Morgunblaðið - 28.02.1998, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Mikilvægur fundur í sérfræðingadeilunni
- Agreiiiingiir er
um heildarútgjöld
HUGSANLEGT er talið að það
ráðist í dag hvort skrifað verður
fljótlega undir samninga milli
Tryggingastofnunar ríkisins og sér-
fræðilækna. Agreiningur er milli
samningsaðila um hvort í samning-
unum eigi að vera ákvæði um að
heildarútgjöld til sjúkratrygginga
megi ekki fara fram úr ákveðnu
marki. Kristján Guðjónsson, deild-
’*'arstjóri sjúkratryggingadeildar TR,
segir að ef samkomulag náist um
þetta atriði sé líklegt að samningar
takist mjög fljótlega.
Kristján segir að nokkur grund-
vallaratriði séu ófrágengin og
þeirra stærst sé spumingin um
hvort samningamir eigi að inni-
halda ákvæði um að heildarútgjöld
til sjúkratrygginga megi ekki fara
upp fyrir ákveðið hámark. Ákvæði
um slíkt hámark er í gildandi saúin-
ingi við sérfræðinga og segir Krist-
ján að mjög erfitt verði fyrir ríkið
að falla frá því. Þetta sé mikilvægt
stjómtæki og án þess verði erfitt
fyrir stjórnvöld að hafa stjórn á út-
gjöldum til þessa málaflokks.
Lungnalæknar að hætta?
Skurðlæknar koma til fundar við
samninganefnd TR í dag, en nokkuð
er um liðið síðan síðasti fundur var
haldinn. Agreiningur hefur verið
um gjaldskrá skurðlækna og hvem-
ig eigi að meta kostnað við rekstur
skurðstofa. Skurðlæknar og svæf-
ingalæknar hafa náð samkomulagi
sín í milli um kostnaðarþáttinn og í
dag er vonast eftir að í ljós komi
hvort samkomulag tekst.
113 sérfræðingar hafa sagt upp
samningi við Tryggingastofnun og
þar af hafa uppsagnir 73 sérfræð-
inga þegar tekið gildi. Uppsagnir 11
lækna til viðbótar eiga að taka gildi
á morgun, þar af 7 lungnalækna.
Kristján segir að ef árangur náist á
fundinum í dag sé líklegt að sam-
komulag takist um að fresta þessum
uppsögnum.
Kristjáni er ekki kunnugt um að
fleiri sérfræðingar hafi sagt upp
störfum fyrir þessi mánaðamót.
Reg’lum um flutn-
ing með skóla-
bflum áfátt
LÖG og reglugerðir, um það
hvernig staðið skuli að öryggisat-
riðum við flutning barna í skóla-
bílum til og frá skóla, eru ófull-
nægjandi hér á landi að sögn
Herdísar Storgaard, barnaslysa-
varnafulltrúa Slysavarnafélags
Islands.
Herdís segir samræmdar regl-
ur vanta um þessi mál fyrir allt
landið. Mörg sveitarfélög setji
fram kröfu um að bílbelti séu í
bílunum þegar þau bjóði slíkan
akstur út en það sé hins vegar
ekkert sem krefjist þess að þau
geri það.
,Á íslandi er ekið með börn í
skólabílum allt upp í 90 kílómetra
á dag,“ segir Herdís. „Hinn 1.
október 1999 gengur í gildi ný
reglugerð þar sem gerð er krafa
um bflbelti í hópferðabifreiðum
með færri en 16 sætum. Frá 1.
október 2001 munu reglurnar svo
ná yfir allar gerðir hópferðabíla."
Sigurjón Pétursson hjá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga,
segir sveitarfélögin ekki hafa
neinar samræmdar reglur um
þessi mál.
Óli H. Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri Umferðarráðs,
staðfestir að reglur um skólaflutn-
inga mættu vera betri. „Eg held
mér sé óhætt að segja það að bfl-
beltanotkun sé góð í minni bílum,“
segir hann. „En þar sem börn eru
flutt í stórum rútum og bílum sem
eru samsvarandi við strætisvagna
er þetta viða vandamál." Óli segir
að verið sé að taka á þessum mál-
um í hópbifreiðum almennt í sam-
ræmi við það sem sé að gerast hjá
öðrum Evrópuþjóðum.
Turandot
og tenórar
þrír
KRISTJÁN Jóhannsson tenór-
söngvari syngur í uppfærslu á óper-
unni Turandot eftir Puccini í For-
boðnu borginni í Peking í september
næstkomandi undir stjóm Zubins
Metha. Sýningar verða níu og syng-
ur Kristján í fimm þeirra, þ.ám.
frumsýningunni. Þá fer Kristján tón-
leikaferð ásamt tveimur öðrum ten-
órsöngvurum, Frakkanum Roberto
Alagna og Kanadamanninum Ben
Heppner, og verður fyrsti konsert-
inn í Tókýó í október, en alls verða
■^þeir tíu.
„Þetta verður sett upp í keisara-
höllinni, og síðan sýnt á risaskjá úti á
Torgi hins himneska friðar og það er
reiknað með hálfri milljón manns á
torgið,“ sagði Kristján um Turandot.
Kristján segir að varðandi þá þrjá
sé fylgt fordæmi tríósins Pavarottis,
Domingos og Carreras. „Nema það
verður ekkert jukk, við verðum bara
með kúltúr, bara með óperur.“
■ Syngur/C2
---------------
Kjaranefnd
búin að úr-
skurða um
laun lækna
KJARANEFND hefur sent Kjara-
dómi úrskurð um laun heilsugæslu-
lækna, en nefndin hefur unnið að
honum í á annað ár. Lög gera ráð
fyrir að Kjaradómur staðfesti úr-
skurði Kjaranefndar áður en þeir
öðlast gildi og samkvæmt reglum,
sem dómurinn hefur sett, hefur hann
15 daga til að fara yfir úrskurðinn og
hugsanlega gera breytingar á hon-
um.
Engar upplýsingar fást um úr-
skurðinn fyrr en Kjaradómur hefur
lokið umfjöllun sinni. Dómurinn
kemur saman í næstu viku og er talið
allt eins líklegt að hann staðfesti úr-
skurðinn á fundinum. Afar ólíklegt
er talið að Kjaradómur breyti úr-
skurðinum, enda liggur mikil vinna á
bak við hann.
Kuldi og
fegurð á
Akureyri
ÞÓ AÐ kalt hafí verið á Akur-
eyri síðustu daga vinna starfs-
menn Slippstöðvarinnar af
kappi við endurbætur á skipum.
Mælifellið er í flotkvínni, en
skipið tók niðri í höfninni á
Húsavík fyrir skömmu og við
það skemmdist skrúfan.
Stærstu verkefni fyrirtækisins
núna eru uppsetning á vinnslu-
dekkjum í frystitogarana
Björgvin og Sléttbak. Að sögn
Inga Björnssonar, fram-
kvæmdastjóra Slippstöðvarinn-
ar, hefur verkefnastaðan í vet-
ur tæplega verið næg og góð.
Nóg verði hins vegar að gera í
sumar eins og jafnan á þeim
árstúna.
Morgunblaðið/Jón Karl Snorrason
Afkoma Haralds Böðvarssonar árið 1997
Högnuðust um 536
milljónir króna
HAGNAÐUR Haralds Böðvars-
sonar hf. á árinu 1997 var 536 millj-
ónir króna. Þar af var hagnaður af
reglulegri starfsemi 247 milljónir
króna.
A árinu 1996 var hagnaður 207
m.kr. en hagnaður af reglulegri
starfsemi 198,7 m.kr.
I fréttatilkynningu frá Haraldi
Böðvarssyni hf. kemur fram að
1997 hafi verið fyrsta starfsár fyrir-
tækisins eftir sameiningu við Mið-
nes hf. og endurbyggingu sfldar- og
fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins.
„Þar með er lokið miklu umbrota-
og uppbyggingartímabili í sögu fé-
lagsins, en á síðustu tveimur árum
hafa tvö fyrirtæki sameinast HB,
þ.e. Miðnes hf. og Krossvík hf.,“
segir í fréttinni, þar sem fram kem-
ur að á þessu tímabili hafi verið
fjárfest fyrir um 1,9 milljarða króna
í endurbótum á skipum og upp-
byggingu mjölvinnslu.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði var 840 m.kr. og jókst um
249 m.kr. milli ára.
1997 voru heildartekjur Haralds
Böðvarssonar hf. 5.383 milljónir
króna og jukust um 54%, en ef tekj-
ur Miðness á árinu 1996 eru teknar
með í reikninginn er tekjuaukning
beggja fjrirtækja 10% milli ára.
Eiginfjárhlutfall félagsins í árs-
lok var 40,1% og hafði aukist úr
35,9% í árslok 1996.
Veltufé frá rekstri var 595,8
m.kr. árið 1997 og 443 m.kr. árið
1996.