Morgunblaðið - 02.07.1998, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 31
UMHVERFISIVIÁL í BANDARÍKJUNUM
GEOFF Pampush styður hugmyndir um að Qarlægja íjórar virkjanir
úr Snakeá, en það er talið kosta a.m.k. 13 milljarða króna.
INDÍÁNAR hafa um aldir stundað laxveiðar í Columbiaá og gera það
enn, en afrakstur veiðanna verður æ minni eftir því sem árin líða.
að komast upp og niður þær en físk-
urinn. Við allar stíflurnar eru skipa-
stigar sem gera skipum kleift að
sigla upp eftir ánum.
Fjölmörg samtök berjast fyrir
verndun og vexti laxastofna í Banda-
ríkjunum. Pampush segir að um 75
samtök og hópar af ýmsu tagi berjist
fyrir verndun laxastofna á vestur-
strönd Bandaríkjanna. Eitt af því
sem þessh' hópar hafa barist fyrir er
að fá hina ýmsu laxastofna skil-
greinda sem dýr í útrýmingarhættu.
Þetta er gert á grundvelli laga sem
sett voru árið 1973 um tegundir í út-
rýmingarhættu. Lögin gera ráð fyrir
að gerður verði listi yfír dýr og plönt-
ur í útrýmingarhættu og að þau njóti
sérstakrar verndar. Nú eru um 900
tegundir á þessum lista, þar af er um
helmingur plöntur. Umhverfissam-
tök hafa höfðað mörg dómsmál til að
fá m.a. laxastofna dæmda inn á þenn-
an lista. Laxinum verður ekki bjarg-
að við það eitt að komast inn á list-
ann, en hann veitir honum ákveðið
skjól fyrir því að frekar verði að hon-
um sótt. Þetta þýðir t.d. fyrir laxinn
að timburfyrirtæki geta ekki stundað
skógarhögg á árbökkunum. Þetta
takmarkar ennfremur verulega
möguleika til landbúnaðar við árnar.
Rick Taylor segir ljóst að skógar-
högg í nágrenni við árnar hafi mjög
neikvæð áhrif á viðgang fiska í ánum
og brýnt sé að takmarka skógar-
högg í nágrenni við þær. Landbún-
aður hafi einnig neikvæð áhrif á
fiskinn. Víða láti nautgripabændur
nautgripi vaða út í árnar til að
drekka, en við það gruggist vatnið.
Ljóst sé að nautgripir hafi unnið
mikið tjón sumstaðai’ þar sem þeir
hafi fengið að vaða óhindrað um við-
kvæmar hrygningarstöðvar. Taylor
segir ennfremur að maðurinn hafi
haft margvísleg neikvæð áhrif á við-
gang fiskistofna I ánum með búsetu
sinni og iðnaðarífamleiðslu. Flestar
árnar renni um þéttbýl svæði og um
þær fari mikill fjöldi báta og skipa.
Rætt um að fjarlægja fjórar
stíflur úr ánni
Pampush segir að flest bendi til að
það sem eigi stærstan þátt í hruni
laxastofnanna séu raforkuverin.
Laxinn komist hreinlega ekki með
auðveldum hætti upp árnar á hrygn-
ingarstöðvamar og ef hann komist
þangað eigi hann og seiðin mjög
erfitt með að komast lifandi niður
aftur.
Nú hafa verið settar fram tillögur
um að fjarlægja öll fjögur raforku-
verin úr Snakeá, en laxastofninn í
ánni er á lista yfir dýr í útrýmingar-
hættu. Orkuverin fjögur framleiða
samtals 3% af allri vatnsorku sem
framleidd er í Columbiaá og þverám
hennar. Stærsta virkjunin af þess-
um fjórum framleiðir 100 MW. Til
samanburðar má geta þess að
Blönduvirkjun framleiðir 180 MW.
Raforkufyrirtækin hafa sagt að
kostnaður við að fjarlægja stíflurnar
úr ánni sé á bilinu 35-60 milljarðar
króna. Umhverfissamtök hafa mót-
mælt því og í skýrslu, sem kom út
snemma á þessu ári og samtökin
hafa gjarnan vitnað í, er kostnaður-
inn áætlaður 13 milljarðar.
Akvörðun um hvort stíflurnar
verða fjarlægðar hefur ekki verið
tekin, en ef stjórnvöld hafna fyrir-
liggjandi tillögum má allt eins búast
við að umhverfissamtök fari í mál
við þau. Rökin verða væntanlega
þau að laxastofninn í Snakeánni sé
skilgreindur sem stofn í útrýming-
arhættu og stjórnvöld verði lögum
samkvæmt að bregðast við því.
Árangursríkasta aðgerðin sé að fjar-
lægja stíflurnar.
Dýr og vonlaus barátta?
Margh’ hafa orðið til að gagnrýna
tillögurnar um að fjarlægja stíflurn-
ar úr Snakeá. Patrick Beny, tals-
maður Bonnevillevirkjunarinnar,
segir alls óvíst að laxastofninn í ánni
styrkist mikið við að fjarlægja stífl-
urnar. Til að þessi aðgerð skili ár-
angri þyrfti líklega að fjarlægja
fleiri stíflur neðar í Columbiaánni
sem laxinn þurfi að fara um áður en
hann fer upp í Snakeá.
„Það hefur tekið okkur 120 ár að
koma laxastofnunum í ánum niður í
þá stöðu sem þeir eru í núna. Ég
held að það sé alveg ljóst að það taki
okkur a.m.k. 120 ár að endurreisa
stofnana, svo fremi sem þær aðgerð-
ir sem við grípum til núna reynist
réttar og fallnar til þess að styrkja
stofnana. Við vitum í raun ekki hvað
við þurfum að gera til að bæta
ástandið. Margir vilja kenna virkjun-
unum um hvernig komið er. Þær era
stórar og auðvelt að benda á þær
þegar menn leita að sökudólgi. Ég
vil ekki bera á móti því að virkjan-
irnar hafa skipt og skipta enn miklu
máli í þessu sambandi, en ég er viss
um að það er margt annað sem menn
þurfa að taka með í reikninginn. Ég
minni á að við vitum sáralítið um
hvernig laxinum reiðir af í hafinu, en
þar ver hann stórum hluta lífs síns.
Það er ýmislegt sem bendir til að
breytingar í hafinu, mengun o.fl. eigi
hér meiri hlut að máli en menn vilja
vera láta,“ segir Beny.
Pampush segir að þessi rök séu
aðeins tilraun til að vísa vandanum
frá sér. Þegar menn skorti rök vísi
þeir gjarnan á einhverja óvissu-
þætti. Hann viðurkennir að margt
sé óvíst um hvernig laxinum reiðir
af í hafinu. Pampush viðurkennir
einnig að það að fjarlægja stíflurnar
úr Snakeá bjargi ekki eitt og sér
stofninum, en það sjái allir að laxinn
geti ekki lifað í ánni ef hann komist
ekki um hana. Eins og staðan sé í
dag komist laxinn ekki lifandi niður
ána. Það sé útilokað að leysa það
mál til frambúðar með því að flytja
laxinn í tankskipum niður ána.
Pampush setur allt sitt traust á
tillögur John Kitzhaber, ríkisstjói’a í
Oregon. Kitzhaber er laxveiðimaður
og náttúruunnandi og mikill áhuga-
maður um endurreisn laxastofnanna
í Columbiaá og þverám hennar.
Kitzhaber hefur ekki lýst opinber-
lega yfir stuðningi við tillögur um að
fjarlægja stíflurnar úr Snakeánni,
en hann hefur lýst sig tilbúinn til að
verja gríðarlega miklum fjái-munum
til að efla laxastofnana. Kitzhaber
berst nú fyrir endurkjöri sem ríkis-
stjóri og áhersla hans á endurreisn
laxastofnanna er málefni sem skiptir
máli í kosningabaráttunni.
A það hefur verið bent að sú orka
sem raforkuverin fjögur í Snakeánni
framleiða sé þrátt fyrir allt hrein í
þeim skilningi að hún valdi ekki loft-
mengun eins og t.d. raforka sem
framleidd er með kolum eða olíu.
Þess má geta að sú orka sem raf-
orkuverin fjögur framleiða jafngildir
því að að 3.000 bílar væru settir á
götuna og keyrðu þar allan sólar-
hringinn. Það má því velta því fyrir
sér hvort menn séu að „bæta“ um-
hveifið með því að fjarlægja stífl-
urnar úr Snakeá. Sé þetta haft í
huga og eins það að efnahagslega
skiptir það sáralitlu máli hvort laxa-
stofninn í Snakeánni lifir eða deyr
þá má spyrja hvort það sé ekki
brjálæði að ætla sér að leggja alla
þessa fjármuni í að endurreisa hann.
Eins má spyrja hvort það sé raunar
hægt. Er yfirleitt hægt að bæta það
tjón sem búið er að vinna á stofnin-
um?
„Já, það er hægt að endurreisa
laxastofninn," segir Rick Taylor.
„Við getum horft á skógana í Banda-
ríkjunum og gráhvalastofninn í
Kytrahafi og séð að við getum snúið
þróuninni við. Þetta er ekki vonlaus
barátta, en hún verður löng og eifið
og mun kosta mikla fjármuni.“
Taylor og Pampush viðurkenna
að endurreisn laxastofnanna sé ekki
stórt efnahagslegt atriði fyrir
Oregon eða Bandaríkin. „Þetta er
hins vegar gríðarlega mikilvægt
menningarlegt atriði. Laxinn er
tákn fyrir hreina náttúra með sama
hætti og skallaörninn er tákn fyrir
Bandaríkin. Að gefast upp í barátt-
unni fyrir viðreisn laxastofnsins
væri merki um að við hefðum gefist
upp í baráttunni fyrir hreinu um-
hverfi og óspilltri náttúru. I okkar
huga er spurningin um að gefast
upp ekki til. Áhuginn á starfi okkar
er gi-íðarlegur. Það kann að vera að
fyrir laxinn sé botninum ekki náð,
en okkur mun takast að bjarga hon-
um,“ segir Pampush.
Flest allar virkjanir á Islandi hafa
verið reistar í jökulám þar sem lítil
eða engin fiskigengd er. Bygging
Steingiímsstöðvar í Soginu hefur þó
haft sambærilegar afleiðingar fyrir
urriðastofninn í Þingvallavatni og
virkjanir fyrh’ laxastofnana í Col-
umbiaánni og þverám hennar. Þegar
virkjunin var byggð eyðilagðist mik-
ilvægasti hiygningarstaður uniðans
.í vatninu og stofninn hrundi.
Á Islandi hefur ennfremur verið
allmikil andstaða við vatnsaflsvirkj-
anir vegna þess að þær kalla á að
sökkva þurfi landi undir uppistöðu-
lón. Columbiaáin er gríðarlega
vatnsmikil og virkjanimar í ánni
byggja á sjálfrennsli, en ekki uppi-
stöðulónum. Aðstæðurnar á Islandi
eru því um margt ólíkar því sem
gerist í Bandaríkjunum. En sú um-
ræða sem þar á sér stað núna um
vatnsorkuver kann að valda því að
þegar við segjum Bandaríkjamönn-
um stoltir frá því að við framleiðum
umhverfisvæna orku með vatnsafli
horfi a.m.k sumir Bandaríkjamenn á
okkur með tortryggni.
RYMINGARSALA
0)
3
0
4)
D
0
Kvenfatnaður
Bolir....... 399,-
Blússur..... 990,-
Buxur....... 890,-
Kjólar......1495,-
Dargtir.... 2990,-
Pils........ 495,-
Peysur^^^^ 995,-
Raftæki
Samlokugrill.. 1690,-
Djúpst.pottur.... 3995,-
Brauðvél 9900,-
Suðukanna..... 1495,-
Gufustraujárn... 1595,-
Ryksuga....... 5900,-
Útvarpsvekjari . 1395,-
ísvél........ 2995,-
Saumavél 13900,-
Ýmislegt
Kínaskór......99,-
Hnífasett 15stk. .. 1590,-
Pottasett 8 stk . 2995,-
BeautyBox 295,-
o
D
0
Verslunarhús Quelle Dalvegi 2 - Kópavogi - S: 564 2000