Morgunblaðið - 02.07.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 27
Innflytjendamálin í Ástralíu og líkurnar á þingkosningum
Howard vinnur tíma
Sydney, Canberra. Reuters.
JOHN Howard, forsætisráðherra
Astralíu, tilkynnti í gær að ríkis-
stjórn hans hefði komist að sam-
komulagi um landamál frumbyggja
við þingmann frá Tasmaníu og er
samkomulagið talið létta á þrýstingi
um þingkosningar í landinu. Sögðu
fréttaskýrendur í gær að þar með
minnkuðu mjög líkurnar á því að
Pauline Hanson, leiðtogi Einnar
þjóðar sem er nýjasta stjórnmála-
aflið í Astralíu, gæti náð lykilstöðu í
efri deild ástralska þingsins.
Hanson kynnti í gær áætlun sem
ætlað er að fækka mjög innflytjend-
um til Astralíu og „af-asíuvæða“
landið. Sagði Hanson á fréttamanna-
fundi að gífurlegur fjöldi asískra inn-
flytjenda ógnaði menningu og siðum
Astrala. „Ef fólk vill ekki verða ástr-
alskt og virða lög okkar og lífshætti
þá ætti það alls ekkert að koma
hingað,“ sagði hún í gær.
Helstu stjórnmálaflokkar í Ástral-
íu hafa undanfarin þrjátíu ár verið
sammála um að leyfa umtalsverðan
fjölda innflytjenda og jafnframt að
leyfa þeim að hafa sína eigin menn-
ingu og siði í hávegum. Stefna Einn-
ar þjóðar markar endalok þessa
óskráða samnings en hún er sú að
einungis fái að koma nægilega marg-
ir innflytjendur til að koma í stað
þeirra íbúa sem flytja á brott. Myndi
þetta þýða að einungis 30.000 inn-
flytjendur kæmu til Astralíu á ári
hverju en hingað til hefur talan verið
um 63.000 auk 12.000 flóttamanna.
Samkvæmt áætlun Einnar þjóðar
yrðu flóttamenn jafnframt sendir
aftur til heimkynna sinna um leið og
það væri talið óhætt.
Fylgi við Eina þjóð virðist vera að
aukast verulega, ef marka má skoð-
anakannanir. Samkvæmt þeim telja
65% Astrala einnig að of mörgum inn-
flytjendum sé hleypt inn í landið á ári
hverju. Er því talið að kosningar nú
hefðu þýtt aukin áhrif Einnar þjóðai-,
jafnvel að flokkurinn myndi ná lykil-
stöðu í áströlskum stjórnmálum.
Hanson stofnaði flokkinn Eina
þjóð í apríl í fyrra. Samkvæmt niður-
stöðum skoðanakönnunar, sem birt
var á þriðjudag, nýtur flokkurinn nú
stuðnings 13% kjósenda á landsvísu
og er þá orðinn þriðji stærsti flokkur-
inn í landinu. Flokkur Johns
Howards forsætisráðherra tapar
verulegu fylgi og fengi stuðning 34%
kjósenda en stjórnarandstöðuflokkui'
jafnaðarmanna fengi 45% atkvæða.
Klofningur innan Einnar þjóðar?
Greint var frá því í fyrradag að
einkaritari Hansons hefði sagt upp
störfum og sakar hann nánasta ráð-
gjafa Hansons um að vera að taka
völdin í flokknum. Einkaritarinn
fyiTverandi segir að Hanson hefði
látið blekkjast og að klofningur væri
kominn upp á milli hennar og ráð-
gjafans, Davids Oldfíelds.
í grein í dagblaðinu The Australi-
an á þriðjudag segir einkaritarinn,
Barbara Hazelton, frá því hvernig
kaupin gerast innan forystu Einnar
þjóðar. „Eg er bálreið, og það sem
mér þykir verst er að Pauline Han-
son hefur látið bþekkjast." Hún segir
ennfremur að Ástralar hafi verið
plataðir, ef þeir haldi að þeir séu að
greiða Hanson atkvæði með því að
kjósa Eina þjóð. Hanson ráði engu i
flokknum. Hanson neitar því hins
vegar staðfastlega að nokkurt mis-
sætti hafi komið upp á milli hennar
og Oldfields. Hún sagði í yfírlýsingu
að Hazelton hefði brugðist trúnaði,
en engin misklíð væri í forystu
flokksins.
Gjálíf dóttir Brezhnevs látin
Eitt hjónabandið
entist í þrj á daga
GALÍNA Brezhneva, léttúðug
dóttir sovétleiðtogans Leoníds
Brezhnevs, er látin. Brezhneva
var 69 ára að aldri og segir blað-
ið Kommersant að banamein
hennar hafi verið heilablóðfall.
Gjálífi Galínu var annálað en
síðustu árin bjó hún í kyrrþey
með dóttur sinni og dótturdóttur.
Á yngri árum barst hún hins
vegar rnjög á og gekk í gegnum
mörg hjónabönd. Hún þótti bæði
sérlunduð og léttúðug. Auk karl-
manna hafði hún ást á demöntum
og hraðskreiðum bflum, rétt eins
og Brezhnev faðir hennar, og ók
oft Mercedes Benz bflum um
Moskvu eins og hún væri ein síns
liðs á kappakstursbraut.
Hún olli oft hneyksian; fyrst er
hún hljópst á brott með loftfim-
leikamanni úr Moskvusirkusnum,
Jevgení Mflajev, en samband
þeirra varði ekki lengi. Næsta
hjónaband hennar, við töfram-
anninn Igor Kíó, varði aðeins í
þijá daga og embættismaðurinn
sem gaf út vígsluvottorðið var,
að fyrirmælum Brezhnevs, rek-
inn.
Sovétleiðtoginn var hrifnari af
næsta eiginmanni dóttur sinnar,
Júrí Tsjúrbanov, óbreyttum lög-
regluþjóni sem naut hraðs starfs-
frama eftir hjónabandið og varð
fyrsti aðstoðarinnanrfldsráð-
herra skömmu seinna, eða árið
1971. Tsjúrbanov var dæmdur í
12 ára fangelsi 1988 fyrir mútu-
þægni í 17 ára valdatíð tengda-
föður hans, sem dó 1982.
Náinn vinur þeirra, sem gekk
undir nafninu Sigauninn Borís,
var handtekinn og kærður fyrir
smygl 1982 og dæmdur í 5 ára
fangelsi. Handataka hans var al-
mennt talin sögð vera tilraun til
þess að styrkja stöðu þáverandi
yfirmanns öryggislögreglunnar
(KGB), Júrí Andropovs, sem tók
við starfí aðalritara ommúnista-
fiokksins af Brezhnev.
Reuters
GALÍNA Brezhneva, dóttir
Sovétleiðtogans sem var við
völd frá því á sjöunda áratugn-
um til dauðadags 1982. Dóttirin
var oft hneykslunarhella í sov-
ésku þjóðlífi vegna lífernis síns.
toegavegi.
Rioja
Hágæða rauðvínsþrúgur
30 flöskur
5.750 kr.
Nóatún 17 ■ Faxafen 12
Kringlan ■ Háholt 24. Mosfellsbær
r
Láttu þig detta
i
lukkupott
Símans og Ericsson
DREGIÐ 21. ÁGÚST
Þegarþú kaupirþér GSM símafrá Ericsson eða Ericsson auka-
hluti hjá Símanum eða Póstinum um land állt,fer nafnþitt
sjálfkrafa í lukkupott Símans og Ericsson.
Dregxd vxxulsga
Á hverjumföstudegi út ágúst verður dregið um Ericsson 788 GSM
síma í beinni útsendingu íþættinum King Kong á Bylgjunni.
Ericsson GF 788
(39.980,- stgr )
Ericsson GA 628
TILBOfl TIL 21. AGÚST
Kynnið ykkur tilboðspakkana.
Ericsson GSM símar ogýmis aukabúnaður á tilboði.
Ericsson GH 688
(24.980,- stgn)
SÍMINN
Ármúla 27, sími 550 7800
Landssímahúsinu v/
Austurvöll, sími 800 7000
(Aupo^ ....
SÍMANS V
ERICSSON $
?. - y. verðlaun
Glæsilegir Ericsson GSM símar
Utanlandsferð að
EIGIN VALI FYRIR 70.000 KR.
PÓSTURINN
um land allt
i. verðlaun___________________
ERICSSON MC16 LÓFATÖLVA
örsmá tölva með Intemethugbúnaði,
Windows CE. Word, Excel og Outlook.
. verðlaun
6. - so. verðlaun
PÓLÓBOLIR FRÁ
Ericsson