Morgunblaðið - 25.02.1998, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 25.02.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 48 EnAtíu ehk'íj f/eit petta.er i/iO íiandtí \tiancia þxÍQ- brtókaaps - \ kXcapio. Éq- OfmsUið þiti?) \ Virðisteiqa' Satt C&Staja útnefncLu hri6- gijonabxndurmiq heitirwu V' IBrúbur ánj£uqarins Ferdinand Ef þú veist að þú færð ekki Valent- Settu upp sorgarsvip svo að allir Hvernig er þetta? Mjög gott ínusarkort, hvað ættirðu að gera? viti að þú ert hnuggin ... BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Snæfellsbær við þröskuld nýrrar aldar Frá Kristni Kristjánssyni: MÉR hefur borist Fréttabréf Snæ- fellsbæjar, 6. tbl. Meðal efnis í því eru fimm spumingar um ýmis mál sem snerta Snæfellsbæ. Fjórir full- trúar bæjarstjórnar svara þessum spurningum. Mig langar til að fjalla örlítið um svör þeirra við fjórðu og fimmtu spurningu, sem fjalla um vegamál og væntanlegan þjóðgarð innan bæjarfélagsins. Af svörum þeirra flestra mætti ætla að Snæ- fellsbær væri eyland og ekki í nein- um tengslum við vegakerfið á Snæ- fellsnesi. Ég hefi áður bent á að hringvegur um Nesið sé það sem koma skal til að þjóna öllum byggð- um þess. Grein sem Jón Jónsson, Setbergi, reit í Morgunblaðið fyrir stuttu um vegamál á Snæfellsnesi styður þær skoðanir mínar, sem fram komu í Mbl. í des. sl., að leggja beri áherslu á að gera Heydalsveg að öruggri vetrarleið, svo og Skógar- strönd, Álftafjörð og Kolgrafarfjörð að ógleymdum Búlandshöfða og leið- inni fyrir Jökul. Hugmyndin um nýj- an fjallveg um Dufgusdal er fráleit og ekki er tímabært að taka hana inn á áætlun næstu ára og alls ekki fyrr en góður hringvegur er kominn um Nesið. Ekki er mér kunnugt um hvort allir þingmenn Vestlendinga standa að hugmyndinni um þennan nýja fjallveg. En eitt er þó víst að háttvirtur þingmaður Sturla Böðvarsson hefur gengið með þetta hugarfóstur í mörg ár. Fulltrúar Snæfellsbæjar minnast ekki orði á hugmyndina og mætti því ætla að þeir væru henni samþykkir. En það mega þeir vita að nýr fjallvegur skerðir fjárframlög til annarra vega á Snæfellsnesi. Það væri bæði fróð- legt og nauðsynlegt að heyra skoð- anir þeirra á þessum nýja fjallvegi. Lítið fer fyrir víðsýni þeirra félaga Páls Ingólfssonar og Atla Alexand- erssonar, þegar þeir svara spurning- unni um vegamál. Hjá þeim kemst ekkert annað að en Fróðárheiði sem er nú gott út af fyrir sig, en svo eru þeir slegnir blindu þegar um frekari vegagerð er að ræða í bæjarfélaginu og á ég þá við Útnesveginn. Meira að segja heimta þeir bundið slitlag á Fróðárheiði. Ég held að allt tal um bundið slitlag á fjallvegum sé tíma- skeklqa, á meðan svo margt er ógert á láglendisleiðum. Að mati þeirra fé- laga má svo einlivern tíma, ef aurar verða til, leggja veg út á Arnarstapa. Þessir menn voru kjörnir í bæjar- stjórn fyrir tæpum fjórum árum, sem fulltrúar framsækinna manna og kvenna, ferskh- og fordómalausir. Sameining sveitarfélaganna sem nú mynda Snæfellsbæ átti að verða til þess að sameina hug og hönd í stað þeirrar einangrunar sem einkenndi litlu sveitarfélögin allt of oft. Því miður virðast litlir sérhagsmunapúk- ar fara þarna um lönd og strönd og skjótast um hraun og heiðar líkt og áður vestra. Rétt er að geta þess, að bæði Drífa Skúladóttir og Sveinn Þór Elínbergsson ræða um varan- legan veg fyrir Jökul. Þökk sé þeim. Spurning númer fimm varðar væntanlegan þjóðgarð og eftir því sem ég best veit á hann að ná yfir svæðið frá Dagverðará að Gufuskál- um. Umræðan um þjóðgarðinn hlýt- ur að tengjast vegamálum og ferða- þjónustu sem margir ætla að verða ríkir af. Þessi ferðaþjónustumál eru mikið til umfjöllunar ekki síst á þeim stöðum, þar sem náttúra landsins er eftirsótt og aðlaðandi. En til að laða ferðamenn að, er ekki nóg að hafa fagurt land og merka sögu. Einnig þarf aðgengi að því sem í boði er að vera gott en það vantar svo sannar- lega þegar rætt er um téðan þjóð- garð. Það ætti að vera óþarfi að ræða um vegakerfið á þessu svæði, svo eft- irminnilegt er það vegfarendum, sem þarna hafa farið um. Þetta virðist gleymast í umræðunni um framtíð Snæfellsbæjar. Þegar áðurnefndir fulltrúai- Snæfellsbæjar svara spurn- ingunni: Hvað getur Snæfellsbær gert til þess að hjálpa við útfærslu þjóðgarða? Ég tel að það sé númer eitt, tvö og þrjú að gera svæðið aðlað- andi. Mér finnst Drífa ein svara þess- ari spurningu rétt og á þann hátt að ekki fer á milli mála hver stefna hennar er í þjóðgarðsmálinu. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á að bæjarstjórn Snæfellsbæjar sé það forpokuð að hún sjái ekki þörfina fyrir verulegar vegabætur á þessu svæði að hún sjái ekki örlítið inn í framtíðina og alla þá miklu mögu- leika sem bíða handan við nálæg aldamót. KRISTINN KRISTJÁNSSON, fyrrverandi kennari við Grunnskólann á Hellissandi. Auglýsingar á leigubifreiðum Frá Kristni Snæland: NOKKUÐ er síðan leigubifreiðar í Reykjavík, nánai' tiltekið á Hreyfli, tóku að aka með auglýsingar á hlið- um. Þegar svo leigubifreiðai' á Akur- eyri tóku þessa þjónustu upp, varð þetta að fréttaefni í sjónvarpi. Loks birtist stutt hugleiðing „öryrkja" í Morgunblaðinu um auglýsingar þess- ar. Taldi hann að nær væri að nýta bíla öryrkja fyrir slíkai' auglýsingar enda þörfin þar meiri fyrir aukatekj- ur en upplýst var að 10 þús. kr. væru greiddar fyrir mánaðar auglýsingu. Með miklum velvilja og skilningi á högum öryrkja vil ég benda á að ieigubil er gjaman ekið um 60 þús. kílómetra á ári en ég giska á að ör- yrki aki gjarnan um 15 þús. kílómetra á sama tíma. Þetta þýðir að sýning auglýsingarinnar á leigubílnum nær hugsanlega augum fjórfalt fleiri manna en auglýsing á bíl öryrkja. Þá má bæta því við að mai'kaður þessi er a.m.k. enn ekki stærri en svo að ein- ungis munu 10 bílar aka með þessar auglýsingai' á Akureyri og innan við 30 bílar í Reykjavík. Um það gætum við svo vissulega orðið hjartanlega sammála, ég og öryrkinn, að lífskjör öryi-kja og annarra þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu okkar eru til skammar og þó hælast stjórnmála- menn okkar um á erlendri grundu og þykjast stjóma velferðarþjóðfélagi. KRISTINN SNÆLAND leigubílstjóri. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútándi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.