Morgunblaðið - 08.07.1998, Page 40

Morgunblaðið - 08.07.1998, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Jl' KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Orgelleikur á undan. Léttur málsverður á kirkjuloftinu á eftir. Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyrir- bænir kl. 18. Neskirkja. Bænamessa kl. 18.05. Sr. Frank M. Halldórsson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisverður í safn- aðarheimilinu. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður í safnaðar- heimilinu á eftir. Fella- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30. Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel- komnir. Tekið á móti fyrirbænaefn- um í kirkjunni og í síma 567 0110. Kletturinn, kristið samfélag. Bæna- stund kl. 20. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Kl. 18.30 er fj ölskyldusamvera sem hefst með léttu borðhaldi á vægu verði. Kl. 19.30 er fræðsla og bæn. Bænastund kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir. BRIPS Lmsjón Arnór G. Ragnarsson SÍÐASTA leiknum í dag í karla- flokki var að Jjúka og unnu íslend- ingar Svía 25-5 og eru komnir í 2. sæti. I kvennaflokki unnu ísl. konum- ar Svía 18-12. Staðan: Karlaflokkur 1. Noregur 158 2. ísland 133 3. Svíþjóð 128 4. Danmörk 122 5. Finnland 100 6. Færeyjar 74 Kvennaflokkur 1. Svíþjóð 146 2. Noregur 132 3. Danmörk 123 4. Island 117 5. Finnland 106 Á morgun 4. júh' lýkur síðan þessu móti, þá leikur opni flokkur- inn við Norðmenn og Færeyinga. I kvennaflokki spila íslensku konumar við Finna og ljúka mót- inu með yfirsetu. I kvennaflokki spila: Hrafnhild- ur Skúladóttir, Soffia Daníelsdótt- ir, Amgunnur Jónsdóttir, Svala Pálsdóttir og fyrirliði er Stefanía Skarphéðinsdóttir. Upplýsingar um mótið er hægt að fá hjá Bridgesambandi Islands milli 13.00 og 17.00 í síma 587-9360. Heimasíða með úrslitum frá mótinu: http://home.sol.no/— perlange/nor- disk98p.html N or ðurlandamótið í Brids 1998 í DAG var spilaður seinni hálf- leikurinn við Finna í karlaflokki og unnu okkar menn 24-6, siðan léku íslendingar við Dani og töpuðu 7- 23, og síðasti leikurinn í dag er við Svía. I kvennaflokki var einnig spilað- ur seinni hálfleikurinn við Norð- menn og og töpuðu íslensku kon- umar 7-23. Síðan léku konumar við Dani og var jafntefli 16-14 fyrir Island og síðasti leikurinn í dag er við sænsku konumar. Á morgun, 4. júlí, lýkur síðan þessu móti. Þá leikur opni flokkur- inn við Norðmenn og Færeyinga. I kvennaflokki spila íslensku konumar við Finna og ljúka mót- inu með yfirsetu. I kvennaflokki spila: Hrafnhild- ur Skúladóttir, Soffia Daníelsdótt- ir, Amgunnur Jónsdóttir, Svala Pálsdóttir og fyrirliði er Stefanía Skarphéðinsdóttir. Upplýsingar um mótið er hægt að fá hjá Bridgesambandi Islands milli 13.00 og 17.00 í síma 587-9360. Heimasíða með úrslitum frá mótinu: http://home.sol.no/— perlange/nor- disk98p.html FEB 22. júní sl. spiluðu 13 pör í einum riðli. Mánudagur Eyjólfur Halldórsson - Pórólfur Meyvantsson 177 Þórarmn Ámason - Bergur Þorvaldsson 175 Karl Adólfeson-EggertEinarsson 171 Sæmundur Bjömsson - Magnús Halldórsson 165 Meðalskor loo Fimmtudaginn 25. júní spiluðu 15 pör. Lárus Hermannsson - Eysteinn Einarsson 253 Sæmundur Bjömsson - Magnús Halldórsson 239 Eyjólfur Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson 233 Eggert Einarsson - Karl Adólfsson 231 Meðalskor 210 Mánudaginn 29. júní spiluðu 14 pör Mitchell. NS Þórarinn Amason-BergurÞorvaldss. 226 Ragnar Halldórsson - Hjálmar Gíslason 184 AlbertÞorsteinsson-Bjöm Amason 173 AV Magnús Halldórsson - Sæmundur Bjömsson 195 BergfjótRafnar-SoffiaTheodórsdóttir 184 Lárus Hermannsson - Eysteinn Einarsson 174 Meðalskor 168 Og var þetta jafnframt síðasti spiladagur fyrir sumarfrí. Við byrj- um aftur 6. ágúst. ______________FBÉTTIR_____________ Námskeið um áráttu og þráhyggju hjá börnum og unglingum ENDURMENNTUNARSTOFNU N Háskóla íslands stendur fyrir námskeið um áráttu og þráhyggju hjá bömum og unglingum, einkenni þeirra, meðferð og framvindu, 14. júlí nk. í fréttatilkynningu segir: ,Árátta og þráhyggja er algengt vandamál hjá bömum og unglingum. Á nám- skeiðinu verður fjallað um sálfræði- legar og taugafræðilegar skýringar á áráttu og þráhyggju, svo og með- ferðarúrræði með megináherslu á hugræna atferlismeðferð. Námskeiðið er einkum ætlað sál- fræðingum, geðlæknum og öðrum sem koma að greiningu og meðferð bama og unglinga með þetta vanda- mál. Fyrirlesari verður þekktur fag- maður á þessu sviði, Derek Bolton. Hann er klínískur sálfræðingur við Institute of Psychiatry og Maudsley sjúkrahúsið við háskólann í London þar sem hann starfar við kennslu, meðferð og rannsóknir." Upplýsingar og skráning hjá E ndurmenntunar stofnun. Dagbók lögreglunnar í Reykjavík 3. til 6. júlí Ljósker skemmd við kirkju og legsteinn fannst á heimili HELGIN gekk vel fyrir sig hjá lögreglu þótt ekki hafi skort verk- efni. Meðal verkefna helgarinnar var að handtaka karlmann sem hafði skemmt þrjú Ijósker við kirkju í austurborginni. Ekki ligg- ur fyrir hvað manninum gekk til með athæfi sínu. Þá hafði lögreglan afskipti af fjómm ungmennum á mánudag og fannst á heimili þeirra legsteinn sem þau gátu ekki gefið skýringar á. Lögreglan fylgir strangt eftir útivistarreglum, enda getur það vart talist við hæfi að böm undir 16 ára aldri séu þar á ferH eftir mið- nætti. Allir sem lögreglumenn telja yngri en 16 ára eru krafðir um per- sónuskilríki til að sanna aldur sinn. Þeim sem ekki geta það er ekið í athvarf lögreglu, ÍTR og Félags- málastofnunar. Þessa helgi var 25 ekið þangað og foreldrar látnir sækja afkvæmi sín. Sá mannfjöldi sem safnast sam- an um helgar í miðbænum hlýtur að vera umhugsunarefni fleiri aðila en lögreglu. Þótt ekki hafi verið mikið um líkamsmeiðingar í mið- bænum undanfamar helgar eftir að hertar aðgerðir lögreglu hófust em alltaf tilvik þar sem til átaka kemur milli ölvaðra einstaklinga. Enda vart við öðru að búast þar sem fleiri þúsund ölvaðra einstak- linga dvelja stundum saman. Höfð vom afskipti af sex manns þar sem þeir köstuðu af sér vatni á almannafæri. Viðkomandi em sektaðir fyrir athæfi sitt, en lög- reglan hefur óskað eftir því við borgaryfirvöld að gerð verði brag- arbót á því að bjóða upp á salemis- aðstöðu fyrir borgara sem sækja miðborgina heim. Lausnar hlýtur að vera að vænta í því máU á næst- unni. U mferðarmálefni Mjög þung umferð var til borgar- innar síðla á sunnudag en hún gekk vel fyrir sig. Svo virðist sem umferð- arhraðinn hafi lækkað nokkuð enda var full þörf á því. Þessa helgi varð lögreglan þó að hafa afskipti af tutt- ugu ökumönnum vegna hraðaksturs og sjö vegna ölvunaraksturs. Bifreið var ekið á tvær aðrar kyrrstæðar á Langholtsvegi á laugardagskvöld. Tjónvaldur lagði á flótta en var handtekinn skömmu síðar af lögreglu. Hann er gmnað- ur um að hafa ekið bifreiðinni und- ir áhrifum áfengis og örvandi fíkni- efna. Líkamsmeiðingar Karlmaður var handtekinn eftir að hafa ráðist að manni í Banka- stræti að morgni laugardags. Þá komu tveir menn á miðborg- arstöð síðla nætur sama dag eftir að hafa orðið fyrir árás stúlku á veitingastað. Rætt var við stúlkuna sem sagði karlmanninn hafa sýnt sér mikinn dónaskap og því hefði hún slegið til hans. Karimanninum var ekið á slysadeild af lögreglu. Karlmaður var handtekinn eftir tilkynningu um að verið væri að bera hluti út úr íbúð í Árbæjar- hverfi. Lagt var hald á talsvert þýfi sem talið er vera úr geymslum á staðnum. Bifreið var fjarlægð af bílasölu á sunnudag en fannst síðar af lögreglu á Suðurlandsvegi við Bláfjallaafleggjara. Nokkrir ein- staklingar vora fluttir á lögreglu- stöð vegna málsins. Kveikt var í bifreið sem stolið var í Árbæjarhverfi að morgni sunnudags. Þá var einnig reynt að leggja eld að vinnuskúr í eigu borgarinnar við Rauðavatn. Þá var lögreglu tilkynnt innbrot í iðnaðarhúsnæði í vesturbænum að morgni sunnudags. Ekki liggur Ijóst fyrir hvenær innbrotið var framið en talsverðu magni af verk- fæmm var stoHð og unnar skemmdir á húsnæðinu. Tveir karl- menn á tvítugsaldri vom hand- teknir eftir að þeir höfðu unnið skemmdir á sýningartjöldum við Vatnsmýrarveg. Karlmennirnir vora vistaðir í fangageymslu. Brunar Lögreglu var tilkynnt um eld í húsnæði í vesturborginni aðfara- nótt mánudags. Svo virðist sem eldur hafi komið upp í kjallara hússins. Tvær konur vom fluttar á slysadeild vegna grans um reyk- eitmn. Slökkvilið reykræsti húsið. Aðfaranótt þriðjudags var lögreglu tilkynnt um reyk í húsnæði i Skeif- unni. Talsverðar skemmdir urðu á staðnum. Lokuðust inni í anddyri banka Tveir lokuðust inni í anddyri banka í miðbænum að morgni laug- ardags. Svo virðist sem bilun hafi orðið á sjálfvirku opnunarkerfi. Einstaklingamir höfðu ekki mikla biðlund og bmtu sér leið út úr prís- undinni og vora horfnir er lögregl- an kom. Þrír vom handteknir á laugar- dag þar sem þeir vom að neyta fíkniefna í nágrenni við Hlemm- torg. Á einstaldingunum fundust ætluð fíkniefni og sprautur. R A Ð A U (3 L V S 1 i N G A HÚ5NÆÐI ÓSKAST íbúð óskast Fjölskylda utan af landi óskar eftir 4—5 herb. íbúð eða einbýlishúsi til leigu á höfuðborgar- svaeðinu. Góðri umgengni og öruggum greiðslum heitið. Ahugasamir hafi samband við Unnstein í síma 434 1450 eða 853 4914. TIL SÖLU Veitingahús í Vestmannaeyjum til sölu Húseignin Kirkjuvegur21, sem er í eigu Spari- sjóðs Vestmannaeyja, er til sölu. Hér er um 3ja hæða hús að ræða. Hús þetta hefur verið notað undir veitingarekstur undanfarin ár. Allar nánari upplýsingarveitirsparisjóðsstjóri í síma 481 2100. Sparisjóður Vestmannaeyja. TILKYMWIIMGAR Kaupi gamla muni s.s. skrautmuni, bækur, bókasöfn, myndir, mál- verk, silfur, silfurborðbúnað, jólaskeiðar, Ijósa- krónur, bollastell, gömul póstkort, íslensk spil og eldri húsgögn stór og smá. Upplýsingar í símum 555 1925 og 898 9475. Geymið auglýsinguna. ATVINNUHÚSNÆÐI Bíldshöfði 73,5 fm rými með 3,8 m lofthæð. Einn salur. WC. Góðar innkeysludyr. Verð 3,9 millj. Áhv. 1,1 millj. STÓREIGN FASTEIBNASALA Austurstræti 18, sími 551 2345. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF FERÐAFÉLAG # ÍSLANDS MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533 Miðvikudagur 8. júlí kl. 20.00 Kapellan — Gerðisstígur — Þorbjarnarstaðir Kvöldganga um forvitnilegar slóðir í samvinnu við Umhverfis- og útivistarfélag Hafnarfjarðar í fylgd Jónatans Garðarssonar. Ferð sem enginn ætti að missa af. Verð 500 kr., frítt f. börn m. fullorðnum. Brottför frá BSI, austanmegin, og Mörkinni 6. Hægt að koma á eigin farartækj- um á bílastæðið við Kapelluna. Dagsferð á Árbókarsíóðir, laugardaginn 11. júlf. Kl. 8.00 Hagvatn — Mosa- skarð. Ökuferð og um 7 km skemmtileg ganga frá Hagavatni að Mosaskarði við Línuveginn. Verð 2.800 kr. Fræðsluferðin 17.—19.7.: Leitin að Strandvíðinum. Dagskrá er tilbúin. Bókið strax. Helgarferðir: Þórsmörk 10.—12.7. og Fimmvörðuháls 11. —12.7. Sunnudags- og miðvikudags- ferðir í Þórsmörk. „Laugavegsferðir" eru byrj- aðar, næsta ferð 10.7. Víkumar sunnan Borgarf jarð- araystra 11.—15.7. Fararstjóri: ína Gísladóttir. Síð- asta tækifæri að panta er í dag. ÉSAMBAND ÍSLENZKRA ____r KRISTNIBOÐSFÉLAGA Háaleitisbraut 58. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Friðrik Hilmarsson tal- ar. Allir hjartanlega velkomnir. ÝMISLEGT ■ Stjömukort Persónulýsing, framtíðarkort, samskiptakort, einkatímar. Gunnlaugur Guðmundsson. Uppl. ■ síma 553 7075. Sendum í póstkröfu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.