Morgunblaðið - 08.05.1998, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Unnið að árlegri endurskoðun
úthlutunarreglna LIN
Námsmenn eru
ósáttir við vinnu-
brögð stjórnar
ÁRLEG endurskoðun úthlutunar-
reglna Lánasjóðs íslenskra náms-
manna hefur staðið yfír á undan-
fömum dögum. Námsmenn segja
að í gær hafi slitnað upp úr viðræð-
um þar sem meirihluti stjómar LIN
hafi ekki séð ástæðu til að ræða
frekar kröfur þeirra. Gunnar I.
Birgisson, formaður stjórnar LÍN,
vísar þessu á bug.
í fréttatilkynningu námsmanna
kemur fram að meirihluti stjórnar-
innar stefni að því að samþykkja
nýjar reglur í krafti meirihlutavalds
síns á mánudaginn kemur. Ásdís
Magnúsdóttir, formaður Stúdenta-
ráðs Háskóla íslands, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær: „Við
sátum á fundinum og þar sögðu full-
trúar meirihluta að það væri ekki
grundvöllur til frekari samningavið-
ræðna og þá gengum við út.“
Námslán lægri en
atvinnuleysisbætur
Námsmenn telja að þeir séu eini
þjóðfélagshópurinn sem situr eftir í
kjölfar launahækkana sem gerðar
vora í síðustu kjarasamningum, og
leggja þeir áherslu á að hljóta kjara-
bætur í takt við aðra hópa þjóðfé-
lagsins. Þeir benda á að samið hafi
verið um hækkanir á launum um
13,65% allt til ársins 2000 en stjórn
LIN leggi til að hækkun námslána
nemi um 2,5%, úr kr. 56.200 í kr.
57.600, sem er í takt við verðlags-
breytingar. „Sú tillaga þýðir að
námslán verði á næsta ári lægri en
atvinnuleysisbætur sem í dag eru
orðnar kr. 59.636 og námsmenn
verða því eini hópurinn sem situr
eftir,“ segir í fréttatilkynningunni.
Námsmenn leggja til að frítekju-
mark námslána verði miðað við það
að námsmenn geti haft lágmarks-
laun í landinu yfir sumartímann,
eða 3 x 70.000 kr., án þess að lánin
skerðist. Nú sé frítekjumarkið 3 x
60.000, sem þýði að meginþorri
námsmanna hafi ekki möguleika á
að fá óskert lán. Þeir gera skýlausa
kröfu um að litið verði til lágmarks-
launa í landinu þegar frítekjumark-
ið er ákvarðað.
„Slitnaði ekki upp úr
einu eða neinu“
Gunnar I. Birgisson, formaður
stjórnar LÍN, vísaði því á bug að
slitnað hefði upp úr viðræðunum
þegar Morgunblaðið talaði við hann
í gær. „Ég kannast ekkert við að
það hafi slitnað upp úr einu eða
neinu. Stjórnin setti upp viðræðu-
nefnd til að þreifa á því hvort flötur
væri á viðræðunum og undanfarið
mánuði höfum við gert það svona og
alltaf náð lendingu og sáttum. Á
stjómarfundi í næstu viku á að
leggja fyrir það sem komið hefur út
úr þessum viðræðum aðila á milli.
Við þurfum að afgreiða þetta fyrir
næstu mánaðamót og auðvitað er
enn tími til stefnu til að ná lend-
ingu,“ sagði Gunnar.
Gunnar sagði að sér þættu kröf-
umar margar hverjar óábyrgar og
þær myndu auka útgjöld lánasjóðs-
ins um hundruð milljóna. „Einhvers
staðar verða menn að mætast á
skynsamlegum upphæðum og við
höfum ekki umboð til að auka út-
gjöld Lánasjóðsins um upphæð eins
og hálfan milljarð.“ Hann sagði
einnig að sér þætti mjög sérkenni-
legt að tilkynnt hefði verið um að
viðræðunum hefði verið slitið og
sagðist telja að þar lægju einhverj-
ar annarlega ástæður að baki.
Síðasti borg’ai'stjórnar-
fundur fyrir kosningar
FUNDUR borgarstjómar Reykja-
víkur í gær var sá síðasti fyrir borg-
arstjómarkosningamar sem fram
fara 23. maí næstkomandi. Borgar-
stjóm mun þó sitja einn fund eftir
kosningar, þ.e. í byrjun júní en ný
borgarstjórn tekur ekki við fyrr en
á næsta fundi þar á eftir.
Nokkrir borgarfulltrúar era ekki
í framboði og eru þar með að ljúka
störfum sem borgarfulltrúar að
sinni. Eru það þau Guðrún Ög-
mundsdóttir og Pétur Jónsson af R-
lista og Guðrún Zoéga, Hilmar Guð-
laugsson og Jóhann Gunnar Birgis-
son frá Sjálfstæðisflokki.
Á fundi borgarstjórnar í gær
vora samþykktar tillögur nefndar
borgarfulltrúa um endurskoðun á
samþykkt um stjóm Reykjavíkur-
borgar og fundarsköp borgarstjóm-
ar.
Laugavegl 18 • Sfmi 515 2500 • Sfðumúla 7 • Sfmi 510 2500
BÓKlOÍ
E.3.486.
EŒ
Verðfrá 1. júní 4.980.-
Sagnabálkurinn um
Ugga Greipsson er eitt af
meistaraverkum íslenskra
nútímabókmennta.
Þetta er ný útgáfa í sígildri
þýðingu Halldórs Laxness,
prýdd myndum eftir
Gunnar Gunnarsson yngri.
H
Mál og menning
FRÉTTIR
Selás-
hverfi
Seljahverfi
~~J?fio/tsbraul
Leirdalur
Elliðavatr
Spilda sú ur Vatnsendalandi
Rjúpna
hæð
sem Kópavogur festir kaup á
Vatnsvík
Kjóavellir ®
54,5 hektarar teknir eignarnámi í landi Vatnsenda
Kópavogur fær
nýtt byggingarland
SAMKOMULAG hefur tekist
milli Kópavogsbæjar og Magn-
úsar Hjaltested, eiganda Vatns-
enda við Elliðavatn, um að bær-
inn taki eignamámi 54,5 hektara
úr landi Vatnsenda og er kaup-
verðið 180 milljónir eða um 330
krónur á fermetra sem greiðist
á 15 áram. Afhenda skal landið
15. febrúar 1999.
Framtíðar
byggingarsvæði
Samkomulagið verður lagt
fyrir bæjarstjóm Kópavogs 12.
maí nk. og sagði Gunnar Birgis-
son, forseti bæjarstjómar, að
einhugur ríkti meðal bæjarráðs-
manna um kaupin. „Kópavogur
kaupir þetta land núna sem
framtíðar byggingarsvæði,"
sagði Gunnar. „Það er keypt
þrátt fyrir að við þurfum ekki á
því að halda fyrr en eftir 15-20
ár. Ef við hefðum beðið með
kaupin hefði verðið hækkað. Við
fáum landið á góðu verði og á
verði sem er hagstætt fyrir bæj-
arfélagið og ábúandann. Þess
vegna ákváðum við að fara í
þessi kaup.“
Landið hefur verið skipulagt
að hluta, að beiðni landeiganda,
og hefur það svæði verið nefnt
sveit í bæ en gert er ráð fyrir að
um 1.000-1.500 manna byggð
verði á svæðinu. Gunnar sagði
að auk þess stæðu yfir samn-
ingaviðræður um kaup á landi af
Landssímanum, en það land
liggur að Vatnsendalandi og nið-
ur í Leirdal og tengist byggðinni
þar. „Það land yrði í framtíðinni
að hluta til skipulagt sem íbúð-
arsvæði og útivistarsvæði,“
sagði hann. „I heild munu þá
búa um 5.000 manns á öllu þessu
svæði.“
Þýskur drengur, haldinn sjaldgæfum sjúkdómi, sendir ákall
Leitað eftir
sumarheimili
á Islandi
TILMAN er ellefu ára þýskur drengur haldinn
sjaldgæfum sjúkdómi sem gerir vart við sig þegar
hitastig fer yfir 20°C. í bréfi sem Morgunblaðinu
barst frá aðstandendum drengsins segir að af
þessum ástæðum sé hitastig í heimabæ hans
hættulegt heilsu hans að sumri til og því sé nauð-
synlegt fyrir hann að eyða sumrinu á svalari stað.
Vegna íslenskrar veðráttu og fyrsta flokks heil-
brigðisþjónustu hér á landi sjá Tilman og aðstand-
endur hans von í sjónmáli. Von um að hann geti
eytt sumrinu án einkenna sjúkdómsins, rétt eins
og heilbrigt barn.
Verður að finna stað eins fljótt og unnt er
í bréfinu segir að drengurinn og móðir hans
hafi ákveðið að koma til Islands um miðjan maí og
dvelja hér fram í miðjan september. Þau eru að
leita að heimili sem þau gætu búið á í Reykjavík
eða nágrenni svo drengurinn geti sótt meðferð á
sjúkrahús. Móðir drengsins er 34 ára gamall kenn-
ari og er tilbúin að gera allt sem í hennar valdi
stendur til að koma sem mest tii móts við þá að-
stoð sem gestgjafamir munu veita þeim mæðgin-
um.
„Sumarið er að skella á og Tilman verður að
finna stað til að búa á eins fljótt og unnt er. Er
einhver sem getur hjálpað okkur þannig að það
verði mögulegt fyrir okkur að eyða sumrinu í
landi ykkar?“ segir í bréfinu. Þar segir einnig að
þau geti auðveldlega hugsað sér að búa á fleiri en
einum stað á meðan á dvölinni stendur.
Ef sjúkdómurinn er undanskilinn lifir Tilman
Bartsch eðlilegu lífi. Hann stundar nám í ríkis-
TILMAN Bartsch er ellefu ára drengur sem þjáist
af óvenjulegum sjúkdómi, en einkenni hans koma
fram þegar hitastig fer yfir 20°C.
skóla og hefur gaman af að leika sér i fótbolta og
öðrum leikjum með félögum sinum.
Þeir sem telja sig getá hýst mæðginin geta sett
sig í samband við Petru Bartsch, móður Tilmans.
Heimilisfangið er:
OffermanstraBe 10
52159 Roetgen
Deutschland
sími: 00 49 2471 3064
bréfsími: 00 49 2471 2065