Morgunblaðið - 08.07.1998, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 7
FRÉTTIR
Oskir grunnskóla Reykjavíkur vegna nemendafjölgunar
Yilja 20 nýjar stofur
ÓSKIR komu frá grunnskólunum
í Reykjavík í vor um 20 nýjar
kennslustofur til að mæta þörfum
vegna fleiri nemenda og til að
flýta einsetningu skóla sem eru
tvísetnir. Um helmingur þessara
stofa er vegna tveggja skóla,
Borgaskóla sem er nýr skóli, og
Engjaskóla. Farið var yfir ósk-
irnar hjá Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur og varð niðurstaðan
sú að bæta þurfi við 15 stofum.
Greinargerð Fræðslumiðstöðv-
arinnar um málið var lögð fram í
borgarráði síðastliðinn þriðjudag.
Við grunnskóla Reykjavíkur eru í
dag 75 lausar kennslustofur og
segir í greinargerðinni að sá
fjöldi samsvari stofufjöldanum í
þremur til fjórum meðalskólum í
borginni. Þegar óskir um fleiri
stofur lágu fyrir var reynt hjá
Fræðslumiðstöðinni að finna allar
mögulegar aðrar lausnir innan
skólanna en að bæta við lausum
stofum, til dæmis að endurskipu-
leggja röðun nemendahópa með
einhverjum hætti. Einnig var haft
í huga að verið er að hanna við-
byggingar, reisa þær og undirbúa
hönnun við fjölda skóla sam-
kvæmt einsetningaráætlun sem
kemur til framkvæmda á næstu
fjórum árum.
Niðurstaða Fræðslumiðstöðv-
arinnar er að bæta þurfi við 15
stofum við skóla þar sem nem-
endafjölgun varð mest. Leysa má
mál nokkurra skóla með því að
flytja 9 stofur milli skóla. Á síð-
asta skólaári voru 566 kennslu-
stofur í grunnskólum Reykjavík-
ur og fjöldi bekkjardeilda 648.
Næsta skólaár verða bekkjar-
deildir 656.
Listfengur
ferðalangur
ANDRÉ DE JONG var búinn að
stilla upp tveimur myndavélum
og beið þess að Snæfellsjökull
birtist úr skýjum. Hann var bú-
inn að bíða einn sólarhring og
var tilbúinn að bíða iengur. Þetta
er í fjórða skiptið sem hann er á
ísiandi og verður nú í fjórar vik-
ur. Hann ferðast um, myndar og
málar og heldur síðan sýningar
og gefur út bækur í örsmáu upp-
lagi í heimalandinu Hollandi.
Endurmenntunar-
stofnun HI
Nýr for-
stöðumaður
•STJÓRN Endurmenntunarstofn-
unar Háskóla íslands hefur ein-
róma ráðið Kristínu Jónsdóttur for-
stöðumann
stofnunarinnar
frá 1. ágúst nk.
Kristín lauk
B. Ed. prófi frá
Kennaraháskóla
íslands árið 1985
og starfaði sem
kennari í eitt ár.
Hún lauk M. Ed.
prófi í kennslu-
fræðum frá University of Was-
hington í Seattle í Bandaríkjunum
árið 1988.
Að námi loknu vann Kristín sem
námsefnishöfundur hjá Boeing í
Seattle þar sem hún samdi náms-
efni fyrir flugmenn og fluvirkja.
Hún starfaði einnig við slíka náms-
efnisgerð í Englandi. I framhaldi af
því hélt hún til frekara náms i
stjórnunar- og viðskiptafræðum í
Bandaríkjunum.
Frá 1992 hefur Kristín lengst af
verið fræðslustjóri Eimskipafélags
Islands. Hún var fræðslustjóri Is-
landsbanka um tíma en kemur nú
úr starfi starfsmannastjóra ís-
lenski-ar erfðagreiningar. Kristín á
einn son, Halldór Ai-nþórsson sem
er 7 ára.
15 stæröir
Uppsetningabúðin
Hverfisgötu 74,
sími 552 5270.
www.mbl.is
Næsti!
Ertu örugqlega með næga ferðatryggingarvernd
þegar þú ferð í ferðalagið út í hinn stóra heim?
F+, stóra fjölskyldutryggingin frá VÍS, inniheldur feröatryggingu auk fjölda
annarra trygginga sem eru nauðsynlegar fyrir fólk í ferðahug. Meö F+ er ekki
þörf á ad leita töfralækninga á framandi slóðum því tryggingin inniheldur
sjúkrakostnaðartryggingu án sjálfsábyrgðar. Auðvitað er heimilið einnig vel
tryggt meðan á ferðalaginu stendur.
Veldu fjölskyldutryggingu þar sem víðtæk ferðatrygging er innifalin.
Öryggiskort VIS
Allir sem eru með F+ fjölskyldutryggingu
fá sérstakt öryggiskort sem er lykill
að auknu öryggi á ferðalaginu erlendis.
og þú nýtur bestu kjara hjá VIS - strax.
Sími 560 5060 • www.vis.is
1? * Érk 1 1 ápfi 281 I# 3 M ; 'S- ~N , H
1 v_.. 1 B 1 u y y o \i\i Ci 1 I 1 1