Morgunblaðið - 08.07.1998, Side 11

Morgunblaðið - 08.07.1998, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 11 FRÉTTIR Hlutdeild verkalýðshreyfíngarinnar í vinstri sameiningu Skiptar skoðanir um hvort viðræð- ur geti farið fram Skiptar skoðanir eru á meðal verkalýðs- leiðtoga um það hvort verkalýðshreyfíngin geti tekið þátt 1 viðræðum um sameiginlegt framboð á vinstri vængnum. VE RKALÝÐSLEIÐTOGAR hafa ólíkar skoðanir á því hvort hreyflng launafólks geti tekið þátt í viðræð- um um samfylkingu vinstri manna, en í tillögu Margrétar Frímanns- dóttur, sem samþykkt var á auka- landsfundi Alþýðubandalagsins um síðustu helgi, er lögð áhersla á að „samstarf verði haft við verkalýðs- hreyfinguna í því málefnastarfi sem framundan er“. „Ég vara mjög alvarlega við því að fara að færa verkalýðshreyfing- una yfir í flokkspólitískt starf,“ segir Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur. „Miðað við það sem fram hefur kom- ið í fréttum í sambandi við samein- ingu vinstri aflanna hefur verkalýðs- hreyfingin verið bendluð við þá sam- einingu og sagt beinlínis að það sé unnið að henni í samstarfi við verka- lýðshreyfínguna. Ef ein pólitísk samtök ætla að fara að nota verka- lýðshreyfinguna í þágu tiltekins flokks þá er verið að nota verkalýðs- hreyfinguna í flokkspólitískum til- gangi.“ Magnús segir að vissulega hafi forráðamenn ASI gætt þess að greina á milli persónulegra skoðana sinna og starfa í þágu verkalýðs- hreyfmgarinnar eins og komið hafi skýrt fram í bréfi Grétars Þorsteins- sonar, forseta ASÍ, til Steingríms J. Sigfússonar í Morgunblaðinu 1. júlí síðastliðinn. „Hins vegar kemur það fram í fjölmiðlum í frásögn af ræðu Margrétar Frímannsdóttur á lands- fundi Alþýðubandalagsins að það sé verið að vinna að þessari sameiningu í samstarfi við verkalýðshreyfing- una. Þá er það alveg á skjön við það sem forseti Alþýðusambandsins hafði sagt. Svo hrökk maður við þegar sagt var frá því að á flokks- stjórnaifundi Alþýðuflokksins hefði stigið í pontu Signý Jóhannesdóttir frá Siglufirði og hún hefði talað í nafni Alþýðusambands Islands. Ef hún er að flytja boðskap og leggja áherslu á sameiningu á þessum fundi hjá Alþýðuflokknum og telur sig tala í nafni Alþýðusambands Is- lands hlýt ég að spyrja, hvar hefur hún fengið umboð til þess?“ Magnús segist alls ekki geta fall- ist á að verkalýðshreyfingin geti út- nefnt fulltrúa til viðræðna við hið nýja afl á vinstri vængnum. „Það yrði þá að ákveðast af verkalýðs- hreyfingunni og ræðast innan henn- ar. Það er hins vegar ekkert við það að athuga þótt einstakir menn fari í persónulegum erindum og ræði sameiningarmál." Talaði sem alþýðu- bandalagskona Signý Jóhannesdóttir, sem er for- maður Vöku á Siglufirði, var spurð um það hvort hún hefði talað í nafni Alþýðusambandsins á flokksstjórn- arfundi Alþýðuflokksins. „Ég var kynnt á fundinum sem fulltrúi ASI en ég lagði á það áherslu í ræðu minni að ég talaði fyrst og fremst sem alþýðubandalagsmanneskja. Auðvitað er ég formaður í verka- lýðsfélagi og varamaður í miðstjórn Alþýðusambandsins en ég leit aldrei á mig sem neinn sérstakan fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar og hef ekkert vægi sem slík.“ Signý segir að verkalýðshreyfingin geti gengið til ýmiss konar viðræðna en henni væri ekki hægt að ráðstafa sem ein- hverju pólitísku afli. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar á Akureyi'i, segh- að allir flokkar reyni að hafa gott samband við verkalýðshreyfinguna. Hann sjái ekki annað 1 ummælum Margrétar Frímannsdóttur, formanns Alþýðu- bandalagsins, en að sameiningar- sinnar vilji hafa samband við verka- lýðshreyfinguna eins og allir flokk- ar. „Ég geri greinarmun á því hvað verkalýðshreyfingin gerir og hvað forystumenn verkalýðshreyfingar- innar gera. Menn eru í hinum ýmsu flokkum sem persónur en ekki sem fulltrúar verkalýðshreyfíngarinnar.“ Annars sagði Björn að þetta hefði ekki verið rætt á sínum vettvangi og hann sæi ekki ástæðu til þess. Verkalýðshreyfingin þarf að vera pólitiskari „Ég sé ekki hvernig menn ætla að lifa í þessu þjóðfélagi án þess að taka pólitíska afstöðu," segir Hall- dór Bjömsson, formaður Dagsbrún- ar-Framsóknar. Hann kveðst fylgj- andi viðræðum milli verkalýðshreyf- ingarinnar og sameinaðs afls á vinstri vængnum. Verkalýðshreyf- ingin þurfi almennt að vera pólitísk- ari en hún hafi verið. Til dæmis eigi hún ekki að una því að vera ekki höfð með í ráðum um málefni sem varða launafólk. „Ég tel það ekki vera spor aftur á bak,“ segir Hall- dór. Hann segist persónulega fylgj- andi sameiningu á vinstri vængnum en hafi í því efni ekki umboð til að tala fyrir félagið sitt. Morgunblaðið/Benedikt Jónsson Ævintýri við tjörnina ÞAU voru eins og klippt út úr ævintýrabók, stúlkan, kötturinn og lífvana svanurinn nið- ur við Reykjavíkurtjörn. Kötturinn í hlut- verki illra vætta sem vilja svaninum illt en Iitla stúlkan líkust ævintýraprinsessunni Dimmalimm sem tregar dauða svansins en leysir við það draumaprinsinn óvænt úr álögum. FUF í Revkjavik Kæra for- mannskjör SUF STJÓRN Félags ungra fram- sóknarmanna í Reykjavík hefu kært formlega til yfir- stjórnar flokksins formanns- kjör Sambands ungra fram- sóknarmanna sem fram fór í júní. Ekki hafa tekist sættir með þeim tveimur fylkingum sem tókust á í formannskjöri og hafa því stuðningsmenn Þor- láks Traustasonar, formanns F élags ungra framsóknar- manna í Reykjavík, lagt fram kæru. I henni kemur fram óá- nægja þeirra með framgöngu stuðningsmanna núverandi formanns SUF, Árna Gunn- arssonar, en þeir saka hann um að hafa brotið lög SUF frá árinu 1994 sem fjalla um framkvæmd kosninga til stjórnar félagsins. Að sögn Halldórs Ásgríms- sonar, formanns Framsóknar- flokksins, mun kæra stjómar FUF verða tekin fyrir á næsta fundi landsstjómar flokksins. MorgunblaðiWim Smart MARGRÉT Friðriksdóttir formaður Skólameistarafélags íslands tek- ur við tilraunasettum frá Birni Bjarnasyni. 150 tilraunasett til framhaldsskólanna MARGRÉT Friðriksdóttir formað- ur Skólameistarafélags Islands og skólameistari Menntaskólans í Kópavogi tók við 150 tilraunasett- um af menntamálaráðherra Bimi Bjarnasyni í gær. Menntamálaráðuneytið keypti settin fyrir Ólympíuleikana í eðlis- íræði sem staðið hafa síðustu daga en keppni lauk í fyrradag. í til- raunasettunum eru 600 rafeinda- tæki og munu þau nýtast til tilrauna í rafsegulfræði. Andvirði tilrauna- settanna er 10 milljónir. Skortur hefur verið á kennslutækjum sem þessum í eðlisfræði og munu þau bjóða upp á ákveðnar nýjungar í verklegri kennslu í eðlisfræði. Sumarútsala 35-50% afsláttur Slæður, belti og auðvitað vefnaðarvara. Komið, sjáið, ókeypis snið íylgja. ' Laugavegi 71, sími 551 0424 Armúta 13- Simi 575 1220 - 575 1200 - Fax 568 3818 1.185.500, HYunoni - til framtiðar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.