Morgunblaðið - 08.07.1998, Page 37

Morgunblaðið - 08.07.1998, Page 37
MORGUNB LAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 3 KRISTJAN M. KRISTJÁNSSON + Kristján Magnu- sen Kristjánsson var fæddur í Búðar- dal 31. október 1909. Hann lést á Vífilsstaðaspítala 29. júní sfðastliðinn. Móðir hans var Friðborg Friðriks- dóttir ættuð úr Döl- um en faðir hans var Kristján Jónas- son kaupmaður frá Skarði á Skarðs- strönd. Foreldrar Kristjáns Jónasson- ar voru þau Elín- borg Kristjánsdóttir og Jónas Guðmundsson prestur á Staðar- hrauni í Hraunhreppi. Systkini Kristjáns voru Jónas Kristjáns- son kaupmaður, f. 17. júní 1895, d. 8. júní 1964, Elínborg Krist- jánsdóttir húsmóðir, f. 10. sept- ember 1898, d. 4. maí 1975, Guðinundur Kristjánsson söngvari, f. 15. ágúst 1901, d. 27. október 1986, og Camillia Kristjánsdóttir húsmóðir, f. 18. september 1908, d. 7. október 1976. Kristján fluttist með for- eldrum sfnum ársgamall til Borgarness og ólst þar upp hjá þeim. Kristján lauk versl- unarprófi frá Flens- borgarskólanum vorið 1926. Hann sneri síðan aftur til Borgarness og stundaði þar kaup- mennsku og tók síð- ar ásamt Jónasi bróður sfnum við verslunarrekstrin- um af föður sínum eftir að hann lést 1930. Kristján flutist síð- ar til Reykjavíkur og giftist hinn 30. júní 1956 Reinholde Konrad Kristjánsson ljósmynd- ara. Eignuðust þau soninn Hans-Konrad Kristjánsson raf- magnsverkfræðing, f. 27. janú- ar 1958. Frá fyrra hjónabandi eignaðist Kristján tvö börn, þau Kristján Brynjólf Kristjánsson þjón, f. 5. ágúst 1944, og Bryn- hildi Kristjánsdóttur húsmóður, f. 27. maí 1948. Utför Kristjáns fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Nú er hann faðir okkar fallinn frá, blessuð sé minning hans. Ég var ný- búinn að klára verkefni í sambandi við Hvalfjarðargöngin. Pegar ég var að lesa dagblaðið næsta morgun kall- ar hún móðir mín til mín: „Konni, komdu fljótt, það er eitthvað að hon- um pabba.“ Hann hafði fengið áfall þennan morgun sem varð til þess að hann pabbi okkar átti eftir að kveðja þennan heim stuttu síðar. Eftir að faðir okkar hann Kristján fluttist til Reykjavíkur starfaði hann sem leigubflstjóri á Hreyfli. Móðir mín var þá tiltölulega nýflutt til landsins frá Þýskalandi og vann þá á elliheimilinu Grund vestur í bæ. Fað- ir okkar átti það til að renna við hjá stúlkunum á Grund öðru hverju og þáði þar gjarnan kaffi þegar hann leit inn. Þannig kynntist hann móður minni fyrst, henni Konný eins og hún er kölluð. Það þótti heldur ekki ama- legt fýrir þýska yngismey að skreppa á rúntinn í „Tunglfaxanum" eða Kaisernum eins og bifreiðin hans pabba Var kölluð í þá daga. Efth' að faðir minn og móðir gift- ust hófu þau búskap á Karlagötunni en fluttust síðar í Kópavoginn og bjuggu saman á Borgarholtsbraut- inni allt fram á síðasta dag. Pabbi var heimakær og undi sér best heima í faðmi fjölskyldunnar. Faðir okkar ólst upp hjá foreldr- um sínum og bjó í Borgarnesi þar til hann fluttist til Reykjavíkur. Hann lærði á hljóðfæri eins og öll systkini hans af foreldrum sínum á yngri ár- unum og höfðu þau öll mikið yndi af tónlist. Skemmst er frá því að segja að Guðmundur heitinn bróðir hans lærði söng og ferðaðist viða um Evr- ópu og Bandaríkin og bjó þar alla sína ævi. Pabbi hafði ætíð mikla un- um af tónlist og spilaði hann með vinum í hljómsveit í Borgarnesi. Spilaði hann bæði á harmoniku og fiðlu en aðallega þó á orgel. Eftir hann liggja nokkur lög sem hann samdi. Hann tók einnig virkan þátt í félagsmálum á staðnum og lék nokk- ur hlutverk í leikritum. I Borgarnesi stundaði faðir okkar aðallega kaupmennsku og tók ásamt Jónasi við versluninni sem faðir hans rak. Einnig greip hann í ýmis störf. Meðal annars vann hann við vegavinnu á Holtavörðuheiði og keyrði vörubfl sem Jónas bróðir hans átti. Pabbi sneri sér síðan að leigubílaakstri þegar hann flutti til Reykjavíkur. Hugur hans stóð þó ætíð til kaupmennskunnar og starf- rækti hann Heildverslun Kristjáns Kristjánssonar heima eftir að hann fluttist í Kópavoginn. Fluttist Binni bróðir þá einnig heim og bjó þar þangað til hann kvæntist og hóf bú- skap. Fyrstu hjúskaparár foreldra minna voru oft erfið þar sem pening- ar voru af skornum skammti og faðir okkar vann oft á tíðum eftir því sem andleg heilsa leyfði, enda einnig erfitt að byggja upp verslunarstarf- semi á þessum árum. Sem smástrák þótti mér ætíð gaman að fá að skreppa með pabba í bæinn á Ka- isernum þótt biðin væri stundum löng fýrir lítinn dreng þegar pabbi þurfti að sinna erindum í bænum. Við fórum oft saman í Laugarnar, sem hann stundaði sér til heilubótar, og voru félagar mínir einnig ætíð velkomnir með. Það gladdi ætíð hjarta pabba þeg- ar menn komu í heimsókn á Borgar- holtsbrautina og voru allir ætíð vel- komnir. Sérstaklega lifnaði yfir hon- um þegar Óttar vinur hans birtist í dyrunum. Pabbi gaf sér ætíð tíma tfl að ræða um málefni líðandi stundar eða pólitíkina. Atti hann frumkvæði að því að Hitaveitan var lögð í Kópa- vogi á sínum tíma en hann sótti þá gjarnan fundi hjá Sjálfstæðsflokkn- um í Kópavogi. Uppbygging kaup- mannastéttarinnar var honum einnig hugleikin og gaf hann sér oft tíma til að ræða þau málefni við viðskiptavini Föður okkar þótti mjög vænt um okkur sytkinin og reyndi ætíð að að- stoða okkur eftir bestu getu þrátt fyrir ýmsa erfiðleika. Greiðasemi pabba var einna best lýst þegar hann heimsótti Guðmund bróður sem bjó á Manhattan í New York og gekk hann þá framhjá verslun einni í ná- grenninu. Sá hann þá verslunareig- andann, sem vai- fullorðinn, vera að þvo búðargluggana. Staldraði hann við hjá honum og bauðst til að þvo alla búðargluggana fyrir eigandann en fékk að launum fimm dali. Varð búðareigandanum ætíð að orði þegar hann sá pabba koma: „There goes a real gentleman from Iceland.“ (Þama fer sannur heiðursmaður frá Islandi.) Pabba þótti vænt um að hitta ætt- ingja okkar og vini hennar móður minnar í Þýskalandi. Komu þau þangað fyrst í heimsókn 1957 og naut hann þeirrar ánægju að mála og teikna í frítíma sínum. Fyrir þremur árum tókum við bíl á leigu, fórum öll saman út aftur og heim- sóttum ættingja móður minnar í Þýskalandi. Sú ferð var okkur mjög eftirminnileg en okkur auðnaðist að hitta Elísabetu frænku okkar í síð- asta skipti, en hún var orðin mjög fullorðin. Ætíð gladdist pabbi í vina- hópi, enda var hann fljótur að vinna hug allra og öllum þótti vænt um hann. Hugur pabba leitaði einnig á heimaslóðir í Borgamesi, þá sérstak- lega til systurdóttur sinnar, Gógóar frænku, og Helga og móður sinnar. Var ætíð vel tekið á móti okkur þeg- ar við komum í heimsókn til okkar fólks í Borgamesi. Ég minnist pabba sem einstaks ljúfmennnis og elskulegs drengs. Hann var hæglátur í fasi og gerði ekki miklar kröfur til lífsins. Alltaf þótti mér þó vænt um að sjá hann setjast upp á rúmstokknum og taka lagið á orgelinu fýrir okkur, sem hann gerði fram á síðasta dag, og hvemig gleðin skein úr augum hans um leið. Hann pabbi fékk sína síðustu ósk uppíýllta, að fá að búa heima hjá okkur á Borgarholtsbrautinni allt fram á síðasta dag, og er það einnig elskulegri móður minni að þakka, sem hugsaði svo vel og innilega um þig og stóð alltaf við hliðina á þér. Elskulegi pabbi, við þökkum þér fyrir allar þær ánægjulegu samvem- stundir sem þú gafst okkur í gegnum tíðina. Um leið og við söknum þín biðjum við góðan Guð að opna faðm sinn fyrir þér svo að þú megir hvfla í friði. Þinn Hans Konrad. t Elskuleg móðir mín og tengdamóðir, amma okkar og langamma, SIGRÍÐUR ÁSGEIRSDÓTTIR fyrrverandi Ijósmóðir frá Fossi á Skaga, sem andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 1. júlí, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 10. júlí kl. 13.30. Magnús Elíasson, Vignir Ólafsson, Margrét Eggertsdóttir, Ásgerður Hrönn Sveinsdóttir, Sigrfður Jónsdóttir, Kristín Magnúsdóttir, Sigurður R. Ragnarsson og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR ÞÓRDÍS BERGSDÓTTIR, Arnarhrauni 44, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 10. júlí kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á minningarkort Barnauppeldissjóðs Thor- valdsensfélagsins, Austurstræti 4, Reykjavík, sími 551 3509. Guðbjörg Ljlja Oliversdóttir, Jóhannes Örn Oliversson, Bergur Sigurður Oliversson, Sigríður Inga Brandsdóttir og barnabörn. INGA HÁLFDANARDÓTTIR- + Inga Hálfdanar- dóttir fæddist á Bakka á Mýrum í Austur-Skaftafells- sýslu hinn 20. maí 1924. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgerði á Höfn 23. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Hálfdan Ara- son og Guðný Ein- arsdóttir. Eftirlifandi eigin- maður Ingu er Ei- ríkur Júlíusson. Börn þeirra eru Guðný Sigrún og Magnús Ást- vald. títför Ingu fór fram frá Hafn- arkirkju hinn 29. maí. Okkar kæra Inga amma er látin eftir langa og erfiða baráttu við hinn illvíga sjúkdóm, krabbamein. Inga amma var okkur systkinunum alla tíð afar kær og við vorum svo heppin að eiga heima í næsta húsi við ömmu og afa og hittum við þau nær daglega. En nú er Eiki afi orðinn einn í húsinu þeirra og aldrei mun neinn geta fýllt upp í það tóm sem amma skilur eftir. Stundum gistum við krakkarnir hjá ömmu og afa, þá las amma gjarnan fýrir okkm- eða sagði okkur sögur og fór ætíð með bænir með okkur fyrir svefninn. Amma kunni líka mildð af kvæðum og þulum, sem hún fór oft með og kenndi okkur. Oft fórum við líka yfir til ömmu í mat og hún var einnig dugleg að gauka að okkur einhverju úr garðinum sínum, t.d. gulrót eða káli, eða þá ávöxtum, berjum eða einhverju öðru hollu og góðu. Það var alltaf gott að vera hjá ömmu, hún var svo hæg og róleg og hafði svo góð áhrif á þá sem í kringum hana voru. Hún var ætíð þolinmóð og natin við okkur systkinin ogg,, hafði gaman af að grúska með okkur og vinum okkar í hinu og þessu. Hún kenndi okkur margt um náttúruna, einkum jurtir og lagði áherslu á að við bærum virðingu fýrir náttúrunni. Það var alltaf svo gaman að gera eitthvað fýrir ömmu, hún var alltaf svo þakklát og hrifin af öllu því sem við bjuggum til sjálf handa henni, hvort sem það var lítil mynd eða heimabakaðar smákökur fyrir jólin. Hún hélt til haga hverju því smáræði sem við fóndruðum handa henni og allt voru það dýrgripir í hennar augum. Elsku amma, þótt þú sért ekkim lengur hér hjá okkur eigum við dýrmætar minningar um þig og vonandi höfum við lært það mikið af þér, að við getum tekið þig okkur til fýrirmyndar. Þú varst alveg einstök amma og ef einhver verður engill eftir dauðann, þá verður þú það örugglega. Sælir eru hjartahreinir því þeir munu Guð sjá. (Matt. 5.8.) Heiður Kristjana, Benedikt Snævar, Sigrún Inga, Sara Eik og Pálmi Geir. t Okkar ástkæra, ÁGÚSTA KRISTÓFERSDÓTTIR, Staðarhóli við Dyngjuveg, Reykjavík, lést mánudaginn 6. júlí. Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir ástvinir. sr + Ástkær eiginmaður minn, GUNNAR JÓNSSON, Blikanesi 14, Garðabæ, lést mánudaginn 6. júlí. Sigríður Regína Waage. + Ástkær eiginmaður, sonur minn og bróðir, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRKELL GUNNAR BJÖRGVINSSON, Eyravegi 5, Selfossi, sem lést á heimili sínu þriðjudaginn 30. júní, verður jarðsunginn frá Sel- fosskirkju föstudaginn 10. júlí kl. 13.30. Friðsemd Eiríksdóttir Sigríður Þórðardóttir, Sigurður Björgvin Björgvinsson, Þórður Þórkelsson, Lilja Hjartardóttir, Sigurvin Þórkelsson, Sveinbjörn Þórkelsson, Halla Thorlacius, Eiríkur Þórkelsson, Unnur Lísa Schram, Kristrún Þórkelsdóttir, Anton Örn Schmidhauser, Helga Þórkelsdóttir, Arnar Halldórsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.