Morgunblaðið - 02.07.1998, Side 6

Morgunblaðið - 02.07.1998, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR Þróunarsvið Byggðastofn- unar opnað á Sauðárkróki Morgunblaðið/Björn HJÁ Byggðastofnun á Sauðárkróki var undirritaður samningur um notkun á fjarfundabúnaði. FJÖLDI gesta víðsvegar að af land- inu var viðstaddur athöfn í Bók- námshúsi Fjölbrautaskóla Norður- lands vestra á Sauðárkróki í gær, þegar forsætisráðherra Davíð Oddsson opnaði „Byggðabrú" svo- nefnda, en það er nýjung hérlendis í fjarskiptabúnaði, myndsímakerfí sem þegar er tengt 15 stöðum hér- lendis og gefur notendum nýja og fjölbreytta möguleika til samskipta. Búnaðurinn á hverjum hinna 15 staða samanstendur af: Hágæða- sjónvarpi með 29 þumlunga skjá 100 Mhz, Swift-side myndfunda- kerfi frá PictureTel, myndavél og hljóðnema ásamt fjarstýringu, skjalamyndavél fyrir glærur og skjöl, fjölrása tengibúnað fyrir ISDN símalínur, þrjár ISDN línur tryggja hraða og myndgæði, en hraðinn er allt að 384 kb/s. Kostnaður við fjarfundabúnaðinn er 1.150 þúsund á hverjum stað en auk þess kostar um 200 þúsund kr. á mánuði að leigja sjálfa mynd- brúna með ótakmörkuðum aðgangi fyrir alla staði, auk þjónustu og for- ganga að notkun hennar. Athöfnin í Bóknámshúsinu hófst á því að Álftagerðisbræður sungu tvö lög, en einnig sungu þeir á milli atriða í dagskránni. Davíð Oddsson forsætisráðherra tók fyrstur til máls og sagði: - „að það spor sem nú væri stigið undir- strikaði trú okkar á það að lands- byggðin eigi framtíð fyrir sér“. Síð- an lýsti Davíð því yfir að „Byggða- brúin“ svonefnda væri þar með formlega tekin í notkun, og síðan birtust á skjánum fundargestir sem tóku þátt í fundinum, en voru þó all- fjarri, á Selfossi, ísafirði, Egilsstöð- um, Reykjanesbæ, Akureyri og Höfn í Hornafirði. Örlitlir byrjunarörðugleikar voru BREYTINGAR á lögum um at- vinnuleysistryggingar tóku gildi í gær, 1. júlí. Með breytingunum er meðal annars verið að jafna rétt starfsmanna í fiskvinnslu sem ekld hafa rétt á kauptryggingarsamningi og þeirra sem missa fullt starf en eru ráðnir í hlutastarf. Auk þess er fullum bótarétti þeirra sem verða óvinnufærir af völdum sjúkdóma, slysa eða fangelsisvistunar, kvenna í fæðingarorlofi og annarra sem leita að vinnu án milligöngu vinnumiðlun- ar viðhaldið til lengri tíma en áður þekktist. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu frá Vinnumálastofnun. Með breytingunum er gerð undan- tekning á þeirri almennu reglu að bótaþegi þurfí að vera skráður at- vinnulaus í þrjá daga samfellt í byij- un bótatímabils til að eiga rétt á at- vinnuleysisbótum. Undantekningin gildir einungis fyrir starfsmenn í fiskvinnslu sem ekki hafa rétt á kauptryggingarsamningi samkvæmt kjai’asamningi VMSÍ og VSWMS. Þetta er gert til að jafna rétt þeirra sem ekki hafa rétt á kauptryggingar- samningi við þá sem hafa þann rétt. í myndsendingunni í fyrstu, og kom á skjáinn inni á milli nafn Reykja- víkur og þar með duttu út myndir þeirra fundarmanna sem voru að tala í það sinnið. Forsætisráðherra óskaði Byggða- stofnun til hamingju með þann áfanga sem nú væri náð og lýsti því að nú væri brotið blað í fjarskipta- sögunni með tilkomu hins nýja bún- aðar. Lýsti hann þeirri von sinni að hann nýttist sem best til aukinnar samvinnu landsbyggðarinnar. Þá sagði Davíð að eins og allir hefðu séð, hefði verið um örlitla byrjun- arörðugleika að ræða, Reykjavík hefði alltaf verið að troða sér inn á milli, - en slíkt væri nú þekkt í mál- efnum landsbyggðarinnar, „en svo fór þetta að lagast, og var orðið gott, og þannig mun þetta verða“, sagði Davíð. Egill Jónsson, foi-maður Byggða- stofnunar, tók næstur til máls. Sagðist Egill oft hafa verið spurður að því á síðastliðnum vetri hvers vegna Byggðastofnun hefði ekki öll verið flutt út á land fremur en einn hluti hennar. Þessu sagðist Egill gjama hafa svarað á þá leið að þeg- ar ekki væri með öllu ljós leið framundan og ekki með öllu greið- fært heldur, þá væri farsælla að hafa skrefin stutt og einnig að sjá vel til kennileita. Síðan rakti hann í stórum dráttum það sem nú er orð- ið, að Þróunarsvið Byggðastofnunar er flutt til Sauðárkróks. Þá ræddi Egill um samvinnu við Landssíma Islands um uppsetningu þess búnaðar sem nú er tekinn í notkun hérlendis í fyrsta sinn, og lýsti ánægju sinni með að þrjár stofnanir, Iðntæknistofnun, Rann- sóknarstofnun fiskiðnaðarins og Háskólinn á Akureyri, hefðu óskað eftir aðild að „Byggðabrúnni", sem Bætur í öðrum EES-ríkjum í allt að þrjá mánuði Breytingarnar fela einnig í sér að veitt er heimild til að hverfa af inn- lendum vinnumarkaði í allt að 24 mánuði, en halda samt sem áður þeim bótarétti sem viðkomandi hafði áunnið sér þegar hann varð atvinnulaus. Með þessari breytingu er atvinnulausum gefinn kostur á að leita að nýrri vinnu án milligöngu vinnumiðlunar, án þess að tapa bótarétti sínum í allt að 24 mánuði. Að þeim tíma liðnum fellur réttur- inn hins vegar alveg niður. Þetta gildir einnig um konur í fæðingaror- lofi og geta þær til viðbótar sex mánaða fæðingarorlofi geymt rétt sinn í 18 mánuði, eða samtals 24 mánuði. Atvinnulausir geta farið til ann- ars EES-ríkis og leitað sér að vinnu í allt að þrjá mánuði og haldið óskertum bótarétti. Bætumar eru greiddar í viðkomandi ríki, en ef dvalið er lengur en þrjá mánuði fell- ur rétturinn til atvinnuleysisbóta niður. hann kysi að nefna þennan nýja búnað. Egill sagði faglega skipu- lagningu um notkunina óráðna, en taldi eðlilegt að Þróunarsetrið á Sauðárkróki yrði í forsvari fyrir því skipulagi. Þá óskaði Egill Jónsson Skagfirð- ingum til hamingju með hina nýju stofnun og starfsmönnum hennar velfamaðar og óskaði þess að störf þeirra mættu verða öllum lands- mönnum til farsældar og sagði síð- an Þróunarsvið Byggðastofnunar formlega tekið til starfa. Guðmundur Malmquist fram- kvæmdastjóri tók næstur til máls og kynnti þá starfsmenn sem þegar hefðu verið ráðnir til starfa á Sauð- árkróki undir stjórn Bjarka Jó- hannessonar forstöðumanns, en síð- an tók hinn nýráðni forstöðumaður til máls og gerði grein fyrir því starfi sem væntanlega yrði unnið á Sauðárkróki og kom þar inn á marga málaflokka. Þá fluttu ávörp og ámaðaróskir Bjami Þór Einarsson, fram- kvæmdastjóri Sambands sveitarfé- laga á Norðurlandi vestra, Theodór Blöndal talaði frá Seyðisfirði, Óli Rúnar Astþórsson, Atvinnuþróun- arfélagi Suðurlands, en síðan tók til máls Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, og sagði að á þessum tímamótum samgleddist hann Skagfirðingum og öðmm landsmönnum með flutning hluta Byggðastofnunar til Sauðárkróks. Sagði hann HA eiga mikið undir því að allir landsmenn byggju við sem jöfnust skilyrði og hér væri stórt skref stigið í þá átt. Háskólamenn Ótímabundinn bótaréttur tekur gildi fyinr óvinnufæra einstaklinga. Sá sem verður óvinnufær af völdum sjúkdóma, slysa eða er sviptur frelsi sínu með dómi heldur þeim bóta- rétti sem hann hafði áunnið sér þeg- ar hann varð að hverfa frá vinnu. Honum er gert að sanna óvinnu- færni sína með læknisvottorði eða dómsskjölum og heldur þannig rétti sínum á atvinnuleysisbótum þegar hann losnar úr fangelsi eða verður heill heilsu. Bótaréttur vegna hlutastarfs Einstaklingur sem missir starf sitt að hluta og er ráðinn í fast hlutastarf sem er minna en bóta- réttur hans, getur fengið atvinnu- leysisbætur sem eru mismunur þess bótahlutfalls sem hann hafði áunnið sér og þess starfshlutfalls sem hann er ráðinn í með tilliti til þeirra tekna sem hann ávinnur sér í hlutastarfinu. Ennfremur kveða lögin á um að ef samanlagðar tekj- ur af hlutastarfinu og atvinnuleys- isbótum umsækjanda að viðbættu og byggðaþróunarmenn hefðu átt litla samleið og sjaldnast talað sama mál, sagði Þorsteinn, en með stofn- un háskóla á Akureyri hefði þetta nokkuð breyst, og um leið þakkaði hann Agli Jónssyni fyrir það frum- kvæði sem hann hefði haft um það að skapa jákvæðan umræðugrund- völl milli háskólamanna og þeirra sem fjölluðu um byggðamál og með frumkvæði að Byggðabrúnni hefði opnast möguleiki meðal annars fyr- ir Háskólann á Akureyri að hefja kennslu í hjúkrunarfræðum á Isa- firði, en þar mundu hefja nám 9 nemendur nú í haust sem annars hefðu flust af staðnum til þess að afla sér þessarar menntunar. Þá tók til máls Rögnvaldur Ólafs- son, dósent við Háskóla íslands, og gerði grein fyrir tengslum skólans út til hinna ýmsu staða á landinu, og stofnun deilda sem tengdar eru há- skólanum víðsvegar á landinu. Guðmundur Bjömsson, forstjóri Landssíma Islands, tók til máls, skýrði tengingu hinna fimmtán staða á landinu sem nú er þegar komin á, og einnig hverjir þeir möguleikar væru sem í þessu fælust. Þakkaði hann stjórn Byggðastofnunar ftumkvæði í þessu máli. Þá tóku til máls Tomas Liliendal frá Svíþjóð og Páll Pétursson fé- lagsmálaráðherra og sr. Gísli Gunn- arsson, forseti sveitarstjómar Skagafjarðar. Ámuðu þeir nýrri stofnun og starfsmönnum allra heilla í starfi og að þeir ættu ham- ingjuríka daga í Skagafirði. Þessu næst vom undirritaðir samningar frítekjumarki eru hærri en fullar bætur umsækjanda skal skerða at- vinnuleysisbætur hans um það sem umfram er. Vegna tekjutengingar verður að skila afriti af launaseðl- um reglulega. Svipuð regla tekur gildi um at- vinnuleysisbætur þeirra sem njóta elli- eða örorkulífeyris frá Trygg- ingastofnun ríkisins eða lífeyris- sjóðum. Þær munu skerðast á mán- aðargrundvelli um það sem er um- fram frítekjumark tekjutryggingar einstaklinga á hverjum tíma. Grannlífeyiir almannatrygginga, sem nú er 15.123 kr. mun ekki leiða til skerðingar á atvinnuleysisbótum, nema viðkomandi hafi jafnframt tekjur af föstu starfí. Síðasta breytingin sem gerð var á lögunum kveður á um að úthlutun- arnefndir atvinnuleysisbóta starfi í umboði stjórnar Atvinnuleysis- tryggingasjóðs og undir eftirliti hennar. Þetta þýðir að stjórn At- vinnuleysistryggingasjóðs hefur vald til að samræma störf úthlutun- arnefnda og hafa eftirlit með störf- um þeirra. Byggðastofnunar og Landssímans um þriggja ára leigu Byggðastofn- unar á fjarfundakerfi og um for- gangsrétt til notkunar þess. Einnig var undirritaður samningur milli Byggðastofnunar, Landssímans, Háskólans á Akureyii og atvinnu- þróunarfélaganna um þróunarverk- efni vegna notkunar fjarfundakerf- isins. Stjórnandi samkomunnar var Stefán Guðmundsson alþingismaður og varaformaður stjórnar Byggða- stofnunar. Að dagskrá lokinni var fundar- gestum boðið til kaffisamsætis í boði Byggðastofnunar, en því næst var hið nýja og glæsilega húsnæði stofn- unarinnar, í Stjómsýsluhúsinu við Skagfirðingabraut 17-21 skoðað. L.A. Times fjallar um íslenska málvernd Bjóða Microsoft birginn EKKERT jafnast á við hina hörðu afstöðu bandaríska dómsmálaráðuneytisins til hug- búnaðarfyrirtækisins Microsoft nema ef vera skyldi afstaða Is- lenskrar málstöðvar, segir í frétt bandaríska blaðsins The Los Angeles Times 30. júní sl. Haft er eftir Ara Páli Kristins- syni, starfsmanni stöðvarinnar, að Microsoft sé á góðri leið með að eyðileggja það sem byggst hafi upp á Islandi undanfarnar aldir. Það sem Microsoft hafi til saka unnið, segir Mary Willi- ams Walsh, fréttamaður blaðs- ins, sé að vilja ekki þýða nýja stýrikerfið, Windows 98, á ís- lensku. Skýring fulltrúa fyi-ir- tæksins, Erin Brewers, sé sú, að vegna smæðar markaðarins verði Windows 98 ekki þýtt á íslensku, þótt það hafi verið þýtt á um 30 tungumál, m.a. slóvensku og katalónsku. Walsh bendir á í frétt sinni að enskukunnátta sé útbreidd meðal ungs fólks, og það sé í og með ástæðan fyrir því að Microsoft vilji ekki standa að þýðingu; það er rétt eins hægt að selja íslendingum stýrikerf- ið á ensku. Ari Páll segir í við- tali við blaðið að þetta sé „stór- slys“. Microsoft sé valdamesta tölvufyrirtæki í heiminum og geti ráðið því í hvaða átt tölvur þróist. Nefnt er í fréttinni að íslensk yfirvöld hafi beðið Microsoft um leyfi til þess að þýða kerfið yfir á íslensku en fengið synjun. Þýðing sé aðeins tæknilega möguleg með því að veita að- gang að undirstöðuþáttum kerfisins, og það sé Mierosoft ekki reiðubúið að leyfa utanað- komandi-aðilum. Bdtaréttur vegna hlutastarfs meðal breytinga á lögum um atvinmileysistryggingar Kostur verður á fiillum bóta- rétti í allt að 24 mánuði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.