Morgunblaðið - 08.07.1998, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Finnur frækni kom, sá og sýndi að hann „sér ekkert“, „heyrir ekkert „og“ segir ekkert“.
Amma og mamma
eru enn að
nota sínar
AEG!
Ég treysti þeim
n
f Lavamat W 80
> Tekur 5 kg
* Vindingarhraði: 800/400 snúningar
> Ryöfrír belgur og tromla
> Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi nýjasta tækni V
»"Fuzzy-Logic" enginn 1/2 takki
»"ÖK0" kerfi (sparar sápu)
> Öll þvottakerfi
»Ullarvagga
»Þvottahæfni "B" Þeytivinduafköst "C"
0)
Verð 59.900,- stgr. j
•TekurSkg
• Vindingarhraði: 1000/600 snúningar
• Ryöfrír beigur og tromla
• Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi - nýjasta tækni. "Fuzzy-Logic
enginn 1/2 takki
• "ÖKO" kerfi (spararsápu)
• Öll þvottakerfi ásamt sérstöku blettakerfi
• Ullarvagga
• Þvottahæfni "B" Þeytivinduafköst “C"
| BRÆÐURNIR
(jfp OFMSSON
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
Örugg þjónusta í 75 ár
Verð 69.900,- stgiTJ
f Lavamat W 1010
f Lavamat 74600
• Rafeindastýrður forskriftarvalsrofi (vélin sem
hugsar)
• Sýnir í Ijósaborði gang forskriftar
• Hægt að seinka gangsetningu forskriftar allt að
19tímum
• Sýnir í Ijósaborði of mikla sápunotkun
• Sérstakur takki fyrir kælingu og aukaskolun
• Tekur 5 kg
• Vindingarhraði: 1400,1000,800,600 og 400
snúningar
• Ryðfrír belgur og tromla
• Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi - nýjasta tækni
"Fuzzy-Logic" enginn 1/2 takki
• "ÖKO" kerfi (sparar sápu)
• "UKS“ kerfi, jafnar tau í tromlu fyrir vindingu
• Froðuskynjunarkerfi (bætir við aukaskolun)
• Öll þvottakerfi ásamt sérstöku þlettakerfi
• Ullarvagga
• Þvottahæfni "A” Þeytívinduafköst "B"
— Verð 89.900,- stgr. J
UMBOÐSMENN
_______Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Heimahornið Stykkishólmi. Ásubúð,
Búoardal. VestfirólR Geirseyrarbúöin, Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, ísatiröi Norðurland: Kt. Steingrímsljarðar, Hólmavlk. Kl. V-Hún„ Hvammstanga. Kl. Húnvetninga, Blönduósi. Skaglirðingabúð, Sauðárkróki. KEA
byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA, Dalvik. KEA ólafstiröi. KEA, Siglufirði. Kl. Þingeyinga, Húsavík. Urð Raularhöln. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstöðum. Hjalti Sigurðsson, Eskilirði. Kf. Vopnfirðinga, Vopnafiröi. Verslunin
Vík, Neskaupstað. Kl. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsliröi. KASK, Höfn. KASK, Djúpavogi. Suóurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn, Ralmagnsverkstæði KR, Hvolsvelli. Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklauslri. Klakkur, Vlk.
Brimnes, Veslmannæyjum. Reykjanea: Stapafell, Kellavík. Ralborg, Grindavík._________________________________________________________________________
íslendingafélagið í Seattle
Guy Benjamin Chapman
hana
Islenskunni hald-
ið við á vikuleg-
um fundum
Yestur-íslendingur-
inn Guy Benjamin
Chapman sem er
búsettur í Seattle í Banda-
ríkjunum er staddur hér á
landi. Hann er í stjórn Is-
lendingafélagsins í
Seattle.
„íslendingafélagið í
Seattle er nokkuð öflugt, í
því eru um 175 félagar en
auk þess eru á bilinu
50-75 manns sem fá
reglulega fréttabréfið
okkar. Borgirnar Seattle
og Reykjavík eru systra-
borgir.“
-Hvernig er starfsemi
félagsins háttað?
„Þeir félagar sem hafa
aðstöðu til hittast á hverj-
um þriðjudagsmorgni, fá
sér kaffí saman og tala ís-
lensku, þ.e. þeir sem
kunna. Með þeim hætti, að hitt-
ast svona vikulega, er hægt að
halda íslenskunni við. Að loknu
kaffí vinnum við stundum við
Norræna menningarsafnið eða
Nordic Heritage Museum en að
því eiga, auk okkar, aðild Finn-
land, Svíþjóð, Noregur og Dan-
mörk. Hvert land er með sitt
herbergi og þar er reynt að end-
urspegla sögu og menningu
Norðurlandanna. Við höfum
reynt að sýna lífshætti íslenskra
innflytjenda þegar þeir komu til
Norður-Ameríku. Þar er m.a.
baðstofa og kirkja og ýmsar
gamlar myndir. Þá erum við með
til sýnis íslenskan fatnað eins og
t.d. lopapeysur og sýnishorn af
ýmsu sem tengist sjávarútvegi
og landbúnaði áður fyrr.“ Guy
segir að ef einhverjir geti séð af
munum sem endurspegli sögu og
menningu landsins þá séu slíkar
gjafir vel þegnar. Hann segir að
á síðasta ári hafí íslensku for-
setahjónin komið á safnið og það
hafi verið stór dagur fyrir Is-
lendingafélagið í Seattle og safn-
ið.
-Þið eigið líka orðið myndar-
legt bókasafn?
„Já, við eigum orðið nokkurt
safn íslenskra bóka sem stendur
félagsmönnum okkar til boða. Þá
erum við líka með hátíðarkvöld-
verð í kringum 17. júní, höldum
upp á sumardaginn fyrsta, jóla-
sveinninn kemur í heimsókn á
jólaballinu okkar og síðan er
þorrablótið ómissandi liður í
starfsemi félagsins.
-Þið slepptuð þorrablótinu í
ár?
„Já, að þessu sinni hélt íslend-
ingafélagið í Seattle ekki þorra-
blót og ástæðurnar eru
nokkrar. Ein þeirra er
að við áttum erfitt með
að koma okkur saman
um hvort hafa ætti um
hönd áfengi eða ekki. ______
Einhverjir tóku sig
saman og héldu eigið þorrablót
en að ári munum við að sjálf-
sögðu halda þorrablót því þau
eru ómissandi liður í starfsem-
inni.“
- Haldið þið ykkur þá við sí-
gildan íslenskun þorramat?
„Já, við höfum fengið sviðin,
hrútspungana og allt sem til-
heyrir með flugi frá Islandi og
höfum fengið gesti langt að til að
gæða sér á þessum herramanns-
mat eða allt frá Kaliforníu."
- Nú eru borgirnar Reykjavík
og Seattle systraborgir. Hefur
það einhverja þýðingu fyrir Is-
lendingafélagið?
►Guy Benjamin Chapman er
fæddur í Washington árið
1933. Afi hans og amma voru
Valdimar Markússon Eyford
ættaður úr Eyjafirði og María
Benjamínsdóttir ættuð úr
Skagafirði og Húnavatnssýslu.
Þau fóru út í kringum árið
1890 hvort í sínu lagi. Guy
starfaði um 35 ára skeið við
rafbúnað ýmiskonar en er nú
kominn eftirlaun.
Eiginkona hans er Carol
Chapman og eiga þau tvo syni,
Jeffrey og Eric.
„Það að borgirnar eru systra-
borgir þýðir að þær reyna að
skiptast á upplýsingum og hug-
myndum. Okkur í Islendingafé-
laginu langar að þróa þessi
tengsl þannig að t.d. nemendur í
framhaldsskólum í Seattle og
Reykjavík geti heimsótt systra-
borg sína til að kynnast landi og
þjóð.“
- Hvað ert þú að gera á Is-
landi?
„Ég kom hingað á síðasta ári í
þeim tilgangi að skoða landið og
nálgast uppruna minn. Fyrir
tveimur árum vissi ég bara
skírnarnafn ömmu og afa. Það
var svo fyrir tilviljun að ég fann
á netinu heimasíðu Hálfdans
Helgasonar sem aðstoðaði mig
við að ná sambandi við fjöl-
skyldu mína hér á landi. Slóð
heimasíðunnar Emigration from
Iceland to North-America er
http://ny-
herji.is/— halfdan/westward/ves
tur.htm varð vendipunktur fyrir
mig og án hennar hefði ég aldrei
fundið þessar ugplýsingar um
uppruna minn. Ég hef fengið
tækifæri til að kynnast skyld-
mennum mínum hér-
lendis og ætla að
heimsækja þau í
þessari ferð. Ég dvel
hérna til 15. júlí, fer
_^___ til Akureyrar og
heimsæki ættingja í
Eyjafirði, á Húsavík og kannski
í Skagaftrði.“
- Hvernig líkar þér hér á
landi?
„Mér finnst Island frábært
land. Mild veðráttan kom mér á
óvart og svo er fólkið vingjarn-
legt og maturinn það góður að ef
ég dveldi hér um hríð yrði ég ak-
feitur á því að borða kleinur og
vínarbrauð.“
Mamma sagði mér alltaf að
það væri frábært að vera Islend-
ingur en ég vissi ekki hversu
gott það er fyrr en ég fékk tæki-
færi til að koma hingað og kynn-
ast landi og þjóð.
Ekki komist á
sporið án
heimasíðunnar