Morgunblaðið - 08.07.1998, Síða 29

Morgunblaðið - 08.07.1998, Síða 29
28 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. RÆKTARSEMI VIÐ BRAUTRYÐJENDUR ÞAÐ ER einkar vel til fundið hjá forráðamönnum flugfé- lagsins Atlanta að nefna þotur félagsins eftir forystu- mönnum íslenzkra flugmála og heiðra með því minningu þeirra og störf, sem þeir unnu íslenzkum flugmálum. Á sunnudag var Boeing 747-þota fyrirtækisins nefnd nafni eins mesta eldhuga og brautryðjanda íslenzkra flugmála, Alfreðs Elíassonar, eins stofnanda Loftleiða hf. árið 1944 og síðar forstjóra félagsins. Það var ekkja Alfreðs, Kristjana Milla Thorsteinsson, sem gaf þotunni nafn. Þetta er sjötta Atlanta-þotan, sem fær nafn brautryðjanda flugmála á Islandi. Fyrir eru þoturnar Alexander Jóhannes- son, Agnar Kofoed Hansen, Karl Magnússon, Ulfar Þórðar- son og Þorsteinn E. Jónsson. Með þessu vilja aðaleigendur Atlanta, hjónin Arngrímur Jónsson og Þóra Guðmundsdóttir, heiðra brautryðjendurna. Þóra sagði við athöfnina sl. sunnudag: „Við höfum viljað halda uppi heiðri þessara manna fyrir ötult starf þeirra í flug- sögu Islands og nú er komið að Alfreð Elíassyni, sem var stórbrotinn persónuleiki í flugsögunni." Stofnun Loftleiða á sínum tíma var eitt af þessum miklu ævintýrum, sem geta gerzt á Islandi, þrátt fyrir höft, boð og bönn. Ungir menn vinna ótrauðir að áhugamálum sínum og þau fela í sér stórvirki. Saga Atlanta-félagsins, sem fékk flug- rekstrarleyfí fyrir aðeins 12 árum, sýnir og að enn geta þessi ævintýri gerzt á íslandi. Flugmaðurinn hjá Arnarflugi og flugfreyjan hjá Flugleiðum stofnuðu flugfélag, sem er orðið stórveldi á Islandi og tekur að sér verkefni um víða veröld. Þetta sýnir að hafí fólk þor, kjark og dugnað til þess að takast á við stórverkefni, er hægt að gera kraftaverk, jafnt í dag sem á árum áður, þegar brautryðjendurnir í flugi settu hvað sterkast mót á íslenzka flugsögu. FLUTNINGS- JÖFNUN FURÐULEGT má teljast að á árinu 1998 skuli íslenzkt fyrirtæki þurfa að leita út fyrir landsteina, til Eftirlits- stofnunar EFTA, til þess að fá ákvæðum laga um flutnings- jöfnunarsjóð hnekkt og það eftir að Samkeppnisstofnun hef- ur sagt að ákvæðin geti heft frjálsa samkeppni og leiði til mismununar milli einstakra fyrirtækja og neytendahópa. Skeljungur hf. hefur ákveðið að leita til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna þeirrar mismununar, sem forráðamenn félags- ins telja að það hafí orðið fyrir. Flutningsjöfnunargjald er lagt á allar innfluttar olíuvörur og er sjóðurinn, sem af gjald- inu myndast, notaður til þess að jafna flutningskostnað olíu- vara frá innflutningshöfn til olíuhafna og útsölustaða, sem jöfnunin nær til. Skeljungur túlkar lögin þannig, að um sé að ræða opinberan fjárhagsstuðning, en EES-samningurinn, sem Island er aðili að, bannar opinberan fjárstuðning af þessu tagi. Á tíu ára tímabili hefur olíufélagið Skeljungur hf. greitt tæpar 322 milljónir króna í sjóðinn umfram það, sem það hef- ur fengið úr honum, en Olíufélagið hf. hefur á hinn bóginn fengið tæpar 417 milljónir króna úr sjóðnum umfram það sem félagið hefur greitt í hann. Hvernig í ósköpunum stendur á því að þetta er látið viðgangast? HÚS MÁLARANNA HÚSIÐ SEM markar Bergstaðastræti 74 og 74A er þekkt sem hús málaranna. Ásgrímur Jónsson og Jón Stefáns- son bjuggu í þessu húsi og höfðu þar vinnuaðstöðu sína, en húsið teiknaði Sigurður Guðmundsson arkitekt. Eins og fram kom í grein Braga Ásgeirssonar í Morgunblaðinu í gær ánafnaði Ásgrímur ríkinu húseign sína eftir sinn dag og var hún gerð að listasafni 1960, en Gunnlaugur Scheving, málari, keypti hinn helminginn eftir lát Jóns Stefánssonar og bjó þar síðustu æviárin. Eftir lát Gunnlaugs eignaðist vinur hans og stuðningsmaður, Gunnlaugur Þórðarson, lögmaður, helming Schevings og bjó þar þar til hann lést fyrir skömmu. Er sá helmingur nú til sölu á almennum markaði. Ljóst má vera að hér er um merkilegar menningarsöguleg- ar minjar að ræða og því er eðlilegt að leggja áherslu á að húsið verði varðveitt á sem bestan hátt og hlutverk þess haft í heiðri sem listamannahús. Réttast væri að húsið yrði allt gert að safni eða vinnustofum fyrir starfandi listamenn; þannig mætti líka best varðveita minninguna um Ásgrím, Jón og Gunnlaug, sem, eins og Bragi bendir á í grein sinni, hefur farið ansi hljótt um undanfarna áratugi, þótt list þeirra hafí verið sýndur ýmiss sómi. Landsmót hestamanna hefst á Melgerðismelum í Eyjafirði í dag Morgunblaðið/Bjöm Gíslason ALLT er að verða klárt fyrir Landsmót hestamanna sem hefst á Melgerðismelum í Eyjafirði í dag. MAGNÚS Jónsson hjá Flugbjörgunarsveitinni á Akureyri, Daníel Guð- jónsson yfirlögregluþjónn og Gunnar Jónsson lögreglumaður kanna fjar- skiptin. Urhellis- rigning ein- kenndi loka- sprett undir- búningsins Mikill erill var á landsmótssvæði hesta- manna á Melgerðismelum í grenjandi rign- ingunni í gær. Margrét Þóra Þórsdóttir og Björn Gíslason lögðu leið sína á melana en „byggðin^ þar er á við sjötta eða sjöunda stærsta sveitarfélag landsins. LANDSMÓT hestamanna hefst á Melgerðismelum í Eyjafírði í dag og var mikill erill þar í grenjandi rigningu í gær þegar lokahönd var lögð á undirbúning þess. Áætlanir gera ráð fyrir að 7-9 þúsund manns leggi leið sína á móts- svæðið. Jón Ólafur Sigfússon, fram- kvæmdastjóri Landsmóts hesta- manna á Melgerðismelum, var á þön- um um mótssvæðið í rigningunni í gær, en leysa þurfti úr ótal málum á lokaspretti undirbúnings mótsins. „Við höfum unnið að undirbúningi mótsins í um þrjú ár, en það eru alltaf einhver atriði sem ekki er hægt að gera fyrr en undir lokin og þess vegna hefur verið mikið að gera hér síðustu daga og margt sem þarf að gera á síðustu stundu," sagði Jón Ölafur, en var þess fullviss að allt yrði klárt þegar mótið hæfist nú í dag. Um 50 til 60 manns voru að störfum á svæðinu í gær, iðnaðar- menn ýmiskonar og hestamenn úr Létti og Funa sem halda mótið. Framkvæmdastjórinn fullur tilhlökkunar í rigningunni „Tilfinningin er ágæt nú þegar mótið er að skella á, það virðist allt ætla að ganga upp og þeir sem próf- að hafa vellina segja þá afbragðs- góða. Við höfum gert allt sem í mannlegu valdi stendur til að gera svæðið sem best úr garði en við ráð- ANNA Gréta Oddsdóttir á Loð- mundi var að æfa sig fyrir keppnina í rigningunni í gær. um því miður ekki við veðrið," sagði framkvæmdastjórinn en í gærdag var úrhellisrigning í Eyjafirði. Hann sagði að hrossin þyldu rign- inguna ágætlega, en óttaðist að ef ekki yrði lát á rigningunni myndi hún setja nokkurt strik í reikninginn hvað gestina varðaði. Það væri annar bragur á útihátíð sem haldin væri í rigningu en sólskini og blíðu. Spáin gerði þó ráð fyrir að undir helgi myndi stytta upp. „Hápunktur mótsins verður um helgina, frá því síðdegis á fóstudag og þar til yfir lýkur á sunnudag. Ég geri ráð fyrir að gestir verði 7-9 þús- und talsins, en vera má að einhverjir láti veðrið hafa áhrif á sig. Þetta verður á við sjötta til sjöunda stærsta sveitarfélag landsins og við erum búin undir að taka á móti þess- um fjölda. „Það er mikil tilhlökkun í mínum huga, nú þegar mótið er að skella á, enda höfum við verið með hugann við undirbúning þess um langt skeið. Það hafa margir lagt hönd á plóginn og þá er ekkert verið að spá í hvaða tími sólarhringsins er, ef eitthvað þarf að gera er bara drifið í því. Menn hugsa sér eflaust gott til glóð- arinnar að sofa seinna. Þetta er sam- stæður hópur sem að þessu stendur og góð samvinna manna á milli,“ sagði Jón Ólafur. Ráðstafanir hafa verið gerðar til að draga úr smithættu vegna hesta- veikinnar, en hún kom upp á Akur- eyri fyrir stuttu. Sigríður Björns- dóttir dýralæknir verður á svæðinu og mun fylgjast sérstaklega með þeim þætti. Skilið verður á milli þeirra hesta sem koma af sýktum svæðum og ósýktum í högum og samgangi haldið í eins miklu lág- marki og mögulegt er. Ofiugt umferðareftirlit Daníel Guðjónsson, yfirlögreglu- þjónn á Akureyri, var að störfum á Melgerðismelum í gærdag, en lög- reglan hefur komið sér upp stjórn- stöð á mótssvæðinu og verður með sólarhringsvakt alla mótsdagana. „Við höfum útbúið hér litla lögreglu- stöð,“ sagði Daníel en allt tiltækt lið lögreglunnar og afleysingamenn verða að störfum um helgina. „Það er enginn í sumarleyfi núna, fyrsta holl- ið er að koma inn þessa dagana og það næsta fer ekki í leyfi fyrr en eftir landsmót. Þannig að við verðum með nægan mannskap og höfum ekki þurft að leita út fyrir okkar raðir til að manna vaktirnar. Öflugt umferðareftii’lit verður á leiðinni frá Akureyi’i að Melgerðis- melum og hefur hámarkshraði verið lækkaður í 70 kílómetra á klukku- stund á Eyjafjarðarbraut eystri, frá Hrafnagili og að mótssvæðinu. Það er m.a. gert til til að ná niður hraða, en yfir þrjár einbreiðar biýr er að fara. Þá hefur lögregla rætt við bændur um að haga málum sínum þannig að ekki sé verið að reka skepnur yfir veginn á álagstímum, né vera á ferðinni með heyvinnutæki á þessum tíma. Við öllu búnir Fimm björgunarsveitir leggja fram lið sitt, Flugbjörgunarsveitin á Akureyri, Hjálparsveit skáta á Akur- eyri, Hjálparsveit skáta á Dalvík, Dalbjörg í Eyjafjarðarsveit og Slysa- vamafélag Islands á Dalvík, en Magnús Jónsson hjá Flugbjörgunar- sveitinni gerði ráð fyrir að um 60 manns myndu starfa á svæðinu. „Við sjáum um miðasöluna, sjúkragæslu, landamæragæslu og fólk á okkar snæmm sér einnig um barnagæslu, þá verðum við einnig með þrif á svæðinu," sagði Magnús. Sveitirnar hafa komið sér upp góðri aðstöðu til sjúkragæslu, hjúkr- unarfræðingur og læknir verða á vakt allan sólarhringinn og munu m.a. gera að skrámum manna og sauma skurði og þá er til staðar að- staða veikist menn á mótssvæðinu. Sveitirnar hafa einnig útbúið gám sem ætlaður er fyrir þá sem kunna að verða ofurölvi á svæðinu, „dauða- gæsluna". „Þannig að við erum við öllu búnir,“ sagði Magnús. Veitingasala í 550 fermetra tjaldi Bautinn á Akureyri sér um allan veitingarekstur á svæðinu, en hann var boðinn út. Guðmundur Karl Tryggvason og Steinar Ingimundar- son hafa borið hitann og þungann af undirbúningi og sagði Guðmundur að hann hefði staðið.yfir í um einn mán- uð. Tjaldi, sem tekur um 500 manns í sæti, þéttsetið reyndar, hefur verið slegið upp og eldhúsi komið þar fyr- ir. I því verður efnt til dansleikja á föstudágs- og laugardagskvöld með hljómsveit Geirmundar Valtýssonar og þar verða einnig kvöldvökur sem mikið hefur verið lagt í. Auk veitingatjaldsins er einnig bú- ið að setja upp skyndibitastað og verslun á svæðinu. „Hér á að vera hægt að fá allar helstu nauðsynjavör- ur,“ sagði Guðmundur. Um 60 manns verða að störfum fyrir Bautann mótsdagana og sagði Guðmundur að vel hefði gengið að útvega fólk til starfa. „Við erum undir það búin að afgreiða eitt þúsund manns í einu í mat,“ sagði hann, en auk skyndibita á borð við hamborgara, pitsur, pyls- ur og kjúklinga verður boðið upp á grillmat og rétt dagsins. „Við berum matinn fram á postulínsdiskum og með stálhnífapörum," sagði Guð- mundur og lagði áherslu á að vel væri að verki staðið. „Þetta hafa verið erilssamir dagar og margt sem komið hefur upp á, en allt gengið farsællega upp. Við byrj- uðum veitingasöluna á sunnudags- kvöld, þegar fyrstu gestimir fóru að láta sjá sig og síðan hefur þetta farið stigvaxandi,“ sagði Guðmundur. Geri mitt besta Eigendur keppnishrossa streymdu að í gærdag og var mikill handa- gangur í öskjunni. Menn voru að prófa vellina í rigningunni og var Anna Gréta Oddsdóttir, 9 ára hnáta, alveg að verða 10, úr Fossvogi, ein þeirra. Hún keppir í dag á hesti Súsönnu ömmu sinnar, Loðmundi, og hlakkaði til. Sagðist vera pínulítið kvíðin, „en ég ætla að gera mitt besta“. MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 29 Island getur ekki einangrað sig frá mengunarumræðunni Heimurinn er allur eitt vistkerfi og ísland er ekki einangruð eyja í vistfræðilegu tilliti, eins og Sigriin Davíðsdóttir fékk að heyra í samtali við Sigfús Bjarnason hjá Umhverfís- stofnun Evrópu í Kaupmannahöfn. HARÐI kjaminn hjólar einnig á veturna, en á sumrin eru næstum allir á hjólum á vinnustað Sigfús- ar Bjamasonar, Umhverfisstofnun Evrópu, og sjálfur tilheyrir hann harða kjamanum. Hjólar því daglega um tvisvar sinnum átta kílómetra eða svo, sem er leiðin í og úr vinnu. „Það kemur enginn á bíl í vinnuna,“ segir Sigfús, en bætir því við kankvís að það stafi kannski ekki aðeins af umhverf- isvitund, heldur einnig af skorti á bíla- stæðum í miðbæ Kaupmannahafnar, þar sem stofnunin er til húsa við Kóngsins nýja torg. „Helsti kosturinn við að búa í Kaupmannahöfn er að geta farið allra sinna ferða hjólandi," og það er á Sigfúsi að heyra að nú langi hann mest í svokallað Kristjan- íuhjól. „Þá væri líka hægt að afgreiða vikuinnkaupin á hjóli og leggja bílnum endanlega." Kristjaníuhjól eru með stórum farangurskassa að framan, þar sem hægt er að fiytja bæði vörur og böm. Slíkt hjól stendur einmitt í bakgarði stofnunarinnar, þar sem ekki getur að líta bfla heldur eingöngu hjól. Norræn áhrif í ESB-bákninu En Umhverfisstofnun Evrópu snýst um annað og meira en hjólreiðar. Hjá stofnuninni vinna nú sjötíu starfs- menn frá öllum átján aðildarlöndum hennar, en Sigfús er eini íslendingur- inn. Hann bjó áður í Svíþjóð í fjórtán ár, síðast sem forstjóri Norræna genabankans en hefur starfað hjá um- hverfisstofnuninni síðan 1995, þar sem hann stjómar verkefni sem á íslensku mætti kalla heimildarmiðstöð fyrh- umhverfísupplýsingar. Það felst í því að gera öll gögn stofnunarinnar að- gengileg hverjum sem er á veraldar- vefnum. Á fundi evrópsku umhverfis- ráðherranna í Árósum 23. - 25 júní kynnti Sigfús verkefnið, sem er eitt af lykilverkefnum EEA í starfsáætlun stofnunarinnar fram til 2003. Stofnanir ESB hafa löngum haft orð á sér fyrir að sitja fremur á upp- lýsingum en gera þær aðgengilegar. „Þetta em norræn áhrif að gera gögn stofnunarinnar aðgengileg," fullyrðir Sigfús. „Það hefði tæpast verið hugs- anlegt fyrir 3 - 4 árum. Svíþjóð og Finnland hafa borið með sér aukið gagnsæi. Það ríkir minni hræðsla en áður við að sýna að stundum vantar gögn til að álykta og eins, að þau gögn sem við notum geti verið gaumgæfð af öðrum.“ Vilja Islendingar skera sig úr um Ioftmengun? Gagnagrannurinn, sem Sigfús vinn- ur við að koma á vefinn, gefur EEA margvísleg tækifæri til að koma á framfæri boðskap, sem ekki er hægt með hefðbundinni skýrslugerð, eins og til dæmis skýrsl- unni, sem er nú er að koma út um ástand umhverfismála í Evr- ópu. „Skýrslur geta aldrei verið tæm- andi, en hér getum við tengt saman gögn, upplýsingar og þekkingu til að gefa bæði heildarmynd og sýna smá- atriði." Dæmi um þetta snýr einmitt að ís- lendingum. Sigfús nefnir töflu í skýrslunni, sem sýnh hvað ýmis lönd hafi tekið á sig að minnka útstreymi koltvísýrings í andrúmsloftið. „ísland sker sig náttúralega alveg úr,“ segir Sigfús, „því meðan aðrir stefna að því að minnka útstreymið fara íslending- ar gegn straumnum og stefna að auknu útstreymi. í skýrslunni gefst ekki tækifæri til að fjalla um rök ís- lendinga, en í gegnum heimildarmið- vinnu líkt og flestir samstarfs- menn hans hjá Umhverfisstofnun Evrópu. stöðina á vefnum er hægt að koma skýringum að. Þar er hugmyndin að tengja saman texta úttektanna við gögnin, sem notuð vora, og þaðan áfram í gegnum vefinn til upphafs- manns. Þannig gæti til dæmis talan um koltvísýringsútstreymi íslendinga tengst íslenskri vefsíðu, sem kynnti rök íslendinga." Hitt er annað mál að Sigfús er sjálf- ur ekki sáttur við þessa stefnu íslend- inga. „Það markmið að minnka út- streymi, sem samstaða náðist um í Kyoto, er langt frá því, sem er talið nægja til að minnka hættuna á hækk- un hitastigs og gróðurhúsaáhrifum. Það lítur því ekki vel út að ísland ætli að taka aðra stefnu en flest önnur lönd og auka útstreymi gróðurhúsa- lofttegunda. Við tökum með þessu áhættu, jafnvel þótt röksemdin sé sú að aukin stóriðja íslandi sem byggist á hreinni orku dragi úr mengun ann- ars staðar. Þessi rök gæti reynst erfitt að selja og við gætum tekið á okkur ímynd umhverfissóða, sem yrði okkur sjálfsagt ekki til framdráttar til lengdar.“ Baðstrandakort lykill að vinsældum Hinn beini aðgangur að upplýsing- um getur svarað mörgum spuming- um, sem upp koma hér og nú. Sigfús bendir á að Kaupmannahafnarbúi, sem lesi eða heyri úr skýrslunni að flestir borgarbúar í Evrópu lifi í heilsuspillandi umhverfi, gæti haft áhuga á að vita einmitt um ástand sinnar borgar. „Eins og er era slík gögn ekki mjög aðgengileg, en í gegn- um heimildarmiðstöðina verður hægt að finna öll gögn, sem sérfræðingar stofnunarinnar og hvers lands telja áreiðanleg. Upplýsingar stoftiunar- innar eru ekki aðeins fræðilegar upp- lýsingar, sem aðeins sérfræðingar hafa gaman að liggja yfir. Fyrir nokkram árum fór framkvæmda- stjórn ESB að gefa út á hverju vori kort yfir ástand baðstranda í ESB- löndunum. „Kortið hefur tvímælalaust slegið í gegn,“ segh' Sigfús „og er orð- ið fastur liður í dagblöðum um alla Evrópu þegar baðstrandatímabilið hefst. Þeir sem hafa staðið sig illa leggja sig fram um að fá betri einkunn næsta vor.“ „Ósnortið land er auðlind“ Þegar verið var að undirbúa skýi-slu umhverfisstofnunarinnar og kynningar hennar í aðildarlöndunum Ekki sáttur við stefnu íslendinga Útstreymi kolsýrings á íslandi borið saman við Vestur Evrópu Nýtanlegt vatn í Evrópu Ungverjaland Holland Belgía Þýskaland Pólland Tékkland Kýpur Búlgaría Slóvakía Grikkland Luxemborg Danmörk Bretland Ítalía Spánn Frakkland Króatía Portúgal Tyrkland Litháen Sviss Austurríki Slóvenía íriand Svíþjóð Finnland Noregur ísland 0 5 10 "3 á mann á ári 666,5 var þeirri spumingu beint til Sigfús- ar, hvað væri helst að kynna á íslandi. Sigfús segist þá með góðri samvisku hafa geta svarað að Islendingar væra einfaldlega heppnir að búa þar sem þeir byggju; á hjara veraldar. „Það er kannski hlýrra og notalegra víða ann- ars staðar, en því fylgir líka mengun- armóða, vatnsskortur og önnur heilsuspillandi áhrif,“ bendir hann á. Hins vegar finnst Sigfúsi að ís- lendingar eigi við alvarlegt umhverf- isvandmál að glíma sem ekki er fjall- að um í skýrslunni og það er sjón- mengun. „Helstu auðæfi okkar era ósnortin náttúra, sem þar að auki dregur nú þegar vel í þjóðarbúið. Ég vona að Islendingar átti sig á því fyrr en síðar að ósnortið land er að verða eitt torfundnasta fyrirbæri í Evrópu og þó víðar væri leitað. En það er því miður oft svo að það, sem nóg er af, er líka einskis metið. Þegar verið er að meta verðmæti fram- kvæmda á ósnortnu landi mætti meta meira að ósnortna landið er mildls virði í sjálfu sér. Ósnortið land er auðlind." Flutningsálagið I skýrslunni kemur fram að flutn- ingar hafa aukist gífurlega undanfar- in ár og hvergi séð fyrir endann á þeirri aukningu. Sigfús bendir á að flutningar valdi í vaxandi mæli miklu álagi á umhverfið. „Það er ekki raun- veralegur, en þó skondin þanki að hugsa sér hvað gerist ef við hættum öll að ferðast," segir hann með bros á vör og hefur þá ekki endilega í huga þá, sem bregða sér í frí einu sinni á ári, heldur þær þúsundir manna, þar á meðal hann og starfsbræður hans, sem daglega flakka um Evrópu og reyndar heiminn allan af einum fundi á annan til að finna lausnir á um- hverfisvandamálum. „Það má líka huga að lifnaðarhátt- um. Er það til dæmis nauðsynlegt að flytja frosið brauð frá Frakklandi til Danmerkur. Og er það íslendingum nauðsynlegt að nota bílinn sem úlpu, eins og einhver komst að orði í grein í vetur eftir Kyoto-ráðstefnuna um þá áráttu Islendinga að fara helst ekkert nema í bfl.“ Sigfús fer inn í gagna- grann EEA og tekur fram línurit sem sýnir að útstreymi kolsýrings á íslandi liggur yfir meðaltali Vestur- Evrópu-ríkja, miðað við höfðatölu, sem varla verður skýrt öðravísi en með miklum akstri einkabíla. Heilsu- spillandi loftmengun er því ekki al- f gerlega óþekkt fyrirbæri á Islandi. Hugvitsiðja í stað stóriðju Þegar talinu víkur að Islandi og með ofangreind atriði i huga, eins og sjónmengun og koltví- sýringsútstreymi, kemur íslensk at- vinnuþróun upp í hugann. Eins og Sigfús bendir á era íslensk umhverf- ismál ekki einangrað fyrirbæri. Heimurinn er allur eitt vistkerfi og auðvitað gæti Island tekið að sér það hlutverk umhverfissóðans sem önnur lönd vilja losna við. „Ég ef sannfærð- ur um að við höfum aðra möguleika“, segir hann og bendir á vöxt nýrra há- tæknifyrirtækja eins og íslenskar erfðagreiningar. „Þessi fyrirtæki sýna okkur að það ætti að vera hægt að byggja upp atvinnu á íslandi, sem byggist á menntun og þekkingu. 5- Stóriðjan er ekki eini valkosturinn." Nauðsynlegt að nota bílinn sem úlpu?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.