Morgunblaðið - 25.02.1998, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998 49
Titanic vinsælust frá upphafi
► TITANIC hefur siglt fram úr öllum keppi-
nautum sínum og er orðin tekjuhæsta kvikmynd
sögunnar. Heildartekjur myndarinnar eru
komnar upp f um 65 milljarða króna eða um 920
milljónir dollara. Titanic er enn á hörkusiglingu
og engir i'sjakar í augsýn þannig að líklegt er að
hún bæti enn við sig að minnsta kosti 14 millj-
örðum króna eða 200 milljónum dollara.
I öðru sæti er Jurassic Park með 913 milljónir
dala, en hún var frumsýnd árið 1993. Það tók
Titanic aðeins tíu vikur að komast upp fyrir
hana. Áður var aðsóknarmesta kvikmynd
Camerons, leiksljóra Titanic, Tortímandinn 2:
Dómsdagur sem halaði inn 490 milljónir dala og
er í 15. sæti.
I Bandaríkjunum er Titanic önnur aðsóknar-
mesta myndin. Skaust hún upp fyrir E.T. um
helgina og er fullvíst talið að hún eigi einnig
eftir að fara upp fyrir Stjörnusti-íð, sem er í
efsta sæti með 461 milljón dollara. Titanic er
komin í 402,5 milljónir. E.T., sem var vinsælust
þar til í fyrra er með 399,8 milljónir.
Kvikmyndaspekúlantar vestra velta nú helst
vöngum yfir þvi' hvaða mynd muni velta Titanic
úr sessi eftir tíu vikur f efsta sæti vikulist-
ans. Margir telja kvikmyndina „U.S. Mars-
hals“ sem er framhald af „The Fugitive“ lík-
lega, en hún verður frumsýnd 6. mars næst-
komandi. Aðrir hallast að því að sjálfan Le-
onardo DiCaprio úr Titanic þurfi til. Hann
er í aðalhlutverki í Manninum með jám-
grímuna sem verður ftumsýnd helgina eftir.
Tvær nýjar myndir voru fmmsýndar í
svokallaðri víðdreifmgu en árangurinn var .
ekki til að hröpa húrra íyrir. Annars vegar
var það „Senseless“ með Marlon Wayans og
David Spade sem hafnaði í fimmta sæti og
hins vegar „Palmetto" sem hafnaði í átt-
unda sæti.
Annars var aðsókn í Bandaríkjunum
heldur dræm að þessu sinni og hrapaði um
25% frá því í síðustu viku. Hún hefur hins
vegar verið afar góð það sem af er ári og
komst yfir þúsund milljónir dollara á met-
tíma eða 51 degi. Þar af bar Titanic 27% úr
býtum. Raunar hefur það tekið viku
skemmri tíma á hverju ári síðan 1994 að
komast upp yfir þúsund milljóna markið.
I