Morgunblaðið - 31.03.1998, Síða 7

Morgunblaðið - 31.03.1998, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1998 B 7 AKSTURSÍÞRÓTTIR / FOPMÚLA 1 ÍÞRÓTTIR Kentucky í úrslitum þríðja ár- ið í röð 62 þús. áhorfendur \tlanta og Chicago stig á móti San Antonio Spurs, sem gerði 74. Ekkert lið hefur skorað svo fá stig í NBA-deild- inni síðan 24 sekúndna skot- klukkan var tekin upp. Indiana lék án bestu leikmanna sinna, Reggie Millers og Rik Smits. Fyrra „metið“ áttu Orlando og Philadelphia, sem gerðu 57 stig í leik. Chicago vann níunda leik sinn í röð í fyrri nótt er þeir fóru og heimsóttu Milwaukee í fyiTÍ nótt. Michael Jordan var stigahæstur með 30 stig og Toni Kukoc kom næstur með 19 stig. Luc Longley lék með Bulls eftir langt hlé vegna meiðsla og gerði 14 stig. Dennis Rodman tók 17 fráköst. Scottie Pippen lék ekki með vegna flensu. Chicago lék í Georgia Dome- höllinni í Atlanta á laugardag og sigraði 89:74 fyrir framan 62.046 áhorfendur sem er met á leik í NBA-deildinni. Fyrra metið var 61.983 manns sem sáu leik Boston og Detroit í úrslita- keppninni í Silverdome-höllinni 29. janúar 1988. „Það er einstök tilfínning að spila fyrir framan svo marga áhorfendur," sagði Jordan sem gerði 34 stig fyrir Bulls. Morgunblaðið/Arni Sæberg og Alexander Ermolinskíj, leik- inna, berjast um knöttinn. LIÐ Utah háskóla kom á óvart í undanúrslitaleik sínum gegn North Carolina með því að sigra, 65:59. Liðið mun mæta Kent- ucky í úrslitaleiknum sem fram fer í dag. Tap North Carolina þýddi að ekkert af þeim fjórum liðum sem raðað var efst í riðl- ana fjóra í úrslitakeppninni mun taka þátt í úrslitaleiknum. Rúmlega 40 þúsund áhorfendur fylltu Alomo höllina í San Anton- io á laugardag þar sem báðir undan- úrslitaleikimir fóru fram. Gunnar Fyrri leikurinn milli Valgeirsson Kentucky og Stanford skriíar var æsispennandi. Kent- %unum' ucky var talið mun si&ur- stranglegra liðið, en Stan- ford hafði forystuna fyrstu 30 mínút- urnar. Liðin skiptust síðan á um að hafa forystuna í hnífjöfnum leik það sem eftir var. A lokamínútunni var Stanford óheppið eftir tvenn mistök dómaranna, sem bæði voru Kent- ucky í vil. Eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn, 73:73. Jafnræði var á með liðunum í framlengingunni en Kentucky marði sigurinn á endanum, 86:85. Þetta er þriðja árið í röð sem Kentucky spilar til úrslita. Liðið vann titilinn fyrir tveimur árum, en tapaði í fyrra fyrir Ai’izona. Liðið réði nýjan þjálfara síðasta sumar eftir að Rick Pitino tók við Boston Celties í NBA-deildinni. Blökkumað- urinn Tubby Smith hefur gert það gott síðan hann tók við liðinu. „Mað- ur verður að bera virðingu fyrir St- anford. Þeir gáfust aldrei upp þrátt fyrir að við virtumst vera með leik- inn í höndunum," sagði Smith eftir leikinn. Utah kom á óvart í leiknum gegn North Carolina. Utah var í fyrsta sinn í undanúrslitunum, en leik- menn þess léku í byrjun eins og þeir væru spennunni vanir. Liðið náði af- gerandi forystu strax í upphafi, 17:4, og hafði lengst af um tíu stiga forskot. Það var ekki fyrr en á síð- ustu fimm mínútunum að North Carolina loksins rankaði við sér. Liðið náði að minnka muninn í tvö stig, 57:55, þegar tæplega tvær mín- útur voru eftir, en Utah átti nóg eft- ir í lokin og vann sannfærandi, 65:59. Það var fyrst og fremst frábær varnarleikur Utah sem gerði gæfumuninn í leiknum. Leikmenn liðsins gáfu reyndu liði North Carol- ina aldrei tækifæri á að setja upp sóknarleik sinn og North Carolina hitti aðeins úr 39% skota sinna. „Eg á vart orð til að lýsa tilfinningum mínum á þessari stundu. Margir fé- lagar mínir í þessum bransa fá aldrei tækifæri til að þjálfa lið sem er í úrslitum. Ég hefði ekki getað beðið um meira frá strákunum en að fá tækifæri til að undirbúa þá fyrir úrslitaleikinn," sagði Rick Majerus, hinn litríki þjálfari Utah, eftir leik- inn. Utah og Kentucky hafa mæst und- anfarin tvö ár í úrslitakeppninni. I bæði skiptin hefur Kentucky haft betur. Kentucky er talið sigurstrang- legra, en ef Utah heldur áfram góð- um varnarleik gæti allt gerst. Reuters FINNSKI ökuþórinn Mika Hakkinen fagnaði aftur sigri - nú í Sao Paulo í Brasilíu. Félagi hans hjá McLaren, Bretinn David Coult- hard, varð annar. Sigrí Hákkinens aldrei ógnað FINNINN Mika Hakkinen fór með öruggan sigur af hólmi í Brasil- íukappakstrinum á sunnudag, leiddi frá því rásmerki var gefið þar til markfána var veifað eftir rúmlega 300 km akstur. Félagi Hákkinens í McLaren liðinu, Da- vid Coulthard, var sá eini sem gat ógnað finnska ökuþórnum. Annars var kappaksturinn óspennandi og þjakaði flensa margan ökuþórinn. Eftir að hafa unnið upphafssprett- inn að fyrstu beygju var sigur Hákkinens aldrei í hættu því hann átti auðvelt með að verja A úst stöðu sína á mishæðóttri Ásgeirsson °g ósléttri Interlagos- skrífar brautinni. Þó Coulthard hafi verið aðeins 1,1 sek- úndu á eftir í markinu segir það ekk- ert, Hákkinen hafði tögl og hagldir í höndum sér allan tímann. Vann hann þriðja sigur sinn í röð, afrek sem eng- inn hefur unnið frá því Damon Hill gerði slíkt hið sama 1996. Fyrstu tvo var Hákkinen hjálpað til sigurs en nú vann hann hjálparlaust. Rétt eins og í fyrsta móti ársins, í Melbourne fyrir þremur vikum, voru yfirburðir silfurörva McLaren algjör- ir. Nutu þeir þó ekki hins fullkomna bremsubúnaðar sem þeir brúkuðu í Melbourne. Að ósk akstursíþrótta- sambandsins FIA var hann numinn úr sambandi vegna formlegrar kæru frá Ferrari og fleiri liðum, en áður hafði FIA heimilað notkun bremsanna, sem sagðar eru jafngilda því að stýri sé á öllum fjórum hjólum. Til marks um yfirburði McLaren hringuðu Hakkinen og Coulthard alla nema Ferraribíl Michaels Schumachers, sem varð þriðji rúmri mínútu á eftir, og Benettonbíl Alex- anders Wurz, sem varð fjórði, flest- um á óvart. Heimsmeistarinn Jacques Vil- leneuve á Williamsbíl á langt í land með að geta ógnað McLaren-ökuþór- unum og leyndi ekki vonbrigðum sín- um eftir Brasilíukappaksturinn, þar sem hann varð einungis sjöundi. Virð- ist titilvörn hans þegar orðinn afar fjarlægur draumur. Og heimsmeist- arinn Damon Hill gerði engar rósir á Jordanbíl sínum, klúðraði startinu og missti þá marga fram úr sér, en lauk þó keppni í 10. sæti. Eftirá var hann dæmdur úr leik þar sem bíllinn reyndist nokkrum grömmum of létt- ur. Hörð barátta var lengst af um þriðja til sjöunda sæti og skiptust nokkrir ökumenn á að skipa þau. í fimmta sæti varð Þjóðverjinn Heinz- Harald Frentzen á Williamsbíl, sjötti Italinn Giancarlo Fisichella á Benetton. Einungis helmingur bíl- anna komst alla leið í mark og rak Daninn Jan Magnussen á Stewartbíl lestina. Héðinn með stórieik HÉÐINN Gilsson átti mjög góðan leik fyrir Bayer Dormagen sem vann GWD Minden 24:22 í þýska handboltanum um helgina. Hann gerði 7 mörk og var markahæstur í liðinu. Róbert Sighvatsson var ineð tvö mörk. Þetta var afar mikilvægur sigur lijá Dormagen í botnbaráttunni. Liðið er þó enn í neðsta sæti með 13 stig, en Gummersbach er í næst neðsta með 14. Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Hameln unnu mikilvægan sigur á Pat.reki Jóhannessyni og félögum hans hjá Essen 24:21 á útivelli. Patrek- ur gerði aðeins eitt mark fyrir Essen, sem nú er í þriðja neðsta sæti með 16 stig. Julian Róbert Duranona gerði 5 mörk fyrir Eisenach sem tapaði á heimavelli fyrir Gummersbach, 27:28. Konráð Olavson skoraði þrjií mörk fyrir Niederwurzbach sein vann Grosswallstadt á útivelli 25:23. Niederwiirzbach er í þriðja sæti með 29 stig, en Kiel er efst með 37 stig og Lemgo í öðru sæti með 34 stig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.