Morgunblaðið - 08.07.1998, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 5
FRÉTTIR
Esja sækir
Esju heim
ÞEGAR danska landhclgis-
gæsluskipið „Hvidbjernen" lá
við bryggju í Reykjavík fyrir
tæpum sextíu árum fékk skip-
stjórinn Christian Ries þær
fréttir að kona hans heima í
Kaupmannahöfn hefði alið hon-
um dóttur. Skipstjórinn var að
vonum glaður með fréttirnar og
hljóp upp á dekk til að fagna
hinni nýju dóttur sinni. Þar
blasti Esjan við honum, svo
ákaflega falleg böðuð í geislum
sólarinnar, að hann ákvað sam-
stundis að dóttir sín skyldi bera
nafn fjallsins.
Esja hin danska fagnar nú
sextíu ára afmælisdegi sínum og
er af því tilefni komin til íslands
í fyrsta sinn. „Það var kominn
tími til að Esja fyndi rætur sín-
ar og fengi að sjá með eigin
augum hvaðan hún fékk nafnið
sitt,“ sagði Annette Just frænka
Esju, sem gaf Esju ferðina í sex-
tugsafmælisgjöf. „Hvað annað
getur maður gert fyrir frænku
sína sem ber nafnið Esja en að
bjóða henni til íslands!“ bætti
hún við.
Eina Esjan í Danmörku
Við komuna til landsins á
sunnudag var það fyrsta sem
þær frænkur gerðu að virða Esj-
una vel fyrir sér, keyra í kring-
um hana og ganga upp á hana.
„Mig hefur alltaf langað til að
sjá fjallið sem ég er skírð eftir
og það er yndislega fallegt,"
sagði Esja eftir komuna til
Reykjavíkur. „Esja er mjög óal-
gengt nafn í Danmörku og ég
held að ég sé sú eina. Sumir
spyrja mig hvort ég sé íslensk
Morgunblaðið/Jim Smart
ESJA Ries, til vinstri, og Annette Just frænka hennar voru ánægðar með að hafa séð Esjuna í sól og blfðu. Á
myndinni er hún hins vegar sveipuð skýjahulu í baksýn.
þegar ég segi til nafns. Þeir
hljóta að hafa komið hingað,“
sagði hún.
Faðir Esju dó í seinni heims-
styrjöldinni þegar hún var rúm-
lega tveggja ára. Hún á litlar
minningar um hann aðrar en þá
að hann gaf henni nafnið henn-
ar.
Þær frænkur voru hinar
ánægðustu með að vera komnar
hingað. Just hefur tvisvar áður
komið til íslands, en aldrei áður
séð Esjuna fyrir rigningu og
þoku. Nú höfðu þær hins vegar
heppnina með sér því sól og
blíða gáfu Esjunni líklega svip-
aðan blæ og þegar Christian
Ries leit hana augum fyrir sextíu
árum.
CHRISTIAN Ries í Reykjavíkurhöfn fyrir framan danska skipið
„Hvidbjornen" fyrir sextíu árum.
Geysissvæðið
Reynt að
fylgja tillög-
um nefndar
GUÐMUNDUR Bjarnason um-
hverflsráðherra segist bíða eftir til-
lögum nefndar, sem skipuð var fyrir
ári tU að kanna mál Geysissvæðisins.
„Sérstök nefnd hefur verið að vinna í
málum Geysissvæðisins af hálfu
ráðuneytisins og ég hef nýlega beðið
þá nefnd um hugmyndir og tillögur.
Eg mun auðvitað reyna að fylgja eft-
ir þeim hugmyndum eða tillögum
sem ég fæ, en það er ekki í hendi
ennþá en gæti orðið síðar í sumar
eða í haust.“
I nefndinni eiga m.a. sæti fulltrúar
umhverfis- og landbúnaðarráðu-
neyta, sveitarfélaga og alþingis.
Fyrir um viku gagnrýndi Helgi
Torfason, jarðfræðingur hjá Orku-
stofnun, það í samtali við Morgun-
blaðið að Geysissvæðið hefði verið
svelt um fjárframlög tU rannsókna og
úrbóta á sama tíma og um 22 milljón-
um hefði verið varið til að gera eftir-
lUdngu af hver í Öskjuhlíð, sem sé
meira fé en varið hefur verið tU Geys-
issvæðisins frá upphafi.
Guðmundur Bjarnason sagðist
ekki hafa yfir því fé sem sett var í
hverinn í Öskjuhlíð að ráða, því þar
hefði verið um fjármuni borgarinnar
að ræða. Hann kvaðst heldur ekki
geta dæmt um hvort menn hefðu
kastað krónunni en geymt eyrinn
með því að draga við sig rannsóknir
og aðgerðir á Geysissvæðinu. Nefnd-
inni, sem var skipuð fyrir um ári,
hefði verið ætlað að fá fram sjónar-
miðum allra aðila sem málið varðaði,
en skiptar skoðanir hefðu verið um
hverinn og hvort eigi að hjálpa hon-
um til að gjósa, eða láta hann eiga
sig og láta náttúruna fara sínu fram.
Utvarp og
segulband
Veltí oo Rafdnfiur Rafdnfnar Samlitir
veiu-og hbðarspeglar níður , ,•«samllI1lr
vokvastýri , ruour hliðarspeglar og
' hurðahandföng
Litaó
Stillanlegir
höfuðpúðar á
aftursætum
Líknarbelgir fyrir
farþega og ökumann
Kraftmikil 1600 vél,
16 ventla, 116 hestöfl
Samlitir
stuðarar
Niðurfellanleg
aftursæti
Samlæsingar
------Vindskeið
Sparneytinn
Góðurá
íslandi
Nú er tækifæri til að gera reyfarakaup á ríkulega búnum Hyundai Elantra því sölumenn okkar
eru í einstaklega góðu samningsskapi þessa dagana.