Morgunblaðið - 02.07.1998, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 02.07.1998, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 MORGUNB LAÐIÐ FRETTIR SÓLON minn ætti nú líka skilið að fá skýrslu upp á himnavist, hann var nú svo upplaxeraður að hann mundi ekki einu sinni á hvaða útibú ferðirnar voru skrifaðar. Náttúruvernd ríkisins vill komast hjá sölu Geysisgosa Vantar fé til rannsókna FRÁ árinu 1991 til 1997 hafa fjórar milljónir króna verið lagðar í rann- sóknir og framkvæmdir á Geysis- svæðinu í Haukadal, samkvæmt töl- um frá Náttúruvemd ríkisins. Mest- ar voru íramkvæmdir árið 1996 en þá var svæðið lagfært fyrir alls um 1 milljón króna. Á þessu ári fékkst 300.000 króna styrkur frá Lands- bankanum til að gera jarðhitarann- sóknir en sú upphæð dugði ekki til að ljúka þeim. Að sögn Árna Bragason- ar, forstjóra Náttúruvemdar ríkis- ins, vantar enn um 3 milljónir króna til að ljúka verkinu. „Við höfum ekk- ert fjármagn á okkar fjárlögum á þessu ári til að ljúka rannsóknunum en til þess þurfum við 3 milljónir króna. Það þarf að bora og sá verk- þáttur er hvað dýrastur en einnig þarf að gera ýtarlegri mælingar á rennsli undir hverasvæðinu." Aðspurður tekur hann jákvætt í að fá stuðning einkafyrirtækja við rann- sókninar. „Helst vildum við ekki þurfa að leita til einkaaðila með að fjármagna framkvæmdimar. Hins vegar gengur illa að finna opinbert fé og það virðist Ijóst að utanaðkomandi fjármagn þarf að koma til. Við höfum, líkt og aðrar ríkistofnanir, liðið skert fjárframlög og það eru til fordæmi fyrir aðstoð einkafyrirtækja við upp- byggingu náttúmsvæða. Varðandi Geysi og umhverfi hans þá sé ég ekk- ert athugavert við það að fara í sam- starf við einkaaðila. Helst vildum við ekki þurfa að selja Geysisgos til að fjármagna þær en spumingin er um forgangsröð. Við höftim lítillega rætt um kostun rannsóknanna og það eru skiptar skoðanir um það hér hjá okk- ur. Persónulega þá finnst mér mikil- vægast að afla þekkingarinnar og ef það tekst ekki öðravísi en með fjár- stuðningi frá einkaaðilum þá sam- þykki ég það.“ Hlutlaus kynning Að sögn Magnúsar Oddssonar, ferðamálastjóra sem jafnframt á sæti í stjóm Náttúruverndar ríkisins, get- ur afmörkuð kostun átt rétt á sér. „Stjómvöld hafa ekki verið reiðubúin til að standa myndarlega að uppbygg- ingu á friðlýstum náttúrasvæðum á landinu. Þó hefur verið unnið á veg- um Ferðamálaráðs að úrbótum á fjöl- sóttum ferðamannastöðum fyrir um 60 miHjónir króna á síðustu þremur áram en þörfin er því miður miklu meiri. Það ætti hins vegar ekki að skaða nokkum ef einkaaðUar vilja hlaupa undir bagga og hljóta í staðinn tiltölulega hlutlausa kynningu en skil- yrði fyrir því er að ekki hljótist sjón- mengun af. Nefnt hefur verið að selja réttinn til að láta Geysi gjósa en slíkt tel ég fráleitt. Með því væri verið að selja aðilum réttinn til þess að breyta gangi náttúrunnar og hvar myndi slíkt enda.“ Vald til sveitarfélaga Magnús telur að skoða eigi vand- lega þann möguleika að nýta heim- ildir í lögum til aÐ fela heimamönn- um aukna umsjón friðlýstra svæða. „Mér finnst tími til kominn að nota þá heimild í náttúruverndarlögum að Náttúravernd ríkisins geti falið sveitarfélögum eða öðrum rekstur friðlýstra svæða. Með því færist ákvarðanataka og ábyrgð á aðila sem hugsanlega eru betur í stakk búnir til að viðhalda verndun og uppbyggingu svæða vegna búsetu og nálægðar sinnar. I framhaldi af því hefðu sveitarfélögin þá mögu- leika á að njóta þeirra tekna sem hægt er að skapa af þjónustu á frið- lýstum svæðum en bæru um leið meiri ábyrgð og kostnað sem því fylgir. Eftirlitið með því að lögum um friðlýsingar og náttúruvernd yrði framfylgt væri eftir sem áður í höndum Náttúrverndar ríkisins þótt rekstur svæðanna færðist til heima- manna,“ sagði Magnús í samtali við Morgunblaðið. Á stjórnarfundi Náttúruverndar ríksins síðar á laugardag mun Magnús bera þá tillögu upp að kann- aður verði vilji sveitarfélaga til að taka að sér rekstur friðlýstra svæða. Hvítlauksbrauð fín og gróf Tex Mex kjúklingabitar Pagens bruður 99- 579?, 148- Knorr bollasúpur 1C)§. Freydís Jóna Freysteinsdóttir spum- Ahrif leikskóladvalar á börn 6-7 tímar hæfa bæði börnum og foreldrum FREYDIS Jóna Freysteinsdóttir hefur nýlokið rannsókn þar sem þroski barna og tilfinningaleg líðan er metin með tilliti til dagvistunar á leik- skóla. Var jafnframt lagt mat á hæfilega lengd vistunar á hverjum degi með tilliti til hugræns, félagslegs og tilfinninga- legs þroska, streitu og streitutengdrar hegðun- ar. Úrtaldð náði til 202 bama 36 og 37 mánaða á 42 leikskólum Dagvistar bama í Reykjavík í nóv- ember 1997 og voru leik- skólakennarar beðnir um að fylgjast með hegðun barnanna og merkja við atriði á tilteknum lista. Foreldramir svöruðu ingum um hjúskaparstöðu, lífs- hamingju, fjárhag, streitutengda hegðun bamanna, hvenær þeir teldu að börnin ættu að byrja á leikskóla og hversu lengi þau ættu að dvelja þar á hverju ald- ursbili. - Af hverju valdir þú þetta rannsóknarefni ? „Ég hafði velt þeirri spurn- ingu fyrir mér í nokkur ár hversu lengi henti börnum að dvelja á leikskóla dag hvern. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að börn sem em á leikskóla séu að mörgu leyti þroskaðri en þau sem eru heima. Hins vegar hef- ur aldrei verið lagt mat á hvaða tímafjöldi sé bestur. Sænsk rannsókn hefur sýnt fram á að best sé fyrir börn að byrja leik- skóladvöl síðari hluta fyrsta ævi- ársins, það er milli sex og tólf mánaða. Leiðir það til meiri hug- ræns þroska sem og félags- og tilfinningaþroska, samkvæmt rannsókn þar sem 8 og 13 ára böm, sem byrjað höfðu á leik- skóla 6-12 mánaða, voru borin saman við böm sem höfðu farið á leikskóla síðar.“ - Hvað leiddi rannsóknin þín íljós? „Þátttaka var því miður ekki eins góð og ég hefði kosið, 34,2%. Það er hins vegar nóg til þess að gefa góðar vísbendingar. Þátttaka er yfirleitt dræm í svona könnunum. 90% foreldra sem svöruðu voru mæður, sem kannski kom ekki mikið á óvart. Konur virðast taka meiri ábyrgð á bömum og ýmsu sem tengist þeim. Spurt var um vinnuhlutfall foreldra og hversu lengi þeir myndu viija vinna á dag. Börnin í úrtakinu, 69 talsins, voru að meðaltali rúmlega 16 þegar þau byrjuðu í konar dagvist, 44% bamanna voru á leik- skóla 4-5 tíma á dag, 23% 6-7 tíma á dag og 35% 8-9 tíma á dag. ____________ Flestir foreldrar töldu að börnin ættu að byrja á leikskóla tveggja ára, sem stangast á við sænsku rannsókn- ina sem segir að þau eigi að byrja fyrr. Einnig taldi meiri- hluti foreldra að bömin ættu að vera 4-5 tíma á leikskóla 2 og 3 ára og 6-7 tíma 4 og 5 ára gömul. Fólk vill því að börnin séu skem- ur á leikskólanum en þau era því 35% barna eru 8-9 tíma á dag. Fáir foreldrar vildu hafa börn sín svo lengi. Hlutfall mæðra sem vinna utan heimilis var hátt, eða 87%, þar af 40,3% allan dag- inn og 46,3% hluta dags. Mæður ► Freydís Jóna Freysteinsdótt- ir fæddist á Siglufirði árið 1966. Hún lauk stúdentsprófí frá Fjölbrautaskóla Akraness árið 1985. Að því loknu starfaði hún í banka og við kennslu en lauk síðan BA-prófi í sálfræði með félagsráðgjöf sem auka- grein árið 1992. Árið 1994 fékk hún réttindi sem félagsráðgjafi. Freydís leysti af sem forstöðu- maður á Mæðraheimilinu um tíma og fór að því búnu til frek- ar náms í Bandaríkjunum. Ný- verið lauk hún meistaraprófi í félagsráðgjöf frá Iowa-háskóla í Iowa City í Bandaríkjunum. Freydís er gift Steingrími Skúlasyni námsmanni, sem er í doktorsnámi í próffræði. Þau eiga þijú börn, þriggja ára, fimm ára og tíu ára. mánaða einhvers Leikskólabörn að mörgu leyti þroskaðri vinna að meðaltali 5,61 tíma á dag en töldu að meðaltali æski- legt að vinna 4,52 tíma á dag. Feður unnu utan heimilis að meðaltali 9,35 tíma á dag er, töldu að meðaltali æskilegt að vinna 7,16 tíma á dag. Ekki var marktækt samband á milli tímalengdar sem böm voru á leikskóla á dag og hugræns þroska en böm sem voru á leik- skóla 4-7 tíma á dag höfðu meiri félagsþroska en böm sem voru 8- 9 tíma á dag og vora samvinnu- þýðari. Böm sem voru á leikskóla 4-7 tíma á dag höfðu líka meiri tilfinningaþroska en þau sem vora 8-9 tíma. Þau voru í betra jafnvægi tilfinningalega. Ekki var marktækt samband á milli þess tíma á dag sem böm voru á leikskóla og streitutengdrar hegðunar. Þá höfðu böm há- skólamenntaðra mæðra mark- tækt betri hugrænan þroska en böm mæðra með grannskólapróf Böm fráskilinna foreldra komu dálítið illa út og höfðu marktækt minni þroska bæði félagslega og tilfinningalega en önnur böm. Fráskildir foreldrar og einstæðir töldu fjárhagsstöðu sína líka marktækt verri en þeir sem voru giftir eða í sambúð og foreldrar sem töldu fjárhagsstöðu sína góða vora marktækt ánægðari með lífið en þær sem töldu hana slæma.“ - Hvað lest þú út úr þessum niðurstöðum? „Þær virðast benda sterklega til þess að of löng vistun á leik- skóla geti beinlínis verið skaðleg. Að mínu mati era 6-7 tímar sennilega ákjósanlegasta lengdin fyrir bömin og mátulegur vinnu- tími fyrir foreldrana líka.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.