Morgunblaðið - 25.02.1998, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 25.02.1998, Qupperneq 46
46 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ ígi ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra s</iðið kt. 20.00: MEIRI GAURAGANGUR — Ólafur Haukur Símonarson I kvöld 25/2 laus sæti — sun. 1/3 — mið. 4/3 — sun. 8/3 — fim. 12/3. GRANDAVEGUR 7 - Vigdís Grímsdóttir Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guðmundsdóttir. Á morgun 26/2 örfá sæti laus — lau. 7/3 — sun. 15/3. HAMLET — William Shakespeare Fös. 27/2 - fim. 5/3 - fös. 13/3. FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Harnick Lau. 28/2 nokkur sæti laus — fös. 6/3 — lau. 14/3. YNDISFRÍÐ OG ÓFRESKJAN - Laurence Boswell Sun. 1/3 kl. 14 - fös. 8/3 kl. 14 - sun. 15/3. Litta st/iSið kl. 20.30: KAFFI — Bjarni Jónsson Á morgun 26/2 — sun. 1/3 — lau. 7/3. SmiSaóerkstœSiS kt. 20.00: POPPKORN - Ben Elton I kvöld 25/2 - fös. 27/2 - fim. 5/3 - sun. 8/3. Ath. sýningin er alls ekki við hæfi bama Sýtit i Loftkastatanum kt. 21.00: LISTAVERKIÐ — Yasmina Reza Á rrorgun 26/2. Ath. hlé verður á svninaum í marsmánuði. Mðasalan er opin mánud.—þríðjud. kl. 13—18, miðvikud.—sunnud. kl. 13—20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga 5 LEIKFELAG J REYKJAVÍKUR BORGARLEIKHUSIÐ Stóra svið kl. 14.00 eftir Frank Baum/John Kane Sun. 1/3, örfa sæti laus, sun. 8/3, sun. 15/3, aukasýn. 17/3 kl. 15.00, sun. 22/3. Stóra svið kl. 20.00 FGÐIfR 0G SýMlf eftir Ivan Túrgenjev Lau. 28/2, fös. 6/3, lau. 14/3, lau. 21/3. Stóra svið kl. 20.00 ISLENSKI D ANSFLOKKURINN Útlagar Iða eftir Richard Wherlock. Útlagar og Tvístígandi sinnaskipb' II eftir Ed Wubbe. Takmarkaður sýningarfjöldi. 5. sýn. fös 27/2, gul kort, 6. sýn. sun. 1/3, græn kort 7. sýn. lau. 7/3, hvít kort Höfuðpaurar sýna á Stóra sviði: nlýfinl Fös. 27/2, kl. 22.30, lau. 7/3, kl. 22.30. Litla svið kl. 20.00: ÍFeítlfamenhH eftir Nicky Silver Fös. 27/2, lau. 7/3. Atriði í sýningunni eru ekki við hæfi barrta. Miðasalan er opin daglega frá kl. 13—18 og fram að sýningu sýningardaga. Simapantanir virka daga frá kl. 10 Greiðslukortaþjónusta Simi 568 8000 fax 568 0383 NÝTT LEIKRIT EfTIR GUÐRÚNU ASMUNOSDÓTTUR HEILAGIR SYNDARAR Mið. 25. febrúar. Fös. 27. febrúar. Þri. 3. mars Uppselt Sýnt kl. 20.30. SÝNT i ÓVÍGÐUM HLUTA GRAFARVOGSKIRKJU MIÐASÖLUSlMI 535 1030 tjstflÉNN BUGSY MALONE f dag, Öskudag, kl.18 örfá sæti laus lau. 28. feb. kl. 16 örfá sæti laus sun. 1. mars kl. 13.30 uppselt sun. 1. mars kl. 16.00 uppselt lau. 7. mars kl. 13.30 örfá sæti laus sun. 8. mars kl. 13.30 örfá sæti laus sun. 8. mars. kl. 16.00 örfá sæti laus lau. 14. mars kl. 13.30 FJÖGUR HJÖRTU fös. 27.2. kl. 21 uppselt lau. 28.2. kl. 21 uppselt sun. 1. mars kl. 21 örfá sæti iaus flm. 5. mars kl. 21 lau. 7. mars kl. 21 fös. 13. mars kl. 21 Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI fös. 6.3 kl. 23.30 (Miðnætursýning) mið. 11. mars kl. 21 Síðustu sýningar LISTAVERKIÐ fim. 26. feb. kl. 21 Loftkastalinn, Seljavegi 2, Miðasala s. 552 3000, fax 562 6775, opin 10-18 og fram að sýningu sýn.daga. ULa rd tyWu i irn Ðcrivti (,i jstí;\sK t rtrun t\ Simi 551 1475 £§•.. Miöasala er opin aila daga ncma mánudaga frá kl. 15-19. föstudag 27. feb. kl. 20.00 laugardag 28. feb. kl. 20.00 laugardag 7. mars kl. 20.00 laugardag 14. mars kl. 20.00 líafíiltikMsíL Vesturgötu 3 I HLADVARPANUM Svikamylla (Sleuth) eftir Anthony Shaffer Frumsýning fim. 26/2 kl. 21 uppselt 2. sýn. fös. 27/2 kl. 22 örfá sæti laus 3. sýn. mið. 4/3 kl. 21 laus sæti 4. sýn. lau. 7/3 kl. 21 laus sæti Revían í deii lau. 28/2 kl. 15.00 laus sæti Svikamyllumatseðill: Ávaxtafylltur arísahryggur með kókoshjúp Myntuostakaka m/skógarberjasósu Miðasala opin fim-lau kl. 18—21. Miðapantanir allan sólarhringinn i síma 551 9055. ^^Sídasti \ Bæriim í X/alnuin Vesturgata II. Hafnarfíröi. Sýningar hefjast kíukkan 14. <)0 Miöapantanir í síma 555 0553. Miöasalan er opin milli kl. 16-19 alla daga nema sun. Hafnarfjar&rleikhúsid HERMÓÐUR OG HÁÐVÖR 11. sýn. lau. 28/2 kl. 14 örfá sæti 12. sýn. sun. 1/3 kl. 14 örfá sæti Aukasýnlngsun,__ 1J3kl. .17 Lau. 7. mars kl. 14 nokkur sæti Sun. 8. mars kl. 14 nokkur sæti Aukasvning sun. a mars kl. 17 Lau. 14. mars kl. 14 nokkur sæti Sun. 15. mars kl. 14 FÓLK í FRÉTTUM ERLENDAH Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður fjallar um nýútkomna geisla- plötu Pauls Simons „Songs of the Capeman“ úr söngleiknum „The Capeman" sem sýndur er á Broadway. •k'k'kVz Kviknar til lífs af holdi og blóði AFREKASKRÁ Paul Simon á tónlistarsviðinu er löng og glæsileg. Ferill hans spannar rúma 3 áratugi og óhætt að segja að maðurinn fylli þröngan hóp höfuð- snillinga þeitTar tónlistar sem tók völdin í hinum vestræna heimi á seinni hluta aldarinnar. Þessi tónlist er stundum kölluð rokk og ról. Paul Simon er þvi í þeirri stöðu, á sínu 57. aldursári, að til hans eru gerðar meiri kröfur en til flestra annarra tónlistarmanna og hefur ýmsum veist erfitt að rísa undir öðru eins. Söngleikurinn „The Ca- peman“ hefur verið megin- viðfangsefni lágvaxna gyð- ingsins Palla undanfarin sjö ár og þegar litið er til þeirrar staðreyndar að það er jafn- langur tími og Bitlamir gáfu nær allar sínar plötur út á, má ætla að eitthvað hljóti að vera í stykkið og tónlistina spunnið. Sér til aðstoðar við texta verksins hefur Simon ekki ómerkari mann en Der- ek Waleott frá Trinidad, Nó- belsverðlaunahafa í bók- menntum, og veltir sá sem hugleiðir hér á prenti því fyrir sér hvort það sé al- gengt að Nóblar sinni rokk- listinni. En það er allt önnur Elínborg. Saga verksins byggist á 30 ára gömlu morðmáli í Nueva York, þar sem 16 ára Puerto Ricani og meðlimur klíkunnar „Blóðsugurnar", Salvador Agron, varð tveimur ung- lingum að bana með hnífsstungu í meintu uppgjöri við írsku klíkuna, The Norsemen (!) ættaða úr hverfmu þar sem heitir í Hell’s Kitchen. Salvador Agi-on var íklæddur svartri skikkju með rauðu fóðri þegar voða- verkið átti sér stað og hlaut þegar viðurnefnið „Skikkjumaðurinn" eða The Capeman. Fjölmiðlar Nýju Jór- víkur gerðu sér mikinn mat og safa- ríkan úr þessu máli og ekki minnkaði áhugi þeirra á Skikkjumanninum þegar hann var dæmdur til hinstu setu í þeim illræmda rafmagnsstóli, yngstur þein-a sem slíkan dóm höfðu hlotið í heimafylki sínu. Dómi þessum var breytt fyrir bænastað Eleanor Roosevelt, Rockefeller ríkisstjóra og fleiri máls- metandi manna. I fangelsinu mennt- aði Salvador Agi-on sig af kostgæfni og sneri af þeirri lastabraut sem hafði leitt hann svo rakleitt í þá vist. Hann stundaði skriftir, beitti sér í réttindabaráttu fanga og var um síðir látinn laus eftir 20 ára fangelsivist. Paul Simon getur þess sérstaklega að þetta mál hafi haft áhrif á hann milli mjalta og messu. Þarna var um að ræða jafnaldra hans sem leit út eins og „rock & roll hoodlum - he looked the 1950’s“ og þýði nú hver sem betur getur, því „hann leit út eins og 6. áratugurinn" nær ekki heildarhugsuninni að fullu. Þeir ljóðbræður, Paul Simon og Derek Walcott, fara ekki leynt með samúð sína í garð Salvador Agrons og félaga hans, sem eiga fárra kosta völ í samfélagi sem lítur á þá sem þriðja flokks borgara. Söngtextar þeirra eru mjög góðir og stundum frábærir. Þeir veita innsýn inn í líf undirmálsfólks, drauma þess og von- ir sem fléttast á óvæginn hátt saman við kaldar staðreyndir tilverunnar. Paul Simon hefur ævinlega verið í hópi fremstu rokkskálda og mér sýn- ist að textar Skikkjumannsins jafnist á við sumt það besta sem hann hefur áður gert. Rík tilfinning fyrir mynd- máli og snjallar tengingar við hvers- dagsleika sem er okkur flestum sam- eiginlegur gera að verkum að fólkið sem syngur kviknar til lífs af holdi og blóði; það á við okkur erindi. Eg verð að játa að mér varð ekki um sel þegar ég las hugleiðingar höf- undar í ágætu fylgihefti Songs from the Capeman, þar sem sagði að tón- listarkveikjan í verkinu væri „Latin“- tónlist (nema hvað?) og dægurtónhst 6. áratugarins. Ríkisútvarpið lék iðu- lega á uppvaxtarárum mínum bosmamiklai- suður-amerískar laga- syrpur í flutningi Edmundo Ross og hljómsveitar hans. Neikvæð áhrif þess flutnings hafa varað mestallt líf mitt og það er ekki fyrr en í seinni tíð sem mér hefur tekist að yfirvinna gegndarlausa fordóma fyrir þessari merkilegu og taktslungnu tónlistar- hefð heillar heimsálfu. Svipaða sögu er að segja um tón- list þá sem reið röftum vestanhafs áður en blessaðir Bítlarnir komu tii skjalanna. Snyrtileg bandarísk ung- menni af hvítum kynstofni að syngja geðþekk og meinlaus lög um mennta- skólaástir hafa aldrei hreyft mikið við mér. Formúlukennd uppbygging og úrvinnsla þessarar tónlistar, þar sem Þingvallahringurinn (C - a moll - d moll - G) er ekinn fram og til baka og einhæfur do-wop söngur brillgreiddra hafa aldrei hitt mig í hjartastað. Svartir tónlistarmenn voru aftur á móti önnum kafnir á þessum árum við að ryðja brautina fyrir breskar hor- renglur sem skömmu síðar breyttu heimsmynd heillar kynslóðar. Það er ef til vill til rneríds um aldur minn að ég hallast fremur að þeirri dægurtón- list sem tilheyrir sjöunda áratugnum og síðai- og ef út í þá sálma er farið tónlist fimmta áratugarins. Og í því sambandi örlítlill útúrdúr: Af hverju þurfum við íslendingar alltaf að tala um áratugi þannig að miðað er við þann næsta á eftir? Kan- ar segja „fortís" og „fiftís" og Danir „halvtredserne" og „firserne" eða eitthvað í þá veru, sem er áreynslu- laust og eðlilegt. Við klakabúar bögglumst aftur á móti með þessa kauðslegu en ofurlítið vitrænu aðferð að þurfa einlægt að minna okkur og aðra á að áratugurinn er á leiðinni að verða sá næsti sem byrjar umsvifa- laust og hann hefst að teygja sig í þar næsta. Það má ekki segja „fimmtíu- árin“ og „sextíuárin" svo ég viti þannig að ég lýsi eftir tafarlausri um- fjöllun og umræðu um málið! En eins og áður segir var þetta örlítill útúr- dúr. Fyi-stu strófurnar sem hljóma á Capemanplötunni í laginu „Adios Hermanos“ eru do-wop raddir að syngja Þingvallahringinn (viti menn og fín byrjun fyrir mig!). Siðan hefur upp ástsæla raust sína Paul nokkur Simon og syngur um það þegar dóm- ur er kveðinn upp yfir Salvador Agron hinum unga lagsmanni hans og besta vini Hemandez eða Regnhlífar- manninum. Ekki er leikið á hljóðfæri í laginu utan þess að lágvært orgel suðar þekkilega í bakgrunni i við- lagi. Raddirnar bera lagið fagurlega áfram og svo er víðar á plötunni. Puerto Rico áhrifin eru sterk í næsta lagi og hvernig ætti annað að vera í lagi sem heitir „I was bom in Puerto Rico“. Þá kemur „fiftís“ lagið „Satin Summer Nights" og það er ekki fyrr en í ijjórða laginu, Bemadette, að hægt er að segja að hér sé komið svona nokkumveginn týpískt Paul Simon lag. Áfram hljóma latneskir tónar í bland við ,Jiftís“ en í laginu „Can I forgive him“ hljómar Simon eins og á meistaraverkinu Bookends sem hann gerði með sínum gamla lagsbróður Garfúnkii sama árið 1967 og Sergent Pepper leit dagsins ljós. Lagið er tekið upp á heimili höf- undar, hann er einn með gítarinn og gamla snilldin og einfaldleikinn eru enn í fullu verðgildi, þrátt fyrir að lagið sé fráleitt einfalt að formi og innviðum. Það tók mig nokkum tíma að ná sambandi við Stóklg'umanninn en sam- bandið batnar og vex og er enn að vaxa á meðan ég trúi tölvunni fyrir þessum þönkum. Að frátöldum einu eða tveim- ur lögum er í tónlistínni einhver heill- andi áleitinn seiður sem smýgur gegn- um hljóðhimnuna og sest að í völund- arhúsinu eða í næsta nágrenni þess. AÍlur söngm- og hljóðfærasláttur er í hæsta gæðaflokki en Paul Simon hefur ævinlega verið íúndvis á meðreiðar- sveina sem hafa laðað fram það besta í tónlist hans. Aðdáendur Paul Simon fá hér í bland að heyra nýstárlega hlið á sínum manni og ekki í fyrsta skipti, því hann hefur verið duglegri en margir að endm-nýja hljóðheim sinn og leitað fanga um víðan völl. Söngleiksformið virðist heilla manninn þessa dagana því hann er byrjaður á næsta stykki um sjálfa heiðurskonuna Winnie Mandela. Þar verða afrísku áhrifin sem lyftu Graceland-plötunni í upphæðir varla langt undan. Þeir sem ekki þekkja Paul Simon verða heldur ekki sviknir af Songs from the Capeman og ég mæli óhikað með þessari plötu við alla þá sem nenna að hlusta og teygja sig á móti tónlist sem ef til vill virðist framandi við fyrstu áheyrn. Samt verður þessi plata varia nefnd í sömu andrá og það besta sem Paul Simon hefur sent frá sér á þessum rúmlega 30 síðastliðnu árum. En hans bestu verk eru í þeim gæðaflokki að jafnvel þótt Skikkjumaðurinn standist þeim ekki snúning get ég óhræddur endað eins og kvikmyndagagnrýnendur ljósvakamiðlanna gera gjarnan. Ég er upplitsdjarfur og ákveðinn i bragði, vantar bara axlaböndin og gef Skikkjumanninum þrjár stjörnur og hálfa að auki fyrir textana. LJÓÐBRÆÐURNIR Derek Walcott og Paul Simon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.