Morgunblaðið - 25.02.1998, Page 56

Morgunblaðið - 25.02.1998, Page 56
Drögum næst 10. mars >5 HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS ISLANDSFLUG gerlr flelrum fært aö fíjúga 570 8090 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRUAR 1998 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK Alþjóðleg rannsókn á kunnáttu framhaldsskólanema í stærðfræði og náttúrufræði Islendingar í þriðja sæti ÍSLENSKIR framhaldsskólanem- endur voru í þriðja sæti í alþjóðlegri rannsókn í náttúrufræði og stærð- fræði, sem kynnt var í gær. Um er að ræða svonefnda TIMSS- könnun, Third International Mathematic and Science Study, hlið- stæða alþjóðlegri könnun sem áður hefur verið kynnt og gerð var á ár- angri nemenda í 7. og 8. bekk grunn- skóla. Björn Bjarnason menntamálaráð- herra segii- að niðurstöðurnar sýni að Islendingar standa ekki alfarið illa að vígi þegar um samanburð er að ræða í stærðfræði og náttúru- fræði á alþjóðlegum forsendum. Nauðsynlegt sé að huga betur að grunnnámi í þessum greinum og á næstu dögum muni menntamála- ráðuneytið hefja kynningu á nýjum aðalnámski'ám fyrir grunn- og fram- haldsskólann. Einar Guðmundsson, forstöðu- maður Rannsóknarstofnunai- upp- eldis- og menntamála, segir að menn verði að taka niðurstöðum TIMSS- könnunarinnai- með fyrirvara. Is- lenskir framhaldsskólanemendur standi sig vissulega betur en grunn- skólanemendur gerðu en brottfall úr framhaldsskóla sé hvað hæst hér á landi. Mikið brottfall bæti heildar- frammistöðu þjóða. Um 45% árgangs íslenskra nem- enda ljúka ekki eða hefja ekki nám í framhaldsskóla á íslandi, samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnai’. „Al- mennt vii-kar brottfall nemenda til hækkunar á árangri, þótt við vitum ekki hversu mikið. Það sem styður einnig þennan fyrirvara er sú stað- reynd, að við fóllum niður í 10. sæti þegar árangur efstu nemendanna er skoðaður. I hinum löndunum sem eru í kringum okkur á toppnum er brott- fallið minna og þeir færast ekki neðar nema danskh’ nemendur, en þar er brottfallið 41%,“ segir Einar. Bjöm Bjamason menntamálaráð- herra tekur undir að könnunin gefi til kynna að brottfall nemenda í fram- haldsskóla sé enn of mikið. „Ljóst er að við þurfum að vinna gegn því og við eram líka með áform uppi um það í sambandi við nýju námskrárnar," sagði menntamálaráðherra. Asta Þorleifsdóttir, formaður Fé- lags raunfræðikennara, segir að nið- urstöðurnar komi sér ekki á óvart miðað við brottfall úr framhaldsskól- um og hvernig staðið var að prófinu. Nemendum var frjálst hvort þeii’ tóku þátt í þessu fjögurra klukku- stunda prófi, sem lagt var fyrir þá utan skólatíma. ■ Niðurstöður TIMSS/28 Hver dagur dýrmætur LOÐNUFRYSTING er nú að kom- ast í fullan gang og er hrognafyll- ing komin yfir 15%. Hver dagnr er dýrmætur í frystingunni og mikið í húfi fyrir fólk, fyrirtæki og þjóðar- búið í heild. Allt að 20% verðhækk- un hefur orðið á frystri loðnu á Japansmarkaði frá síðasta ári. Skip- verjar á Hákoni ÞH voru ekki fyrr búnir að binda skipið í Helguvík en byrjað var að skoða aflann. Japan- irnir voru ánægðir með að loðnan var átulaus og eins voru þeir þokka- lega sáttir við ferskleika hennar miðað við 18 tíma siglingu. ■ Lifnar yfir/4 ■ Allt að 20%/Cl ------------- Túnfiskveiðar í athug’un VINNUHÓPUR er að störfum á vegum sjávarútvegsráðuneytis sem m.a. er ætlað að kanna kosti og galla aðildar að Atlantshafstúnfiskráðinu og skila á áliti fyrir lok aprfl. Hópnum er ætlað að skoða hugsan- legar túnfiskveiðar íslendinga. M.a. á hann að meta hvort rannsókna er þörf og með hvaða hætti stjómun veiðanna verði best fyrir komið. ■ Erum að meta/C8 Fjármálaráðuneytið undirbýr afnám tvísköttunar á hagnað af rekstri Auðveldar fyrirtækjum að ná arði heim frá útlöndum FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ vinn- ur þessa dagana að ýmsum úrbót- um varðandi skattlagningu íyrir- tækja og á framkvæmd skattamála gagnvart skattborguranum og er áformað að leggja tillögur fyrir Al- þingi bæði í vor og á haustþingi. Gert er ráð fyrir að afnumin verði svokölluð efnahagsleg tvísköttun á hagnað af rekstri fyrirtækja. I stað núgildandi reglu, sem heimilar að útborgaður arður sé dreginn frá skattskyldum tekjum þess hlutafé- lags sem greiðir arðinn, verði því hlutafélagi, sem fær greiddan arð frá öðru hlutafélagi heimilt að draga hann frá skattskyldum tekjum sín- um. Gunnar Örn Kristjánsson, for- stjóri SÍF hf., sagði að núverandi skattareglur hefðu komið í veg fyrir að SÍF gæti tekið út arð frá dóttur- fyrirtækjum sínum erlendis. Afnám tvísköttunar hefði því veralega þýð- ingu fyrir fyrirtækið. Skattaregl- urnar tækju eingöngu mið af fyrir- tækjum sem væru eingöngu með starfsemi á íslandi. SÍF hefði hins vegar gert samning við dótturfyrir- tækin um ýmiskonar þjónustu og afnot af vörumerkjum. Friðrik Pálsson, forstjóri Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna hf., sagði að þessi breyting skipti veru- legu máli fyrir fyrirtæki eins og SH. Miðað við núverandi skattalög væri í mörgum tilfellum verið að leggja tvisvar skatt á sömu pening- ana, þ.e. bæði erlendis og hér heima. Núverandi skattareglur hefðu ekki komið í veg fyrir að SH gæti flutt arð heim frá dótturfyrir- tækjum á síðasta ári. Það hefði í raun verið tilviljun að þannig hitt- ist á, en eins líklegt væri að núver- andi reglur kæmu í veg fyrir flutn- ing arðs frá dótturfyrirtækjum á þessu ári. Friðrik sagði að stjórnendur SH hefðu rætt þetta mál við fulltrúa fjármálaráðuneytisins sem hefðu sýnt þessum sjónarmiðum skilning. Hann sagðist því fagna því mjög ef skattareglum yrði breytt þannig að komið yrði í veg fyrir tvísköttun á hagnað fyrirtækja. Til að þessi breyting leiði ekki til skattahækkunar er að því stefnt að skatthlutfall hlutafélaga verði lækkað, hugsanlega um 3%, og skatthlutfallið verði 30% eftir breytinguna. Fram kom á frétta- mannafundi, sem fjármálaráðherra boðaði til í gær, að þessar breyt- ingar eigi ekki að leiða til breyt- inga á skatttekjum ríkissjóðs. Gert er ráð fyrir að breytingin taki einnig til arðs sem greiddur er frá erlendum fyrirtækjum til hlutafé- lags hér á landi að uppfylltum þeim skilyrðum að skattlagning fyrir- tækja í hinu landinu sé sambærileg því sem hér gerist. Talsmenn fjár- málaráðuneytisins segja að með því að gera arð frá útlöndum skatt- frjálsan verði íslenskum fyrirtækj- um auðveldað að ná hagnaði heim. Verslunarráð fjallar um tvískött- un fyrirtækja á morgunverðarfundi í dag. Hægt verði að afskrifa viðskiptavild Þá kemur einnig til álita að lækka skatthlutfall sameignarfélaga þar sem samræmi þurfi að vera milli þess annars vegar og skatthlutfalls hlutafélaga og skatts af arði í hendi einstaklinga hins vegar. í frumvarpi sem leggja á fyrir Al- þingi er einnig gert ráð fyrir að heimilað verði að afskrifa viðskipta- vild en það hefur ekki verið hægt hingað til. ■ Forúrskurðir/11 Morgunblaðið/RAX Ránfugl drepur dúfu SKARÐ var höggvið í dúfna- stofninn í Grafarvogi í gær þeg- ar stór fugl steypti sér niður úr háloftunum og drap dúfu í eigu ungs dúfnabónda sem þar býr. Dúfunni var hleypt út úr kofa sínum svo að hún gæti viðrað sig, en ekki leið á löngu þar til svangur ránfugl, sem þar átti Ieið hjá, kom auga á hana. Dúfnabóndinn og fjölskylda hans mátti horfa á ránfuglinn murka lífið úr dúfunni án þess að geta veitt henni neina björg. Fuglinn missti reyndar bráð sína, en dúfan reyndist dauð þegar að var gáð. Fuglinn sett- ist á húsmæni skammt frá og fylgdist með harmi fjölskyld- unnar sem missti góðan vin. Má ætla að harmur hafi einnig ver- ið í brjósti ránfuglsins sem missti bráðina. Dúfnabóndinn segir dráps- fuglinn afar stóran og granar að þarna hafi verið á ferð örn sá er haldið hefur sig i Mosfellsbæ og sést fljúga yfir Grafarvog. Kristinn Haukur Skarphéðins- son, líffræðingur á Náttúru- fræðistofnun, telur líklegra að um fálka hafi verið að ræða. Engin dæmi séu þekkt um að örn hafi tyllt sér á húsþök. Krókabátar eftirsóttir EFTIRSPURN eftir krókabátum er nú mjög mikil, en framboðið lítið sem ekkert, hvort heldur sem er í sóknar- kerfi eða þorskaflahámarki. Þetta hefur leitt til þess að verð hefur farið mjög hækkandi. Þorskaflahámarkið sjálft er komið í 400-450 krónur kflóið fyrir utan bátinn sjálfan. Fyrii- ári var þorskaflahámark krókabáta selt á 185 krónur kílóið og á 200 krónur í nóv- ember síðastliðnum. ■ Þorskaflahániarkið/C2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.