Morgunblaðið - 08.07.1998, Síða 18

Morgunblaðið - 08.07.1998, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Dregur úr atvinnu- leysi ALLS voru 4,269 milljónir manna án atvinnu í Þýskalandi í síðasta mánuði, þegar reiknað hefur verið með árstíðabundnu atvinnuleysi, samkvæmt upp- lýsingum frá atvinnumálaráðu- neytinu. Hlutfall atvinnu- lausra, sé ekki tekið tillit til árstíðar, var 10,5%, en í maí var það 10,9%. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins eru árstíðabundin áhrif, efnahags- uppgangur og aðgerðir stjórn- valda helstu ástæður þess að atvinnuleysi fer minnkandi. Nyrup enn óvinsælli VINSÆLDIR Pouls Nyrups Rasmussens, forsætisráðherra Danmerkur, dala enn ef marka má skoðanakannanir, og nýtur hann nú í fyrsta sinn minna fylgis en formaður Venstre, Anders Fogh Rasmussen, til embættis forsætisráðherra. 48% aðspurðra vildu heldur að Fogh Rasmussen gegndi emb- ættinu en 42% voru íylgjandi Nyrup. í apríl voru 50% fylgj- andi Nyrup en 38% Fogh Rasmussen. Gaddafí undir hnífínn MUAMMAR Gaddafí, leiðtogi Líbýu, gekkst undir aðgerð vegna mjaðmagrindarbrots er hann varð fyrir á æfíngum. Að- gerðin gekk vel, að sögn opin- berrar fréttastofu Líbýu, JANA. Gaddafi er 56 ára. Óhappið henti hann á mánu- dag. Fundað um ósonlagið SÉRFRÆÐINGAR frá rúm- lega eitt hundrað löndum hitt- ust á fundi í Genf í gær til þess að ræða hugsanlegar aðgerðir til að hindra frekari eyðingu ósonlagsins. Fundurinn er haldinn á vegum Sameinuðu þjóðanna og stendur í þrjá daga. Meðal þess sem rætt verður um er að koma upp sölukvótakerfi á ósoneyðandi efni. 1998 heitasta árið FYRSTU sex mánuðir þessa árs eru heitasti fyrri helmingur árs í heiminum frá því mæling- ar hófust - og E1 Nino er ekki meginorsökin. Breskir veður- fræðingar greindu frá þessu í gær. Fyrstu upplýsingar, sem rannsakaðar hafa verið í bresku Veðurstofunni og Há- skólanum í Austur-Anglíu, benda til þess að meðalhiti frá janúar og fram í júm' hafi verið 0,6 gráðum hærri en meðaltal áranna 1961-1990. Þar að auki hefur hver einstakur mánuður það sem af er árinu verið sá heitasti frá því áreiðanlegar mælingar hófust 1860. í til- kynningu frá Veðurstofu Bret- lands segir að ekki sé fyllilega ljóst hver sé orsök hitahækk- unar sem orðið hefur á öldinni, en sífellt fleira bendi til þess að brennsla jarðefnaeldsneytis hafí mikið að segja. Matvælaskortur í Indónesíu veldur Habibie áhyggjum Hvetur til föstu í tvo daga á viku Jakarta. Reuters. B.J. Habibie, forseti Indónesíu, hefur hvatt landsmenn til að taka upp þann íslamska sið að fasta í tvo daga á viku vegna matvælaskorts í landinu. Habibie sagði að hver íbúi gæti sparað að minnsta kosti 20 kg af hrísgrjónum á ári með því að fasta á mánudögum og fimmtudögum. „Við getum sparað þrjár milljónir tonna af hrísgrjónum, eða sem nemur því magni af hrísgrjónum sem við þurf- um að flytja inn,“ sagði forsetinn á mánudag við athöfn til minningar um fæðingu Múhameðs spámanns. Forsetinn lét þessi orð falla eftir að hafa rætt við leiðtoga indónesískra múslima. Indónesía er fjölmennasta land múslima, er með 200 milljónir íbúa og um 88% þeirra eru múslimar. Gert er ráð fyrir að Indónesíu- menn flytji inn 3,1 milljón tonn af hrísgrjónum á árinu, en árið áður nam innflutningurinn aðeins 350.000 tonnum. Verð á matvælum hefur snar- hækkað í Indónesíu vegna efnahag- skreppunnar, sem hefur orðið til þess að gengi rúpíunnar hefur lækk- að um 80% gagnvart Bandaríkjadoll- ar á einu ári. Stjómvöld skýrðu frá því í vikunni sem leið að 85,8 milljón- ir landsmanna yrðu undir fátæktar- mörkum um næstu áramót. Innfluttar vörur em orðnar mjög dýrar vegna gengishruns rúpíunnar og óeirðir hafa blossað upp í nokkrum borgum á árinu vegna dýr- tíðar og matvælaskorts. Hagstofa Indónesíu skýrði frá því í gær að gert væri ráð fyrir að verg þjóðarframleiðsla myndi minnka um 13% á árinu. Efnahagssamdráttur- inn nam 12% á fyrri helmingi ársins miðað við sama tíma í fyrra. Mótmæli í Vestur-Irían Óstaðfestar fregnir hermdu að indónesískir hermenn hefðu skotið sjö manns til bana þegar þeir stöðv- uðu mótmælagöngu aðskilnaðar- sinna í héraðinu Vestur-Irían, sem nær yfir vesturhluta Nýju-Gíneu. Her Indónesíu sagði hins vegar að ekkert mannfall hefði orðið. Indónesíska fréttastofan Antara sagði að 24 hefðu særst og 180 verið handteknir þegar hermennimir stöðvuðu mótmælin á eyjunni Biak. Um 700 manns tóku þátt í göngunni og margir þeirra héldu á fánum að- skilnaðarhreyfingarinnar Frjálsrar Papúa. Stunginn á hol í Pamplona EINN maður var stunginn á hol og stigið ofan á nokkra til við- bótar í Pamplona í gær. Þús- undir nautaatsáhugamanna, bæði innfæddir og ferðamenn, hættu þar lífi og limum í árlegri hátíð og hlupu eins og fætur toguðu undan sextán nautum 825 metra leið um þröngar göt- ur miðborgarinnar. Hátíðin stendur í viku og á hverjum morgni fer fram nautahlaup, en síðdegis eru nautin drepin í nautaati. Það var Spánverji sem var stunginn á hol í gærmorgun og meðal þeirra sem slösuðust var Argentínumaður sem hlaut höf- uðmeiðsl er hann varð undir fótum nautanna. Meiðsl eru al- geng í hlaupinu, og fyrir þrem árum var Bandaríkjamaður stunginn til bana og í fyrra slas- aðist Breti alvarlega. Reuters CNN Washington, Atlanta. The Daily Telegraph, Reuters. YFIRMENN CNN-sjónvarps- stöðvarinnar viðurkenndu í síð- ustu viku að ekkert væri hæft í fréttum sem stöðin flutti nýlega þess efnis að bandaríski herinn hefði beitt eiturgasi gegn lið- hlaupum í Víetnam-stríðinu. Bað Tom Johnson, stjórnarfor- maður CNN-fyrirtækisins, áhorf- endur sína og fyrrum hermenn í Víetnam afsökunar og sagði ekki nægar sannanir fyrir ásökunun- um. Hefur Bobbie Battista, fréttamaður CNN, kallað málið „martröð blaðamannsins". Greint var frá því nú í byrjun vikunnar að Johnson hefði viljað segja starfi sínu lausu, en stofn- andi CNN, Ted Turner, hefði neitað að samþykkja afsagnar- beiðnina. Það sem gerir málið enn vand- ræðalegra fyrir CNN er að frétt- in var flutt sem aðalfrétt í fyrsta hluta sérstaks fréttaþáttar, News Stand, sem unninn var í sam- vinnu við fréttatímaritið Time, og átti að skapa CNN nafn í rannsóknarblaðamennsku. Var fréttin tekin upp af fréttamiðlum víðs vegar um heiminn og litið á hana sem íjöður í hatt fréttaþátt- arins nýja. Time Wamer-fyrirtækið er að- í klípu aleigandi bæði CNN og Time og var meiningin með sameiginleg- um fréttaþætti miðlanna tveggja sú að auka orðstír CNN, sem á stundum hefur þótt nálgast „gulu pressuna“ ískyggilega mikið. Blaðamenn Time em fjúkandi ill- ir vegna klúðursins og skella allri skuld á fréttastöðina. Hefur aðalframleiðandi frétta- þáttarins þegar sagt af sér og að- stoðarframleiðendum hans var sagt upp störfum. Peter Arnett, hinn frægi fréttahaukur sem m.a. vann til Pulitzer-verðlauna fyrir fréttaflutning frá Víetnam- stríðinu, var auk þess veitt ofaní- gjöf fyrir sinn þátt í málinu. Þriðja vandræðamálið á skömmum tíma Þetta vandræðamál er hið þriðja sinnar tegundar sem kem- ur upp á nokkrum mánuðum í Bandarílqunum. Fyrir skömmu uppgötvaðist að ungur blaðamað- ur við tímaritið New Republic hafði „skáldað" alls tólf fréttir og skömmu seinna viðurkenndi dálkahöfundur fyrir dagblaðið Boston Globe Ioks að hún hefði „búið til“ heimildarmenn fyrir frétt sem hún ritaði og lagt þeim síðan orð í munn. Hafna því að loft- steinn gefí vísbend- ingar um líf á Mars Washington. Reuters. HÓPUR bandarískra vísinda- manna hafnar því að lofsteinn, sem fannst á Suðurskautsland- inu fyrir tveimur árum, hafi að geyma vísbendingar um að líf hafi einhvern tímann verið á mars. Vísindamenn við Geimvísinda- stofnun Bandaríkjanna (NASA) héldu því fram í fyrra að á loft- steininum væri að finna agn- arsmáar steingerðar bakteríu- leifar. Fréttunum var frá upp- hafi tekið með varúð, og í grein í júlíhefti tímaritsins Meteoritics and Planetary Science hafnar John Bradley, sérfræðingur við Georgia Institute of Technology, niðurstöðum NASA alfarið. Bradley og samstarfsmenn hans segja niðurstöður rann- sókna sinna benda til þess að það sem NASA taldi vera stein- gerðar leifar lífvera sé í raun ekki annað en ummerki þess að steinninn hafi þolað miklar hita- breytingar. Jarðfræðileg ferli, en ekki líffræðileg, hafi myndað örlitlar holur í steininn og skilið eftir ákveðin efnasambönd. Útilokar þó ekki líf „Þegar fréttin [um niðurstöð- ur NASA] komst fyrst í hámæli, snerist umræðan fljótt upp í deilu um hvort það væri, eða hefði einhvern tímann verið, líf á mars,“ sagði Bradley í yfirlýs- ingu sinni. „En hér er í raun um að ræða tvö álitamál, annars vegar hvort líf finnist yfirleitt á mars, og hins vegar hvort þessi ákveðni loftsteinn gefi vísbend- ingar um það.“ Bradley segir hugsanlegt að líf sé, eða hafi verið, að finna á mars, en að loftsteinninn hafi ekki að geyma svarið. „Það get- ur vel verið [að líf sé að fínna] í iðrum plánetunnar. Við vitum að líf þrífst við afar erfiðar aðstæð- ur hér á jörðinni." Sérfræðingar NASA standa enn við fyrri niðurstöður sínar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.