Morgunblaðið - 08.05.1998, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Flugmálastjóri um flugmálahandbók
Þing Samiðnar
var sett í gær
Ymsar upplýsingar ein-
göngu gefnar út á ensku
„FLUGMÁLASTJÓRN hefur ára-
tugum saman stundað þá útgáfu-
starfsemi sem hér um ræðir. Flug-
málahandbókin er gefín út á ensku,
auk íslensku útgáfunnar enda birt-
ast í henni upplýsingar sem aðilum
sem ekki skilja íslensku er nauð-
synlegt að geta tileinkað sér,“ sagði
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri. í
frumvarpi til laga um loftferðir seg-
ir að ákvarðanir Flugmálastjómar,
sem teknar eru á grundvelli lag-
anna og birtist ekki í Stjómartíð-
indum, megi vera á ensku eða ís-
lensku eftir því sem við eigi.
Flugmálastjóri segir það misskiln-
ing að reglur sem þýddar hafí verið
hingað til verði framvegis birtar á
ensku. „Ýmsar þessar upplýsingar
era þó eingöngu á ensku í báðum
þessum útgáfum, til að mynda upp-
lýsingar um aðflug að flugvöllum
og fjarskipti. Þetta fyrirkomulag
hefur reynst vel hingað til enda
varða fyrirmælin einkum þröngan
hóp sérhæfðra starfsmanna sem
nota ensku í sínum daglegu störf-
um. Astæða þess að nú er aflað
formlegrar lagaheimildai- til útgáf-
unnar er sú að stjómvöld töldu rétt
að tryggja grandvöll slíkrar út-
gáfu, einkum vegna aukins alþjóða-
samstarfs."
Þá segir flugmálastjóri að ís-
lensk flugstarfsemi á alþjóðlegum
vettvangi og þátttaka íslands í al-
þjóðlegu samstarfí útheimti að
flugrekstrarhandbækur íslenskra
flugrekenda séu á ensku. „Ástæðan
er m.a. sú að erlendir eftirlitsaðilar
verða að geta lagt mat á reksturinn
og hvemig íslensk stjórnvöld
standa að úttekt á rekstrinum, en
handbækur þessar geyma lýsingu
á því hvernig að honum skuli stað-
ið. Þessar handbækur era staðfest-
ar af Flugmálastjórn og eru því í
raun staðfestar starfsreglur sem
flugmenn og flugrekendur nota við
dagleg störf sín,“ segir Þorgeir
Pálsson og gat þess að flugrekstr-
arhandbækur Flugleiða, íslands-
flugs, Atlanta og MK-flugfélagsins
væra ritaðar áensku.
„Kjarni málsins er sá að hér er
ekki um réttarreglur að ræða sem
ætlað er að binda ótiltekinn fjölda
manna og þær varða fyrst og
fremst nánari útfærslu á fram-
kvæmd laga og reglna sem birtar
era í Stjórnartíðindum. Þær eru
því skör lægra settar en reglugerð-
ir og önnur slík stjórnvaldsfyrir-
mæli og era ekki refsiheimildir
eins og prófessor Sigurður Líndal
bendir á í frétt Morgunblaðsins."
Flugmálastjóri sagði að lokum
að aldrei hefði staðið til að birta ís-
lensk stjómvaldsfyrirmæli á borð
við reglugerðir eingöngu í útgáfum
Flugmálastjórnar enda standi
ákvæði framvarps til loftferðalaga
ekki til þess. „Það mun hins vegar
sjálfsagt álitamál hverju sinni
hvenær það muni teljast réttlætan-
legt að birta fyrirmælin eingöngu á
ensku í flugmálahandbókinn eða
hvort rétt þyki að birta þau í
Stjómartíðindum eins og raunar
kemur einnig fram hjá prófessor
Sigurði Líndal í fréttinni."
Meginreglan að upplýsingarnar
séu á íslensku
„Meginreglan er sú að þessar
upplýsingar séu á íslensku en hitt
er það að út eru gefnar mjög um-
fangsmiklar reglur sem ekki er
þörf á að þýða vegna eðlis málsins
því ekki þurfa svo margir að fjalla
um þau eða kynna sér,“ sagði Ein-
ar K. Guðfinnsson alþingismaður.
Hann er jafnframt formaður sam-
göngunefndar sem hefur fjallað um
framvarp til laga um loftferðir.
Hann taldi þýðingu útgáfu þessar-
ar iyrir íslenskt mál ekki svo mikla
og hér væri alls ekki væri verið að
hverfa frá þeirri meginreglu að lög
væra birt á íslensku. Hann vildi
líka benda á í framhaldi af ummæl-
um formanns FÍA í Morgunblaðinu
í gær að þingið og samgöngunefnd
hefðu fjallað ítarlega um framvarp-
ið og að kallað hefði verið eftir um-
sögnum fjölmargra aðila. Fram-
varpið hefði líka tekið ýmsum
breytingum í framhaldi af þessum
umsögnum. Hann sagði framvörp
sjaldnast taka neinum breytingum
að ráði við þriðju umræðu.
Morgunblaðið/Ásdís
Slysavarnir á nýrri öld
Tók lagið eftir langt hlé
FRAMBJÓÐENDUR fyrir sveit-
arstjórnarkosningarnar eru á
ferð og flugi um þessar mundir.
Júlíus Vífill Ingvarsson heim-
sótti elliheimilið Grund í gær-
morgun og tók lagið. Svo
skemmtilega vill til, að einmitt
þar söng hann í fyrsta sinn
opinberlega fyrir 25 árum.
Júhus Vífill var atvinnusöngvari
um nokkurt skeið en hefur ekki
sungið opinberlega í 10 ár.
• •
Orn ekki í
endurkjöri
ÖRN Friðriksson, fráfarandi for-
maður Samiðnar, sagði í setning-
araæðu sinni við upphaf annars
þings samtakanna í gær að þingið
þyrfti að skýra áherslurnar í um-
ræðum um skipulag og starfs-
hætti, þar með talið væri hlutverk
og verkaskipting milli aðildarfé-
laga Samiðnar og ASÍ. Örn lýsti
því yfir að hann hefði ákveðið að
draga sig nokkuð til hlés í verkefn-
um fyrir sambandið og gæfi ekki
kost á sér til áframhaldandi for-
mennsku Samiðnar eða til mið-
stjórnarsetu.
Menntamál settu svip á umræð-
ur við setningu þings Samiðnar í
gær og fjallaði Grétar Þorsteins-
son, forseti ASI, m.a. um þau mál í
ávarpi sínu. Hann sagði að í auk-
inni menntun væri að finna helsta
sóknarfærið til bættra kjara.
Grétar sagði verkalýðshreyfíng-
una leggja áherslu á bætt lífskjör í
víðum skilningi. Vék hann að yfír-
standandi vinnudeilu í Danmörku
og sagði kröfu dansks verkafólks
ekki vera um fleiri krónur í um-
slagið, heldur krefðist það aukins
frítíma.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins,
sagði fulltrúa íslenskrar verkalýðs-
hryefíngar hafa kynnst nýjum við-
horfum í samningum við erlenda
rekstraraðila Norðuráls. Þar væru
starfsmennirnir settir í öndvegi
enda vissu þeir stjómendur sem
næðu bestum árangi'i í rekstri er-
lendis, að fyrirtækin sem slík væru
einskis virði án vel menntaðs og
hæfs starfsfólks. Gagmýndi hann
harðlega stöðu iðn- og starfs-
menntunar hér á landi og sagði
sorglegt að horfa á Iðnskólann í
Reykjavík kominn í þá stöðu að þar
væri þrefalt meira fall á sveinsprófí
en að jafnaði hjá öðram iðn- og
verkmenntaskólum.
♦ ♦♦
Kosningavaka
D-listans í kvöld
D-LISTINN efnir í kvöld kl. 20.30
til kosningavöku á Kaffi Reykjavík
undir heitinu Söngur & sveifla og
alvara lífsins.
Ávörp flytja Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, Ásdís Halla Bragadótt-
ir og Guðlaugur Þór Þórðarson.
Egill Ólafsson, Tríó Bjöms
Thoroddsen, Viðar Jónsson og
Brassbandið skemmta.
Formaður LÍÚ um olíuverð til fískiskipa
Málþing Slysavamafélags íslands í Borgarnesi,
laugardaginn 9. maí, kl: 10.00 -16.00 íHótel Borgamesi.
Ábyrgð og öryggismá! í íþrótta-, félags- og
tómstundastarfi
Erindi flytja: Reynir Karlsson, deildarstjóri í menntamála-
ráðuneytinu, Stefán Bjarkason, íþrótta- og tómstunda fulltrúi
Reykjanesbæjar, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
Ásgerður Halldórsdóttir, viðskiptafræðingur, fyrir ÍSÍ/ UMFÍ,
Gauti Grétarson, sjúkraþjálfari, fyrir heilbrigðisnefnd ÍSÍ,
íris Grönfeldt, íþróttafræðingur, fyrir UMSB og
Sigurjón Sigurðsson, læknir, fyrir Tryggingastofnun ríkisins.
Að loknum erindum verða pallborðsumræður,
Klara Þórhallsdóttir, fyrir Æskulýðsráð rfkisins.
Fundarstjóri: Anna Ólafsdóttir.
Lára Helgadóttir, varaforseti SVFÍ og formaður slysavarnaráðs,
mun setja þingið. Málþingið er unnið í samvinnu við
Menntamálaráðuneytið, íþrótta- og Ólympíusamband fslands,
Ungmennafélag fslands og Æskulýðsráð ríkisins.
Viðskiptahættir olíufélag-
anna sérkennilegir
KRISTJAN Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, segir ekki skrítið að olíu-
verð hér sé hátt ef olíusala til fiski-
skipa eigi að standa undir rekstri
bensínstöðva sem sýnist „byggðar
til að afgreiða pylsur allan sólar-
hringinn en ekki til að þjóna þeim
viðskiptum sem tilheyra þessum ol-
íustöðvum".
Skýringar forstjóra olíufélag-
anna þriggja á miklum verðmun á
olíu til fiskiskipa hér á landi og í
Færeyjum voru bornar undir Kri-
stján í gær. Hann sagði að LIU
hefði dregið upp línurit sem sýndi
verðbreytingar í Rotterdam allt
síðasta ár og fram til dagsins í gær
og á því kæmi greinilega fram hvað
dregið hefði í sundur, „að verðið
hér hefur ekki fylgt verðbreyting-
um til lækkunar en hins vegar mjög
vel til haga haldið þegar það er til
hækkunar".
Kristján segir að verðlisti hljóti að
lýsa verðbreytingum frá einum tíma
til annai-s þótt afsláttur sé gefínn frá
verðlista. Bent hafí verið á að oliu-
verð hér sé 5-6 krónum hærra á
hvem lítra en fáist í kaupum á ein-
stök skip í erlendum höfnum. Hann
segir það sérkennilega viðskipta-
hætti ef ekki sé hægt að ná betri
kaupum þegar gerð séu heild-
söluinnkaup fyrir öll not um allt
landið heldur en fáist íyrir einstök
skip í erlendri höfn vegna þess að
magnið hljóti að skipta miklu máli í
slíkum viðskiptum.
Sýnist vera maðkur
í mysunni
„En það sem ég harma í þessum
svöram forstjóranna er að þeir telja
þennan verðmun eðlilegan. Það
fínnst okkur benda til að maðkur sé
í mysunni, sérstaklega þegar þeir
lýsa því að afkoma olíufélaganna
gefí ekki tilefni til verðlækkana. Það
blandast ýmislegt í það eins og
byggingar bensínstöðva sem við sjá-
um hér á Reykjavíkursvæðinu jafn-
aðar við jörðu einn daginn og byggð-
ar upp næsta dag mörgum sinnum
stærri og með meiri íburði en al-
mennt þekkist í slíkum viðskiptum
þar sem maður kemur í útlöndum,
enda sýnast þessar bensínstöðvar
byggðar til að afgreiða pylsur allan
sólarhringinn en ekki til að þjóna
þeim viðskiptum sem tilheyra þess-
um olíustöðvum. En ef þeh- miða við
að olíusala til fiskiskipa eigi að bera
uppi þennan kostnað þá er von að ol-
ía sé dýrari á íslandi en annars stað-
ar,“ sagði Kristján Ragnarsson.