Morgunblaðið - 08.07.1998, Qupperneq 1
151. TBL. 86. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Abiola lést í nígerísku fangelsi
Banameinið
hjartaáfall?
Abuja, Washington. Reuters.
MOSHOOD Abiola, leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar í Nígeríu, lést í
gær er hann átti fund með banda-
rískum embættismönnum. Al-
mennt er talið,
að Abiola, sem
var sextugur að
aldri, hafi sigrað
í forsetakosn-
ingunum í land-
inu 1993 en her-
inn ógilti þær og
hafði hann verið
í fangelsi frá
1994. I yfirlýs-
ingu herstjórn-
arinnar segir, að banameinið hafi
verið hjartaáfall og bandarísk yfir-
völd segjast ekki hafa ástæðu til að
draga það í efa.
Brátt hefur orðið um ýmsa
kunna menn í Nígeríu að undan-
fórnu og ekki er liðinn mánuður
síðan herforinginn Sani Abacha,
sem fangelsaði Abiola, lést einnig
af völdum hjartaáfalls. Vestræn
ríki lögðu mjög hart að eftirmanni
hans, Abdulsalam Abubakar, að
leysa Abiola úr haldi og var búist
við, að það yrði gert. Herforingja-
stjórnin krafðist þess þó, að hann
og stuðningsmenn hans hættu að
gera tilkall til forsetaembættisins.
I tilkynningu herforingjastjóm-
arinnar sagði, að Abiola hefði veikst
á fundi, sem nígerískir og banda-
rískir embættismenn hefðu átt með
honum, og bandarískur embættis-
maður sagði enga ástæðu til að ef-
ast um, að banameinið hefði verið
hjartaáfall. Ur þvi yrði þó að skera
í samráði við einkalækni Abiola.
Hvatt til kosninga
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, lýsti í gær yfir hryggð sinni
vegna dauða Abiola og einnig
Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands. Skoraði hann jafnframt
á herforingjastjómina að efna til
frjálsra kosninga. Hafsat Abiola,
dóttir Moshood Abiola, sagði í gær,
að annaðhvort hefði herforingja-
stjórnin eitrað fyrir föður sínum
eða valdið dauða hans með því
veita honum ekki læknishjálp. Til
nokkurra óeirða kom í Lagos í gær
þegar fréttin barst út.
Reuters
Kauphallirnar í London og Frankfurt taka upp samstarf
Stefnt að samevrópsk-
um fj ármálamarkaði
Kom á óvart í London en ástæðan sögð tilkoma evrunnar
London. Reuters.
KAUPHÖLLIN í London og helsti keppinautur hennar, kauphöllin í
Frankfurt, tilkynntu í gær, að þær ætluðu að hafa með sér samvinnu
og leggja með því grunninn að einum evrópskum fjármálamarkaði.
Kom tilkynningin flestum á óvart en að samstarfssamningnum hefur
verið unnið á laun síðastliðna tvo mánuði.
Reuters
100. ártíð
Bismarcks
ÞJÓÐVERJAR minnast þess 30.
júlí nk., að þá verða 100 ár liðin
frá dauða Ottos von Bismarcks,
föður þýska ríkisins og fyrsta
kanslara þess. Þessi stytta af
„Járnkanslaranum" eins og hann
var kallaður er í Hamborg og
hér er verið þrífa hana. Dugir
ekkert minna til en sandblástur.
Tilgangurinn með samvinnunni
er að gera það auðveldara og ódýr-
ara að kaupa og selja eftirsóttustu
hlutabréfin á evrópskum fjármála-
markaði en frá og með næstu ára-
mótum verður tekinn upp sameig-
inlegur gjaldeyrir í flestum aðild-
arríkjum Evrópusambandsins,
ESB. Búist er við, að það muni
leiða til mikillar sameiningar fyrir-
tækja í fjármálaþjónustu.
Samvinna kauphallanna í
London og Frankfurt mun sýna sig
fyrst í því, að á næsta ári verður
fjárfestum boðið upp á einn pakka
með eftirsóttustu hlutabréfunum á
þýskum og breskum markaði. I
framhaldinu er stefnt að einu kerfi
með 300 helstu hlutabréfin innan
alls ESB og síðan að sameiginleg-
um fjármálamarkaði fyrir allt sam-
bandið.
Kauphallirnar í London og
Frankfurt eru þær langstærstu í
Evrópu og saman bera þær ægis-
hjálm yfir keppinautana, til dæmis
í París eða Amsterdam. Bresk-
þýski öxullinn verður þó minni en
kauphöllin í Wall Street í New
York, sem er sú stærsta í heimi.
Hins vegar getur verið, að sam-
vinna verði með nýja Evrópurisan-
um og Nasdaq-kauphöllinni í New
York.
Frankfurt sækir á
Á fjármálamarkaðinum hefur
þessum tíðindum verið fagnað og
samvinnan er talin munu greiða
verulega fyrir hlutabréfaviðskipt-
um og fjárfestingum í Evrópu. Þau
komu þó mörgum á óvart enda var
búist við, að kauphöllin í London
ætlaði að standa ein í baráttunni.
Hallast menn að því, að forsvars-
menn hennar hafi haft áhyggjur af
tilkomu evrunnar, nýja gjaldmiðils-
ins, þótt Gavin Casey, aðalfram-
kvæmdastjóri hennar, neiti því.
Umsvif kauphallarinnar í
London era helmingi meiri en
kauphallarinnar í Frankfurt en
samkeppnisstaða hennar hefur
versnað eftir að breska stjórnin
ákvað að taka ekki þátt í mynt-
bandalaginu að sinni. Þýska kaup-
höllin hefur á sama tíma verið að
styrkja stöðu sína á meginlandinu
með samstarfi við aðrar kauphallir.
SILVIO Berlusconi, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar á Italíu, var
fundinn sekur um spillingu í gær
og dæmdur í tveggja ára og níu
mánaða fangelsi.
Berlusconi var ekki viðstaddur
dómsuppkvaðninguna en dómarar
segja, að fyrirtækin í eignarhalds-
félagi hans, Fininvest, hafi greitt
skatteftirlitsmönnum rúmar 15
millj. ísl. kr. í mútur á árunum
1989-91 fyrir að vera ekki með
neinar athugasemdir við bókhaldið.
Ofsakátir
Brazilíu-
menn
MIKIL fagnaðarlæti brutust út
meðal leikmanna og stuðnings-
manna braziliska landsliðsins er
það hafði borið sigurorð af
Hollendingum í heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu í gær-
kvöld. Réðust úrslitin í víta-
spyrnukeppni en þá varði Taffar-
el, markmaður Brazilíu, tvö skot
frá Hollendingum. Hér er honum
þökkuð frammistaðan. Brazilíu-
menn munu verja heimsmeistara-
titilinn gegn Frökkum eða Króöt-
um nk. sunnudag.
■ fþróttir/Bl og B4
Berlusconi, sem er fyrrverandi for-
sætisráðherra, er nú leiðtogi Frels-
isbandalagsins.
Fimm spillingarmál gegn
Berlusconi eru til meðferðar í
ítalska dómskerfinu og þetta er í
annað sinn, sem hann er fundinn
sekur. f fyrra sinnið var hann
dæmdur í 16 mánaða fangelsi fyrir
að falsa bókhald Fininvest varð-
andi yfirtöku þess á Medusa-fyrir-
tækinu 1988. Þeim dómi hefur ver-
ið áfrýjað.
Berlusconi sekur
um spillingu
Mflanó. Reuters.