Morgunblaðið - 08.07.1998, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 08.07.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 13 AKUREYRI Forseti norska Stórþingsins í opinberri heimsókn á Islandi Góð samvinna milli þinga Norðurlandanna KIRSTI Kolle Grondahl, forseti norska Stórþingsins, er nú í opin- berri heimsókn á Islandi í boði Ólafs G. Einarssonar, forseta Al- þingis. Með í fór er eiginmaður hennar, Sven Erik Grondahl, og Hans Brattesto, skrifstofustjóri Stórþingsins. Auk forseta Alþingis eru m.a. í íslenska fóruneytinu Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri Alþingis, og Kristín Ólafsdóttir, fuÚtrúi alþjóðasviðs Aiþingis, og í ferð um Norðurland voru einnig þingmennirnir Tómas Ingi Olrich og Valgerður Sverrisdóttir. Þetta er annað kjörtímabilið sem Grondahl er forseti Stórþingsins, en hún tók við embættinu árið 1993. Hún hefur einnig gegnt starfi menntamálaráðherra frá 1986 til 1989 auk þess sem hún var ráð- herra þróunarmála 1988 til 1989. Heimsóknin hófst síðdegis á sunnudag, en á mánudag var flogið að Mývatni og farið í skoðunarferð um svæðið, m.a. var ekið að Grjóta- gjá og Dimmuborgum og hádegis- verður snæddur á Hótel Reynihlíð. Hópurinn kom til Akureyrar síð- degis á mánudag þar sem kvöld- verður var snæddur á Fiðlaranum í boði Kristjáns Þórs Júlíussonar bæjarstjóra. Norðmenn kunna að klæða sig í gærmorgun voru gestirnir að fara í skoðunarferð um Akureyri með leiðsögn Jóhanns Sigurjóns- sonar og létu hellirigningu ekki hafa áhrif á sig. „Norðmenn kunna að klæða sig,“ sagði Jóhann, en Ólafur brá sér í næstu verslun og fékk fínan regngalla á þúsund krónur sem hann skartaði m.a. í siglingum með kútter Jóhönnu um Eyjafjörð. Áður hafði hópurinn heimsótt Valgerði Sverrisdóttur al- þingismann á Lómatjörn sem bauð til hádegisverðar. „Góður kunningi minn færði mér þorsk sem hann veiddi úti á firði í gær og ég bjó til fiskibollur með dyggri aðstoð Sig- ríðar systur minnar," sagði Val- gerður, sem að sjálfsögðu hafði með kartöflur úr garði fjölskyld- unnar á Lómatjörn og í eftirmat var skyr með rjómablandi. „Þing Norðurlandanna hafa átt með sér mjög góða samvinnu til margra ára. Við hittumst reglulega og ræðum ýmis sameiginleg mál er okkur varða og eigum þar mjög góðan vettvang. Með því að hittast kynnumst við hvert öðru og eigum betra með að starfa saman á eftir,“ sagði Grondahl. Fengum lánaðan bfl og sumarbústað Fyrir tveimur árum bauð hún Ólafi G. Einarssyni í heimsókn til Noregs og sagði hann nú vera að endurgjalda þá heimsókn. „Ég hef komið til Islands nokkrum sinnum áður, bæði í opinberum erinda- gjörðum og eins höfum við, ég og eiginmaður minn, verið hér í sum- arleyfi." Fyrir fimm árum ferðuð- ust þau í sumarfríi sínu um Suður- land og áttu góða daga. „Við feng- um lánaðan bíl og sumarbústað og ferðuðumst víða, fórum á Vatna- jökul, til Vestmannaeyja og skoð- uðum Þingvöll." Hún kvaðst nú vera í fyrsta sinn á ferð um Norðurland og var hrifin af Mývatni, en veðrið lék við norsku gestina þegar ferðast var um svæðið á mánudag. „Ég var mjög ánægð með daginn, við sáum margt forvitnilegt og veðrið var gott. Það gerir ekkert til þó að rigni á okkur núna, ég er búin að kaupa góðar peysur og er búin undir hvaða veður sem er,“ sagði forseti norska Stórþingsins. Heimsókninni lýkur í Reykjavík Gestimir héldu suður til Reykja- víkur í gærkvöld, en í dag, mið- vikudag, verður hádegisverður í boði Knut Elias Taraldset, sendi- herra Noregs^ þá verður fundur með Halldóri Ásgeirssyni utanrík- isráðherra og síðar Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur borgarstjóra. Norsku gestimir munu einnig heimsækja Stofnun Áma Magnús- sonar og snæða kvöldverð í Viðeyj- arstofu í boði forseta Alþingis. Á morgun hittir forseti norska Stór- þingsins Davíð Oddsson forsætis- ráðhema og á fund með Ólafi G. Einarssyni og loks verður Nor- ræna húsið heimsótt, en heimsókn- inni lýkur síðdegis. Morgunblaðið/Björn Gíslason JÓHANN Sigurjónsson leiðsögumaður bendir á eitthvað áhugavert í Lystigarðinum á Akureyri, en aðrir á myndinni eru Friðrik Olafsson, skrifstofustjóri Alþingis, Kristín Ólafsdóttir, fulltrúi alþjóðasviðs Al- þingis, Tómas Ingi Olrich, alþingismaður, Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis, Kirsti Kolie Grondahl, forseti norska Stórþingsins, og eigin- maður hennar, Sven Erik Grondahl. KIRSTI Kolle Grondahl, forseti norska Stórþingsins, er nú í heimsókn á íslandi í boði Óiafs G. Einarssonar, forseta Alþingis. Morgunblaðið/Guðmundur Skúlason Mikil um- ferð um Eyjafjörð UMFERÐ um Eyjafjörð er nú mikil vegna Landsmóts hesta- manna á Melgerðismelum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ákureyri hefur umferðin gengið vel. I öryggis- skyni hefur hámarkshraði ver- ið lækkaður niður í 70 km hraða á klst. frá Hrafnagili fram að Melgerðismelum. Lög- reglan minnir líka á að há- markshraði um Hrafnagils- byggðina eru 50 km á klst. Hraðskákmót Krappur dans í Eyja- fjarðará ÞEIR komust í hann krappann, félagarnir sem ætluðu að fara yf- ir Eyjafjarðará að landsmóts- svæði hestamanna á Melgerðis- melum í Eyjafirði í gær. Þeir óku út í ána austanmegin og ætluðu yfir, en ekki vildi betur til en svo að þeir misstu bflinn á flot og fór hann niður ána töluverðan spotta. Þeir komust klakklaust út úr bflnum og biðu aðstoðar á þaki Hummer-jeppans sem þeir ferðuðust á. Björgunarmenn fóru í flotgöllum út í ána og síðan var jeppinn dreginn á Iand. Aksjon SKÁKFÉLAG Akureyrar efnir til hraðskákmóts í skákheimilinu að Þingvallastræti 18 á morgun, fimmtudaginn 9. júlí. Allir eru vel- komnir. Miðvikudagur 8. júh' 21 :OO^Sumarlandið Þáttur ætlaður ferðafólki á Akureyri og Akureyringum í ferðahug. Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi, Sigurboginn Laugavegi, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Bylgjan Kópavogi, Sara Bankastræti, Sandra Smáratorgi, Hringbrautarapótek, Nana Hólagarði, Tara Akureyri, Bjarg Akranesi, Krisma ísafirði, Hilma Húsavík, Miðbær Vestmannaeyjum, Apótek Keflavíkur, Apótek Egilsstaða, Gallerí Heba Siglufirði, Sauðárkróksapótek, Borgarness Apótek.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.