Morgunblaðið - 08.05.1998, Blaðsíða 23
MORGUNB LAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998 23
ERLENT
Kjörsóknin í Hollandi minni en nokkru sinni fyrr
Kok vill aukna áherslu
á félagsleg málefni
Gengið er út frá því sem vísu, segir Jóna
Hálfdánardóttir, fréttaritari Morgunblaðs-
ins, að Wim Kok forsætisráðherra verði
falið að mynda nýja stjórn í Hollandi.
ÞEGAR úrslit þingkosninganna í
Hollandi urðu Ijós að kvöldi hins 6.
maí braust út mikil gleði á meðal
fylgismanna tveggja stærri flokka
núverandi ríkisstjórnar Wims Koks
forsætisráðheiTa. Bæði hans flokk-
ur, PVDA (félagshyggju- og jafnað-
armenn), og flokkur Frits Bol-
kesteins, WD (frjálshyggju- og
íhaldsmenn), unnu stórsigur í kosn-
ingunum, en hvor um sig bætti við
sig 8 þingmönnum.
PVDA verður áfram stærsti flokk-
m-inn á þingi, með 29% atkvæða
(24% í kosningunum 1994) og 45
þingmenn. WD hefur aldrei verið
stæn-i, fékk flokkurinn 24,7% at-
kvæða (19,9% í kosningunum 1994)
og 39 menn kjörna. Þriðji stjórnar-
flokkurinn, D66 (frjálslyndir
demókratar) undir forystu Els
Borsts, hafði litla ástæðu til fagnað-
ar þar eð flokkurinn tapaði 10 af 24
þingsætum sínum. Hins vegar gefa
niðurstöður kosninganna ótvírætt til
kynna að þrátt fyrir fylgishrun D66
er meirihluti kjósenda ánægður með
„fjólubláu stjórnina" sem ríkt hefur
síðustu fjögur árin. Litlai- líkur eni
því á öðru en að Wim Kok verði falin
tilraun til stjórnarmyndunai- eftir
fundi þingflokkanna með Beatrix
drottningu. Einnig er næsta ljóst
hverja Wim Kok vill ræða við í
fyrstu atrennu. Hefur hann ótvírætt
gefíð í skyn að besti kosturinn sé
áframhaldandi samstarf flokkanna
þriggja en þá með stjórnarstefnu
sem meiri áherslu leggi á félagsleg
málefni og að draga úr tekju- og að-
stöðumun fólks.
Leiðinleg kosningabarátta
Kjörsóknin hefur aldrei verið
minni, en 73,2 prósent af þeim tæp-
um 12 milljónum Hollendinga sem
voru á kjörskrá mættu á kjörstað.
Þó svo að margir vilji kenna heldur
leiðinlegu veðri um lélega kjörsókn
eru þeir fleiri sem álíta leiðinlega
kosningabaráttu vera aðalorsökina.
Það má líka með sanni segja að
kosningabaráttan hafi verið með ró-
legra móti í þetta sinn. Engin stór
kosningamál í gangi, heldur snerist
umræðan aðallega um það hvort rík-
isstjómarflokkunum þremur yrði
gert kleift að starfa áfram saman.
Tókst stjórnarandstöðunni ekki að
sannfæra kjósendur um að þeirra
stefnuskrár væru vænlegri til árang-
urs í efnahags- og atvinnumálum en
leið sú sem núverandi stjórn hefur
farið. Enda er ekki hægt að bera
brigður á að efnahagslífið blómstrar
og er atvinnuleysi minna, þjóðar-
framleiðsla meiri og fjárlagahalli
minni en verið hefur um langt skeið.
Hins vegar benda stjórnmála-
skýrendur á að stóraukið fylgi
vinstriflokkanna og þá staðreynd að
í fyrsta sinn í sögu hollenska þings-
ins skipi flokkar félagshyggjufólks
helming þingsæta megi túlka sem
vilja kjósenda um að lögð verði meiri
áhersla á félagsleg málefni í kom-
andi stjórnartíð. Þó svo að stjóm-
málaflokkarnir deili um þessa túlkun
Reuters
WIM Kok, forsætisráðherra Hollands, veifar eftir að hafa
flutt sigurræðu eftir kosningamar í Hollandi.
sem aðrar á úrslitum kosninganna
eru þeir alltént sammála um að öfga-
full hægristefna á ekki upp á pall-
borðið hjá hollenskum kjósendum og
lýstu allir yfir ánægju sinni yfir því
að fulltrúar þeirrar stefnu (CD)
misstu alla þrjá þingmenn sína.
Vilja samstarf við D66
Samanlagt juku stjómarflokkarn-
ir fylgi sitt um 6 þingsæti og hafa því
yfirgnæfandi meirihluta á þingi eða
98 af 150 þingsætum. Þótt enn sé
ekki orðið ljóst hvort D66 er tilbúinn
til stjómarmyndunarviðræðna hafa
leiðtogar stærri stjómarflokkanna
tveggja, fyrir og eftir kosningar, lýst
því yfir að þó að þeir gætu tveir
myndað meirihlutastjóm, álíti þeir
það betri kost að D66 starfi áfram
með þeim. í raun hafi D66 átt stóran
þátt í að stjómarsamstarfið varð að
veruleika og hafi hann sem miðflokk-
ur gegnt mikilvægu hlutverki í að
sætta ólík sjónarmið innan ríkis-
stjórnarinnar og á þingi.
Gengu viljayfirlýsingamar svo
langt að viku fyrir kosningar, þegar
skoðanakannanir bentu til að D66
myndi missa meira en helming þing-
sæta sinna, sögðust leiðtogar PVDA
og VVD jafnvel vera reiðubúnir til
viðræðna við D66 um fleiri ráðherra-
stóla en þeir myndu hlutfallslega
eiga rétt á. Einnig gáfu þeir til
kynna í pallborðsumræðum eftir að
kosningaúrslit urðu ljós að þeir álíti
engan annan þriðja stjórnarflokk
koma til greina en D66.
Hvorugur flokkanna álítur sam-
starf við CDA (kristilega demókrata)
fýsilegt og þá ekki hvað síst vegna
fylgistaps flokksins, en hann missti
fimm þingsæti og er með 29.
Reuters
VIÐ kastalann í Avignon að loknum fundi: Hubert Vedrine utanríkis-
ráðherra Frakka, Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakka, Chirac,
Kohl og Jttrgen Rttttgers, menntamálaráðherra Þjóðverja.
Ahersla á góð samskipti
JACQUES Chirac Frakklandsfor-
seti og Helmut Kohl, kanslari
Þýskalands, kepptust við að
hlaða hvor annan Iofi á fundi sin-
um í Avignon í Frakklandi í gær.
Lögðu leiðtogarnir áherslu á að
samskipti rfkjanna hefðu ekki
beðið neinn skaða af deilum síð-
ustu vikna um hver skyldi verða
bankasljóri hins nýja evrópska
seðlabanka. Kanslarinn fékk
höfðinglegar móttökur í Avignon
en á stundum þótti gestgjafiun
Chirac tala til kanslarans eins og
hann byggist við því að þetta
yrði síðasti leiðtogafundur
þeirra. Bar hann lof á framlag
Kohls til uppbyggingar Evrópu,
líkt og hann væri að kveðja hann.
Kohl vísaði hins vegar á bug
vangaveltum um að dagar sínir á
stóli kanslara væru brátt liðuir.
HÖFUM OPNAÐ PLÖNTUSÖLUNA
FRÁBÆRT OPNUNARTILBOÐ
BIRKIKVISTUR
Áður kr. 680-
Nú kr. 590-
VEFJARÆKTAÐUR ILMREYNIR í
POTTUM 50-80 cm.
Áður kr. 440-
Nú kr. 280-
ERT ÞÚ TILBÚIN(N) MEÐ ÞÍNA
RÆKTUNARAÆTLUN ?
Aldrei meira úrval af skógar- og
garðplöntum, verkfærum, mold o.fl. o.fl.
Kynntu þér úrvalið.
Sendum í póstkröfu um allt land.
PLÖNTUSALAN í FOSSVOGI
Fossvogsbletti 1 (fyrir neðan Borgarspítala) Opiö kl. 10 -19. helgar kl. 10 -18.
Sími 564 1777 Veffang: http://www.centrum.is/fossvogsstodin
LEIÐBEININGAR - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA FYRIR ÞIG