Morgunblaðið - 08.07.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 23
Frá „ævarandi hlutleysi“ til
vestræns varnarsamstarfs
ÍSLENZK utanríkis-
stefna á mótunar-
skeiðinu 1945-1956 er
umfjöllunarefni nýrr-
ar bókar eftir Þór
Whitehead, rann-
sóknaprófessor í sagn-
fræði við Háskóla ís-
lands. Bókin, sem er á
ensku, ber titilinn
„The Ally Who Came
in from the Cold“.
Bókin kom út um
leið og fjöldinn allur
af erlendum fræði-
mönnum, sem hafa
sérhæft sig í rann-
sóknum á sögu kalda
stríðsins, flykktist til
Reykjavíkur til að taka þátt í
ráðstefnu sem hér fór fram dag-
ana 24.-27. júní undir yfirskrift-
inni „Norðurlöndin og kalda
stríðið".
Titill bókarinnar kann að
minna á spennusögu (sbr. „The
Spy who came in fram the
Cold“), en bókin býður upp á líf-
lega myndskreytt og aðgengi-
legt yflrlit yfir mikilvægan kafla
í sögu íslenzkrar utanríkis-
stefnu, eða hvernig íslenzkir
ráðamenn sögðu skilið við
„ævarandi hlutleysi" íslands og
hófu þátttöku í vestrænu varnar-
samstarfi. Þór segir bókina eink-
um ætlaða fróðleiksfúsum út-
lendingum, en ekki síður erlend-
um fræðimönnum. Bókin gæti
einnig gagnazt íslendingum, sem
vilja kynna sér þetta efni í stuttu
rnáli.
Margt hafði áhrif á ákvörðun
vinstristjómarinnar 1956
Hvað varðar innihald bókar-
innar gerði Þór í samtali við
Morgunblaðið sérstaklega að
umtalsefni hvað varð til þess að
vinstristjórnin sem tók við völd-
um sumarið 1956
skyldi ekki gera al-
vöru úr því að koma
bandaríska varnar-
liðinu af landi brott,
eins og flokkarnir
sem að stjórninni
stóðu höfðu sam-
þykkt þingsályktun
um í marzmánuði
1956. Þingkosningar
fóm fram snemm-
sumars, og var kosn-
ingabaráttan löng og
ströng, og eitt aðal-
málið sem tekizt var
á um var hvort reka
ætti varnarliðið burt
eða ekki.
Þór bendir á, að bæði Fram-
sóknar- og Alþýðuflokkurinn
vildu reyna að nýta sér til fylgis-
aukningar þá útbreiddu óánægju
sem var í landinu með dvöl
bandarísks herliðs hér og hindra
að Þjóðvarnaflokkurinn, sem var
sérstaklega stofnaður til að gera
út á þessa óánægju 1953, sæti
einn, ásamt Sósialistaflokknum,
að þessum atkvæðum.
„Það sýndi sig að Sósíalista-
flokkurinn gat í rauninni ekki
notfært sér [þessa óánægju]
nema að takmörkuðu leyti,
vegna þess að flokkurinn hafði
fengið á sig óorð fyrir að dýrka
Stalín að fylgja Sovétstjórninni
að málum,“ sagði Þór. „Það
þurfti því nýtt afl til að veita
þessari óánægju farveg, og það
varð Þjóðvarnaflokkurinn."
Þennan flokk segir Þór hafa
gegnt merkilegra hlutverki en
margir ætla í kosningunum
1956. „Það er ljóst að þessari
ályktun Alþingis um að stefnt
skuli að brottför hersins var
beint ekki sízt gegn Þjóðvarnar-
flokknum, til að stöðva frekari
fylgisaukningu hans á kostnað
Framsóknarflokksins og Alþýðu-
flokksins.“
Með því að vekja athygli á
þessum kringumstæðum og fleiri
atriðum sem höfðu áhrif á
stefnumörkun og kosningabar-
áttuaðferðir flokkanna sem
mynduðu vinstrisljórnina undir
forsæti Hermanns Jónassonar í
júlí 1956 er Þór að gagnrýna of-
uráherzlu á áhrif fjármála á
ákvarðanir þessarar ríkisstjórn-
ar. Sumir fræðimenn hafa talið,
að hin rausnarlega lánafyrir-
greiðsla sem Bandaríkin veittu
Islendingum síðla árs 1956, hefði
verið aðalástæðan fyrir þvf að
hún skyldi ákveða að endurnýja
varnarsamninginn óbreyttan.
„Eg tel, að það séu yfirgnæf-
andi líkur á því, að varnarsam-
starfíð hefði aldrei verið endur-
nýjað í óbreyttri mynd, nema út
af þessum atburðum sem gerðust
út í heimi haustið 1956, það er
hemaðaríhlutun Sovétríkjanna í
Ungveijalandi og Súez-deilunni í
Egyptalandi." Vegna þessara at-
burða segir Þór hið pólitiska and-
rúmsloft hér hafa verið orðið allt
annað haustið 1956 en það var
um vorið. Þessar breyttu aðstæð-
ur verði að taka með í reikning-
inn, ef unnt á að vera að leggja
sanngjarnt mat á það hvað lá að
baki stefnumarkandi ákvörðun-
um íslenzku ríkisstjórnarinnar á
þessum tíma. Auk þessa beri að
hafa í huga, að sögn Þórs, að
þrýstingur frá ríkisstjórnum Nor-
egs og Danmerkur, sem var mik-
ið í mun að Islendingar viðhéldu
varnarsamstarfinu, hafði tví-
mælalaust sitt að segja.
„Menn verða að líta á sögu
þessa örlagaskeiðs, 1945-1956, í
því ljósi, að íslenzkir ráðamenn
hafi verið að bregðast við að-
stæðum eftir því sem þær breytt-
ust,“ sagði Þór.
Þór
Whitehead
HLIF við eitt verka sinna.
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
www.mbl.is
Málverk Hlífar í Leifsstöð
NÚ stendur yfir sýning á málverk-
um eftir Hlíf Ásgrímsdóttur í flug-
stöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkur-
flugvelli. Félag íslenskra myndlistar-
manna og Leifsstöð standa saman að
kynningu á verkum félagsmanna
FÍM.
Hl£f sýnir þar átta málverk sem
unnin eru á þessu og síðastliðnu ári.
Sýningarrýmið er í landganginum
og stendur sýningin til 15. ágúst.
Þessi sýning tekur við af kynningu á
verkum eftir Jóhönnu Bogadóttur og
eftir sýningu Hlífar verða verk eftir
Svanborgu Matthíasdóttur sýnd.
Verk hvers listamanns eru til sýn-
is í 2-3 mánuði og fylgja útgáfu tíma-
ritsins Atiantica sem dreift er í flug-
vélum Flugleiða en í því er kynning
á viðkomandi listamanni.
m
sandaiar
ÚTIVISTARBÚÐIN
við Umferðarmiðstöðina.
Sími 551 9800
Vandaðir legsteinar
Varanleg minning
BAUTASTEINN Sími 568 8530
Síðumúla 33 ♦ 108 Reykjavík ♦ Fax 568 8513
qætir
saFnað
sparigrisum
( ATH! Aðeins^^jkr. röðin ~)
- og fylit þá alla!
í kvöld er dregið í Víkingalottóinu
um tugi milljóna króna!
Fáðu þér miða fyrir kl. 16 í dag.
http://www.mmedia.is/sportleigan