Morgunblaðið - 25.02.1998, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 47
FÓLK í FRÉTTUM
De Niro finnur
til með Clinton
► KVIKMYNDIN „Wag the Dog“
var frumsýnd í Evrópu á kvik-
myndahátíðinni í Berlín, sem lauk
á sunnudag. Fjallar hún um
Bandaríkjaforseta sem setur á
svið styijöld við Albaníu til þess
að beina athyglinni frá kynlífs-
hneyksli heima fyrir.
Robert De Niro fer með stórt
hlutverk í myndinni og sagði hann
á blaðamannafundi í Berlín að
hann fyndi til með Bill Clinton
Bandaríkjaforseta vegna óvæg-
innar og ósanngjarnrar umfjöllun-
ar í ijölmiðlum sem byggð væri á
kynlífssögum. De Niro sagði að
hann miðaði ekki að því að hagn-
ast á vandamálum Clintons í kynn-
ingu á myndinni.
„Þetta var bara tilviljun," sagði
hann. „Ég vildi ekki notfæra mér
ástandið hjá Clinton. Ég vildi ekki
að tekið yrði mið af því [í mark-
aðssetningu myndarinnar „Wag
the Dog“] vegna þess að mér
finnst fáránlegt hvernig fyrir hon-
um er komið. Hann gerði ekkert
af sér og við þurfum að einbeita
okkur að stærri vandamálum ...
Þetta er eins og þessi heimskulega
uppákoma hjá mér í Frakklandi.
Allt bull og vitleysa."
Þar skírskotaði hann til þess
þegar hann var sjálfur færður
með offorsi í yfirheyrslu hjá lög-
regluyfirvöldum í Frakklandi
vegna meintra tengsla sinna við
vændishring. Þegar franskur
blaðamaður spurði hann út í málið
á fundinum var baulað á blaða-
manninn af öðrum í fundarher-
berginu. En De Niro sagðist vera
fús til að svara spurningunni.
„Þetta var hræðileg lífsreynsla
og algjör óþarfi," sagði hann. „Ég
held að jafnvel lögreglan hafi
blygðast sín. Þeir ruddust inn í
hótelherbergið þar sem ég dvaldi
- sjö eða átta lögreglumenn - og
það var algjörlega óviðunandi. Eg
hefði ef til vill átt að hringja í Am-
nesty Intemational," sagði hann
og sló á léttari strengi.
Hann gagnrýndi franska dóms-
kerfið og sérstaklega dómarann
sem hafði úrskurðað hann í varð-
hald. „Það er eins og maður sé
sekur þarna þar til sakleysi er
sannað," sagði hann. „Ég þekki
fjölmarga sem sögðu mér að þeim
hefði liðið hræðilega; Frakkar
skömmuðust sín.“
Að verða betri maður
„MEÐ hækkandi sól og lengri degi
vinna sál og líkami hægt og bítandi á
skammdegisdrunga og sleni. Smám
saman fer landið að rísa og maður
fer að trúa því að vorið muni koma ú
endanum - þrátt fyrir allt og allt.
Bækur og tónlist eru haldreipi
margra í skammdeginu svo og í ann-
an tfma. í jólabókaflóðinu margum-
talaða á síðasta ári kenndi margra og
góðra grasa. Þar á meðal voru tvær
bækur sem ég mun hafa í hávegum
og vil gjarnan minnast á hér,“ skrif-
ar Ottar.
Spor göngumanns
„Bókin er ævisaga Hjartar á Tjörn,
rituð af tveimur börnum hans, Ingi-
björgu og Þórarni. Ég og fjölskylda
mín urðum þeirrar gæfu aðnjótandi
að kynnast Hirti og fjölskyldu hans á
sjöunda áratugnum. Það voni afskap-
legá skemmtileg og lærdómsrík
kynni. Þau Tjarnarhjón voru í senn
rammíslenskt bændafólk og víðsýnir
heimsborgarar og heimilisbragurinn
einkenndist af hlýjum, leiftrandi
húmor. Bók þeirra systkina er einkar
fagui-t verk bæði hið ytra og innra.
Hún er full af hugljúfum minningum
og tregablandinni gleði. , ,
Eg held að hver sá sem I HAVEGUM
hana les verði betri -------------------
maður efth’ en áður.‘(
Morgunblaðið/Líney
ÓTTAR hvetur alla til að hafa viðdvöl í Þistilfirði þar sem
Einar Benediktsson dvaldi ungur að árum.
Einar Benediktsson
„Guðjón Friðriksson,
sagnfræðingur, er að
vinna að ævisögu skáldsins, braut-
ryðjandans og athafnamannsins Ein-
ars Benediktssonar og er fyrsta
bindið komið út. Bókin er falleg og
vönduð, prýdd fjölda mynda og text-
inn lipur og tilgerðarlaus. Svo vill til
að nafn Einai’s Benediktssonar teng-
ist prestsetrinu á Svalbarði í Þistil-
firði en þar er skóli sá er ég veiti for-
stöðu. Faðir hans sendi hann hingað,
ungan að árum, til sr. Guttorms Vig-
fússonar sem bjó hann undir skóla.
Dvaldi Einar hér um tveggja vetra
skeið. Síðar kom hann hér í öllu dap-
urlegri erindagjörðum. Systkin,
vinnuhjú hjá sr. Olafi Petersen á
Svalbarði, voru grunuð um sifjaspell.
Benedikt sýslumaður sendi Einar
son sinn til þess að rétta í málinu.
Hin ógæfusömu systkin reyndust
sönn að sök en stúlkan tók réttar-
haldið svo nærri sér að hún svipti sig
lífi nóttina eftir. Þessir atburðir
höfðu djúp áhrif á Einar, eins og
nærri má geta, og taldi hann að
hjá Ottari Einarssyni,
skólastjóra Svalbarð-
skóla í Þistilfírði
stúlkan fylgdi sér lengi
síðan. Nú er öðruvísi
umhorfs á Svalbarði en
á tímum sr. Olafs Peter-
sen enda liðin rúm 100
ár frá þessum atburð-
" um. Þó stendur hér eitt
hús sem var um hálfrar aldar gamalt
þá. Það er Svalbarðskh’kja sem færð
hefur verið til upprunalegs horfs á
smekklegan og myndarlegan hátt.
Þeir sem leið eiga um Þistilfjörð ættu
ekki að láta undir höfuð leggjast að
skoða þetta virðulega en jafnframt
látlausa guðshús og hlusta þar á nið
aldanna.“
Sjálfstætt fólk
„Til eru þær bækur sem hægt er
að lesa aftur og aftur og við hvern
lestur opnast ný sýn, nýjar víddir.
Þær eru klassík. Hvað mig varðar
fyllh- bókin Sjálfstætt fólk eftir Hall-
dór Laxness þann flokk. Ég las hana
fyrst fimmtán ára gamall. Þegar ég
var að lesa um kaupstaðarferð Ástu
Sólliiju og pabba hennar gat ég ekki
tára bundist. Ég man enn hvað ég
varð hissa á sjálfum mér - að vera
farinn að grenja yfir bók. Auðvitað
skammaðist ég mín niður í tær. Sam-
kvæmt tíðarandanum áttu karlmenn
ekki að gráta og ég sem hélt að ég
væri a.m.k. á góðri leið með að verða
karlmaður! Síðan hefur mikið vatn til
sjávar runnið og ég mai’gsinnis lesið
eða flett upp í þessari ágætu bók. I
fyn-avetur báðu nemendur mínir mig
að lesa fyrir sig framhaldssögu. Þeir
voru á aldrinum 10-12 ára. Mér datt
þá í hug að athuga hvemig hetjusaga
Bjai’ts í Sumarhúsum virkaði á börn
á öld myndbanda og tölvuleikja. Það
er skemmst frá því að segja: Hún
svínvirkaði.“
Rússíbanar
„Ég verð að játa að ég hef senni-
lega frekar frumstæðan tónlist-
arsmekk. Ég er aðallega á þessu
karlakóra-, hannónikku-, síðasta lagi
fyrh’ frétth’-stigi. Einn disk eignaðist
ég þó fyrir nokkru sem ég verð að
hafa í hávegum. Þar spila nokkrir
valinkunnh’ hljóðfæraleikarar af inn-
lifun og snilld, þeir Einar Kristján
Einarsson, gítar, Guðni Franzson,
klarínett, Jón Skuggi, bassi, Kjartan
Guðnason, slagverk, og Tatu
Kantoma, harmónikka. Hljómlist
þeirra félaga er bæði dansvæn og
hlustunarvæn, ákaflega lífleg og
smýgui’ einhvem veginn beint í æð.
Sem sagt - gott.“
Jackson í
stórræðum í
Suður-Kóreu
► MICHAEL Jackson er kominn
til Suður-Kóreu til að vera við-
staddur forsetavígslu Kim Dae-
jung í Seoul í dag. Leikkonan
Elizabeth Taylor, sem löngum hef-
ur verið góð vinkona Jacksons,
þurfti að fresta heimsókn sinni
þangað af heilsufarsástæðum.
Jackson ætlar að ræða samninga
við kóreanskt fyrirtæki um fjár-
festingar á dvalarstað fyrir skíða-
menn. Ríkisstjórnin greindi frá því
i' síðustu viku að Jackson ætlaði að
koma fram á góðgerðartónleikum
þar sem fyrirhugað er að afla pen-
inga fyrir mat handa hungruðum
bömum í Norður-Kóreu.
sendum í póstkröfu
v;
SVAMPOtMUR
SPRiínVNURte
UTSALA
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF DÝNUM OG RÚMUM
---so%
LAGERSALA
Á áklæðuw
HEÍLSUKODDAR
OSOTTAR PANTANÍR VERÐA SELDAR Á ÞÆGÍLEGU VERÐÍ
Skútuvogi I 1 • Sími 568 5588
opið: mánudaga - föstudaga 9 - 18
laugardaga 10 - 14