Chinotti og Hermann Þór Baldursson. Hinn 7. mars verður lagt af stað frá Þingvöllum og liggur leiðin um svæðið sunnan Langjökuls, yfir Blá- fellsháls, um Þjórsárver, í Nýjadal við Tungnafellsjökul. Gengið verður norður fyrir Tungnafellsjökul og stefnan þá tek- in á Dyngjujökul. Yfir Dyngjujökul, Kverkfjallaranann, Brúarjökul og í Snæfell. Frá Snæfelli verður stefn- an tekin á Fáski’úðsfjörð þar sem leiðangrinum mun ljúka, ef allt gengur að óskum, 27. mars. Aftur verður farið á snjóþrúgum og allur búnaður fluttur með á snjó- þotum. Með leiðangrinum vilja fjórmenn- ingarnir vekja athygli almennings á hvítblæði og beinmergjargjöfum í baráttunni við sjúkdóminn. Það er gert að frumkvæði frönsku lög- reglumannanna sem eru í samstarfi við AVAL frönsku beinmergjar- gjafaskrána. Franska beinmergjargjafaskráin er gagnabanki, þar skrá sig sjálf- boðaliðar sem eru tilbúnir að gefa beinmerg þegar á þarf að halda og eru þeir þá kallaðir til. Starfsfólk Blóðbankans hefur unnið að undir- búningi beinmergjarskrár á íslandi. Með leiðangrinum vilja þeir jafn- framt vekja athygli á vináttutengsl- um íslands og Frakklands. Guðrún Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú verður verndari leiðang- ursins. ■ hltiirUiii Nýr bæklingur frá BM Vallá BM VALLÁ kynnir um þessar mundir nýjan 40 síðna bækling um vörur og þjónustu fyrirtækisins sem inniheldur ítarlegar upplýsingar fyrir þá sem eru að byggja eða breyta. Hér er um að ræða vörur eins og steinsteypu, þakskífur, milliveggja- einingar, steinklæðningu, vatns- bretti, hljóðskerma og sérþjónustu BM Vallár. Flestar þær vörur sem kynntar eru í bæklingnum eru nýj- ar af nálinni. I leiðarvísi í miðopnu bæklingsins er að finna hagnýtar leiðbeiningar um niðurlögn og meðhöndlun stein- steypu, ennfremur leiðbeiningar um lögn á þakskífum, segir í fréttatil- kynningu. Þar er einnig að finna niðurstöð- ur steypurannsókna BM Vallá en fyrirtækið hefur nú gefið út niður- stöður steypurannsókna sem stað- festar eru af Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins síðustu 11 ár- in. Hægt er að nálgast ókeypis ein- tak af bæklingnum hjá söluski’if- stofu BM Vallá, Breihöfða 3, eða panta í síma 800 4500 allan sólar- hringinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.