Morgunblaðið - 08.07.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 08.07.1998, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kaupfélag Skagfírðinga í Varmahlið býður stórmarkaðsverð yfír veturinn Vöruverð hækkað í þrjá mánuði á sumrin ÍBÚAR í nágrenni Kaupfélags Skagflrðinga í Varmahlíð þurfa að sætta sig við að borga hærra verð fyrir ýmsar vörur yfir sumartímann en þeir þurfa að borga fyrir þær að vetri til. A sumrin, þegar umferð er mest í Skagafirðinum, hækkar verslunin verð á vörum sínum til að safna upp „forða“ fyrir vetrartímann, að sögn Péturs Stef- ánssonar, útibússtjóra Kaupfélagsins i Varma- hlíð. Kaupfélagið er deild innan Kaupfélags Skag- firðinga á Sauðárkróki og verslar mikið við það en á Sauðárkróki er boðið upp á stórmarkaðsverð árið um kring, að sögn Sigurjóns Rafnssonar, fjármálastjóra Kaupfélags Skagfirðinga á Sauð- árkróki. Erum ekki sælir yfir þessu „Það er ekkert nýtt að við hækkum verð yfir sumartímann. Við erum að reyna að keyra versl- unina á stórmarkaðsverði níu mánuði á ári en þurfum að taka það verð af yfir sumarið til að geta boðið sömu þjónustu á staðnum allt árið um kring. Ég held að ég sé þó ekki með verra verð en gengur og gerist við þjóðveginn. Við erum samt ekkert of sælir af þessari ákvörðun," sagði Pétur Stefánsson í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að ein ástæða þessa væri að kaup- félagið væri dýrari eining en kaupfélög í stærri bæjarfélögum og væri til dæmis með lengri af- greiðslutíma en gengur og gerist, en opið er frá kl. 9-22.30 alla daga. Pétur vildi ekki viðurkenna að hækkað væri um neina fasta prósentutölu yfir sumartímann, hún væri breytileg. Aðspurður hvort hann hefði orðið var við óánægju íbúa í sveitinni sagðist hann ekki kann- ast við það. „Fólk skilur þessa þjónustu sem við veitum. Ég hef ekki orðið var við neina óánægju." Sama verð á 400 vörutegundum Úlfhildur Rögnvaldsdóttir á skrifstofu Neyt- endasamtakanna á Akureyri sagði að samtökin hefðu ekki heyrt af óánægju íbúa í Varmahlíð og nágrenni. „Auðvitað er þeim í Varmahlíð í sjálfs- vald sett hvaða verð þeir bjóða. Þar sem ekki er samkeppni er hægt að leyfa sér meira. Það er því ákaflega lítið hægt að gera nema neytendur láti í sér heyra,“ sagði Úlfhildur. Sigurjón Rafnsson segir að Kaupfélagið þar verðstýri vörum í ákveðnum grunnflokki þar sem í eru helstu neysluvörur. Boðið er upp á það verð meðal annars í útibúum Kaupfélagsins á Hofsósi og í Varmahlíð. „Vörur i grunnflokknum, sem eru um 400 tals- ins, eru alltaf á sama stórmarkaðsverðinu í útibú- unum og hjá okkur hér á Sauðárkróki," sagði Sigurjón. Hann sagði að með aðrar vörutegundir, sem væru á hærra verði en á Sauðárkróki, væru kaupmenn að bera sig saman við aðrar verslanir við þjóðveginn og hækkuðu eða lækkuðu verð sitt í samræmi við það. Hann sagðist hafa heyrt af óánægju íbúa á svæðinu í kringum Varmahlíð en sumum íbúum þar finnst, að hans sögn, að allar vörutegundir eigi að vera á sama verði þar og á Sauðárkróki. „Við höfum teygt okkur ansi langt og þessi grunnflokk- ur fer stækkandi hjá okkur. Við erum að auka miðstjóm okkar yfir útibúunum og Kaupfélagið í Varmahlíð er ekki komið alla leið í þeirri vinnu. Þeir versla töluvert mikið sjálfstætt ennþá.“ Lést í um- ferðarslysi MAÐURINN sem lést í bílslysi skammt frá Þorlákshöfn á sunnudagskvöld hét Gunnar Freysteinsson skógarfræðingur til heimilis á Kársnesbraut 33, Kópavogi. Gunnar fæddist 27. apríl 1970 og var hann því 28 ára gamall. Hann starfaði hjá Skógrækt ríkisins, Suðurlandsskógum, en var nýtekinn við starfi á rann- sóknarstöðinni á Mógilsá. Hann var ókvæntur og barn- laus en lætur eftir sig foreldra og systur. Greiðslur til forseta Alþingis vegna eftirlits með Ríkisendurskoðun Vefengir frétta- tilkynningu ríkis endurskoðanda Morgunblaðið/Jim Smart Dorgað í Hafnarfirði ÞORVALDUR Garðar Kristjáns- son, sem var forseti sameinaðs Al- þingis til ársins 1988, kannast ekki við að hafa samið árið 1987 við þá- verandi ríkisendurskoðanda um greiðslur til forseta Alþingis vegna eftirlitsstarfa með Ríkisendurskoð- un. Vefengir hann því efni fréttatil- kynningar ríkisendurskoðanda frá því í gær. Ríkisendurskoðandi, Sigurður Þórðarson, sendi frá sér svohljóð- andi fréttatilkynningu í gær: „I til- efni umfjöOunar í fjölmiðlum vegna greiðslna til forseta Alþingis írá Ríkisendurskoðun, þykir rétt að eftirfarandi komi fram: A árinu 1987, þegar Ríkisendur- skoðun var færð undir Alþingi, ákváðu þáverandi forseti sameinaðs Alþingis og þáverandi ríkisendur- skoðandi, að stofnunin greiddi for- setum þingsins þóknun íyrir störf í þágu Ríkisendurskoðunar. Skipan þessi hélst óbreytt tO 1. maí 1995 en þá var launakjörum forseta og vara- forseta Alþingis breytt og tóku ný kjör þeirra gOdi frá 1. júlí 1995. Þóknanir vegna starfa í þágu Ríkis- endurskoðunar lögðust þá af en þær höfðu numið 40 þús. kr. á mánuði til forseta Alþingis og 25 þús. kr. á mán- uði tíl varaforsetanna. Greiðslumar höfðu verið óbreyttar frá 1991.“ Þorvaldur Garðar Kristjánsson var forseti sameinaðs Alþingis til ársins 1988. Haft var eftir honum í Morgunblaðinu í gær að hann kannaðist ekki við þessar greiðsl- ur. Þegar fréttatilkynning ríkis- endurskoðanda var borin undir hann í gær sagðist Þorvaldur hvorki hafa gert slíkan samning né fengið greitt samkvæmt honum: „Ég tek eftir því að það er ekki getið um hverjar greiðslurnar hafi verið á árunum 1987 til 1991. Ég læt mér detta í hug að engar greiðslur hafi verið á þeim tíma. Liggur ekki beint fyrir að biðja ríkisendurskoðanda um upplýsing- ar um hvað var greitt í hverjum mánuði frá 1987 og hverjum var greitt það? Ég kannast ekki við að hafa fengið neitt greitt og ég tel mig aOtaf hafa vitað hvaðan ég hef fengið kaupið mitt.“ Sé ekki heimildina til þess Þorvaldur Garðar segir ennfrem- ur að sér sýnist hæpið að svona samningur, eins og ríkisendurskoð- andi segi hafa verið gerðan milli sín og forvera síns, HaOdórs Sigurðs- sonar, fái staðist. „Ég sé ekki heim- ildina tU þess. Þannig að þetta er aUt fáránlegt í mínum huga.“ ÆSKULÝÐS- og tómstundaráð Hafnarfjarðar stóð fyrir dorg- veiðikeppni við Flensborgar- bryggju í gær. Keppnin var opin öllum dorgveiðimönnum á aldrin- um 6 til 12 ára. Þátttakendur voru rúmlega 300 og er það svip- að og verið hefur síðustu sumur. Aflabrögð voru fremur dræm, en flestir fengu einn til tvo fiska. Tveir veiðimenn veiddu 8 fiska, en Rúnar Svavarsson var dæmdur sigurvegari þar sem hans veiði var þyngri. Mest veiddist af kola, ufsa og marhnút en krossfiskur og áll slæddust með. Björgunar- sveitin Fiskaklettur sá um gæslu en þrátt fyrir að 300 ungir veiði- menn meðhöndluðu þarna öngla og spúna þurfti bara að opna sjúkrakassann einu sinni eftir plástri. Keypti einka- rétt á skips- nöfnunum Keiko og Keiko FYRIRTÆKIÐ Grindvfldngur ehf. hefur keypt einkarétt á skipsnöfnun- um Keiko og Keikó. Jón Garðar Sig- urvinsson, eigandi Grindvíkings ehf., segir að einkarétturinn hafi verið keyptur vegna fyrirhugaðra hvala- skoðunarferða hjá fyrirtækinu. Eins og stendur séu nöfnin á tveimur trill- um sem hann er með en þau verði síðan sett á hvalaskoðunarskip. „Ég ætla mér að fara út í hvala- skoðun, og ég reikna með að byrja á því næsta sumar. Það er ekkert eins- dæmi að menn festi sér nöfn á skip með einkaleyfi, þessi nöfn lágu á lausu og ég var mest hissa á því, svo ég keypti þau bæði. Þetta kostaði mig saman um 60 þúsund krónur og nöfn- in á ég að eilífii,“ sagði Jón Garðar. Jón Garðar kvaðst ekki hafa keypt nöfnin til að græða á þeim, en hins vegar yrði auðvelt að auglýsa hvala- skoðunarferðirnar þegar bátarnir væru með umrædd nöfn. Fréttir af Landsmoti á Fréttavef HÆGT verður á Fréttavef Morgun- blaðsins að íylgjast með gæðinga- keppni á 13. landsmóti hestamanna- félaga á Melgerðismelum, sem hefst í dag kl. 9 fyrir hádegi. Þai' verða einkunnii' hestanna skráðar jafnóð- um og staða efstu hesta meðan á keppninni stendur. ■ Úrhellisrigning/28 Sérblöð í dag 8SÍDUII ► VERIÐ fjallar um sölu á fiskmörkuðum fyrstu sex mánuði ársins, vaxandi þorskútflutning SH, þróun Odda hf. á Patreksfirði með saltfisk f neytendaumbúðum og sagt er frá frönsku borginni Boulogne-sur-Mer, vaxandi miðstöð fiskdreifingar um Evrópu. TIL LITALEIKS 4SðUUR 4SÍÐURt Brasilíumenn : Birgir Leifur nálgast unnu Hollendinga | Opna breska í vítaspyrnukeppni • meistaramótid BlT j B1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.