Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.03.1998, Blaðsíða 2
2 B LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 MORGUNB LAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 B 3 ÚRSLIT ÍÞRÓTTIR IÞROTTIR Knattspyrna Deildarbikarkeppni KSÍ Leiknir - KR.....................3:3 Haukur Gunnarsson, Daníel Hjaltason 2 - Bjöm Jakobsson, Guðmundur Steindðrsson 2. ■Staðan í hálfleik var 2:1 fyrir Leikni sem komst síðan í 3:1. KR-ingar jöfnuðu leikinn þegar þijár mínútur voru eftir. Breiðablik - í A.................4:1 ívar Siguijónsson 2, Atli Kristjánsson, Hreiðar Biamason - Halfdán Gíslason Þýskaiand 1. deild: Duisburg - Le verkusen...........1:1 Markus Osthoff 4. - Emerson 35. 13.389. Herta Berlin - Schalke...........1:4 Michael Preetz 54. - Marc Wilmots 22., Olaf Thon 46., Martin Max 74., Andreas Mueller 90. 60.517. Staðan Kaiserslautern ,.25 16 6 3 48:27 54 Bayem Munchen., ,.25 14 5 6 49:30 47 Bayer Leverkusen26 12 10 4 52:30 46 Schalke.fl.4 .26 11 11 4 32:22 44 VfB Stuttgart „25 11 7 7 44:34 40 Hansa Rostock ..25 10 5 10 37:33 35 Duisburg ..26 9 8 9 33:34 35 Werder Bremen.... ..25 9 7 9 32:40 34 Hertha Berlín ..26 9 6 11 31:42 33 Dortmund ..25 8 8 9 42:39 32 VfL Bochum „25 8 6 11 30:37 30 Köln „25 9 3 13 41:50 30 VfL Wolfsburg „25 8 5 12 30:37 29 1860 Miinchen..... „25 7 7 11 32:44 28 Gladbach „25 6 8 11 42:47 26 HamburgSV „25 6 8 11 29:38 26 Karlsmhe SC „25 6 8 11 35:46 26 Bielefeld „25 7 4 14 31:40 25 Frakkland 1. deild: Nantes - Girondins Bordeaux. 1:2 En Avant Guingamp - Chateauroux 0:0 3:1 2:0 Montpellier - Metz 0:1 3:1 Toulouse - Olympique Lyon 0:2 Staðan Metz .29 16 8 5 42:24 56 RC Lens .28 16 4 8 39:28 52 Olympique .28 15 5 8 41:21 50 Mónakó .29 15 4 10 42:28 49 ParisSt Germain.. .28 13 7 8 38:27 46 Girondins .29 12 10 7 41:34 46 Olympique Lyon... .29 14 4 11 33:30 46 AJ Auxerre .29 13 6 10 48:38 45 Bastia .28 10 10 8 28:22 40 Montpellier .29 9 10 10 29:34 37 Le Havre .29 8 12 9 32:29 36 Nantes .29 10 6 13 28:33 36 Toulouse .29 8 8 13 23:40 32 Strasbourg .29 7 8 14 33:40 29 Rennes .29 7 8 14 31:42 29 En Avant .29 7 8 14 24:36 29 Cannes .29 7 6 16 28:48 27 Chateauroux .29 7 6 16 25:51 27 Holland 1. deild: Roda JC Kerkrade -Fortuna Sittard 0:0 Heerenveen - Willem II Tilburg.... 1:3 Staðan Ajax ...23 20 2 1 71:10 62 PSV Eindhoven.... ...23 14 8 1 64:27 50 Feyenoord ...24 13 6 5 42:28 45 Heerenveen ...25 13 5 7 41:34 44 Vitesse ...23 12 6 5 53:37 42 Willem II ...25 11 4 10 42:39 37 Fortuna Sittard.... ...25 11 4 10 35:40 37 NAC Breda ...23 9 4 10 29:28 31 Twente Enschede. ...23 7 9 7 27:26 30 Graafschap ...25 7 8 10 33:28 29 Sparta ...24 7 8 9 42:43 29 NEC Nijmegen ...24 9 1 14 27:46 28 Utrecht ...23 8 3 12 42:51 27 RodaJC ...25 7 6 12 34:35 27 Groningen ...25 6 8 11 32:43 26 MVV Maastricht... ...24 6 4 14 23:55 22 RKC Waalwijk ...24 4 6 14 27:52 18 Volendam ...24 3 6 15 20:62 15 Körfuknattleikur 1. deild karla, úrslitakeppni Stjarnan - ÞórÞorl.............74:70 NBA-deildin Leikir aðfaranótt föstudags: Miami - Cleveland..............97:74 Dallas - Chicago..............104:97 ■Eftir framlengingu. Huston - New Jersey..........115:104 San Antonio - Sacramento.......97:86 Denver - Vancouver.............98:93 Portland - Minnesota...........95:92 LA Clippers - La Lakers.......85:108 Íshokkí NHL-deildin Leikir aðfaranótt föstudags: Buffalo - San Jose...............3:1 Detroit - Chicago................3:0 Montreai - NY Rangers............4:1 Philadelphia - Vancouver.........3:2 Phoenix - Dallas.................5:4 Los Angeles - Toronto............1:2 Boston - Calgary.................2:5 Carolina-NewJersey...............0:2 Ny Islanders - Washington........1:2 Skíði Heimsbikarinn Crans Montana: Brun karla: 1. Josef Strobl (Austurr.)..........1:30.84 2. Didier Cuche (Sviss).............1:31.36 3. Fritz Strobl (Austurr.)..........1;31.39 4. Hans Knauss (Austurr.)...........1:31.48 5. Kristian Ghedina (Ítalíu)........1:31.52 6. Jean-Luc Cretier (Frakkl.).......1:31.61 7. HannesTrinkl (Austurr.)..........1:31.80 8. Nicolas Burtin (Frakkl.).........1:31.92 9. Kjetil Andre Aamodt (Noregi) ....1:32.07 10. Adrien Duvillard (Frakkl.).......1:32.11 ■IjOkamótinu í bruni kvenna, sem fram átti að fara á sama stað í gær, var aflýst og því er Ijóst hver lokastaðan er í brun- keppni heimsbikarsins. 1. Katja Seizinger (Þýskal.).......520 2. Renate Goetschl (Austurr.)......392 3. Isolde Kostner (Italíu).........292 4. Melanie Suchet (Frakkl.)........237 Skfðastökk Þrándheimur: Stökk af 120 metra palli: 1. Masahiko Harada (Japan)......250.7 (125.5 m/123.5 m) 2. Noriaki Kasai (Japan).........249.7 (123.5/125.5) 3. Roberto Cecon (Ítalíu)........240.0 (127.0/120.5) Staðan eftir 24 mót af 27: 1. Widhoelzl....................1.116 2. Kazuyoshi Funaki (Japan).....1.062 3. Primoz Peterka (Slóveníu)....1.037 4. Harada.......................1.004 2. DEILD KARLA ÞÓR AK. - HÖRÐUR ................29: 22 SELFOSS- FYLKIR .................31: 22 ÞÓR AK. - HÖRÐUR ..........29: 22 SELFOSS- FYLKIR ...........31: 22 Fj. leikja U J T Mörk Stig SELFOSS 15 12 2 1 428: 339 26 GRÓTTA-KR 15 11 2 2 452: 362 24 ÞÓRAK. 15 10 3 2 392: 292 23 FYLKIR 15 9 4 2 422: 346 22 FJÖLNIR 14 6 1 7 347: 369 13 HM 14 4 1 9 341: 388 9 ÍH 15 3 1 11 392: 469 7 HÖRÐUR 13 3 0 10 325: 369 6 ÁRMANN 14 0 0 14 287: 452 0 UM HELGINA Handknattleikur Laugardagun 1. deild karla KA-heimilið: KA-lBV..................16.20 2. deild karla: Laugardalsh.: Ármann - Fjölnir..........18 Sunnudagur: 1. deild karla: Ásgarður: Stjaman - Haukar..............20 Digranes: HK-Valur.....................20 Framhús: Fram - Breiðablik.............20 Seljaskóli: ÍR-Víkingur.................20 Strandgata: Haukar-UMFA.................20 Körfuknattleikur Laugardagur. Úrslitakeppni kvennæ Hagaskóli: KR- UMFG.....................16 Keflavík: Keflavík-lS...................16 Sunnudagur. Úrslitakeppni 1. deildar karla: Kennarahásk.: ÍS-Snæfell.............20.30 Þorlákshöfn: Þór-Stjaman................16 Mánudagur Úrslitakeppni kvernui: Grindavík: UMRJ-KR......................20 Kennarahásk.: ÍS - Keflavík..........20.15 Blak Sunnudagur. Úrslitakeppni kvenna Húsavík: Völsungur - Víkingur.......14.00 Knattspyma Laugardagun Deildarbikarkeppni KSl (karlar) Ásvellir Haukar - Víkingur R.........11.00 Leiknisvöllun UMFA-Stjaman...........11.00 Ásvellin Grindavík - FH..............13.00 Leiknisvöllur Reynir S. - Þróttur R.13.00 Ásvellir Selfoss - Keflavík..........15.00 Ásvellir Fram - Skallagrimur.........17.00 Leiknisvöllur Fjolnir-IR.............17.00 Sunnudagur. Ásvellir Víðir-Valur................13.00 Ásvellir. Njarðvík-HK................15.00 Blak I dag fara fram bikarúrslitaleikimir í karla og kvennaflokki. ÍS og Þróttur N. leika til úrslita í kvennaflokki og hefst leikur þeirra kl. 14.30 í íþróttahúsinu Austurbergi. Karla- leikurinn hefst kl. 16.00 á sama stað. Fimleikar íslandsmótinu í fimleikum verður framhald- ið í Laugardalshöl! í dag og á morgun. Keppni hefst báða dagana kl. 14.00 og lýkur með verðlaunaafhendingu kl. 16.00. Skíði Bikarmót SKÍ, Hermannsmótið, verður í Hlíðar§alli við Akureyri um helgina. Keppt verður í stórsvigi karla og kvenna f dag og svigi karla og kvenna á morgun. Keppni hefst kl. 10 báða dagana. Badminton Unglingameistaramót íslands í badminton fer fram í Stykkishólmi um helgina. 200 krakk- ar em skráðir til leiks. Kraftlyftingar fslandsmót unglinga og öldunga í kraftiyft- ingum fer fram í íþróttahúsinu í Njarðvik í dag, laugardag, og hefst kl. 14.00. Tennis Islandsmót unglinga í tennis innanhúss fer fram í Tennishöllinni f Kópavogi um helgina. Akstursíþróttir Keppt verður í ísakstri á Leirtjöm undir Úlfarsfelli á morgun, sunnudag, kl. 13.00. Keppt verður bæði á mótorhjólum og bílum á ísilagðri braut. Að lokinni keppni, um kl. 15.00, gefst almenningi kostur á að keppa á sínum eigin bfl í brautinni. KNATTSPYRNA Uppgjör í aðsigi ENSKA knattspyrnan er skrítin. Þegar Arsenal og West Ham skildu jöfn á mánudag í liðinni viku var öllu lokið. I það minnsta voru veðbankar í Englandi Orn Páll Þess sinnis> brugðu Ormarsson slagbrandi fyrir dyr skrifar sinar og tilkynntu að Manchester United væri orðið meistari - í fimmta sinn á síðustu sex árum. Þótti mönnum þetta misgóð tíðindi, eins og gengur, en fáir sáu ástæðu til að hreyfa mót- mælum. Þá gerist það að United magalendir á Hillsborough í Shef- field og nær aðeins jafntefli við West Ham á meðan Arsenal leggur hið tor- drepna lið Wimbledon að velli. Allt var breytt. Spenna er á ný hlaupin í baráttuna um meistaratitilinn og veð- bankar hafa lokið upp dyrum á ný - í hálfa gátt að minnsta kosti. Hugsan- lega verður þó slagbrandurinn aftur kominn á sinn stað klukkan eitt í dag. að er eins gott fyiir áhugamenn um enska knattspymu að sofa ekki yfir sig í dag því úrslitin í baráttunni um meistarabikarinn eftirsótta gætu leg- ið fyrir laust eftir hádegi. Klukkan 11.15 stundvíslega stíga toppliðin tvö, Manchester United og Arsenal, nefnilega á svið í sjálfu Leikhúsi draumanna, Old Trafford í Manchester, og trúið því, þar verður enginn gamanleikur á boðstólum, heldur leiftrandi dramatík - barist verður til síðasta blóðdropa. Einvígi, þessara liða í millum, um meistaratit- ilinn er skollið á eftir að Chelsea, Liv- erpool og Blackbum Rovers, sem til skamms tíma voru líkleg til að blanda sér i baráttuna, hnigu niður, eitt af öðm voru þau örend. Meistarar United standa óneitan- lega betur að vígi í rimmunni sem framundan er, hafa 60 stig úr 30 leikjum en Arsenal 51 stig úr 27 leikjum. Liðin hafa með öðmm orð- um tapað jafnmörgum stigum en ekki verður um það deilt að betri eru stig í húsi en leikir á hendi. Gefum okkur það til dæmis að United fari með sigur af hólmi í dag. Þá er mun- urinn orðinn 12 stig og þó Arsenal eigi þrjá leiki til góða verður á bratt- ann að sækja. Verði lyktir leiksins þessar má gera því skóna að úrslitin i ensku knattspyrnunni séu ráðin á þessum vetri. Ljúki leiknum aftur á móti með sigri gestanna er óhætt að búa sig undir æsispennandi endasprett. Munurinn verður þá kominn niður í 6 stig og Arsenal hlýtur að teljast eiga möguleika á að ná alla vega 6 stigum úr leikjunum sem liðið á inni - úti við Bolton (24.3.), úti við Blackburn (13.4.) og heima við Derby (28.4.). Á þessum dagsetningum sést á hinn bóginn að Arsenal kemur, að öllu óbreyttu, ekki til með að ná United að leikjum fyrr en í lok api-fl, sem skekkir myndina vissulega allnokk- uð. Enginn hlátur Þriðji möguleikinn er sá, eins og í öllum öðrum deildarleikjum, að bræðrabylta verði á Old Trafford. Sennilega kæmu þau úrslit United betur en yrðu alls ekki óviðunandi fyrir Arsenal. Á það ber líka að líta að Arsenal hefur ekki unnið á Old Trafford síðan veturinn 1990-91 - síðast þegar félagið varð meistari. Sigur í dag gæti því vissulega verið góður fyrirboði. Einn af þeim sem neituðu að leggja árar í bát, þrátt fyrir uppá- tæki veðmangara, er Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal. „Fyrir tveimur vikum hlógu menn þegar ég sagði að möguleikar okkar væru ekki úr sögunni. Nú heyri ég engan hlát- ur! Pressan er öll á United, þótt hún mætti vissulega vera meiri, sem þýð- ir að leikurinn á laugardag [í dag] er afar mikilvægm'. Jafntefli undir þess- um kringumstæðum kæmi sér meii'a að segja alls ekki illa fyrir okkur.“ Jafnvel þótt úrslitin í dag verði Arsenal hagstæð dregur Wenger enga dul á að mikill galeiðuróður sé framundan. „Við eigum eftir að leika marga erfiða leiki, auk þess sem lið okkar er ekki enn fullskipað vegna meiðsla leikmanna. En ef hlutirnir halda áfi’am að ganga okkur í hag getur allt gerst! Sigurinn gegn Wimbledon færði okkm- heim sann- inn um það að það er mikill karakter í þessu liði.“ Og ekki veitir af gegn United-liði sem borið hefur ægishjálm yfir önn- ur félög í Englandi á þessum áratug og leikur, þar fyrii’ utan, jafnan best þegar mest er í húfi. 1-0 útisigur á Chelsea, 3-1 útisigur á Liverpool og 4-0 heimasigur á Blackburn, svo dæmi séu tekin frá þessu tímabfli. Að vísu lutu meistararnir í gi'as á High- bury sem ætti að gefa Arsenal byi' í seglin. Á móti kemur að United er ugglaust í mun að hefna þeirra ófara. Misjafnt gengi Veturinn hefur um margt verið undarlegur hjá meisturunum. Þeh' byi'juðu svo sem ekkert alltof vel en tóku síðan einhverja mestu rispu síð- ustu ára - voru í þvílíkum ham að lið vildu helst ekki verða á vegi þeirra. Þeim kapítula lauk á Stamford Bridge í byrjun janúar, þegar United kjöldró Chelsea í bikar- keppni enska knattspyi'nusambands- ins. Ailai' götur síðan hefur gengi liðsins verið misjafnt. Það hefur lengst af verið að leika langt undir getu og tapað dýrmætum stigum gegn liðum á borð við Southampton, Leicester og Bolton, sem þykir ekki viðunandi. Nú er svo komið að United hefur sex sinnum lotið í lægi'a haldi í deildinni og dæmin sanna að lið sem tapar oftar en sex sinnum verður yftrleitt ekki meist- ari. Til samanburðar má geta þess að Arsenal hefur aðeins fjórum sinnum verið ofurliði borið. Engu að síður er Manchester United „á áætlun" miðað við gömlu þumalputtaregluna sem segir að ætli lið sér að verða meistari í Englandi þurfi það að taka að meðaltali tvö stig úr leik. United hefur fengið 60 stig úr 30 leikjum í vetur - nær verð- ur ekki komist. Og manni segir svo hugur að haldi meistararnir upp- teknum hætti á lokasprettinum, fái 16 stig úr síðustu átta leikjunum, dugi það þeim til að halda titlinum. 75 stig fékk United í fyrra, sjö fleiri en næstu lið, og Arsene Wenger hef- ur lýst því yfir að sennilega komi 73 stig til með að duga til sigurs - og hann er hagfræðingur að mennt! Eftir 1-0 sigur United á Chelsea fyrir hálfum mánuði mátti lesa út úr orðum Alex Fergusons knattspymu- stjóra að titillinn væri í höfn. Forms- atriði væri að ljúka keppninni og þægilegt væri fyrir menn hans að snúa sér að nýju að Meistarakeppni Evrópu við þau skilyrði. Eins og margoft hefur komið fram er Evr- ópubikarinn eftirsótti nefnilega efst- ur á óskalista Fergusons í vetur - missi United af honum yrði það mik- ið áfall, ekki síst fyrir stjórann sjálf- an. Síðan hefur liðið aftur á móti að- eins fengið eitt stig úr tveimur leikj- um. Ferguson er engu að síður sann- færður um að nú sé lag að tryggja sér titilinn. „Ef við vinnum á laugar- dag [í dag] eru úrslitin ráðin. Ars- enal nær okkur varla úr því. Beri Ar- , Reuters FRAMHJA þessum manni verða leikmenn Arsenal að koma knettinum i dag ætli þeir sér sigur! Danski landsliðsmaðurinn Peter Schmeichel hefur átt misjafna leiki að undanförnu en á góðum degi standast fáir markverðir, ef nokkur, honum snúning. Það fengu leikmenn West Ham að reyna síðastliðinn miðvikudag í deildinni. senal aftur á móti sigur úr býtum opnast hins vegar allt upp á gátt.“ Ferguson segir sína menn vana stórleikjum og því óttist hann ekki Arsenal. „Þessi barátta er okkur ekki framandi. Á síðustu sex árum höfum við alltaf verið með í slagnum um titilinn - fjórum sinnum orðið efstir og tvisvar í öðru sæti. Við gerum ráð fyrir því að vera með í baráttunni um meistaratitilinn á hverju ári og ég er ekki í minnsta vafa um að mínir menn verða klárir í slaginn á laugardag [í dag]. Við hlökkum til leiks- ins.“ Wenger tekur í svipaðan streng. „Ég nýt bar- áttunnar um meistaratitilinn fram í fingurgóma. Sömu sögu er að segja um leikmennina enda jafnast ekkert á við að leika mikilvæga leiki.“ Margir meiddir Hvorki Arsenal né Manchester United geta stillt upp sínu sterkasta liði í dag. Heimamenn verða örugglega án lykilmannanna Gary Pall- isters og Ryans Giggs auk þess sem litlar líkur eru á að Nicky Butt geti leikið vegna meiðsla sem hann hlaut gegn West Ham. Þá er Roy Keane fyrirliði frá sem fyrr. Á móti kemur að Phil Neville er gróinn sára sinna, en hann missti af leiknum á Upton Park, og Ronny Johnsen verður væntanlega í leikmannahópnum líka. Hjá Arsenal eru ensku landsliðsmennirnir David Seaman og Ian Wright fjarri góðu gamni vegna meiðsla, ásamt Steve Bould og David Platt, sem gerði sigurmarkið í viðureign liðanna á Highbury fyrr í vetur. Markvörðurinn Alex Manninger, sem enn hefur ekki þurft að hirða tuðruna úr netinu í úi-valsdeildinni, og Nigel Winterburn eru hins vegar sagðir hafa náð sér af meiðslum sem þeir hlutu gegn Wimbledon og verða með í dag. Líkleg liðsskipan: Man. Utd.: Schmeichel; G. Neville, May, Berg, Irwin; Beckham, P. Neville, Johnsen, Scholes; Sheringham, Cole. Arsenal: Manninger; Dixon, Keown, Adams, Winterburn; Parlour, Petit, Vieira, Overmars; Bergkamp og Wreh. ^ Reuters HOLLENSKI útherjinn hjá Arsenal, Marc Overmars, hefur verið að sækja í sig veðrið eftir rólega byrjun í Englandi. Hertha steinlá á heimavelli Eyjólfur Sverrisson og félagar hans í Hertha Berlín fengu skell á heimavelli í þýsku knatt- spyrnunni. Schalke kom í heim- sókn og sigraði 4:1. Leverkusen gerði jafntefli, 1:1, við Duisburg og hefur ekki tapað í síðustu 19 leikjum. Duisburg fékk óskabyrjun þeg- ar Markus Osthoff skoraði eftir aðeins fjögurra mínúlna leik. Markvörður Leverkusen, Dirk Heinen, reiknaði með fyrirgjöf frá Osthoff, enda ekki í góðri að- stöðu til að skora. Heinen fór of langt út úr markinu og það nýtti framherjinn sér og skoraði óvænt. Leverkusen var nálægt því að jafna á 33. mínútu er Ulf Kirsten átti skot í stöng. En að- eins mínútu síðar kom jöfnunar- markið og var Brasilíumaðurinn Emerson þar að verki með marki af stuttu færi. Leverkusen, sem endaði í öðru sæti deildarinnar síðasta tímabil, er nú í þriðja sæti og aðeins einu stigi á eftir Bayern, sem er í öðru sæti og á einn leik til góða. Schalke náði að hita vel upp fyrir UEFA-leikinn á móti Inter í næstu viku með því að bursta Hertha Berlín fyrir framan 60 þúsund áhorfendur á Ólympíu- leikvanginum í Berlín, 4:1. Belg- inn Marc Wilmots gerði fyi'sta markið um miðjan fyrri hálíleik eftir góða sendingu frá Tékkan- um Jiri Nemec. Olaf Thon kom liði sínu í 2:0 eftir frábæran ein- leik á upphafsmínútum síðari hálfleiks. Hertha náði aðeins að klóra í bakkann með skallamarki Michaels Preetz á 54. mínútu. Þetta var 10. mark hans á tíma- bilinu. En gestirnir voru ekki hættii' og bættu tveimur mörkum við áður en yfir lauk, fyrst Martin Max á 74. mínútu og síðan vara- maðurinn Andreas Miiller rétt fyrir leikslok. Schalke hefur ekki tapað í síðustu ellefu leikjum og er í fjórða sæti, tveimur stigum á eftir Leverkusen. BLAK Víkingsstúlk- ur unnu létt VÍKINGSSTÚLKUR höfðu betur í fyrsta leiknum í undanúrslitunum í blaki kvenna þegar þær mættu Völsungi í íþróttahúsinu Austur- bergi í gærkvöldi. Leiknum lauk með 3:0 sigri og enduðu hrinurnar 15:4, 15:5 og 15:13. Það var hægur og látlaus leikur sem liðin buðu uppá. Það var ekki eins og verið væri að spila í úrslitakeppni og lítil spenna. Telja má nær öruggt að Víkingsstúlkur fari áfram í keppn- inni, enda mótspyrna Völsunga ekki mikil. HANDBOLTI Þjóðverjar unnu Frakka ÞJÓÐVERJAR unnu Frakka 27:22 á átta þjóða handknattleiksmótinu í Þýskalandi, í hinu árlega móti sem Þjóðverjar kalla Super Cup. Þetta var fyrsta tap Frakkanna í keppn- inni. Króatar burstuðu Rúmena 32:13 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 18:7. Þessi lið leika í A-riðli, en þar eru Þjóðverjar eftir með 5 stig, Frakkar hafa fjögur, Króatar 3 og Rúmenar ekkert. í B-riðli sigruðu Júgóslavar lið Svía, 32:27, en staðan í hálfleik var 19:15 fyrir Júgóslava. Loks sigruðu Rússar B-lið Þjóðverja 29:23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13:13. Júgóslavar og Rússar hafa bæði 5 stig, B-lið Þjóðverja hefur 2 stig en Svíar reka lestina og hafa ekki hlot- ið stig! Beðist afsökunar í FRÁSÖGN af leik Stjörnunn- ar og ÍR í 1. deild karla í hand- knattleik í Morgunblaðinu sl. fimmtudag, sagði undirritaður m.a.: „Leikurinn var annars afar leiðinlegur, varla fyrir svartan mann að horfa á.“ Þetta orðalag er ósæmilegt með öllu og bið ég Morgunblaðið og lesendur þess afsökunar á því. Sindri Bergmann Eiðsson. OLAF Thon og félagar hans í Schalke höfðu ástæðu til að fagna í Berlín í gærkvöldi. K

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.