Morgunblaðið - 08.07.1998, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 19
ERLENT
14 fórust
þegar brú
hrundi
AÐ MINNSTA kosti fjórtán
manns biðu bana þegar brú
hrundi í Suður-Afríku í gær.
Talið var í fyrstu að ellefu til
viðbótar væru enn í rústunum
en samkvæmt síðustu fréttum
mun það ekki hafa verið rétt.
Fimm slösuðust alvarlega og
voru fluttir með þyrlum á
sjúkrahús.
Verið var að smíða brúna
yfir stíflu í Mpumalanga-hér-
aði þegar stólpi gaf sig af
ókunnum ástæðum. Stjórn
landsins fyrirskipaði rann-
sókn á orsök slyssins.
Israelar andvígir auknum
réttindum PLO hjá SÞ
Sameinuðu þjóðunum. Reuters.
ALLSHERJARÞING Sameinuðu
þjóðanna samþykkti í gær ályktun
um að styrkja stöðu Frelsissamtaka
Palestínu (PLO) og veita þeim ýmis
réttindi, sem fullgildir aðilar SÞ
hafa, þrátt fyrir andstöðu Banda-
ríkjamanna og Israela.
Alyktunin var samþykkt með 124
atkvæðum gegn fjórum og tíu ríki
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Auk
Bandaríkjanna og Israels voru
Míkronesía og Marshall-eyjar á móti
ályktuninni.
Stjórnarerindrekar segja ástæð-
una fyrir þessum mikla stuðningi þá
að mörg ríki séu óánægð með tregðu
stjórnar Benjamins Netanyahus,
forsætisráðhen-a Israels, til að
greiða fyrir friðarviðræðum við
Palstinumenn.
Samkvæmt ályktuninni heldur
PLO stöðu sinni sem áheyrnaraðili
að Sameinuðu þjóðunum en fær ýmis
réttindi sem eru svipuð þeim sem
fullgildh' aðilar að samtökunum hafa.
PLO á t.a.m. að geta tekið þátt í um-
ræðum á allsherjarþinginu og fær
rétt til að bera fram tillögur með
öðrum og leggja fram fyrirspurnir
um fundarsköp þegar fjallað er um
málefni Palestínumanna og Miðaust-
urlanda. PLO fær hins vegar ekki at-
kvæðisrétt og fulltrúar samtakanna
eru ekki kjörgengir í hin ýmsu emb-
ætti Sameinuðu þjóðanna.
Palestínska sendinefndin á að fá
sex sæti á allsherjarþinginu og hún á
að sitja fyrir framan fulltrúa annarra
áheyrnaraðila.
Sagt brot á stofnskránni
Dore Gold, sendiherra Israels hjá
Sameinuðu þjóðunum, sagði í bréfi
til fulltrúa allra aðildarríkjanna í
liðnum mánuði að samkvæmt Ósló-
arsamningunum frá 1993 yrði staða
Vesturbakkans og Gaza-svæðisins
útkljáð í sérstökum samningavið-
ræðum Palestínumanna og Israela.
Með því að styrkja stöðu PLO væri
verið að grafa undan þeim viðræð-
um, auk þess sem það gengi í ber-
högg við stofnskrá Sameinuðu þjóð-
anna að þjóð, sem ekki er fullvalda,
fái réttindi fuilgildra aðila.
PLO fékk fyrst áheyrnaraðild að
Sameinuðu þjóðunum 1974. Aheyrn-
araðildin var styrkt 1988, eftir að
Þjóðarráð Palestínu lýsti yfir stofn-
un palestínsks ríkis, þegar samþykkt
var á allsherjarþinginu að nota heitið
„Palestína" í stað PLO.
Miklar
tafir í
Hong Kong
MORG hundruð leigubílstjórar
biðu þolinmöðir í ökutækjum
sínum á nýja alþjóðaflugvellinum
í Hong Kong í gær, en miklar
taílr urðu þar af völdum
tölvubilana og annarra
vandræða, annan daginn í röð.
Farangursafgreiðsla gekk
erfiðlega vegna bilana, raf- og
vatnskerfi fór úr skorðum og
urðu margir farþegar að bíða
klukkustundum saman,
annaðhvort í flugstöðinni eða um
borð í flugvélum sem voru lentar
en komust ekki að landgangi.
Nýi flugvöllurinn var tekinn í
notkun á mánudag og þá þegar
urðu miklar tafir vegna bilana.
Tölvufræðingum tókst ekki að
vinna bug á vandanum í gær.
Eitt stærsta fraktfyrirtækið á
vellinum tilkynnti að vörur yrðu
fluttar aftur tii gamla
flugvallarins og afgreiddar þar.
Ekki er hægt að nota þann völl
lengur fyrir flugvélar.
Sumir leigubflstjóranna urðu
af þessum sökum að bíða allt að
þrjár klukkustundir eftir því að
næsti viðskiptavinur léti sjá sig.
Auk þess kostar ferðin frá nýja
flugvellinum inn í miðborgina
sem svarar 2.800 ísl. krónum,
sem er helmingi meira en farið
frá gamla flugvellinum kostaði.
Hefur þetta orðið til þess að
margir farþegar kjósa að ferðast
með almenningsfarartækjum, en
fargjaldið þar er innan við
þúsund krónur fyrir far inn í
miðborgina.
250 konur hljóta
skaðabætur
UM 250 konur, sem biðu heilsutjón
vegna rangrar geislameðferðar við
brjóstakrabbameini á árunum 1975
til 1986, munu hljóta skaðabætur frá
norska ríkinu, samkvæmt fréttum
norska ríkissjónvarpsins.
Nær 1.500 konur sem gengust
undir meðferð við brjóstaki’abba-
meini á Radium-sjúkrahúsinu í Nor-
egi urðu fyrir of mikilli geislun, eftir
að þar var farið að beita fáum stór-
um geislaskömmtum í stað margra
lítilla skammta, í því skyni að anna
fleiri sjúklingum. Flestar kvennanna
eru nú látnar.
Þær konur sem gengust undir
meðferð á árunum 1975 til 1982
hljóta 250.000 norskar ki'ónur í bæt-
ur, sem nemur um tveimur og hálfri
milljón íslenskra króna. Konur sem
gengust undir meðferð síðar fá bæt-
ur í hlutfalli við heilsutjón sitt.
Dagfinn Hoybráten, heilbrigðis-
ráðherra Noregs, sagði í samtali við
norska sjónvarpið að stjórnvöld
væru öll af vilja gerð að bæta fyrir
mistökin. Ákveðið hafi verið að bjóða
öllum konunum bætur, svo þær
þyrftu ekki hver fyrir sig að höfða
skaðabótamál gegn ríkinu.
Evró-mynt
í bræðslu
MILLJÓNIR nýslegínna Evró-pen-
inga verða bræddar og hannaðar
að nýju í kjölfar kvartana um að
blint fólk gæti ekki þekkt pening-
ana í sundur. Fjármálaráðherrar
Evrópusambandslandanna tóku
ákvörðun um þetta á mánudag.
Ákveðið var að stöðva fram-
leiðslu á tveim af átta peningum
sem fara eiga í umferð árið 2002,
tíu og fimmtíu senta peningunum.
Frakkar urðu fyrstir til að hefja
myntsláttu og eru nú framleiddar
um átta milljónir peninga á dag.
Af þeim sem þegar hafa verið
slegnir eru um níu milljónir tíu
senta peninga sem verða bræddir.
Kostnaðurinn er áætlaður sem
*★★★*
EVRÓPA^
svarar um tuttugu milljónum ís-
lenskra króna.
Áður en sláttan hófst höfðu
hönnuðirnir verið gagnrýndir fyr-
ir útlit og innihald peninganna. í
fyrra sögðu sænsk stjórnvöld að
hátt nikkelinnhald í málminum
gæti valdið útbrotum og rekendur
sjálfsala kvörtuðu yfir að salarnir
gætu ekki gert greinarmun á sum-
um peninganna.
Hörð gagnrýni frá Samtökum
blindra í Evrópu gerði svo útslag-
ið. Samtökin sögðu að breyta
þyrfti brúnum 10 og 50 senta pen-
inganna til að blint fólk gæti þekkt
þá í sundur.
ST0RUTSALA
í Kópavogi
hefst í daq kl. 10.00
Dömuskór
Herraskór
Barnaskór
Auk þess
mikið úrval af
íþróttaskóm
atsláttuv
Lanersala á fatnaði
Bolir, skyrtui*. peysur og vinnufatnadur
á heildsöluverdi.