Morgunblaðið - 28.02.1998, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
BJÖRK AÐALHEIÐUR
BIRKISDOTTIR
+ Björk Aðalheið-
ur Birkisdóttir
fæddist í Austurkoti
á Vatnsleysuströnd
8. október 1956. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja 19.
febrúar siðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Landa-
kirlqu 27. febrúar.
Elsku Björk, mín
hugrakka systir, sem
ert búin að berjast með
jákvæðum og opnum
huga í nærri eitt ár við
illskæðan sjúkdóm. Þú kvartaðir
aldrei þótt þú fyndir til, þú hjálpaðir
okkur svo mikið með baráttu þinni.
En ég veit að þú ert hjá Drottni. Þú
gast alltaf samglaðst náunganum,
öfundaðir aldrei, þú talaðir aldrei
illa um aðra. Þegar þú komst upp á
land komst þú aldrei tómhent, dróst
ævinlega eitthvað upp úr pokunum
handa stelpunum mín-
um. Það var mikil gleði
þegar þú, ég og Hrefna
systir urðum allar
ófrískar á sama tíma.
Þú eignaðist dreng 12.
júní 1990 sem skírður
var Óli Þór, Hrefna
fékk stúlku 13. október
1990 og mín stúlka
fæddist 17. október,
sama dag og Óli Þór
var fluttur til London í
hjartaaðgerð en hann
kom aftur heim, enda
með baráttuskapið
hennar mömmu sinnar.
Það var áfram barist eftir að heim
kom en Óli Þór lést 27. mars 1991
og ég hugsa það núna hvað Óli Þór
hefur verið líkur henni möinmu
sinni. Hann gaf svo mikinn styrk frá
sér í veikindum sínum eins og
mamma hans gerði, þau gerðu okk-
ur þetta svo miklu auðveldara. Við
eigum eftir að sakna þín sárt, elsku
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kr-
inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfí (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein-
ina inni í bréfínu, ekki sem viðhengi.
Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk,
A-4, miðað við meðalh'nubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um
25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast
við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímamöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverkn-
að. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali
era nefndar DOS-textaskrár. Þá era ritvinnslukerfin Word og
Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
+
Dóttir okkar, móðir, fyrrum eiginkona
og systir,
ÞÓRA MARGRÉT FRIÐRIKSDÓTTIR,
var bráðkvödd á heimi sínu fimmtudaginn
26. febrúar.
Anna Jóhanna Oddgeirs, Friðrik Hjörleifsson,
Borgþór Ágústsson, Guðrún Ágústsdóttir,
Sigfús Ágústsson, Aurora Ágústsdóttir,
Ágúst Borgþórsson,
Aurora G. Friðriksdóttir, Bjarni Sighvatsson,
Hjörleifur Friðriksson, Auðbjörg Sigurþórsdóttir,
Jón Rúnar Friðriksson, Friðrik Þór Friðriksson
og fjölskyldur.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
MÍNERVU GfSLADÓTTUR
frá Bessastöðum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 5,
Dvalarheimili aldraðra, Sauðárkróki, fyrir ein-
staka umönnun og hlýju.
Erla Sigurjónsdóttir,
Jón Sæmundsson,
Sofffa Sæmundsdóttir,
Sigurbjörg Sæmundsdóttir,
Oddný Sæmundsdóttir,
Sigrfður Sæmundsdóttír,
Gfsli Sæmundsson,
Nanna Sæmundsdóttir,
Valdimar Ingólfsson,
Steinunn Jónsdóttir,
Hafsteinn Lúðvfksson,
Sverrír Haraldsson,
Sveinn Runólfsson,
Ólafur Guðmundsson,
Snjólaug Kristinsdóttir,
Stefán Helgason,
barnaböm og barnabamabörn.
Björk, það verður sárt að sætta sig
við að vera bara þrjú eftir í systk-
inahópnum en við vitum að þú ert í
góðum höndum hjá Guði.
Elsku mamma og pabbi, Beddi,
Þórður, Solla, Birkir og Guðný. Ég
vil biðja góðan Guð að styrkja ykk-
ur í sorg ykkar.
Helga Magnea Birkisdóttir.
Hún Björk er dáin.
Mér finnst ég verði að skrifa fá-
ein orð í minningu hennar. Við
Björk kynntumst í Húsmæðraskól-
anum á Staðarfelli, en þar stunduð-
um við nám saman veturinn 1972-
73. Alls staðar sem Björk var, var líf
og fjör, hún var svo full af orku að
manni þótti stundum nóg um.
Við voram ekkert sérlega nánar
þennan vetur og svo eins og gengur
slitnaði sambandið er náminu lauk.
í 10 ár frétti ég ekkert frá henni (en
við skólasystumar eram vanar að
hittast á 5 ára fresti, oftar í seinni
tíð). Allt í einu á 10 ára skólaafmæl-
inu okkar birtist Björk með alla
sína gleði.
Ég ætla ekkert að hafa þau orð
lengri en þessa helgi kom okkur svo
vel saman að við skildum það varla
sjálfar. Þetta var alger stuðhelgi,
ein þurfti meira að segja að fara til
læknis í Búðardal og láta saga af
sér giftingarhringinn.
Eftir þessa helgi mynduðust ein-
hver tengsl á milli okkar Bjarkar og
símhringingar urðu tíðar. Björk má
einna helst lýsa sem mikilli baráttu-
manneskju því hún barðist hetju-
lega við sjúkdóm sinn og barmaði
sér ekki.
En það lýsir kannski best trú
hennar og bjartsýni að hún sagði
alltaf: ég ætla ekki að láta þetta
drepa mig, og ég trúði henni alltaf,
svo þegar ég fékk þær fréttir að
hún ætti aðeins viku eftir ólifaða,
settist ég niður og fór að hugsa um
liðnar samverastundir. Síðastliðið
haust þegar ég fékk það stóra hlut-
verk að verða amma, var ekki að
spytja að hugulseminni því þá fór
Björk fárveik á stúfana og sendi
baminu gjöf. Með vorinu höldum
við upp á 25 ára skólaafmæli, en
hún Björk mín verður víst ekki með
okkur nema í hugum og hjörtum
okkar skólasystranna.
Elsku Beddi, Guðný, Birkir og
Þórður og aðrir aðstandendur. Ykk-
ar missir er mikill og ég vona að
Guð veiti ykkur styrk í sorg ykkar.
Ingibjörg (Dedda).
Mér er orðið ljóst að stundum
lendum við í þeirri aðstöðu í lífinu
að ekki verður annað gert en að
taka eitt skref í einu og lifa frá einni
andrá til annarrar.
Björk A. Birkisdóttir var í stjóm
og trúnaðarmannaráði Verka-
kvennafélagsins Snótar um árabil
og gegndi þeirri vinnu af alúð og
ósérhlífni.
Ég minnist Bjarkar sem mjög
kjarkaðrar konu, sem sagði hlutina
eins og þeir vora. Þó að veikindin
væra farin að há henni og hún hefði
í nógu að snúast heima við, gaf hún
sér alltaf tíma til að „kíkja“ í kaffi
hjá stelpunum í Snót svona til að at-
huga hvemig gengi í samningunum.
Vora þá teknar upp rökræður um
kosti og galla þeirrar vinnu sem lá
fyrir, oft vora umræðumar svo heit-
ar að ég gleymdi því að þama væri
kona sem ætti við alvarleg veikindi
að stríða.
Eins þótti mér vænt um upp-
hringingamar á morgnana, var þá
oftast rætt um lífið og tilverana og
það tímabil þegar við unnum báðar i
Isfélaginu.
Elsku Björk, nú kveð ég þig með
þakklæti fyrir samveruna og sam-
vinnuna.
Fann ég eigi orðin þá
er ég segja vildi,
varð þó feginn eftir á
að þegja skyldi.
(Ókunnur höfundur.)
Elsku Beddi, Þórður, Birkir og
Guðný, megi góður guð styrkja ykk-
ur í sorginni.
F.h. Verkakvennafélagsins Snót-
ar,
Linda Hrafnkelsdóttir.
Hún Björk frænka er dáin. Það
er eitthvað svo fjarlægt og óraun-
veralegt að hugsa að ég eigi aldrei
eftir að sjá hana aftur. Björk var
næstelst af okkur frænkunum
(systkinabömunum) sem hittumst
4-5 sinnum á ári á frænkukvöldum.
Það var ávallt reynt að hafa sam-
verastundimar okkar þegar Björk
frænka var að koma upp á land eða
einhver frænkan var að koma í
heimsókn frá útlöndum. Björk var
sterkur persónuleiki og harðdugleg.
Aldrei heyrði maður hana kvarta
eða kveina, hún þurfti að vinna mik-
ið og hafa mikið fyrir því að eignast
það sem hún átti, en aldrei kvartaði
hún eða aumkaði sjálfa sig. Björk
átti tvo syni með fv. manni sínum,
Rúnari, þá Þórð og Ragnar Birki.
Með núverandi manni sínum, Bern-
ódusi, sem alltaf er kallaður Beddi,
eignaðist Björk tvö börn, Guðnýju,
sem er fimm ára, og Óla Þór, sem
fæddist 12.6. 1990 og dó 27.3. 1991.
Björk og Beddi stóðu þétt saman í
veikindum Óla Þórs og börðust
hetjulega við náttúraöflin sem sigr-
uðu þegar Óli Þór dó, einnig hafa
þau barist hetjulega við þennan vá-
lega sjúkdóm sem dró Björk til
dauða. Það var fyrir tæpu ári sem
Björk fékk að vita að hún væri með
krabbamein og gekkst undir þrjá
uppskurði á stuttum tíma, en aldrei
kvartaði hún, hún ætlaði að beijast
og gerði það, hún gerði framtíðar-
áætlanir og talaði um hvað hún ætl-
aði að gera í sumar, t.d. að fara til
útlanda með Bedda sínum og litla
sólargeislanum sínum henni Guð-
nýju. En í staðinn fór hún á fund
skapara síns og til Óla Þórs og allra
þeirra ástvina sem famir era yfir
móðuna miklu. Elsku Björk, megir
þú hvíla í friði.
Elsku Beddi, Þórður, Birkir,
Guðný og Sólrún, Erla, Birkir og
allir aðstandendur. Megi guð gefa
ykkur styrk og dug til að takast á
við sorgina og söknuðinn. Guð blessi
ykkur öll.
Kveðja,
Svala frænka.
Hún Björk er farin í hinsta ferða-
lagið, ferðalagið sem við eigum öll
eftir að fara í. En af hverju svona
snemma?
Elsku Björk, með nokkram fá-
tæklegum orðum langar okkur til
að þakka þér allar ánægjulegu sam-
verastundimar. Við frænkumar er-
um búnar að hittast á „frænku-
kvöldum" í nokkur ár. Þar sem þú
varst í Vestmannaeyjum þá varst
þú ekld alltaf á kvöldunum okkar,
en ef við vissum að þú værir að
koma upp á land, þá reyndum við að
haga frænkukvöldunum þannig að
þú gætir komið. Þú komst síðast á
frænkukvöld í nóvember sl. og þrátt
fyrir veikindi þín var þitt hugarfar
jákvætt og þú slóst á létta strengi.
En það lýsir þér vel, þú hefur alltaf
verið svo dugleg, elsku Björk, og
allt sem þú hefur mátt ganga í
gegnum hefði orðið okkur flestum
um megn.
Okkur er sérstaklega minnis-
stætt þegar við frænkumar komum
til Eyja með fjölskyldur okkar og
frændumir komu Uka með sínar
fjölskyldur. Þú og Beddi tókuð á
móti okkur svo innilega, opnuðuð
heimili ykkar upp á gátt fyrir öllum
þessum fjölda, því að þó við gistum
annars staðar þá voram við öllum
stundum á heimili þínu, og þið með
Guðnýju litlu, sólargeislann ykkar
þá bara nokkurra mánaða. Þetta
var meiriháttar ferð og verður
aldrei fullþökkuð gestrisni ykkar
Bedda og umhyggja. Og ekki voru
móttökumar síðri þegar við komum
til Eyja hver í sínu lagi, t.d. á Shell-
mót.
Elsku Björk, nú ert þú öragglega
komin með Óla Þór, litla drenginn
þinn, aftur í fangið. Við biðjum Guð
að blessa Bedda, Guðnýju, Þórð,
Ragnar Birki, foreldra þína og
systkini og gefa þeim styrk í þessari
miklu sorg.
Far þú í friði,
friðurGuðsþigblessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Elsku Björk, minning þín mun
lifa í hjörtum okkar.
Frænkurnar.
Formáli minn-
ingargreina
ÆSKILEGT er að minningar-
p-einum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá, sem
fjallað er um, er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra hans,
systkini, maka og böm, skóla-
göngu og störf og loks hvaðan út-
för hans fer fram. Ætlast er til að
þessar upplýsingar komi aðeins
fram í formálanum, sem er feit-
letraður, en ekki í greinunum
sjálfum.
+
Innilegar þakkir færum við öllu því góða
fólki sem sýndi okkur hlýhug og velvild við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
VALTÝS SNÆBJÖRNSSONAR
frá Hergilsey,
Vestmannaeyjum.
Erla Gísladóttir,
Gfsli Valtýsson, Hanna Þórðardóttir,
Friðbjöm Ólafur Valtýsson, Magnea Traustadóttir,
Valtýr Þór Valtýsson, Ingunn Lfsa Jóhannesdóttir,
Snæbjörn Guðni Valtýsson, Valgerður Björg Ólafsdóttir,
Kolbrún Eva Valtýsdóttir, Birgir Þór Sverrisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
TRYGGVl PÉTURSSON
fyrrv. útibússtjórí
Búnaðarbankans í Hveragerði,
Mávanesi 10, Garðabæ,
(áður Hólavallagötu 13),
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavfk mánudaginn 2. mars kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega
bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Upplýsingar í síma 551 4080.
Sigríður E. Tryggvadóttir,
Ólaffa K. Tryggvadóttir, Krístinn Álfgeirsson,
Ásta Tryggvadóttir, Erlingur Hallsson,
Guðrún S. Tryggvadóttir, Ámí Þórðarson,
barnabörn og langafabðrn.